Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Gamla Kirkjan á Skagaströnd

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
236 myndir
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn189
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrir utan kirkjuna sína, Hólaneskirkju á Skagaströnd. Pétur þjónaði í kirkjunni í af mikilli manngæsku í 40 ár sem prestur og prófastur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn199
Pétur Eggertsson heldur á synin sínum Brynjari Péturssyni undir skírn hjá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) 25. desember 1973 í Hólaneskirkju eldri. Hjá þeim stendur elsti sonur Péturs, Hrólfur Péturson, í matrosafötunum sínum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn187
Myndin var tekin vorið 1971 í Hólaneskirkju eldri. Þá var kirkjuskólinn alltaf kallaður sunnudagaskóli enda haldinn á sunnudagsmorgnum. Páll Jónsson skólasjóri Höfðaskóla, sem er maðurinn á myndinni, starfaði líka við kirkjuna. Á myndinni er hann að afhenda krökkunum einhver skjöl vegna starfsins yfir veturinn. Til hægri við Pál eru Ástmar Kári Ástmarsson til hægri og Vihelm Björn Harðarson til vinstri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason025
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri í efri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Ómar Þorbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020). Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d.3.7.2015), Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Guðmundur Guðnason190
Útför frá Hólaneskirkju í september 1962. Kista Írisar Jónsdóttur, sem drukknaði í Skagastrandarhöfn 8. september 1962, í Hólaneskirkju (eldri).
Guðmundur Guðnason861
Fermingarbörn 1961 í Hólaneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Jóhann Ingibjörnsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) organisti, Búi Birgisson (d.18.9.2009), Sigurður Bjarnason og Ísleifur Haraldsson. Miðröð frá vinstri: Hrefna Júlía Viggósdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Fremsta röð frá vinstri: Steinunn Margrét Ellertsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason244
Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju (eldri).
Árni Geir Ingvarsson - safn

Á myndinni sjást tvær Hólaneskirkjur. Sú nýrri var byggð nánast á tröppunum á gömlu kirkjunni. Sú gamla var afhelguð og rifin.

Guðmundur Guðnason821

Frænkurnar Anna Bára Sigurjónsdóttir (til vinstri) og Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.

Guðmundur Guðnason809
Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn 1962.
Guðmundur Guðnason717
Kristján Hjartarson organisti og kórstjóri gengur til Hólaneskirkju. Bak við hann sést húsið Sólvellir sem nú er horfið.
Guðmundur Guðnason819
Sigurður Pálmason (til vinstri) og Gissur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason277
Prestafundur í Hólaneskirkju - eldri. Frá vinstri: óþekktur, séra Árni Sigurðsson (d.26.10.2020), séra Ólafur Hallgrímsson og séra Pálmi Matthíasson. Fyrir framan situr prófasturinn, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Guðmundur Guðnason871
Steinunn Margrét Ellertsdóttir ( til vinstri) og Hrefna Júlía Viggósdóttir á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason823
Sigurður Pálmason á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason336
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson með fermingardrengnum Kristjáni Karlssyni í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
guðmundur216
Hólaneskirkja eldri var notuð frá 1928 - 1991 sem sóknarkirkja á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason873
Steinunn Margrét Ellertsdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason825
Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason338
Fermingarbörn 1980 í Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri í fremstu röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Guðmundur Guðnason877
Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir) á fermingardaginn sinn 1961.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri. Á myndinni er hópur fólks sem komið hefur í heimsókn til að skoða kirkjuna. Lengst til vinstri er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) stendur aftan við hana. Í kirkjudyrum stendur séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og framan við hann er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason827
María Bjarnadóttir (d.1984) á fermingardaginn sinn 1962.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Prestarnir tveir á myndinni eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir í Hólaneskirkju eldri þar sem þessi mynd var tekin.
Guðmundur Guðnason817
María Bjarnadóttir (d.1984) (til vinstri) og Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Ólafur Bernódusson 939
Hólaneskirkja eldri rifin 24. febrúar 1992. Kirkjan var byggð 1925 og þjónaði því söfnuðinum í 67 ár.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 129
Börnin á myndinni voru fermd í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1985. Í fremri röð eru, frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, Erlingur Ottósson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Vigdís Ómarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Viggó Magnússon, Ægir Thorberg Jónsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson og Baldur Bragi Eðvarðsson. Presturinn, séra Oddur Einarsson, situr framan við hópinn.
Óþekktur ljósmyndari661
Þessi mynd af Spákonufelli var tekin fyrir 1927 því þá var kirkjan, sem er lengst til hægri, rifin og ný kirkja síðan vígð á Skagaströnd 17. júní 1928. Þessi hús stóðu nokkurn vegin þar sem kirkjugarðurinn er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Séra Pétur og Dómhildur - safn190
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) á kunnuglegum stað í predikunarstólnum í Hólaneskirkju eldri að tala við söfnuð sinn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn186
Myndin var tekin vorið 1971 í Hólaneskirkju eldri. Þá var kirkjuskólinn alltaf kallaður sunnudagaskóli enda haldinn á sunnudagsmorgnum. Fremst til vinstri er Víkingur Viggósson. Stúlkan á fjórða bekk, í hvítum buxum, er Ásdís Þórbjarnardóttir en í næsta bekk aftan við hana er Sólveig Gunnarsdóttir til hægri og Lilja Kristinsdóttir til vinstri. Standandi lengst til hægri á myndinni er ?Laufey Berndsen?. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn195
Fermingarbörn vorið 1974 í Hólaneskirkju eldri ásamt prestinum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Þorgeir Haukdal Jónsson, óþekktur, Vigdís Viggósdóttir, Þórdís Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, óþekkt, óþekkt, Sigurjón Ingólfsson (fjær), Sigurður Guðmundsson (nær) og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu fermingarbörnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn194
Fermingarbörn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hólaneskirkju eldri á fermingardegi sínum 29. apríl 1979. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir?, Björk Sveinsdóttir, séra Pétur, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Margrét Ólafsdóttir. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Guðbjartur Sævarsson, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Óli Axel Óskarsson, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Sigurður Jónsson.
Guðmundur Guðnason701

Kirkjukór Hólaneskirkju. Í öftustu röð eru, frá vinstri: Georg Hjartarson (d.13.9.2001), Sævar Bjarnason, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989). Í miðröðinni eru, frá vinstri: Edda Pálsdóttir (d. 8.4.2016), Elísabet Árnadóttir, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Hjördís Bára Þorvaldsdóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti og stjórnandi, Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996), Áslaug Hafsteinsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.

Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamla Hólaneskirkja áður en framkvæmdir hófust við nýju kirkjuna. Þessi kirkja var hönnuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins og var vígð 1928. Húsið hægra megin við kirkjuna er Stóra Berg.
Guðmundur Guðnason073
Sveinn Hall Másson frá Réttarholti á fermingardaginn sinn 1967
Guðmundur135
Séra Oddur Einarsson í predikunarstólnum í gömlu Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason071
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu). Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Inga Stefánsdóttir, Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson, Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson, og Ingibergur Guðmundsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Guðmundur Guðnason011

Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) leiðir fermingarbörn til Hólaneskirkju 1968. Fremst fer Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) en Guðrún Lárusdóttir er á bak við hana. Síðan koma Guðbjörg Vera Kristinsdóttir (Bugga), Sigríður Gestsdóttir, og Linda Kristjánsdóttir. Strákarnir eru frá vinstri: Heiðar Elvan Friðriksson, Hallbjörn Ágústsson, Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018), Hilmar Gunnarsson, Magnús Guðlaugsson og bak við grindverkið eru þeir Kjartan Bjarnason og Ragnar Ingvarsson.

Guðmundur Guðnason279

Myndin er tekin í Hólaneskirkju-eldri. Prestarnir eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, séra Robert Jack og séra Oddur Einarsson.

Guðmundur Guðnason887
Árgerð 1949 gengur til fermingar í Hólaneskirkju 1963 með séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í fararbroddi.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamla Hólaneskirkja máluð. Málararnir eru óþekktir en sennilega er um fólkið í sóknarnefndinni að ræða.
Guðmundur Guðnason807
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason725

Fermingarbörn ganga frá kirkju eftir fermingu 1968. Frá vinstri: Óþekktur, Ingvar Ástmarsson, Magnús Guðlaugsson, Kjartan Bjarnason, Ragnar Ingvarsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðbjörg Kristinsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Linda Kristjánsdóttir.

Guðmundur Guðnason889
Fermingarbörn ganga til kirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Maðurinn á myndinni sem er að stilla myndavélina sína er Þórður Jónsson (d.25.12.2009). Fermingarbörnin eru óþekkt.
Guðmundur Guðnason811
Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason875
Hrefna Júlía Viggósdóttir á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason805
Ferming í Hólaneskirkju 1962. Fermingarbörnin eru frá vinstri: aftasta röð: Sigurður Pálmason, Árni Björn Birgisson og Hrefna Þorbjörnsdóttir. Miðröð: Björn Hafsteinsson Fossdal (d.13.4.1983), Gissur Jóhannsson, Eðvarð Yngvason (d.29.5.2011), María Bjarnadóttir (d.1984), Ester Axelsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Fremsta röð: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, María Jóndóttir og Árni Björn Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason881
Fermingarbörn 1965 ganga til kirkju með prestinum, séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Stúlkurnar fremst á myndinni eru Ragnheiður Sigurjónsdóttir (til hægri) og Kristín Björnsdóttir. Næstir fyrir aftan þær koma Björn Bragi Sigmundson og Kristófer Einarsson. Aftast í hópnum eru, talið frá vinstri: Sigurður Kristinsson, Reynir Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur126

Þessi mynd var tekin fyrir utan gömlu kirkjuna á Skagaströnd. Konan í dökku kápunni er Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir úr Árnesi. Hér heilsar hún frú Magneu Þorkelsdóttur biskupsfrú með handabandi. Maðurinn á myndinni er séra Bernharður Guðmundsson tengdasonur Magneu, þá var hann æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. Aðrir eru óþekktir.

Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) fyrir altarinu í Hólaneskirkju eldri í einni af ótalmörgum athöfnum sínum á 41 árs ferli sínum sem sóknarprestur á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason813
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn 1962.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Fermingarmynd tekin í Hólaneskirkju (eldri) af fermingarárgangi 1969. Fremsta röð frá vinstri: Elsa Lára Sveinbjörnsdóttir Blöndal, Anna Guðmannsdóttir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Eygló Gunnarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir, Lára Guðmundsdóttir og Pálfríður Bjarnadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Grímkell Pálsson, Indriði Grímsson, Arelíus Viggósson, Jón Ingvar Valdimarsson og Stefán Kristinsson.

Guðmundur Guðnason815
Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Sigríður Gestsdóttir samferða Dómhildi Jónsdóttur (d. 18.10.2012) (til hægri) að ganga upp kirkjutröppurnar heim að gömlu Hólaneskirkju. Milli þeirra sér í Sólvelli.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 043
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Hólaneskirkju eldri. Þá fór þar fram messa sem fermingarsystkin frá árinu 1963 sóttu. Á myndinni les eitt þeirra, Kolbrún Jónsdóttir, úr ritningunni. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), sem fermdi hópinn, hlýðir á lesturinn til vinstri.
1
2
3
4
Leita í myndasafninu
Leita