Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Höfðaskóli
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1226
Guðný Eva Björnsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Ólafur Bernódusson863
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Myndin er af einu skiltanna sem krakkarnir báru fyrir göngunni og er rétt og góð áminning sem á alltaf við.
Ólafur Bernódusson932
Kristbjörg Ragnheiðardóttir á vörðunni uppi á Borgarhausnum í skólaferð í lok maí 2008.
Ólafur Bernódusson797
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Ástríður Helga Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1181
Fólk í skrifstofutækninámi í Höfðaskóla í apríl 2010. Fremst frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðrún Magnúsdóttir og Guðbjörg Eyjólfsdóttir.Miðröð frá vinstri: Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Guðrún Pálsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og óþekkt. Aftasta röð frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Kristín Björnsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1457
Agnes Sævarsdóttir kennari í Höfðaskóla við vinnuborðið sitt að spjalla við Björn Inga Óskarsson tölvueftirlitsmann og netstjóra skólans. Myndin var tekin 1. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1034
Þessir krakkar voru að afgreiða í sjoppunni á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012. Frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigurbjörg Birta Berndsen og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
Ólafur Bernódusson801
Myndin af þessum prúðbúnu drengjum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Dagur Freyr Róbertsson, Auðunn Árni Þrastarson, Pascal Gruenberger, Jóhann Almar Reynisson og Georg Kristjánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1133
Aðalheiður Lovísa Rögnvaldsdóttir í Höfðaskóla í lok nóvember 2002. Aðalheiður er kona Guðjóns Hall Sigurbjörnssonar.
Ólafur Bernódusson995
Koddaslagur á skólalóðinni hjá Höfðaskóla á íþróttadegi skólanna í Austur- Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Berglind Björnsdóttir kennari á Blönduósi er lengst til hægri en aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson921
Telma Dögg Bjarnadóttir í Höfðaskóla í mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1403
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur. Óþekkt stúlka sýnir stökk en Halla Karen er tilbúin að taka á móti henni ef þess þarf.
Ólafur Bernódusson1000
Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Sigþór Ottó Hallgrímsson til hægri í íþróttahúsinu í apríl 2001.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1241
Vinkonurnar Ásdís Birta Árnadóttir til vinstri og Aldís Embla Björnsdóttir til hægri á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Stúlkurnar tóku þátt í keppninni með dúett sem þær sungu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1399
Nokkrir nemendur á fimleikasýningu, sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur, bíða eftir að röðin komi að þeirra atriði. Vinstra megin eru í röð: Stefanía Hrund Stefánsdóttir og Gabríel Goði Tryggvason en hin börnin í röðinni eru óþekkt. Fremstur í hægri röð er Hlynur Hafliðason og aftast Erla Mjöll Daðadóttir en börnin milli þeirra eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson798
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sunna Steingrímsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Laufey Lind Ingibergsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1405
Vinkonurnar Guðrún Rós Hjaltadóttir til vinstri og Birta Dögg Bessadóttir til hægri í íþróttahúsinu 18. desember 2012.
Ólafur Bernódusson996
Koddaslagur á skólalóðinni hjá Höfðaskóla á íþróttadegi skólanna í Austur- Húnavatnssýslu sem haldinn var á Skagaströnd í apríl 2001. Kristbjörg Una Guðmundsdóttir er dökklædd að koma sér fyrir á staurnum. Þórhalla Guðbjartsdóttir er kennarinn til vinstri með spennu í hárinu. Til vinstri eru líka Katrín Hólmsteinsdóttir í dökkri peysu með ljósum bekk á bringunni og henni á hægri hönd er Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir að fylgjast með slagnum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1345
Páll Halldórsson, einn af keppendum úr Höfaskóla, tekur þátt í stóru upplestrarkeppninni 25. maí 2012 í Fellsborg. Árlega er haldin slík upplestrarkeppni milli skólanna í Húnavatnssýslum, til skiptis í skólunum fjórum. Þar keppa þrír fulltrúar frá hverjum skóla en þrír bestu lesararnir eru verðlaunaðir hverju sinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1238
Á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012 var fullt hús og fátt um sæti. Þess vegna settust þessir þrír ungu herramenn á gólfið og fylgdust með þaðan. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Leifur Örn Ragnarsson og Sigurður Aron Björnsson.
Ólafur Bernódusson920
Tanja Rán Einarsdóttir til vinstri og Eva Dís Gunnarsdóttir til hægri kátar við vinnu sína í Höfðaskóla í mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1401
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1038
Signý Richter til vinstri og Sigrún Guðmundsdóttir til hægri á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1035
Egill Örn Ingibergsson í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson999
Skólarnir í Austur-Húnavatnssýslum héldu sameiginlegan íþróttadag á Skagaströnd í apríl 2001. Þar var keppt í ýmsum hefðbundnum greinum íþrótta en einnig óhefðbundnum og síðan endað með diskóteki í Fellsborg um kvöldið. Þessi mynd var tekin af nemendum að fylgjast með keppni í íþróttahúsinu. Frá vinstri: óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Hanna Gestsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Eyþór Kári Egilsson, Stefán Agnar Gunnarsson, óþekktur, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, tveir óþekktir og Jón Atli Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 572
Nemendur 9. bekkjar Höfðaskóla gera útitilraun í sambandi við viðnám og mótstöðu framan við íþróttahúsið með kennara sínum Ólafi Bernódussyni í október 2014. Frá vinstri: Jóna Margrét Sigurðardóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson kennari (fjær), óþekktur (nær), Jóhannes Sigurpálsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sonja Albertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Elín Ósk Björnsdóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Arnrún Guðjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 424
Andrea Casper talar við börnin sín Zeliu Casper og Lazer Casper á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1233
Guðný Eva Björnsdóttir vinstra megin og Laufey Lind Ingibergsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1338
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd fylgjast nokkrir nemendur með öðrum dansa og bíða eftir að röðin komi að þeim sjálfum. Í fremri röð frá vinstri: Ingólfur Eðvald Björnsson, Ívan Orri Eiríksson, Jóhann Almar Reynisson og Arna Rún Arnarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Kristmundur Baldvinsson, Daði Snær Stefánsson, Dagur Freyr Róbertsson, Ólafur Halldórsson og Pétur Atli Árnason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1387
Þessi skólabörn voru á heimleið að loknum skóladegi í Höfðaskóla 5. nóvember 2012 þegar þessi mynd var tekin. Þeim þótti sjálfsagt að koma við í snjóhrúgu á leiðinni en börnin eru frá vinstri: Andri Már Gunnarsson, Erla Mjöll Daðadóttir, Brynjar Daði Finnbogason og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1398
Áhorfendur á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1346
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd dansa, frá vinstri: Stefanía Hrund Stefánsdóttir, Gabríel Goði Tryggvason og Sólveig Erla Baldvinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1402
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1388
Lengi var rekið skólamötuneyti í Kántrýbæ. Þessi mynd var tekin 8. nóvember 2012 af nokkrum strákum úr Höfðaskóla á leið í hádegismat. Strákarnir eru, frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Elvar Geir Ágústsson (fjær), Daði Snær Stefánsson (nær) og Ísak Karl Tryggvason.
Ólafur Bernódusson858
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan að koma síðasta spölinn að íþróttahúsinu. Á myndinni sjást frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, Embla Ágústsdóttir (barn), Sólrún Ágústa Magnadóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Hrönn Árnadóttir, Ellen Sigurjónsdóttir, Einar Sigurbergur Arason kennari og Telma Dögg Bjarnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1068
Þegar sundkennsla Höfðaskóla fór fram í námskeiðsformi haust og vor í lauginni á Skagaströnd var oftast haldið sundlaugarpartý í lokin á haustin áður en hleypt var úr lauginni og hún gerð klár fyrir veturinn. Þá máttu krakkarnir koma í fötum í laugina og leika sér þar undir dúndrandi tónlist og blikkandi ljósum. Heiti potturinn var líka vinsæll enda fylltur af froðu eins og myndin sýnir. Þessi mynd var tekin af pottverjum í lokapartýinu 9. september 2011.
Ólafur Bernódusson807
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sonja Sif Albertsdóttir, Arnrún Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg kristjánsson, Valgerður Ingvarsdóttir, Anna Margrét Sigurðardóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Hólmar Sigurpálsson.
Ólafur Bernódusson721
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Eymundur Lórens Grétarsson í hlutverki sínu á hátíðinni.
Ólafur Bernódusson790
25. janúar 2006 var haldið fjöltefli í skólanum eftir undanfarna skákkennslu. Því miður er óþekkt hver skákmaðurinn var sem tefldi við krakkana en þau eru frá vinstri: tvö óþekkt, Egill Örn Ingibergsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundssen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson og Birkir Freyr Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson850
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg 16. mars 2007. Á myndinni er atriði 4. bekkjar í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: Freyja Einarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Heba Líf Jónsdóttir, Aron Fannarsson og Sigurbjörg Birta Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1232
Snæfríður Guðmundsdóttir vinstra megin og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Sjá má verðlaunagripinn á borðinu til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1400
Tveir ungir menn bíða eftir að röðin komi að þeim á fimleikasýningu Höfðaskóla 18. desember 2012. Páll Halldórsson til vinstri og Egill Örn Ingibergsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1342
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd er Kara Arngrímsdóttir danskennari umkringd leikskólabörnum sem eru að sýna það sem þau hafa lært. Börnin eru frá vinstri: Elsa Fanney Gunnarsdóttir, Logi Hrannar Jóhannsson, Zelia Casper og lengst til hægri sér í Anitu Ósk Gunnarsdóttur. Aðrir eru óþekktir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1235
Anita Ósk Ragnarsdóttir vinstra megin og Dagný Dís Bessadóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Ólafur Bernódusson859
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan að koma síðasta spölinn að íþróttahúsinu. Á myndinni eru: aftast Heiðrún Tryggvadóttir og móðir hennar (?) , Aðalheiður Sif Árnadóttir í dökkri úlpu leiðis son sinn Dag Frey Róbertsson en annar sonur hennar Ívan Árni Róbertsson er næst okkur á myndinni. Í hvítu úlpuvesti er Sigríður Stefánsdóttir sem leiðir sinn son, Ólaf Halldórsson. Lengst til hægri er svo Svenny Hallbjörnsdóttir með reiðhjól. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson997
Stelpur keppa í körfubolta á sameiginlegum íþróttadegi skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í íþróttahúsinu á Skagaströnd í apríl 2001. Fyrir miðri mynd í gráum bol með hvítum bekk er Eva Dögg Bergþórsdóttir og á milli stelpnanna tveggja í vestunum til vinstri sér í andlit Önnu Maríu Magnúsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 421
Anton Þór Einarsson að selja miða inn á grímuball Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1111
Myndin var tekin 25. júlí 2008 þegar vinna við skólalóð Höfðaskóla stóð sem hæst. Á myndinni eru systurnar Aldís Embla Björnsdóttir til vinstri og Guðný Eva Björnsdóttir til hægri með frænda sinn, Guðmund J. Björnsson gröfumann, á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1404
Áhorfendur á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur. Aftari röð frá vinstri: Lilja Ingólfsdóttir, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Guðmundur Egill Erlendsson og Vigdís Þorgeirsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Bjarney Ragnhildur Jónsdóttir, Sonja Dröfn Helgadóttir, Kristján Helgi Gunnarsson og óþekkt stúlka.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 577
Á árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014 buðu nemendur upp á leiksýninguna Kardimommubærinn. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Sigurður Aron Björnsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir og Rebekka Heiða Róbertsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1224
Myndin var tekin á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012. Á henni spjallar Halldór Gunnar Ólafsson kynnir keppninnar við tvær ungar söngkonur sem tóku þátt, Sóley Sif Jónsdóttur til vinstri og Arnrúnu Hildi Hrólfsdóttur til hægri.
Ólafur Bernódusson713
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Georg Þór Kristjánsson að kynna næsta atriði á dagskránni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1341
Á útivistardögum í lok maí 2012 kom lögreglan í heimsókn og yfirfór reiðhjól nemenda fyrir sumarið. Á þessari mynd skoðar Höskuldur Birkir Erlingsson lögreglumaður hjólið hjá Daða Snæ Stefánssyni. Agnes Sævarsdóttir kennari fylgist með ásamt óþekktum nemanda.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 423
Mæðgurnar María Ösp Ómarsdóttir og Erla Mjöll Daðadóttir fylgjast með æfingu í Fellsborg á leikriti á vegum Höfðaskóla 9. apríl 2013. María Ösp var leikstjóri verksins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1221
Klara Ósk Hjartardóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1225
Sóley Sif Jónsdóttir vinstra megin og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1428
Vinir, bekkjarfélagar úr Höfðaskóla og meðlimir í hljómsveitinni Dornik. Frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbörg Katla Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Myndin var tekin 19. janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 576
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014. Þá sýndu nemendur leikritið Kardimommubær. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardótir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Elmar Jóhann Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1219
Bylgja Hrund Ágústsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
1
…
15
16
17
18
19
Leita í myndasafninu
Leita