Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Höfðaskóli
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 288
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Þessi mynd er af einu keppnisliðinu þ.e. nemendur fæddir 1978. Frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Þóra Ágústsdóttir og Sigurður Berndsen. Lukkudýr bekkjarins er á borðinu hjá liðinu.
Höfðaskóli - safn 329
Kaffitími á kennarastofunni í Höfðaskóla. Frá vinstri eru kennararnir: Ólafur Bernódusson, Sigríður Stefánsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Reynir Grímsson. Myndin var tekin á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 149
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 341
Þessir ungu menn, með verlaunapening um hálsinn, eru sennilega fótboltalið frá Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1998 -2000. Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Friðvin Ingi Ernstsson, Ívar Gylfason, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Albert Ingi Haraldsson og Eyþór Kári Egilsson.
Höfðaskóli - safn 168
Tóbaksvarnaráð hélt samkeppni í nokkur ár meðal 8. bekkinga á landinu um besta áróðurefnið gegn tóbaksreykingum. 8. bekkir Höfðaskóla sigruðu tvisvar í þessari keppni en verðlaunin voru vikuferð til Danmerkur. Þessir nemendur sigruðu árið 2001 með áróðursspjöldum og bæklingi sem borinn var í hús á Skagaströnd. Krakkarnir fóru síðan í skemmtilega ferð til Danmerkur í framhaldinu. Á þessari mynd eru krakkarnir að kynna framlag sitt til keppninnar í Samkaupum og reka áróður gegn reykingum í leiðinni. Frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir (situr), Björn Viðar Jóhannsson (með rauða húfu), Eyþór Kári Egilsson (með bláa húfu), Friðvin Ingi Ernstsson, Kristinn Andri Hjálmtýsson, Hanna Rúna Gestsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir (með gula húfu), Katrín Inga Hólmsteinsdóttir og Rósa Björg Einarsdóttir (í hvítri úlpu).
Höfðaskóli - safn 163
Guðmundur Oddson var kennari við Höfðaskóla um tíma.
Höfðaskóli - safn 227
Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir í Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Höfðaskóli - safn 376
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt af atriðunum sem sýnd voru var dans nokkurra stúlkna. Á myndinni er hluti þeirra. Frá vinstri: óþekkt, María Guðrún Guðmundsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 165
Aðalheiður Sif Árnadóttir kennari í jólastuði í Kántrýbæ þegar starfsfólk Höfðaskóla kom þar saman til að fá sér að borða. Allir urðu að klæða sig upp í einhverja óvenjulega búninga til að fá að vera með. Myndin var tekin 27.maí 2000.
Höfðaskóli - safn 152
Nemendur fæddir 1982 í stærðfræðitíma í Höfðaskóla líklega 1997 eða 1998. Aftasta röð frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir og Karen Peta Karlsdóttir. Miðröð frá vinstri: Ásdís Lýðsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Ólafur Guðmundsson. Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Elvar Jóelsson og Magnús Árni Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 224
Myndin var tekin í heimilisfræðitíma í eldhúsinu í Höfðaskóla í nóvemberlok 1998. Líklega er verið að steikja laufabrauð. Á myndinni eru frá vinstri: Leó Kristberg Einarsson, Guðbjörg Ólafsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Jón Ingi Ragnarsson.
Höfðaskóli - safn 243
Þessar þrjár vinkonur úr Höfðaskóla hvílast og fá sér nammi í skólaferðalagi í Danmörku 2001. Fremst er Tinna Björk Gunnarsdóttir en aftan við hana er Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Anna Dúna Rúnarsdóttir til hægri
Höfðaskóli - safn 287
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Á þessari mynd fer Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010) með gamanmál í hléi. Bakvið sitja spyrill og dómari keppninnar kennararnir Sigríður Einarsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Höfðaskóli - safn 294
Páll Leó Jónsson skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991. Myndin var tekin vorið 1987.
Höfðaskóli - safn 133
<p>Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin en það liggur greinilega vel á þeim vinkonunum Guðrúnu Hjálmtýsdóttur til vinstri og Önnu Maríu Magnúsdóttiur til hægri.</p>
Höfðaskóli - safn 377
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd syngja og spila hópur nemenda fyrir gesti. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Hörður Aðils Vilhelmsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 319
Krakkar úr Höfðaskóla í heita pottinum í sundlauginni á Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin einhverntíma á árunum 1993 - 1996. Frá vinstri: Gunnar Helgason, óþekktur, Sveinþór Ari Arason, tveir óþekktir, Ólafur Guðmundsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Magnús Líndal Þrastarson, óþekktur, Magnús Filip Sævarsson (nær), Þóra Lísebet Getsdóttir (fjær), Karen Peta Karlsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir (fjærst), María Markovic (í miðið), Eyþór Ernstsson (næst), Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Elva Mjöll Þórsdóttir.
Höfðaskóli - safn 113
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Hafþór Freyr Sigmundsson kennari að skrá keppendur sem eiga að komast ákveðna vegalengd eftir kaðalbrautinni sem sést á myndinni. Í brautinni er Marta Kristín Jónsdóttir en í biðröðinni eru frá hægri: María Markovic, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson og aftast, með bláa húfu, er Jón Ingi Ragnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 228
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, Leó Kristberg Einarsson,óþekktur, Vignir Örn Hafþórsson og hægra megin við borðið sér aftan á Hákon Unnar Þórarinsson.
Höfðaskóli - safn 150
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) krýpur, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Ingbjörg Axelma Axelsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Alma Eik Sævarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 131
Bekkjarsysturnar Eva Dögg Bergþórsdóttir til vinsri og Anna Dúna Rúnarsdóttir til hægri. Myndin var tekin seinni hluta 10. áratugarins.
Höfðaskóli - safn 142
Umferðarfræðsla er einn þáttur sem farið er yfir í skólanum. Þar er lögð mikil áhersla á hjálmanotkun krakka á reiðhjólum. Stundum hefur einhvert fyrirtæki gefið hópi yngri nemenda reiðhjólahjálm og þessi mynd er frá einni slíkri hjálma-afhendingu 1996 eða 1997. Lögreglan er gjarnan fengin til að afhenda hjálmana eða a.m.k. vera viðstödd til að auka áhrifamáttinn. Á þessari mynd eru frá vinstri, í fremri röð: Þröstur Líndal kennari og húsvörður, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Arís Eva Vilhelmsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir kennari. Aftari röð frá vinstri: Hermann Ívarsson lögreglumaður, Unnar Már Garðarsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Marinó Freyr Jóhannesson, Sunna Gylfadóttir, Fanney Ingólfsdóttir, Ágústa Lóa Jóelsdóttir og Steinar Orri Hafþórsson.
Höfðaskóli - safn 259
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að bíða eftir að röðin komi að þeirra atriði. Frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Katrín Inga Hólsteinsdóttir , Ásdís Adda Ólafsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Arís Eva Vilhelmsdóttir og Kristján Pétur Guðjónsson.
Höfðaskóli - safn 338
Guðbjörg Kristmundsdóttir til vinstri og Hugrún Lind Pálsdóttir til hægri vinna að verkefnum sínum í Höfðaskóla. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1986.
Höfðaskóli - safn 393
Sigrún Guðmundsdóttir var húsvörður og skólaliði við Höfðaskóla í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Höfðaskóli - safn 296
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir æfir sig í upplestri fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 284
Anna Dúna Rúnarsdóttir glósar og Tinna Björk Gunnarsdóttir les ástarsögu í hlutverkum sínum í leikþætti um skólann í gamla daga á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 190
Ingibergur Guðmundsson leggur sig í sófann á kennarastofunni þegar stund gefst á milli stríða í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin á níunda áratugnum meðan Ingibergur var kennari en hann var svo skólastjóri árin 1991 - 2005.
Höfðaskóli - safn 304
Valdimar Þórhallsson var kennari við Höfðaskóla um tíma.
Höfðaskóli - safn 174
Myndin var tekin í skólaferðalagi elstu nemenda Höfðaskóla í Danmörku. Maðal þess sem krakkarnir skoðuðu var hið fræga tákn Kaupmannahafnar, Litla hafmeyjan. Margir höfðu ímyndað sér hana stærri en hún er í raun og veru og urðu því fyir dálitlum vonbrigðum í fyrstu. Á myndinni hafa fjórar stúlkur stillt sér upp fyrir framan styttuna. Þær eru frá vinstri: Ásdís Lýðsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og Geirþrúður Guðmundsdóttir. Myndin var tekin 1997 eða 1998.
Höfðaskóli - safn 187
Hér er kíkt inn í kennslustund í íþróttahúsinu einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Nemendurnir eru, frá vinstri: Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Elna Ragnarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, óþekkt stúlka, Kristján Ýmir Hjartarson og Þórður Indriði Björnsson.
Höfðaskóli - safn 298
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sverrir Berndsen, Birna Ágústsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og Birkir Rafn Gíslason.
Höfðaskóli - safn 126
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Á myndinni stilla börn fædd 1990 sér upp með kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Fremsta röð frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og óþekktur. Miðröð frá vinstri: Ívar Gylfason, Unnur kennari, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekkt, óþekktur, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Árnason og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftasta röð frá vinstri: Hákon Þórarinsson, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Óðinn Örn Sævarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 213
<p>Þrír starfsmenn Höfðaskóla láta fara vel um sig í skólanum þegar næði gafst. Frá vinstri: Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) ræstitæknir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, með dóttur sína í fanginu, og Jóhanna Jónsdóttir kennari með dóttur sína, Lindu Hafdal, í fanginu.</p>
Höfðaskóli - safn 286
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Á þessari mynd er lið eins bekkjarins þ.e. nemenda fæddra 1975. Frá vinstri: Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Jóhannes Óskarsson og Svanur Árnason. Á borðinu hjá þeim er lukkudýr bekkjarins. .
Höfðaskóli - safn 325
Þrír ungir strákar úr Höfðaskóla bíða eftir að komast á sviðið í Fellsborg til að æfa árshátíðaratriði sitt. Myndin var sennilega tekin kringum 1990. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Kristinn Björgvinsson og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 324
Hér vinna þrjár stúlkur að sameiginlegu verkefni í Höfðaskóla sennilega einhverntíma kringum 1992. Frá vinstri: Elísabet Vattnes, Þóra Ágústsdóttir og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 320
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er Sara Rut Fannarsdóttir, þá sex ára gömul, að leika kennslukonu í leikþætti sem sýndur var þennan dag í skólanum.
Höfðaskóli - safn 125
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Fjær eru frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Björk Guðmundsdóttir. Nær okkur frá vinstri: Brynja Ágústsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir.
Höfðaskóli - safn 297
Þessir nemendur Höfðaskóla tóku sig til og söfnuðu peningum fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Peningana afhentu þau síðan sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) sem þjónaði á Skagaströnd 1991 - 1997. Á myndinni er frá vinstri: Davíð Björgvinsson, Ásdís Lýðsdóttir (nær), Ragna Magnúsdóttir (fjær), Sveinþór Ari Arason (fjær), Þóra Lísebet Gestsdóttir (nær), Karen Peta Karlsdóttir (nær), Andri Ómarsson (fjær), Bæring Skarphéðinsson, Elva Dröfn Árnadóttir (nær), séra Egill (fjær), Ólafur Guðmundsson (fjær), Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir (nær), Hafsteinn Auðunn Björnsson (fremst), Sigrún Líndal Þrastardóttir (næst fremst), Birna Ágústsdóttir (næst aftast), Unnur Kristjánsdóttir kennari (aftast), Elvar Arinbjörn Grétarsson, Magnús Hallgrímsson (fjær) og Heiðrún Ósk Níelsdóttir (nær). Myndina tók Ólafur Bernódusson einhverntíma á árunum 1991 - 1993.
Höfðaskóli - safn 200
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari aðstoðar, frá vinstri: Björn Sigurðsson, Árný Elfu Helgadóttur og Svövu Magnúsdóttur við einhverja skólavinnu í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 361
Nemendurnir eru mis alvarlegir á fundi í Höfðaskóla með kennara. Ef miðað er við bækurnar á borðunum er umræðuefnið landafræði. Myndin var sennilega tekin einhverntíma 1993 - 1995. Frá vinstri: Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Linda Hafdal, Auður Eva Guðmundsdóttir (við borðið), Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 201
Þessi mynd var tekin í eldhúsinu í Höfðaskóla einhverntíma 1978- 1980. Frá vinstri: María Jóna Gunnarsdóttir, óþekkt, Guðrún Elsa Helgadóttir, Gunnar Borg Jónsson?, óþekktur, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Gunnar Dór Karlsson.
Höfðaskóli - safn 184
Ingibergur Guðmundsson skólastjóri Höfðaskóla 1991 - 2005. Myndin var tekin í íþróttahúsinu sem var vígt 1998.
Höfðaskóli - safn 334
Þessar stúlkur taka þátt í morgunsöng á sal í Höfðaskóla 1988 eða 1989. Frá vinstri: óþekkt, Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 143
<p>Beðið eftir litlu jólunum í Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1997 - 1999. Vinstra megin við borðir eru, talið inn eftir borðinu: Patrik Snær Bjarnason, óþekkt, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Eyþór Vilhjálmsson og Sævar Hlynur Tryggvason?. Hægra megin við borðið: Jóhann Örn Stefánsson, Gunnar Már Sæmundsson, Elna Ragnarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Arason og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Höfðaskóli - safn 196
Í svokallaðri Vinnuviku, sem haldin var í Höfðaskóla annað hvert ár, var hefðbundið skólastarf lagt til hliðar og nemendurnir fengu önnur verkefni til að fást við. Á þessari mynd, sem tekin var í einni slíkri viku á níunda áratugnum, er Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir að vinna við skólaútvarpið sem rekið var þessa viku. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 117
Kristín Ólafsdóttir kennari afhendir nemendum sínum einkunnir vetrarins á skólaslitum 31. maí 1996 í Höfðaskóla. Nemendurnir eru frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Þórunn Júlía Guðmundsdóttir, ?Heiða Berglind Fannarsdóttir?, Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Gunnarsdóttir, Kristinn Daníel Guðmundsson, tvö óþekkt, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Anna María Magnúsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 136
Jenný Lind Sigurjónsdóttir til vinstri og Elva Ösp Gunnarsdóttir til hægri líklega í heimsókn í Reykjaskóla í Hrútafirði einhverntíma upp úr 1995.
Höfðaskóli - safn 299
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir.
Höfðaskóli - safn 199
Jón Örn Stefánsson vinstra megin og Hildur Inga Rúnarsdóttir hægra megin vinna við að mála í smíðastofunni í Höfðaskóla í vinnuviku. Eftir málun var svo smíðað einhvers konar leiktæki úr timbrinu. Að sjálfsögðu eru þau klædd viðeigandi hlífðarfötum - svörtum ruslapokum. Í dag er Jón Örn sjómaður og fiskeldisfræðingur en Hildur Inga er prestur í Þingeyrarprestakalli við Dýrafjörð. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 395
Dagbjört Bæringsdóttir var skólaliði við Höfðaskóla í allmörg ár. Til hægri á myndinni sér í Sigrúnu Guðmundsdóttir húsvörð og skólaliða við skólann.
Höfðaskóli - safn 109
Hafþór Freyr Sigmundsson kennari við vinnu sína í Höfðaskóla. Hafþór kenndi á Höfðaskóla í nokkur ár á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 182
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs meðal annars með því að fara í ratleik um allan bæ og leysa hinar margvíslegustu þrautir. Ein þrautin var að fá lánaða hluti út í bæ til að geta síðan bakað pönnukökur í skólanum á eftir. Hér hefur Sigrún Guðmundsdóttir bankað upp á hjá Stefáni Jósefssyni og fengið eitthvað lánað hjá honum.
Höfðaskóli - safn 162
Skúli Már Matthíasson flokkar sorp í eldhúsinu í Höfðaskóla einhverntíma upp úr 1990.
Höfðaskóli - safn 244
Brugðið á leik í Roskilde. Krakkarnir úr Höfðaskóla fóru í skólaferðalag til Danmerkur 2001 og komu meðal annars við í Roskilde. Á þessari mynd bregða þau á leik meðan beðið var eftir rútu til að flytja þau á næsta stað. Í neðstu röðinni eru, frá vinstri: Hörður Aðils Vilhelmsson, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir). Í miðröðinni frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Efst er svo Anna María Magnúsdóttir og stúlkan til hægri er Anna Dúna Rúnarsdóttir en strákurinn á bak við hópinn er óþekktur.
Höfðaskóli - safn 385
Sverrir Brynjar Berndsen einbeitir sér í skriftartíma í Höfðaskóla. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin kringum 1988.
Höfðaskóli - safn 291
Ómar Ingi Ómarsson skoðar sýningu á ýmsu tengdu náttúrufræðikennslu á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999. Ómar er klæddur í gömul tískuföt sem hann sýndi á tískusýningu, sem var eitt af atriðunum á afmælishátíðinni.
Höfðaskóli - safn 147
Strandblak nemenda Höfðaskóla í fjörunni hjá Sandlæknum á útivistardegi að vori. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 268
Valgerður Guðmundsdóttir vinstra megin og Katrín Guðmundsdóttir hægra megin við vinnu í Höfðaskóla 1999.
1
…
9
10
11
…
19
Leita í myndasafninu
Leita