Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Verksmiðja
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
15 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari410
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á þessari mynd er verið að byggja Ketilhúsið. Það er austasti hluti húsanna sem standa norðan við núverandi hafnarvigt og tilheyrðu síldarverksmiðjunni. Á myndinni er steypuvinna í gangi en stillansinn (turninn) vinstra megin er notaður til að hægt sé að hífa steypuna upp á efri plötu hússins sem er steypt. Líklega var spil á hrærivélinni til að hífa steypumálið upp. Myndin var tekin kringum 1945.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1702
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Litla bryggjan sem var þar sem nú er uppfylling og Miðgarður, sem er aðal löndunarbryggjan í dag. Bátarnir eru óþekktir en líklega er það Stígandi HU 9 sem liggur hægra megin við bryggjuna nær endanum. Trillan sem er þriðja frá hægri, vinstra megin við bryggjuna er Sigurður Jónsson HU 18. Bátarnir uppi í fjöru sem eru uppi í fjöru eru sennilega í botnhreinsun og málningu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1574
Þessi mynd frá 6. maí 2011 sýnir hvernig umhorfs var inni í þró verksmiðjunnar eftir að búið var að brjóta niður vesturvegg hennar. Milli súlanna á myndinni var færiband í botninum sem flutti síldina inn í verksmiðjuna sjálfa til vinnslu. Þess vegna var botninn í þrónum hafður hallandi inn að miðju eins og sjá má ef myndin er skoðuð vel.
Ólafur Bernódusson004
Tankurinn á myndinni var byggður til að geyma lýsi sem framleitt var í síldaverksmiðjunni. Lýsinu var dælt frá henni upp í tankinn, sem stóð eins og sjá má, vestan við sundlaugina. Ef grannt er skoðað sést að tankurinn er laskaður eftir að eitthvað fauk á hann í miklu roki. Hann var rifinn nokkru eftir að myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er líklega verði að bræða fiskúrgang til að framleiða úr þeim fiskimjöl. Gufustrókur stendur upp úr skorsteininum þannig að ilmurinn af framleiðslunni berst ekki eins mikið yfir bæinn. Bátarnir tveir eru óþekktir en aftan við þá sér í stefnið á ísfisks - Arnari Hu 1. Þá er ekki búið að brjóta niður þrærnar sem eru tengdar verksmiðjunni vinstar megin en þær eru nú horfnar.
Gréta 098
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1945. Á henni eru vinnupallar um skorsteininn, sem þó virðist fullbyggður, því hann er greinilega kominn í notkun. Mjölskemman er í byggingu. Þar er grindin komin og byrjað að klæða suður endann. Ekki er búið að byggja Salthúsið, sem í dag stendur ca. þar sem fólkið er á myndinni. Aftur á móti er bryggjan sýnileg, sem byggð var 1922, í skjóli af Hólsnefinu. Af henni sést ekki tangur né tetur í dag.
Skagaströnd - safn538
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Á myndinni er komið að því að leggja strenginn varlega niður í skurðinn. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1427
Myndin var tekin 4. febrúar 2011 ofan af efstu hæðinni í verksmiðjunni. Á henni sér ofan á þrærnar 12 sem notaðar voru til að geyma síldina í áður en hún fór inn í verksmiðjuna til bræðslu. Beggja megin við þrærnar voru hólf/skúrar en þar var geymt salt og/eða annað íblöndunarefni í síldina til að hún skemmdist ekki. þakið lengst frá okkur hylur aðrar fjórar þrær sem síðustu árin geymdu eitthvað annað en síld. Þrærnar voru svo brotnar niður og fjarlægðar í maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1612
Myndin var tekin inni í verksmiðju-skorsteininum 24. maí 2011. Eins og sjá má er hann klæddur innan með múrsteinum vegna hitans sem um hann fór. Stóra gatið til hægri var tenging skorsteinsins við risastóran gufuketil sem var inni í húsnæðinu við hlið skorsteinsins (Ketilhúsið). Þaðan var reykurinn leiddur í skorsteininn því ketillinn var kynntur með olíu - líklega svartolíu. Reykurinn fór svo auðvitað upp úr skorsteininum og kom þannig í veg fyrir að olíureykurinn lægi yfir höfninni og nágrenni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1556
Þetta mun vera ein af síðustu myndunum sem tekin var af verksmiðjuþrónum áður en þær voru brotnar niður og fjarlægðar. Vinnuvélarnar eru mættar til að byrja verkið. Eins og sjá má fengu listamenn útrás fyrir sköpunargáfu sína á stafninum og til eru þeir sem sakna skjaldarmerkisins. Myndin var tekin 3. maí 2011.
Skagaströnd - safn537
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Keflið er uppi á brekkunni neðan við Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið). Einbúinn og hluti verksmiðjubygginganna eru til hægri. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1525
Á myndinni eru Hólanes-frystihúsið næst okkur en síldaverksmiðjan fjær. "Kassarnir" fjórir til vinstri við frystihúsið tengdust kælikerfi þess. Verksmiðjan er ekki í rekstri og yfir þrærnar sér í Arnar Hu 1 (Japans Arnar). Ekki er vitað hveær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990.
Skagaströnd - safn541
Myndin var tekin 1947 þegar starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf stilltu sér upp í tröppunum upp á olíu/lýsistankinn sem þeir höfðu þá lokið við að smíða. Tankurinn stóð syðst undir Höfðanum ásamt öðrum af sama tagi. Starfsmennirnir héldu til í tjöldum við Höfðann meðan á smíðunum stóð. Mennirnir eru óþekktir. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Skagaströnd - safn540
Þessi mynd frá 1947 sýnir olíutank eða lýsistank í smíðum undir Höfðanum. Húsið á myndinni var byggt 1904 en kvisturinn kom síðar og einnig inngangurinn sem sést á myndinni. Húsið, sem var byggt fyrir verslunarstjóra Höfðaverslunar seinna Kaupfélags Skagstrendinga, gekk undir nafninu Verslunarstjórahúsið og seinna Kaupfélagshúsið. Húsið var rifið einhverntíma kringum 1980. Tjöldin á myndinni hýstu starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem unnu að byggingu tanksins og sáu líka um allan vélbúnað í síldarverksmiðjunni. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1526
Gömul mynd af frystihúsi Hólaness hf næst okkur og síldarverksmiðjunni, hvítmálaðri, fjær. Rörið sem lá frá verksmiðjunni yfir fjöruna í stóru skemmuna var notað til að koma mjölinu yfir í skemmuna þar sem það var sekkjað. "Hatturinn" sem grillir í við vinstri enda rörsins var nokkurs konar ryksuga sem sogaði mjölið milli húsanna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Leita í myndasafninu
Leita