Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Höfðaskóli

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Jón096
Skólaskemtun í Höfðaskóla 1984. Ingvar Þór Jónsson á trommum, Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur og Viggó Magnússon spilar á bassa. Hans Birgir Högnason fylgist með.
Jón080
Grímuball í Höfðaskóla 1984. Barnið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón058
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á tónleikum eða balli í skólanum. Lengst til vinstri er er líklega Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) á gítar. Trommarinn er Ingvar Þór Jónsson og söngkonan er Þorbjörg Eðvarðsdóttir. Gítarleikarinn lengst til hægri er Viggó Magnússon.
Jón079
Skólaskemmtun í Höfðaskóla 1984. Stúlkan fremst á myndinni með rauða blöðru er Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna). Fyrir ofan hana sér í Soffíu Lárusdóttur.
Jón081
Grímuball í Höfðaskóla 1984. Á myndinni má meðal annars þekkja Þröst Árnason í gulum bol lengst til vinstri. Rauðhærði drengurinn á gólfinu er Björn Sigurðsson og fyrir aftan hann stendur Svanur Árnason með áberandi bláan miða á bringunni.
mundi330
Frá vinstri í fremstu röð: Guðrún Á. Lárusdóttir, Sigríður Þ. Gestsdóttir, Guðbjörg V. Kristinsdóttir, Guðbjörg B. Viggósdóttir og Linda Kristjánsdóttir. Miðröð frá vinstri: Hallbjörn Ágústsson, Ingvar Ástmarsson, Kjartan Bjarnason og Ragnar Ingvarsson. Aftasta röð frá vinstri: Heiðar E. Friðriksson, Hilmar O. Gunnarsson, Níels Grímsson og Magnús Guðlaugsson. Myndin var tekin á skólatröppunum.
Guðmundur Guðnason700
Myndin er tekin í Spákonufellsrétt. Stúlkan í köflóttu skyrtunni er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi og ljóshærða stúlkan er Guðbjörg Kristinsdóttir. Skeggjaði maðurinn með húfuna er Einar Haraldsson fá Kjalarlandi (seinna í Dagsbrún). Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Bernódus Ólafsson og til hægri við hann er Jóhann Jakobsson.
Guðmundur Guðnason701
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, óþekkt og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason703
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Tveir óþekktir leikarar, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9) og tveir óþekktir leikarar. Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir078
Ungar skólasystur úr Höfðaskóla syngja á skólaskemmtun í Fellsborg. Fremst situr Steinunn Berndsen og leikur undir á gítar. hinar eru frá vinstri: Valdís Edda Valdimarsdóttir, Kenny Hallbjörnsdóttir, Elín Íris Jónasdóttir, Erna Högnadóttir og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir.
Guðmundur Guðnason718
Héðinshöfði sem stóð við Skagaveg. Þar bjuggu Kristinn Jóhannsson og Guðný Finnsdóttir með sínum börnum í suðurendanum en Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir í norðurendanum með börnin sín. Húsið hefur verið rifið.
Guðmundur Guðnason721
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Jóhanna Ásmundsdóttir, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var tekin á sýningu en Stendór og Jóhanna léku þar kærustpar og var strítt á því í skólanum það sem eftir lifði vetrar.
Guðmundur Guðnason716
Hólaneskirkja í kringum 1970.
Guðmundur Guðnason956
Dansað á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason957
Dansað á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Þekkja má Kjartan Bjarnason í miðjum hópnum með mikið ljóst hár og Lilju Guðjónsdóttur og Grétu Ingvarsdóttur sem báðar eru á dansgólfinu.
Guðmundur Guðnason954
Dansað í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla
Guðrún Guðbjörnsdóttir079
Frá vinstri eru þetta félagarnir Fannar Viggósson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Guðmundur Jónsson að skemmta á skólaskemmtun hjá Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru þeir að "mima" lagið tvær úr Tungunum.
Guðmundur Guðnason961
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg
Guðmundur Guðnason955
Dansað við undirleik hljómsveitar á árshátíð Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason953
Skólasýning á óþekktu leikverki í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla. Fólkið í myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson059
Páll Leó Jónsson var skólastjóri í Höfðaskóla 1986 - 1991 er hann tók við skólastjórastöðu á Blönduósi. Á myndinni er Páll í ræðustól í Fellsborg við skólaslit.
Elínborg með bekk Kalla og Begga 009
Bekkjarmynd af börnum í Höfðaskóla fæddum 1953. Myndin gæti verið tekin ca 1963. Aftasta röð frá vinstri: Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) Lækjarhvammi, Böðvar Jónsson Sænska húsinu, Ólína Bjarnadóttir Bjarnarhöfn, Gylfi Jóhannsson Lækjarbakka og Sveinn Mássson Réttarholti. Miðröð frá vinstri: Sigurður Þorbjörnsson Akurgerði, Gísli Bergsson Hólanesi, Jón Geir Jónatansson Höfðabrekku, Jón Jósefsson Reykholti, Finnur Kristinsson Héðinshöfða og Guðmundur Kristinsson Bræðraborg. Fremsta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson Hólabraut 25, Halla Júlíusdóttir Höfðabergi, Elínborg Jónsdóttir kennari Röðulfelli, Edda Þórarinsdóttir Höfðaborg og Ingibergur Guðmundsson Hólabraut 25.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn054
Bekkjarmynd tekin á tröppum Höfðaskóla 1958 eða 1959. Fremsta röð frá vinstri: Frímann Lúðvíksson, Sigurður Björnsson, Kristinn Lúðvíksson. Önnur röð: Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir, Ástríður Bertelsdóttir. Þriðja röð: Jóhanna Bertelsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir. Fjórða röð: Helga Jóhannesdóttir, Jóhanna Bertelsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Efsta röð: Ingólfur Ármannsson kennari, Sigurjón Magnússon, Konráð Guðmundsson, Birgir Þórbjarnarson. Þetta fólk var fyrsti hópurinn til að útskrifast úr núverandi skólahúsnæði sem tekið var í notkun haustið 1958.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 097
Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Lárus Guðmundsson í ræðustól.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 093

Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Fremst sitja: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Litli uppáklæddi drengurinn í næst fremstu röð er Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk sem situr við hlið móður sinnar Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987). Til vinstri í sömu röð, með krosslagða handleggi, er Ingunn Júlíusdóttir (d. 22..4.1998). Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson051
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á litlu jólum er leyft að vera með nammi og gos í skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Inga Kristjánsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Jensína Lýðsdóttir öll úr 1968 árganginum.
Ólafur Bernódusson053
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er hópverkefni í gangi. Frá vinstri: Óþekkt, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, óþekkt, Hafdís Ásgeirsdóttir, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir en unglingurinn við saumavélina er óþekktur.
Jón Jónsson170

Hér má sjá á sviðinu í Fellsborg frá vinstri: Guðjón Árnason, Guðmunda Ólafsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Þórarinn Ingvarsson. Baksviðs má þekkja Elísabetu Hallbjörnsdóttur með blöð í höndunum og Bjarney Valdimarsdóttiur sitjandi. Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 1893 eða 1984. Dansatriðið þótti það gott að það var síðar sýnt á Húnavöku á Blönduósi.

Magnús B Jónsson034
Kötturinn sleginn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Maðurinn með trefilinn er Ólafur Bernódusson kennari og maðurinn með yfirskeggið er Hallgrímur Hjaltason. Drengurinn með víkingahjálminn er Þorsteinn Jónsson en aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson049
Hér veitir Jón Pálsson skólastjóri Höfðaskóla, Kristjönu Jónsdóttur verðlaun fyrir einhvern góðan árangur. Stefán Ægir Lárusson bíður til hliðar eftir að röðin komi að sér. Myndin er tekin snemma á níunda áratugnum.
Jón093
Gluggaskraut í vesturgluggum Höfðaskóla jólin 1984.

Jón083
Hér er Hallgrímur Oddsson kynnir á litlu jólum í Höfðaskóla 1984. Hann er í fínu peysunni sem hann sjálfur saumaði í handavinnu. Þór Arason og Karl Lúðvíksson kennarar sjást til vinstri.
Jón095
Skólaskemmtun í Höfðaskóla 1984. Þorbjörg Eðvarðsdóttir syngur við undirleik hljómsveitar. Ingvar Þór Jónsson spilar á trommur og Viggó Magnússon á gítar. Auk þeirra var Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) í hljómsveitinni.
Jón092
Gluggaskreytingar í suðurgluggum Höfðaskóla um jólin 1984

Jón097
Skólaskemmtun 1984. Skólahljómsveit Höfðaskóla spilar. Í hljómsveitinni eru frá vinstri: Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000), Ingvar Þór Jónsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir og Viggó Magnússon.
Mundi253
Byggingaframkvæmdir við Höfðaskóla í gangi. Myndin tekin einhverntíma á árunum fyrir 1958 því þá var byggingin tekin í notkun. Maðurinn með hjólbörurnar er óþekktur.
Guðmundur Guðnason722
Gengið til kirkju á fermingardegi. Frá vinstri: Óþekktur, Magnús Guðlaugsson, óþekktur, Ingvar Ástmarsson, óþekktur, Hilmar Gunnarsson, Heiðar Friðriksson og Hallbjörn Ágústsson.
Guðmundur Guðnason704
Réttarstörf - rúningur - í Hofsrétt. Lengst til hægri er Rúnar Jósefsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001)snýr bakinu í myndavélina. Þá kemur Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og konan í rauðköflóttu skyrtunni er Sigríður Guðlaugsdóttir (d.23.5.1996) frá Bjarmalandi. Ari Ólafsson hjálpar móður sinni Jóninnu Þórey Hafsteinsdóttur (d.24.11.1994) að troða ull í poka. Ullarpokar sjást á réttarveggnum.
Guðmundur Guðnason702
Réttastörf í Hofsrétt á Skaga. Fremst á myndinni er Páll Jóhannesson en maðurinn vinstra megin á myndinni í ljósum jakka er Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og stúlkan í köflóttu skyrtunni í miðjum fjárhópnum er Áslaug dóttir hans. Stúlkan í grænu peysunni er Guðbjörg Kristinsdóttir. Maðurinn lengst frá okkur fyrir miðju í ljósum buxum og brúnni peysu er Jón Hinrik Árnason (d.4.11.1986) sem var bóndi á Steinnýjarstöðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir080
Hljómsveit úr Höfðaskóla leikur á skólaskemmtun í Fellsborg. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Steinunn Berndsen, Kristján Blöndal er á bak við trommurnar, Guðmundur Jónsson og Þorlákur Jónsson.
Guðmundur Guðnason717
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Ef þú veist hver óþekkti leikarinn er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason719
Leikarar í Vekjaraklukkunni, sem sýnt var um páska 1964 á vegum Höfðaskóla í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson í Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir í Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Jóhanna Ásmundsdóttir í Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. .
Guðmundur Guðnason720
Ingvar Jónsson hreppsstjóri sinnir starfi sínu sem kynnir á sjómannadegi. Bak við hann er Björgvin Jónsson í Höfðabrekku. Rauðhærði strákurinn í bláu peysunni til vinstri er Óskar Jóhannesson. Myndin tekin á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason723
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Guðmundur Guðnason966
Þrjár ungar stúlkur syngja og spila á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason962

Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.

Guðmundur Guðnason959
Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason958

Leiksýning á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg.

Guðmundur Guðnason091
Allt klárt fyrir vígslu Höfðaskóla haustið 1958. Jón Sölvason (d. 17.8.1969) frá Réttarholti er gráhærði maðurinn lengst til vinstri en Strákurinn til hægri er Rúnar Jósefsson úr Reykholti.
Ólafur Bernódusson050
Kristín Jónsdóttir spilar á saxófón á jólatónleikum tónlistarskólans í Höfðaskóla 1986. Jane Sillar kennari spilar undir á píanóið
Guðmundur Guðnason146
Árni Kristófersson (d.11.10.1982) Árnesi á spjalli við óþekktan mann í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason086
Margrét Valdimarsdóttir (Númadóttir).
Ólafur Bernódusson027
JólatónleikarTtónlistarskólans haldnir í Höfðaskóla 1986. Steinunn Berndsen kennari leikur með nemendum sínum sem eru frá vinstri: Salóme Rúnarsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Bergþóra Huld Guðjónsdóttir.
Ólafur Bernódusson057
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987.Á myndinni er Viggó Magnússon útvarpsstjóri Útvarps Höfðaskóla að tala til Skagstrendinga. Til að finna pláss fyrir útvarpsstöðina lét skólastjórinn eftir skrifstofuna sína í viku.
Ólafur Bernódusson055

Myndin var tekin á einhverri samkomu í Höfðaskóla kringum 1985. Tilefnið er óþekkt en á henni má þekkja marga þáverandi nemendur skólans ásamt foreldrum nokkurra þeirra.

Stúlkurnar þrjár á fremsta bekk eru óþekktar. Á öðrum bekk eru, talið frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir, María Rós Karlsdóttir og Gígja Óskarsdóttir. Á þriðja bekk er Björk Axelsdóttir kennari lengst til vinstri þá kemur óþekkt stúlka en sú með gleraugun er Særún Níelsdóttir. Næst er óþekkt stúlka sem situr með barn en stelpan í lopapeysunni er annar hvor tvíburanna, Vilborg eða Áslaug Jóhannsdóttir. Á næsta bekk situr Árný Helgadóttir á endanum til vinstri en næst, á þeim bekk, má svo þekkja Ásu Ásgeirsdóttur, Hólmfríði Önnu Ólafsdóttur (Díu Önnu), Þorstein Jónsson, Viggó Magnússon og Ægi Jónsson. Við enda næstu raðar stendur Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari til vinstri og sjá má Þórunni Bernódusdóttur yfir höfuð Bjarkar. Við hlið Þórunnar situr Soffía Jónasdóttir, óþekktur, Gunnlaugur Sigmarsson (með skegg) og Steinunn Friðriksdóttir kona hans. Lárus Ægir Guðmundsson sést yfir höfuð Ægis en Lárus er að tala við Adolf J. Berndsen. Í næstu röð fyrir aftan Elínborgu og Þórunni er Áslaug Gunnarsdóttir lengst til vinstri, þá Þorbjörg Eðvarðsdóttir, og óþekktir en svo sést hálft höfuð Rafns Sigurbjörnssonar frá Hlíð og Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Fyrir aftan Gunnlaug situr Margrét Haraldsdóttir (d. 24.6.2000) og við hlið hennar Bjarney Valdimarsdóttir með dóttur sína Erlu Maríu Lárusdóttur í fanginu. Við hlið Bjarneyjar er svo Halldóra Þorláksdóttir. Upp við bakvegginn eru, frá vinstri: tveir óþekktir, Rúnar Loftsson, Karl Lúðvíksson íþróttakennari, tvær óþekktar konur, Skúli Tómas Hjartarson, Halldór Gunnar Ólafsson, Rafn Ingi Rafnsson, Eiríkur Lýðsson, Jóhann Ásgeirssonr, Óli Hjörvar Kristmundsson, Þráinn Bessi Gunnarsson og Guðmundur Óskarsson . Fyrir framan þá
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 092

Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Á myndinni eru Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) að spjalla saman. Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) situr upp við gluggann og í fremstu röðinni má þekkja Þorfinn Bjarnason (d. 6.11.2005) og Huldu Pálsdóttur konu hans.

Ólafur Bernódusson052
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987 og hér er í gangi einhver þraut úti á skólavelli. Frá vinstri: Þorlákur Sveinsson, Vilborg magnúsdóttir kennari og Gunnar Borg Jónsson sem einbeitir sér að þrautinni sem hann á að leysa.
Ólafur Bernódusson058
Jón Pálsson var skólastjóri Höfðaskóla í u.þ.b. tvo áratugi fram til ársins 1986 er hann lét af störfum. Hér er hann í ræðustól í skólanum við einhvert hátíðlegt tækifæri.
Nemendur Barnaskólans á Skagaströnd 069
Á myndinni eru nemendur barnaskólans á Skagaströnd einhverntíma um 1940 í skólaferðalagi til Hreðavatns. Myndin er á bls. 152 í bókinni Byggðin undir Borginni og samkvæmt henni eru á myndinni: Fjóla Sigurðardóttir, Inga Þorvaldsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Sigurbjörg Óskarsdóttir, Elín Jónsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Árni Andrésson, Unnur Stefánsdóttir, Knútur Berndsen, Soffía S. Lárusdóttir, Birgir Árnason, Ingibjörg Kristmundsdóttir, Þórarinn Björnsson, Jens Jónsson, Sigurjón Jóhannsson kennari, Björn Kristjánsson, Guðný Sigurðardóttir, Hjörtur Hjartarson, Kristjana S. Lárusdóttir og Jóhann Bogason.
Magnús B Jónsson044
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Elínborg Jónsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Ágúst Jónsson, Ólafur Bernódusson, Katrín Sigurjónsdóttir, Jón Pálsson, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur leiðbeinandi og Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
1
2
3
4
5

19
Leita í myndasafninu
Leita