Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Kirkjan á Skagaströnd

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
205 myndir
Flæði
Reitir
Óþekkt040
Hallbjörn Hjartarson á hestbaki á Kántrýhátíð. Fremst á myndinni til hægri eru konur að sýna kántrýdans.
Óþekkt126
Frá samkomu í Fellsborg eftir vígslu kirkjunnar. Gylfi Sigurðsson og Oddur Einarsson ræða málin við borðið en í bakgrunni eru talið frá vinstri: Torfhildur, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Sigríður Gestsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Óþekkt129
Frá samkomu í Fellsborg að lokinn vígslu kirkjunnar. Í forgrunni talið frá vinstri: Guðrún Lárusdóttir prestsmaddama á Mælifelli, Inga Björgvinsdóttir, Pétur Þ. Ingjaldsson, Lárus Ægir Guðmundsson og sitjandi er Árni Sigurðsson. Maðurinn í bakgrunni myndarinnar, til vinstri við höfuð Lárusar, er Pálmi Jónsson alþingismaður frá Akri.
Óþekkt118
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju færir Hega Gunnarssyni, yfirsmið við bygginguna, blóm sem þakklætisvott fyrir hans góðu störf.
Óþekkt127
Frá samkomu í Fellsborg að lokinn vígslu kirkjunnar. Kristján Hjartarson fyrrum organisti hvíslar í eyra séra Péturs Þ. Ingjaldssonar sem var sóknarprestur í Hólaneskirkju í 40 ár 1941 - 1981. Bak við þá sést í Þorvald Skaftason.
Guðmundur145
Hólaneskirkja, sú gamla, á messudegi. Sér í byrjunarframkvæmdir við þá nýju framan við gömlu kirkjuna.
Óþekkt124
Julian Hewlett á píanó og Skarphéðinn Einarsson á trompet í hófi vegna byggingar nýrrar Hólaneskirkju. Áheyrendur eru frá vinstri: Pálmi Jónsson Alþingismaður, Helga Sigfúsdóttir kona hans og Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Aðrir við borðið eru óþekktir. Við næsta borð eru Guðbjörg Viggósdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Óþekkt125
Kirkjukórar Hólaneskirkju og Blönduóskirkju syngja í veislu í Fellsborg vegna byggingar nýrrar kirkju á Skagaströnd
Óþekkt121

Óþekktur maðru færir nýrri Hólaneskirkju gjöf.

Guðmundur104
Á myndinni eru frá vinstri talið: Jóna Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Ólafur Ingibjörnsson,Hörður Ragnarsson, Kristín Kristmundsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016),Ingibjörg Kristinsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir
Guðmundur070
Bygging nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum. Myndin er sennilega tekin á messudegi því flaggað er við gömlu kirkjuna.
Mundi260
Gamla Hólaneskirkjan, til vinstri sést í Ásgarð og Herðubreið. Til hægri eru Stóra Berg og Iðavellir en fyrir miðri mynd eru Fellsbraut 4 til vinstri og Litla Berg til hægri.
larus062
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Jóhann Bjarnasson múrari frá Bjargi vinnur við holufyllingar utanhúss.
larus014

Síðasta messan í gömlu kirkjuni 6. október 1991.
Frá vinstri: Kristján Hjartarsson organisti, Séra Egill Hallgrímsson, Steindór Haraldsson meðhjálpari, Julian Hewlet organisti og kórstjóri.
larus067
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Gamla kirkjan frá 1928 í baksýn.
larus028
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Sameinaðir kirkjukórar Skagastrandar og Blönduóss syngja.
Mundi311
Fólk streymir úr Hólaneskirkju (eldri) eftir fermingu 1961.
larus079
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Prúðbúnir kirkjugestir. Systurnar Áslaug, Jóninna Þórey (d. 24.11.1994), Ragnheiður Birna (d.26.8.2008) og Aðalbjörg Hafsteinsdætur sitja fremstar í íslenskum búningum. Á næsta bekk eru frá vinstri: Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006). Á þriðja bekk má þekkja frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) og Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007). Enn aftar er Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002).
larus051
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Kirkjukórinn samanstendur af kórunum á Skagaströnd og á Blönduósi.
larus056
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Rosemary Hewlet leikur á þverflautu
larus022
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Jóhanna Linnet syngur við undirleik Julian Hewlet
larus077
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30 júlí 1989. Messan haldin í tilefni 50 ára afmælis Höfðahrepps. Konan fremst á myndinni er óþekkt. Á næsta bekk eru f.v.: Guðný Björnsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Jónína Valdimarsdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Á næsta bekk eru tvær óþekktar konur, Laufey Sigurvinsdóttir, Hrönn Árnadóttir, Sigurður Björnsson og Brynjar Sigurðsson í kerru. Aftar má þekkja Ingvar Jónsson frá Sólheimum sitjandi út við vegg. Særún Jónsdóttir situr framan við manninni í hvítu peysunni en það er Gunnar Reynisson. Aftan við Gunnar er svo Hörður Ragnarsson og Sigurjón Ástmarsson les í messuskránni.
larus065
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Unnið að uppslætti á kirkjuturninum.
larus042
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Kristján Hjartarson flytur frumort ljóð.
larus019
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Sigmar Jóhannesson og Sigurður Björnsson kirkjusmiðir fá viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Lárus Ægir Guðmundsson formaður bygginganefndar afhedir viðurkenningarnar.
larus055
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Skarphéðinn Einarsson leikur á trompet
larus076

Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfahrepps. fólkið á myndinni er, frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir velgjörðarmaður kirkjunnar við andlát sitt, Sólveig Róarsdóttir, Elín Njálsdóttir, Magnús Ólafsson, Elísabet Vattnes, Guðjón Guðjónsson (í bláum jakka), óþekkt, Guðrún Soffía Pétursdóttir Kristján Pétur Guðjónsson í fanginu, Guðjón Ebbi Guðjónsson og þorlákur Guðjónsson sitja við hlið hennar. Fyrir aftan þau eru Sigríður Ásgeirsdóttir, Jóhann Pétursson og Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka og óþekkt kona. Fremst á myndinnni er stúlkan Ragna Gunnarsdóttir sem horfir á myndavélina.

larus059
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Uppsláttur.
larus035
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Frá vinstri: Helgi Gunnarsson byggingameistari, Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall arkitektar kirkjunnar, Gunnar Einarsson innanhússarkitekt, Karl Ómar Jónsson rafmagnsverkfræðingur. Allir lögðu þeir hönd á plóginn.
larus036
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Byggingarnefndin, frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Gylfi Sigurðsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Steinnun Steinþórsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson formaður.
larus032
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Skarphéðinn Einarsson leikur á trompet við píanóundirleik Julian Hewlet.
Óþekkt128
Frá samkomu í Fellsborg að lokinni vígslu kirkjunnar. Talið frá vinstri. Julian Hewlet organisti kirkjunnar og þáverandi kona hans Rosemary á tali við Guðmund Sigvaldason sveitarstjóra. Í baksýn má sjá Hlíf Sigurðardóttur, Árna Ó. Sigurðsson og Adolf J. Berndsen.
Óþekkt130
Frá samkomu í Fellsborg eftir vígslu kirkjunnar. Þrjú úr kirkjukórnum. Talið frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Guðrún Sigurðardóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir
Óþekkt122
Sigmar Jóhannesson (til vinstri) og Sigurður Björnsson taka við blómum fyrir störf sín við byggingu Hólaneskirkju úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar.
Óþekkt117
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju færir kirkjusmiðunum Sigmari Jóhannessyni (til vinstri) og Sigurði Björnssyni blóm sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf. Fremst á myndinni má sjá Jón Ingvar Valdimarsson.
Óþekkt040
Framkvæmdir komnar vel á veg við nýja kirkju á Skagaströnd. Sú gamla sést í baksýn.
Óþekkt116
Helgi Gunnarsson vinnur að frágangi lóðarinna við Hólaneskirkju.
Óþekkt115
Baldur Haraldsson múrari vinnur við flísalögn í Hólaneskirkju.
Óþekkt119
Séra Egill Hallgrímsson heldur tölu í veislu til að fagna byggingu nýrrar Hólaneskirkju. María Alexandersdóttir og Linda Kristjánsdóttir hlusta á Egil.
Jón106

Nýja Hólaneskirkja í byggingu. Sú gamla er í baksýn. Myndin er sennilega tekin 1982.

larus050
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Fjöldi fólks var við vígsluna.
Mundi312
Fólk streymir úr Hólaneskirkju (eldri) eftir fermingu 1961.
larus043
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Lárus Ægir Guðmundsson formaður bygginganefndar afhendir formanni sóknarnefndar Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur lykil kirkjunnar.
larus084
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Páll Þorfinnsson rafvirki, sem sá um allar raflagnir kirkjunnar til vinstri á spjalli við Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt.
larus070
Altarið sem var notað í fyrstu messunni í nýrri hálfkláraðri Hólanesskirkju 30. júlí 1989.
larus072
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Á myndinni má sjá Guðbjörgu Viggósdóttur með barn og Særún Jónsdóttir sitjandi við hlið hennar. drengurinn í röndóttu peysunni er óþekktur en aftan við hann er Karl Rósinbergsson. Maðurinn í hvítu peysunni er Gunnar Reynisson síðan frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Magnús B. Jónsson, óþekktur, Sigurjón Ástmarsson, Magnea Harðardóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Vilhjálmur Skaftason og Helgi Gunnarsson.
larus006
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Séra Egill Hallgrímsson predikar og þjónar fyrir altari.
larus045
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.

larus068
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989. Haraldur Brynjar Sigurðsson og Kristínn Dís Sigurðsdóttir sem situr í fangi móður sinnar Margrétar Haraldsdóttur.
larus047
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Séra Egill Hallgrímsson við altarið.
larus048
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Séra Oddur Einarsson, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og séra Egill Hallgrímsson, en þeir þjónnuðu allir við Hólaneskirkju.
larus049
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Fjöldi fólks var við vígsluna.
larus054
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.
Lárus Ægir Guðmundsson formaður bygginganefndar í ræðustól.
larus066
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Gamla kirkjan frá 1928 í baksýn.
larus083
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Á spjalli á kirkjuloftinu eru frá vinstri, Páll Þorfinnsson rafvirki, Gunnar Einarsson innanhússarkitekt, Örnólfur Hall arkitekt, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Helgi Gunnarsson verktaki og óþekktur.
larus001
Sjómannadagskórinn við æfingar í kirkjunnu. Frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Karl Guðmundsson, Árni Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigurður Bjarnason, Jóel Kristjánsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Jósefsson, Sigmar Jóhannesson, Hafþór Gylfason, Gylfi Sigurðsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Egill Bjarki Gunnarsson. Við hljóðfærið situr Peter Weeler organisti.
larus074
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30 júlí 1989. Messan haldin í tilefni 50 ára afmælis Höfðahrepps. Á fremsta bekk eru, frá vinstri: Guðný Hjartardóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Elsa Kristjánsdóttir og Jóna Vilhjálmsdóttir. Á næsta bekk eru: Guðbjörg Ólafsdóttir með barn í fanginu, Teitný Guðmundsdóttir,Sigurbjörg Angantýrsdóttir. Á bekknum þar fyrir aftan eru: Bernódus Ólafsson (hálfur inn á myndinni) Guðný Finnsdóttir og Sigurður Magnússon. Standandi aftast má þekkja Gunnar Sveinsson, Rúnar Kristjánsson, Guðrúnu Hrólfsdóttur og Grétar Haraldsson sem er með myndavél fyrir hálfu andlitinu.
larus082
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Full kirkja af fólki í ófrágenginni kirkjunni.
larus029
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, sem var lengi í sóknarnefnd kirkjunar og mjög öflugur liðsmaður í fjáröflun fyrir byggingu hennar, flytur ræðu.
larus073
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 afmæli Höfðahrepps. Troðfullt í hálfkaraðri kirkjunni.
1
2
3
4
Leita í myndasafninu
Leita