Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Kirkjan á Skagaströnd
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
205 myndir
Flæði
Reitir
larus060
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Steypuvinna. Gamla kirkjan og Borgin vaka yfir framkvæmdum.
larus063
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Smiðir á vegum Helga Gunnarssonar vinna við þakfrágang á kirkjuskipinu 1989.
larus010
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991. Á myndinni má sjá Steindór Haraldsson, Elínu Njálsdóttur, Ólaf Magnússon, Gunnar Helgason, Eygló Gunnarsdóttur, Guðrún Angantýrsdóttir, Sigurbjörg Angantýrsdóttir, Jóhann Sigurjónsson og Sigurjón Guðbjartsson. Kirkjukórinn syngur við undirleik Julians Hewlet.
larus075
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri, óþekkt barn, Hrólfur Pétursson, Torfhildur Stefánsdóttir, óþekkt, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekktur, Pétur Eggertsson, Ólafur Bernódusson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Finnur Kristinsson, Jón Ingi Ingvarsson og Guðný Finnsdóttir.
larus061
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sökkullinn frágengin en unnið að steypuvinnu við byrjun á kirkjuturninum. Gamla kirkjan í baksýn.
larus064
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Kirkjuturninn steyptur 24. maí.
mundi514
Gamla Hólaneskirkjan sem var byggð á árunum 1926 - 1928 og vígð 17. júní 1928. Hún þjónaði söfnuðinum til 1991 þegar ný kirkja var vígð nánast á sama stað á Skagaströnd.
larus080
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989. Kirkjukórinn sem söng við athöfnina. Frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Kristján Hjartarson, Sigmar Jóhannesson, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Rosemary Hewlett. Við hljóðfærið situr Julian Hewlett.
hem022
Bærinn Spákonufell og útihús honum tilheyrandi eru til vinstri. Spákonufellskirkja er til hægri, á hlaðinu á Spákonufelli. Spákonufell var landnámsjörð Þórdísar spákonu og höfuðból sem átti stærstan hluta þess lands sem byggðin á Skagaströnd stendur á í dag. Kirkja stóð um það bil þar sem kirkjugarður sóknarinnar er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en kirkan var aflögð 1928 þegar ný kirkja - Hólneskirkja - var vígð niður á Skagaströnd.
larus091
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt og Örnólfur Hall arkitekt, á milli tveggja tíma - gamla kirkjan til vinstri og sú nýja til hægri.
larus089
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sigurjón Ástmarsrson vörubílstjóri t.v. og Jón Hannesson steypustöðvareigandi t.h. standa við vörubíl Sigurjóns
larus017
Vígsla nýju kirkjunnar þann 20. október 1991. Biskup Íslands, vígslubiskup og klerkar sem voru við vígsluna.
larus071
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989. Í íslenskum hátíðarbúning, frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994).
Jón Jónsson 117
Á myndinni eru frá vinstri. Steindór Haraldsson, Sr. Ægir Sigurgeirsson, Níels Grímsson, Sigurgeir Árni Ægisson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Hulda Árnadóttir og Birna Bjarnadóttir
Jón Jónsson 120
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
mundi552
Frá vinstri: séra Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996), sr Árni Sigurðsson (d.26.10.2020) , sr Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991). Húsin á bak við eru,næst götunni, frá vinstri: Sólvellir, samkomuhúsið Tunnan og rafstöðin.
Jón Jónsson123
Nýja kirkjan steypt. Gamla kirkjan í baksýn.
Jón Jónsson 119
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
Guðrún Guðbjörnsdóttir087
Sveinn Ingólfsson og Helga Jóhannesdóttir kona hans í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar í Fellsborg 1981.
Guðrún Guðbjörnsdóttir088
Í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) í Fellsborg 1981. Fremst á myndinni eru hjónin Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Viggó Brynjólfsson ásamt Kristjáni Hjartarsyni (d. 2.8.2003) frá Grund. Aftan við þau eru, talið frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) á Iðavöllum og Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) kona hans , Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), óþekktur, Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) og ?Ingvar Jónsson? (d. 18.1.2003).
Guðmundur Guðnason190
Myndin var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Réttarstörfum er líklega lokið og menn að undirbúa heimferð. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson í Hólaneskirkju 082
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson sóknarprestur talar í Hólaneskirkju (eldri).
Ólafur Bernódusson472
Þessi mynd var tekin 1991 sennilega á aðventukvöldi í desember. Krakkar syngja við undirleik flautu- og klarinet leikara. Presturinn er séra Egill Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson471
Fermingarbörn 1991. Fremst til vinstri situr meðhjálparinn Steindór R. Haraldsson. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, séra Egill Hallgrímsson, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Elfa Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólaína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson474
<p>Formleg vígsla Hólaneskirkju fór fram 20. október 1991. Á þessari mynd er verið að bera muni inn í kirkjuna. Fremstir á myndinni eru Steindór R. Haraldsson meðhjálpari og Sigurjón Guðbjartsson úr kirkjukórnum. Gylfi Sigurðsson og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) kórfélagar eru næst. Milli þeirra sést Árni Ólafur Sigurðsson og yfir öxlina á Gylfa sést Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý). Lengst til hægri grillir svo í Hallbjörn Hjartarson. </p>
Ólafur Bernódusson547
Hólaneskirkja og Spákonufellið 1996.
Hjördís Sigurðardóttir - safn039
<p>Starfsfólk Hólaneskirkju í desember 2000. Á myndinni eru tveir prestar því séra Magnús Magnússon, lengst til vinstri í fremstu röð, var að taka við af séra Guðmundi Karli Brynjarssyni, sem er lengst til hægri í sömu röð. Annars eru á myndinni konur þeirra beggja, organistinn, meðhjálparinn og kirkjukórinn. Í öftustu röð frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Halldór G. Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Einar Haukur Arason, Gylfi Sigurðsson, og Valdimar ?. Í næst öftustu röð eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Steindór R. Haraldsson meðhjálpari. Í fremstu röð kórfélaga eru frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Dagný Hannesdóttir, Kristín Blöndal, Kristjana Jónsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Sitjandi frá vinstri: séra Magnús, Berglind Guðmundsdóttir kona hans, Michael Jones organisti og stjórnandi kirkjukórsins, Kamilla Gísladóttir kona séra Guðmundar sem er lengst til hægri. Myndin var tekin í Hólaneskirkju. </p>
Skagaströnd - safn355
Á þessari mynd er verið að selja postulínsdiska til styrktar kirkjubyggingar á Skagaströnd. Á diskunum er mynd og áletrun. Eins og oft vill verða þá eru þessir diskar að öðlast meira og meira söfnunargildi eftir því sem lengra líður frá framleiðslu þeirra. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 560
<p>Hólaneskirkja nýrri í byggingu á hlaðinu á Hólaneskirkju eldri.</p>
Ólafur Bernódusson577
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson tók við pretsembætti við Hólaneskirkju í júní 1998. Með honum á þessari mynd er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) sem þá var ekkja eftir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) sem þjónaði á Skagaströnd í 40 ár.
larus078
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Konurnar tvær fremst á myndini eru óþekktar en á næsta bekk eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) kona hans, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990) og Guðný Finnsdóttir. Standandi eru frá vinstri: Finnur Kristinsson, Jón Ingi Ingvarsson, Guðný Finnsdóttir, Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992), Birna Blöndal, óþekkt, Gunnar Sveinsson, óþekktur, Rúnar Kristjánsson, Guðrún Hrólfsdóttir og Grétar Haraldsson með kvikmyndatökuvél.
larus088
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Frá vinstri: Páll Þorfinnsson rafvirki, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og Örnólfur Hall arkitekt.
larus015
Predikunarstóll Hólaneskirkju eldri. Myndin tekin 6. október 1991.
larus016
Myndin er af kirkjuskipinu inni í Hólaneskirkju eldri. Á henni er Steindór Haraldsson meðhjálpari lengst til hægri en hitt fólkið er óþekkt. Myndin var tekin 6. október 1991.
larus021
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Helgi Gunnarsson byggingameistari tekur við viðurkenningu fyrir vel unnin störf úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar formanns byggingarnefndar.
larus057
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991. Ólafur Skúlason biskup predikar en í kórnum sitja prestarnir Egill Hallgrímsson, Guðni Þór Ólafsson og Pétur Þ. Ingjaldsson sem er innstur.
larus081
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps.
larus005
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, til vinstri, hættir störfum 1981 og Séra Oddur Einarsson tekur við, milli þeirra eru bræðurnir Kristján Hjartarson organisti og kórstjórnandi vinstra megin og Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari hægra megin.
larus092
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalagnir.
larus087
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Helgi Gunnarsson yfirsmiður og verktaki í þungum þönkum.
larus069
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson í fyrstu messunni í nýrri kálfkláraðri Hólanesskirkju 30. júlí 1989.
larus040
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.<br>Biskupinn Herra Ólafur Skúlason við altarið og sóknarnefndarfólk ásamt prestum og meðhjálpara raða sér í kring. Frá vinstri: herra Bolli Gústafsson vígslubiskup á Hólum (1991 - 2002), Hallbjörn Hjartarson, herra Sigurður Guðmundsson fyrrverandi vígslubiskup á Hólum (1986 - 1991) áður prestur á Grenjaðarstað, Fjóla Jónsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, herra Ólafur Skúlason biskup, Steindór R. Haraldsson, Gylfi Sigurðsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson.
larus094
Frágangur lóðar Hólaneskirkju. Arkitektar kirkjunar eru: Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall.
Jón Jónsson122
Steypuvinna við nýju kirkjuna
Jón Jónsson124
Steypuvinna við Hólaneskirkju.
Jón Jónsson121
Steypuvinna við turninn á Hólaneskirkju
Guðrún Guðbjörnsdóttir083
Hjónin Sveinn Kristófersson (d.9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) njóta veitinga í kveðjuhófi séra Péturs Ingjaldssonar (d.1.6.1996) 1982 í Fellsborg
Guðrún Guðbjörnsdóttir089
<P>Við háborðið sitja talið frá vinstri: Jón Ísberg sýslumaður, Anna Aspar, séra Pétur Ingjaldsson, Dómhildur Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, ?Brigit? (kona Sigursteins), Sigursteinn Guðmundsson læknir, Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir. Lárus Ægir Guðmundsson er í ræðustól. Ungi drengurinn er Ólafur Kristjánsson en maðurinn með gleraugun er Kristján Sigurðsson faðir hans. Aftan við þá eru Kristine Jóhannsdóttir og Þorsteinn Húnfjörð bakari.</P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason900
Bylgja Angantýsdóttir í mars 1962
Jón Jónsson188
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Linda Hafdal er lengst til vinstri en Jóhanna Ólafsdóttir prestsfrú og Friðjón Guðmundsson málari eru í forgrunni.
Guðmundur Guðnason900
Myndin var tekin inni í Hólaneskirkju eldri. Fyrir dyrum er útför óþekkts einstaklings.
Ólafur Bernódusson476
<p>Formleg vígsla Hólaneskirkju fór fram 20. október 1991. Á þessari mynd er verið að bera muni inn í kirkjuna. Fremst eru Gunnlaugur Sigmarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir úr sóknarnefnd. Næst koma Guðbjörg Ólafsdóttir til vinstri og Fjóla Jónsdóttir úr byggingarnefnd kirkjunnar. Stefán Jósefsson og Hallbjörn Hjartarson eru næstir en séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur er fremstur prestanna til hægri. Séra Oddur Einarsson er til vinstri í annarri röð prestanna. Aðrir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson473
Þessi mynd var sennilega tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1991. Á fremsta bekk er Jón Ingi Ragnarsson lengst til vinstri og Heiða Berglind Fannarsdóttir við hlið hans. Á bekk númer tvö er Bæring Skarphéðinsson lengst til hægri, Sverrir Berndsen er næstur, Sonja Berndsen og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), amma þeirra tveggja. Á þriðja bekk eru Jóney Gylfadóttir lengst til hægri, þá Vilborg Magnúsdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Guðrún Hrólfsdóttir. Aftar má sjá m.a. Ásu Jóhannsdóttur, Ingunni Björnsdóttur og Önnu H. Aspar (d. 1.9.1999) lengst til vinstri.Hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) eru aftarlega fyrir miðri mynd. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson537
Gamla og nýja Hólaneskirkja. Nýja kirkjan var byggð rétt framan við þá gömlu sem seinna var rifin. Myndin var tekin vorið 1993.
Óþekktur ljósmyndari345
Spákonufellsbærinn og kirkjan að Spákonufelli. Þessar byggingar stóðu þar sem kirkjugarðurinn sóknarinnar er í dag. Samkvæmt Byggðin undir Borginni<font size="1"> </font> var alkirkja á Spákonufelli a.m.k. allt frá 1318 því frá þeim tíma er til máldagi kirkjunnar. Kirkjan á myndinni var fyrsta timburkirkjan, sem þarna stóð, en hún var byggð 1852. Fram að því höfðu kirkjurnar verið byggðar úr torfi og grjóti. Þessi var notuð þar til ný kirkja var svo vigð á Skagaströnd 17. júní 1928 og enn ný kirkja þar í október 1991. <font size="1">(Heimildir: Byggðin undir Borginni bls 34 - 37 og Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012 bls 26 - 28 eftir Lárus Ægi Guðmundsson).</font>
Ólafur Bernódusson570
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju sennilega í desember 1998. Börnin eru frá vinstri: Steinar Ólafsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Ástrós Vilhelmsdóttir, Elna Ragnarsdóttir (fjær), Sylvía Ósk Hrólfsdóttir (nær), Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Þórir Óskar Björnsson, Brynjar Max Ólafsson, Sunna Gylfadóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir og óþekkt barn. Lengst til hægri er séra Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur sem leiðir sönginn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 489
Hólaneskirkjur eldri og yngri. Eldri kirkjan, sem var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsmeistara ríkisins og byggð 1928, var rifin í febrúar 1992 eftir að sú nýja hafði verið tekin í gagnið.
Óþekktur ljósmyndari377
Þessi mynd var tekin í kaffiveislu hjá kirkjukór Hólaneskirkju. Tilefni veislunnar hefur sjálfsagt verið að hjá kórnum er aðkominn söngþjálfari. Frá vinstri: Kjartan? söngþjálfari, Ásmundur Magnússon (d.2.2.1996), Gestheiður Jónsdóttir (d.6.11.2010), Helga Kristjánsdóttir (d.3.6.2002), Jóhanna (Dúa) Bertelsdóttir, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Edda Pálsdóttir, Guðný Pálsdóttir (d. 3.12.2015) og Vilborg Jónsdóttir (d.?).
Ólafur Bernódusson603
Myndin var tekin í Hólaneskirkju á Gospelnámskeiði í júlí 2001 undir stjórn Óskars Einarssonar. Námskeiðinu lauk svo með messu þar sem tveir einsöngvarar sungu með kórnum. Á þessari mynd syngur Páll Rósinkrans einsöng en Óskar er við hljóðfærið. Í kórnum eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, þrjár óþekktar konur, Þórey Jónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir (nær), Agnes Sævarsdóttir (fjær), Björn Hannesson? (fjær), Kristjana Jóhannsdóttir (nær), Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekkt (næst), Inga Rós Sævarsdóttir (í miðið), Mikael Jón Clark (fjærst), Sigurður Bjarnason (fjærst), Guðbjörg Viggósdóttir (í miðið), Hjördís Sigurðardóttir (næst), Sólrún Ólína Sigurðardóttir (fjær), Aðalheiður Árnadóttir (nær), Sigurjón Guðbjartsson, Berglind Guðmundsdóttir (nær), Fannar Viggósson (fjær), Guðrún Sigurðardóttir, Þórarinn Grétarsson og séra Magnús Magnússon.
Ólafur Bernódusson592
Á myndinni er séra Guðmundur Karl Brynjarsson í hópi unglinga fæddra 1983 - 1985 í æskulýðsstarfi í Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir (framar) og Birna Sæmundsdóttir (aftar). Næsta röð: séra Guðmundur Karl, tvær óþekktar og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir). Strákarnir eru frá vinstri: Jón Oddur Hjálmtýsson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Gunnlaugur Briem, Vignir Örn Hafþórsson, Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Ernstsson og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
2
3
4
Leita í myndasafninu
Leita