Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Gamla Kirkjan á Skagaströnd

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
236 myndir
Flæði
Reitir
53_Kirkjan_gamla_ad_innan
Mynd tekin inn að altarinu í gömlu kirkjunni á Skagaströnd.
Óþekkt109
Mynd tekin inn eftir gömlu kirkjunni á Skagaströnd - Hólaneskirkju eldri.
Guðmundur060
Mynd tekin frá kirkjunni upp Fellsbraut. Heysátur eru í forgrunni á lóð kirkjunnar.
Guðmundur145
Hólaneskirkja, sú gamla, á messudegi. Sér í byrjunarframkvæmdir við þá nýju framan við gömlu kirkjuna.
Óþekkt113
Altaristafla og altari Hólaneskirkju eldri.
Óþekkt112
Hér er prédikunarstóllinn úr Hólaneskirkju eldri sem var í notkun frá 1928 til október 1991 en kirkjan var rifin skömmu síðar. Hún var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni. Prédikunarstóllinn er nú geymdur í kjallara núverandi Hólaneskirkju.
Guðmundur126
Næst kirkjudyrum Hólaneskirkju heilsast þær Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir (til vinstri) í Árnesi og Magnea Þorkelsdóttir (d. 10.4.2006) biskupsfrú (kona herra Sigurbjörns Einarssonar biskups). Maðurinn á myndinni er séra Bernharður Guðmundsson sem síðar varð rektor Skálholtsskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón106

Nýja Hólaneskirkja í byggingu. Sú gamla er í baksýn. Myndin er sennilega tekin 1982.

img003
Horft upp Fellsbraut í átt að gömlu kirkjunni. Stóra Berg er hægra megin við kirkjuna. Myndin var tekin einhverntíma snemma á áttunda áratugnum.
Mundi236
Mynd innan úr Hólaneskirkju - eldri. Seinna var orgelið fært aftast í kirkjuna og stóri ofninn á miðri mynd var fjarlægður eftir að rafhitun var komið fyrir í kirkjunni.
larus009

Síðasta messan í gömlu Hólaneskirkjunni 6. október 1991. Kirkjan var seinna afhelguð og í framhaldi af því var hún rifin. Hafði hún þá þjónað söfnuðinum í rúmlega 63 ár frá 17. júní 1928 þegar hún var vígð. Á myndinni er
Julian Hewlet organisti og Rosemary Hewlet undirleikari á þverflautu. Í kórnum eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason frá Bjargi, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) frá Vindhæli (aftast), Dagný Hannesdóttir, Hidigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) (gráhærður), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og Kristín Kristmundsdóttir. Allir kórfélagar, sem hér eru taldir og eru enn á lífi, þjóna nú í nýju kirkjunni nema Kristín sem hætti fyrir nokkrum árum. Kirkjugestir sem sjást á myndinni eru frá vinstri: feðgarnir Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurjón Guðbjartsson frá Vík. Við hlið Sigurjóns situr Hildu Inga Rúnarsdóttir, sem seinna vígðist til prests, og framan við þau þrjú sést Erla María Lárusdóttir.

myndir frá Skagaströnd 051
Frá útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963. Mikið fjölmenni var við útförina.
larus006
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Séra Egill Hallgrímsson predikar og þjónar fyrir altari.
myndir frá Skagaströnd 050
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963. Kona hans Karla Berndsen lengst til vinstri, Jón Björn Þórarinsson sonur, Eiður Hilmarsson tengdasonur og Hlöðver Þórarinsson sonur ásamt konu sinni Erlu Guðvarðsdóttir, fylgja kistunni. Bræður Þórarins, Steingrímur Jónsson til vinstri og Ingvar Jónsson til hægri á leið út úr kirkjunni.
larus008
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Steindór R. Haraldsson meðhjálpari les.
larus012
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.
Séra Egill Hallgrímsson predikar.
mundi404
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Sigrún Kristófersdóttir gengur niður tröppurnar en Steinunn Margrét Ellertsdóttir er í kirkjudyrunum
Guðmundur Guðnason724
Fermingarbörn ganga til kirkju. Frá hægri: Guðbjörg Viggósdóttir, Guðbjörg V. Kristinsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Heiðar Friðriksson, óþekktur, Ingvar Ástmarsson, óþekktur, Magnús Guðlaugsson, óþekktur.
Guðmundur Guðnason826
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason717
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Ef þú veist hver óþekkti leikarinn er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason881
Tryggvi Jónsson frá Ártúnum. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason824
Hrefna Þorbjörnsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason725
Þröstur Þorbjörnsson frá Akurgerði
Guðmundur Guðnason815
Systkini úr Akurgerði. Þröstur Þorbjarnarson og Sonny Lísa Þorbjarnardóttir.
Guðmundur Guðnason816
Björn Hafsteinsson Fossdal á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason821
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason812
Sigurður Pálmason á femingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason875
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason809
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri með óþekktum vini sínum uppi á Höfða. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekkt111
Söngtafla úr Hólaneskirkju eldri.
Óþekkt110
Steindór Rúniberg Haraldsson mátar sig í predikunarstól Hólaneskirkju eldri. Steindór varð seinna meðhjálpari við Hólaneskirkju í mörg ár.
Guðmundur033
Presturinn og gestur flýta sér til messu í Hólaneskirkju.
guðmundur216
Hólaneskirkja (eldri) stóð mjög nærri þeim stað sem núverandi kirkja er. Kirkjan þjónaði Skagstrendingum frá 1928 - 1991.
Guðmundur069
Á myndinni sjást framkvæmdir við byggingu nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum.
Guðmundur070
Bygging nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum. Myndin er sennilega tekin á messudegi því flaggað er við gömlu kirkjuna.
Guðmundur135
Messa í gömlu Hólaneskirkjunni.
Óþekkt088
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson les úr Biblíunni í Hólaneskirkju (gömlu) á jólum.
img007
Myndin er tekin frá gömlu kirkjunni, fremst fyrir miðju er Eyri (Holt), vinstra megin er gamli Kántrýbær, sem þá var verslun. Myndin var tekin á áttunda áratugnum af óþekktu tilefni.
myndir frá Skagaströnd 049
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga sem lést af slysförum 1963. Kistuna bera, frá vinstri: Kristinn Jóhannsson, Þórbjörn Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Magnús Daníelsson og Óli Bogason. Aðstandendur og gestir á leið út úr kirkjunni.
larus067
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Gamla kirkjan frá 1928 í baksýn.
larus007

Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991.Á fremsat bekk sitja hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir. Á næsta bekk eru Hlíf Sigurðardóttir með dóttur sína Elvu Dröfn Árnadóttur. Á þriðja bekknum sitja, frá vinstri: Guðný Hjartardóttir, Skafti Fanndal Jónasson og kona hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir. Næsti bekkur þar fyrir aftan geymir: Hauk Gunnlaugsson, Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur óþekkt barn og Hörð Ragnarsson. Aftan við Hörð sér í Jónínu Valdimarsdóttur og aftan við hana sér í feðginin Ásu Jóhannsdóttur og Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka. Yfir hægri öxl Jóhanns sér í Pétur Eggertsson en aftan við Ásu er Sylvía Hrólfsdóttir. Á ganginum situr Fjóla Gísladóttir með stafinn sinn. Aðrir eru óþekktir.

larus066
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Gamla kirkjan frá 1928 í baksýn.
mundi403
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Pétur Jóhannsson og Sigurður Bjarnason ganga niður kirkjutröppurnar. Stúlkan er óþekkt.
larus060
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Steypuvinna. Gamla kirkjan og Borgin vaka yfir framkvæmdum.
larus061
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sökkullinn frágengin en unnið að steypuvinnu við byrjun á kirkjuturninum. Gamla kirkjan í baksýn.
mundi514
Gamla Hólaneskirkjan sem var byggð á árunum 1926 - 1928 og vígð 17. júní 1928. Hún þjónaði söfnuðinum til 1991 þegar ný kirkja var vígð nánast á sama stað á Skagaströnd.
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga 1963 að mig mynni
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga árið 1963 frá Hólaneskirkju. Fólkið á myndinni er,
talið frá vinstri: Kristinn Jóhannsson, Jóhann Pétursson. Guðmundur Jóhannesson, Karla Berndsen kona Þórarins, Þórbjörn Jónsson, Magnús Daníelson frá Syðri-ey, Óli Jón Bogason og Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
larus005
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, til vinstri, hættir störfum 1981 og Séra Oddur Einarsson tekur við, milli þeirra eru bræðurnir Kristján Hjartarson organisti og kórstjórnandi vinstra megin og Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari hægra megin.
Guðmundur Guðnason701
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, óþekkt og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason853
Áslaug Jónsdóttir Hólanesi og Margrét Anna Þórðardóttir Brimnesi. Báðar fæddar 1943. Myndin líklega tekin sumarið 1958.
Guðmundur Guðnason818
María Bjarnadóttir (d.1984) á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason827
Börnin í Réttarholti. Frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Erla Másdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Vilborg Másdóttir, Árni Hall Másson og Ómar Másson (d. 16.6.2002). Myndin var tekin 1964 eða 1965.
Guðmundur Guðnason805
Þessi litli strákur heitir Þórður Gylfason
Guðmundur Guðnason819
Fritz Bjarnason frá Bjargi
Guðmundur Guðnason814

Frændurnir Árni Björn Birgisson (til vinstri) og Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason873
Hjónin frá Njálsstöðum með barnabörn sín. Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) með Rut Jónasdóttur og Hafsteinn Jónasson (d.11.6.1975) með Hörð Jónasson. Soffía og Hafsteinn fluttu til Skagastrandar eftir að þau hættu búskap og bjuggu í Sæbóli.
Guðmundur Guðnason811
Lengst til vinstri á þessari mynd er María Jónsdóttir úr Sænska húsinu (Hólabraut 23), ?Margrét Valdimarsdóttir? Hólabraut 1 og óþekkt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason716
Hólaneskirkja í kringum 1970.
Guðmundur Guðnason889

Björn Aðils Kristjánsson (d. 25.5. 2005) frá Þórshamri með syni sína tvo árið 1963. Hægra megin við Björn er Hannes Björnsson en vinstra megin er Kristján Björnsson

Guðmundur Guðnason808
Ester Axelsdóttir frá Læk á fermingardaginn 1962.
1
2
3
4
Leita í myndasafninu
Leita