Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Höfðaskóli

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 115
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Stefán Agnar Gunnarsson? að reyna að hoppa gegnum eina þrautina á sem skemmstum tíma. Páll Pálsson kennari tekur tímann.
Höfðaskóli - safn 372
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Hér bíður hópurinn fyrir utan Tívolí í Kaupmannahöfn eftir einhverjum sem enn eru inni í skemmtigarðinum. Frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir kennari, óþekktur, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Jón Oddur Hjálmtýsson, Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem, Ólafur Guðmundsson, Magnús Líndal Þrastarson, Hermann Freyr Guðjónsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson og Jón Ingi Ragnarsson.
Höfðaskóli - safn 269
Hress nemendahópur í Höfðaskóla. Frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Almar Freyr Fannarsson, Kristinn Hjálmtýsson (nær), Sindri Njáll Hafþórsson (fjær), Ragnar Már Björnsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 321
Ungir töffarar í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin 1999. Frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Karl Aron Bender og Ómar Ísak Hjartarson.
Höfðaskóli - safn 340
Páll Leó Jónsson skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991.
Höfðaskóli - safn 144
Dans er gjarnan kenndur í Höfðaskóla sem viku námskeið einu sinni á skólaárinu þar sem allir nemendur læra dansa allt eftir aldri og fyrri kunnáttu í danslistinni. Á þessari mynd er hópur yngstu nemendanna með óþekktum danskennara. Nemendurnir eru frá vinstri: Katrín Guðmundsdóttir, Sunna Gylfadóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Steinar Ólafsson, Helga Dögg Jónsdóttir, óþekkt barn, Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ómar Ísak Hjartarson. Myndin var tekin 1997 eða 1998.
Höfðaskóli - safn 323
Þessi mynd var tekin á venjulegum skóladegi af Kamillu Hildi Gísladóttur kennara við vinnu sína inni í bekk. Myndin var tekin í desember 1999. Nemendurnir eru frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Davíð Víðisson, Guðjón Örn Kristjánsson og tveir óþekktir nemendur.
Höfðaskóli - safn 362
Niðursokknir við sköpun í myndmenntatíma í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1995. Adolf Þór Lúðvíksson til vinstri og Loftur Árni Björgvinsson til hægri. Stúlkan í baksýn er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 205
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla. Slíkar vikur voru haldnar annað hvert ár en þá var hefðbundin kennsla felld niður í viku og nemendur fengu ýmis konar önnur verkefni að fást við. M.a. var rekið skólaútvarp í einni slíkri viku og einnig var gefið út skólablað. Á þessari mynd eru nemendur á fundi, annað hvort í ritstjórn skólablaðsins eða skólaútvarpsins, með umsjónarkennara hópsins. Frá vinstri: Ægir Jónssson, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og Magnús B. Jónsson kennari. Myndin var tekin í skólanum einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 270
Jón S. Pálsson skólastjóri Höfðaskóla 1966 - 1986 og kona hans Björk Axelsdóttir koma í heimsókn í skólann þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla í nóvember 1999.
María Magnúsdóttir - safn 292
Á myndinni eru skólabörn úr Höfðaskóla fædd 1967. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1977. Í fremstu röð frá vinstri: Svenny Hallbjörnsdóttir, Erna Rós Magnúsdóttir, Bergþóra Huld Birgisdóttir, Birna Sveinsdóttir og Rósa Dröfn Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Björn Hallbjörnsson, Ingvar Jónsson og Hrólfur Eggert Pétursson. Aftasta röð frá vinstri: Ólafur Sveinn Ásgeirsson, Þórarinn Kári Þórsson, Bertel ?Hauksson?, Arnar Jóhann Arnarsson og Ingvar Þór Jónsson. Aftan við hópinn er svo kennari bekkjarins, Magnús B. Jónsson.
Höfðaskóli - safn 153

Litið inn í tíma í Höfðaskóla hjá nemendum fæddum 1988. Frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Ívar Gylfason (nær), Óðinn Örn Sævarsson (fjær), Fjóla Dögg Björnsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, Sigurgeir Snævar Árnason (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Jón Atli Magnússon og Guðmundur Björn Sigurgeirsson?.

Höfðaskóli - safn 386
Pósturinn efndi til samkeppni um hönnun á nýju frímerki meðal grunnskólanemenda á Íslandi einhvertíma nálægt aldamótunum. Jóna Gréta Guðmundsdóttir, nemandi í Höfðaskóla, sigraði í keppninni og hlaut vegleg peningaverðlaun. Á þessari mynd er Jóna Gréta við verðlaunamynd sína.
Höfðaskóli - safn 308
Hluti kennara við Höfðaskóla í kaffi í löngu frímínútunum. Frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Elva Þórisdóttir (fjær), Helga Ólína Aradóttir (nær) og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Höfðaskóli - safn 352
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt atriðið sem boðið var upp á var skólahljómsveit sem söng og spilaði fyrir gesti. Frá vinstri: Ómar Ísak Hjartarson, Patrik Snær Bjarnason og Arnrún Bára Finnsdóttir.
Höfðaskóli - safn 279
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir æfir sig í upplestri fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 346
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en líklega hefur það verið kringum 1990. Frá vinstri: Eyþór Ernstsson, Patrik Ingi Heiðarsson?, óþekktur, Gunnar Helgason, Sigurður Haukur Grétarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson, Kristinn Björgvinsson og Gunnar Dór Karlsson. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 349

Hér föndra þær Marta Kristín Jónsdóttir til vinstri og Rakel Petrea Finnsdóttir til hægri í púðahorni í Höfðaskóla. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1990.

Höfðaskóli - safn 209

Ingibergur Guðmundsson kennari í Höfðaskóla lítur yfir einhver skrif þeirra Jónasar Fanndal Þorvaldssonar til vinstri og Guðmundar Henry Stefánssonar til hægri. Í baksýn sér í Atla Þórsson? en aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1987.

Höfðaskóli - safn 191
Þessi mynd var tekin á útivistardegi í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Á staurnum er Sigurður Berndsen en í röðinni standa þær Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, með húfu, og Ólína Laufey Sveinsdóttir.
Höfðaskóli - safn 315
Fjöltefli í Höfðaskóla 1988 eða 1989. Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) var með skáknámskeið í skólanum í nokkra vetur og tefldi þá gjarnan fjöltefli við nemendur einhverntíma á námskeiðinu eða eftir það. Hér er Magnús að tefla við a.m.k. átta nemendur í einu. Nemendurnir eru frá vinstri: óþekktur, Jón Oddur Hjálmtýsson, Eyþór Ernstsson, Vignir Örn Hafþórsson, Magnús Árni Hallgrímsson og Guðni Már Lýðsson. Fram við dyr stendur Sigríður Gestsdóttir og fylgist með. Ef þú þekkir óþekkta nemandann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 293
Þessar tvær Jóhönnur voru kennarar við Höfðaskóla. Jóhanna Jónsdóttir standandi og Jóhanna Ólafsdóttir situr. Myndin var tekin vorið 1989.
Höfðaskóli - safn 234
Þessi stúlknahópur hefur sigrað í einhverri keppni innan Höfðaskóla einhverntíma kringum 1996.Frá vinstri: Auður Eva Guðmundsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Rebekka Jóelsdóttir, Sigrún Líndal og Marta Kristín Jónsdóttir.
Höfðaskóli - safn 307

Niðursokknir nemendur Höfðaskóla vinna úr afraksti sínum eftir fjöruferð. Hvað er rusl og hvað ekki? Hvað er hægt að búa til úr ruslinu? Frá hægri: Leó Kristberg Einarsson, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, óþekkt og Guðni Már Lýðsson. Myndin var tekin kringum 1994.

Höfðaskóli - safn 337
Þröstur Árnason við vinnu í Höfðaskóla líklega kringum 1990.
Höfðaskóli - safn 350
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Meðal annars var boðið upp á veisluborð með tertum og kökum af öllum gerðum. Á þessari mynd eru þrjár stúlkur að baka fyrir afmælið í eldhúsinu í Höfðaskóla. Frá vinstri: Eva Dögg Bergþórsdóttir, Birna Þórkatla Sæmundsdóttir og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 145
Hér er hópastarf í gangi í Höfðaskóla. Myndin hefur líklega verið tekin um eða uppúr 1995. Frá vinstri: óþekkt, Elva Mjöll Þórsdóttir, Magnús Árni Hallgrímsson, Jón Ingi Ragnarsson, Sveinn Elvar Jóelsson og María Markovic. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinasamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 356
Þessi mynd var sennilega tekin kringum 1990 í myndmenntatíma í Höfðaskóla. Ólafur Guðmundsson er til vinstri og Hallgrímur Axelsson er til hægri. Báðir eru þeir að mála skuggamynd af sjálfum sér svipaðar þeim sem eru á veggnum í baksýn.
Höfðaskóli - safn 210
Jóhanna Jónsdóttir var kennari við Höfðaskóla í mörg ár. Þessi mynd af henni ver tekin á kennarastofunni í maí 1988.
Höfðaskóli - safn 368
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á myndinni er María Markovic á einhverjum óþekktum áningastað í ferðinni.
Höfðaskóli - safn 344
Þessi mynd var tekin í einhverri samverustund á sal í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Frá hægri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Baldur Magnússon og lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 265

Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni ávarpar Ingibergur Guðmundsson skólastjóri gesti í afmælinu. Á bak við hann er veggspjald sem gert var í líki Spákonufells en á því er stiklað á stóru í sögu skólans.

Höfðaskóli - safn 158
Pósturinn efndi til samkeppni um hönnun á nýju frímerki meðal grunnskólanemenda á Íslandi einhverntíma nálægt aldamótunum. Jóna Gréta Guðmundsdóttir, nemandi í Höfðaskóla, sigraði í keppninni og hlaut vegleg peningaverðlaun fyrir myndina sína. Á þessari mynd, sem tekin var í höfðustöðvum Póstsins, eru frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Dagbjört Bæringsdóttir, móðir Jónu Grétu, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir (nær), sem líka tók þátt í samkeppninni og varð í einu af efstu sætunum, Svenny Hallbjörnsdóttir (fjær), móðir Katrínar, óþekktur maður og Unnur Kristjánsdóttir myndmenntakennari stúlknanna tveggja. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 308
Kötturinn barinn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Kennarinn með mjólkurhattinn er Ólafur Bernódusson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 217
Knattspyrnulið úr Höfðaskóla 28. júní 1997 ásamt þjálfara sínum. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Kristján Sigurbjörnsson, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason og Ívar Gylfason. Aftari röð frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Garðar Geirfinnsson þjálfari.
Höfðaskóli - safn 266

Hópur nemenda Höfðaskóla funda með kennaranum Dagnýju Úlfarsdóttur líklega í undirbúningi 60 ára afmælis Höfðaskóla 1999. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sindri Jóelsson, Alma Eik Sævarsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir og Dagný kennari.

Höfðaskóli - safn 357
Róbert Freyr Gunnarsson kvikmyndar eitthvað sem honum finnst áhugavert í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en áð hefur verið kringum 1990.
Höfðaskóli - safn 292
Ekki eru allir með allar tennurnar í munni sínum þegar þeir byrja í skóla. Alex Má Gunnarsson vantar til dæmis nokkrar fullorðinstennur. Myndin var líklega tekin árið 1999 þegar Alex byrjaði í 1. bekk Höfðaskóla.
Höfðaskóli - safn 380
Hér vinna fjórir strákar saman í hóp í Höfðaskóla með hjálp kennara og einni mömmu sem er í heimsókn. Frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir kennari, Árni Max Haraldsson, Viktor Pétursson, Gunnar Guðmundsson?, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Eygló Gunnarsdóttir (móðir Gunnars).
Höfðaskóli - safn 374
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. M.a. gisti hópurinn á tjaldsvæði í nokkrum húsum eins og sjást á myndinni. Á myndinni sést hluti hópsins njóta veðurblíðunnar. Frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Ásdís Lýðsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson?, Geirþrúður Guðmundsdóttir og Adolf Þór Lúðvíksson.
Höfðaskóli - safn 330
Starfsfólk Höfðaskóla heldur gjarnan vorblót í lok skólaárs og borðar þá saman og gerir sér glaðan dag með mökum sínum. Eitt af því sem starfsfólk gerði sér til gamans vorið 2000 var að allir mættu í einhvers konar búningum til borðhaldsins sem var í Fellsborg. Á þessari mynd er rabbíinn Halldór Gunnar Ólafsson og kona hans Sigríður Stefánsdóttir. Sigrún Guðmundsdóttir sést í baksýn.
Höfðaskóli - safn 231
Árni Halldór Eðvarðsson í eldhúsinu í Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Höfðaskóli - safn 237
Þessir strákar hafa sigrað í einhverri keppni innan Höfðaskóla einhverntíma kringum 1996. Frá vinstri: Bæring Jón Skarphéðinsson, Jón Gréta Leví Jónsson, Þorsteinn Pálsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Gunnar Dór Karlsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson og Davíð Bragi Björgvinsson.
Höfðaskóli - safn 206
Inga Rós Sævarsdóttir við vinnu sína í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 173
Myndin var tekin í Vestmannaeyjum í skólaferðalagi elstu nemenda Höfðaskóla sennilega kringum 1985. Á myndinni er Ingibergur Guðmundsson kennari að skoða rústir húss, sem fór hálft undir haun í Heimaeyjargosinu 1973, ásamt nemendunum, frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Sigurbjörn Kristjánsson og Inga Kristjánsdóttir.
Höfðaskóli - safn 218
Þóra Lísebet Gestsdóttir til vinstri og Karen Peta Karlsdóttir til hægri á góðri stund.
Höfðaskóli - safn 219
Þrjár stúlkur í góðu skapi í Höfðaskóla 3. nóvember 1999. frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) og Arnrún Bára Finnsdóttir.
Höfðaskóli - safn 273
Góður dagur í Höfðaskóla hjá þessum þremur ungu stúlkum í nóvember 1999. Frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) og Arnrún Bára Finnsdóttir.
Höfðaskóli - safn 290
Sigurður Skagfjörð Bjarnason, í rauðri peysu, spjallar við Jón S. Pálsson, sem var skólastjóri Höfðaskóla 1966 - 1986. Myndin var tekin á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 343
Söngstund í Höfðaskóla. Frá vinstri: Elín Ósk Ómarsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þóra Dögg Ásgeirsdóttir og Þóra Ágústsdóttir (situr).
Höfðaskóli - safn 331
Starfsfólk Höfðaskóla heldur gjarnan vorblót í lok skólaárs og borðar þá saman og gerir sér glaðan dag með mökum sínum. Eitt af því sem starfsfólk gerði sér til gamans vorið 2000 var að allir mættu í einhvers konar búningum til borðhaldsins sem var í Fellsborg. Á þessari mynd eru hjónin Guðrún Pálsdóttir og Ólafur Bernódusson í gerfi Maríu guðsmóður og Jósefs smiðs. Dagbjört Bæringsdóttir er lengst til hægri á myndinni.
Höfðaskóli - safn 358
Mikið fjör á dansgólfinu í Höfðaskóla líklega á diskóteki einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Adolf Þór Lúðvíksson, Sveinþór Ari Arason?, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Jóney Hrönn Gylfadóttir kennari og óþekkt.
Höfðaskóli - safn 363
Í áratugi fékk Höfðaskóli árlega úthlutað græðlingum frá Yrkjusjóði og fær enn þó í minna mæli sé. Plönturnar voru svo settar niður framan í hlíðum Spákonufellsins þar sem nú má sjá vísi af skógi. Yfirleitt var valinn einhver góður dagur að vori í þessar gróðursetningar þó haustið sé líka tilvalinn tími til gróðursetninga eftir að plönturnar hafa lokið undirbúningi sínum fyrir veturinn. Stundum var einum bekk falið að gróðursetja en stundum nokkrum bekkjum saman. Á myndinni er Elva Mjöll Þórsdóttir að vanda sig við gróðursetningu birkiplöntu sem í dag (2019) er sjálfsagt orðin töluvert á þriðja metra á hæð. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1990.
Höfðaskóli - safn 396
Kamilla Hildu Gísladótti var kennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Þessi mynd var tekin af henni í vorfagnaði kennara 26. maí árið 2000.
Höfðaskóli - safn 258
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd æfa þær sig fyrir týskusýningu Heiða Berglind Fannarsdóttir til vinstri og Amy Ósk Ómarsdóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn 364
Stöku sinnum fer Höfðaskóli með hluta nemenda sinna í heimsókn á einhvern sveitabæ í vettvangs- og skólaferð. Þessi mynd var tekin í einni slíkri heimsókn líklega kringum 1990 en ekki er vitað hvert var farið það árið. Krakkarnir eru að skoða hænu á myndinni en hún virðist láta sér vel líka athyglina sem hún fær. Magnús Líndal Þrastarson heldur á hænunni og við hlið hans er Marta Kristín Jónsdóttir. Stúlkan á móti þeim er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 316
10. bekkingar Höfðaskóla veturinn 1996 - ´97. Fremsta röð frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Birna Ágústsdóttir, Linda Jónasdóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir og Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir. Miðröð frá vinstri: Sverrir Berndsen, Birkir Rafn Gísladóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Bæring Skarphéðinsson og Heiðrún Ósk Níelsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Davíð Bragi Björgvinsson, Þorsteinn Pálsson, Hallgrímur Axelsson og Rebekka Jóelsdóttir.
Höfðaskóli - safn 306
Föndrara í úr Höfðaskóla fæddir 1992 þannig að myndin hefur verið tekin kringum 2000. Frá vinstri í aftari röð: Kristján Ýmir Hjartarson, Þórir Óskar Björnsson og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Karl Aron Bender, Laufey Inga Stefánsdóttir og Þórður Indriði Björnsson.
Höfðaskóli - safn 159
Þessir nemendur Höfðaskóla eru að syngja í skólanum. Hörður Aðils og Laufey Sunna leiddu sönginn í laginu um Nínu og Geira, sem skýrir lopapeysuna og húfuna sem Hörður er með. Á myndinni eru frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Hanna María Gylfadóttir, Rósa Björg Einarsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson (fjær), Ómar Ísak Hjartarson (nær), óþekkt, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær) og Laufey Sunna Guðlaugsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en börnin á myndinni eru fædd á árunum 1986 - 1992. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 212
Þrír kennarar Höfðaskóla taka þátt í morgunsöng í vinnuviku einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir, Einar Haukur Arason og Stefán Ægir Lárusson.
1

10
11
12

19
Leita í myndasafninu
Leita