Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Höfðaskóli
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1463
Krakkarnir á myndinni voru líklega að leika sér í frímínútum í Höfðaskóla þegar myndin var tekin um miðjan mars 2012. Á henni eru frá vinstri: Jón Árni Baldvinsson, Ólafur Halldórsson, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Telma Jónasdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Karen Líf Sigurbjargardóttir og Andri Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 894
Myndin var tekin 11. desember 2007 í Höfðaskóla þar sem jólaundirbúningur stóð sem hæst. Frá vinstri: Sæþór Bragi Ágústsson, Sara Rut Fannarsdóttir og Herdís Baldvinsdóttir kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 896
Ásdís Erla Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Ólafur Bernódusson998
Limbókeppni á sameiginlegu diskóteki skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í Fellsborg á íþróttadegi á Skagaströnd í apríl 2001.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 422
Afgreiðslumenn í sjoppu skólafélagsins á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013. Guðmann Einar Magnússon til vinstri og Páll Halldórsson til hægri. Segja má að á myndinni komi vel saman íslenskri sveitakonu og amerískri ofurhetju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 921
Lilja Svandís Hallgrímsdóttir til vinstri og Guðrún Anna Halldórsdóttir til hægri niðsokknar við jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 928
Guðmann Magnússon fær ráð hjá Önnu Margréti Sigurðardóttur kennara í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 923
Magnús Jens Magnússon til vinstri og Birkir Freyr Gunnarsson til hægri í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 878
Myndin var tekin rétt fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla. Á henni aðstoðar Magnea Valdimarsdóttir nokkra nemendur við jólaföndrið. Nemendurnir eru, frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson og Arnar Páll Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 916
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsinu - 10. desember 2007. Á myndinni eru frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen og Egill Örn Ingibergsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 879
Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Saga Lind Víðisdóttir til hægri föndra fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 907
Anton Þór Einarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1245
Sigurður Aron Björnsson í kvenhlutverki á sviðinu í Fellsborg 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 941
Myndin af þessum bekk í Höfðaskóla var tekin 11. desember 2007. Nemendurnir á myndinni eru 1997 árgerð. Fremri röð frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015). Aftari röð frá vinstri: Aron Breki Hjartarson, Elvar Geir Ágústsson, Róbert Björn Ingvarsson, Gunnþór Ingi Kristjánsson og Kristján Örn Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 924
Sigurjón Elí Eiríksson í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 917
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari, Sigurður Aron Björnsson, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), Jóhannes Sigurpálsson (nær), Rebekka Laufey Sigurpálsdóttir, Aron Breki Hjartarson (nær), Sara Rut Fannarsdóttir (fjær), Ívan Árni Róbertsson (fjær) og Laufey Lind Ingibergsdóttir (nær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 918
Skemmtilegt í jólaföndri í Höfðaskóla - íþróttahúsinu - 10. desember 2007. Á myndinni eru, frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari (fjær), Sigurjón Elí Eiríksson (nær), Magnús Jens Magnússon, Sæþór Bragi Ágústsson, Elva Dröfn Árnadóttir kennari og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 922
Heba Líf Jónsdóttir í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 994
Myndin var tekin 3. mars 2008. Þá fór fram Gargið í Fellsborg en það var söngvakeppni Höfðaskóla. Krakkarnir á myndinni eru í eldhúsinu þar að bíða eftir að röðin komi að þeim á sviðinu. Krakkarnir eru frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnson og Óskar Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 919
Ásdís Adda Ólafsdóttir við vinnu sína sem kennari í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 926
Páll Halldórsson sýnir stoltur jólaskrautið sitt, sem hann bjó til í Höfðaskóla á jólaföndurdegi 10. desember 2007. Stúlkan í baksýn er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1240
Ívan Árni Róbertsson á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 933
Jólakortagerð í Höfðskóla - íþróttahúsi - 11. desember 2007. Nemendurnir á myndinni eru, frá vinstri: Anton Þór Einarsson, Hallbjörg Jónsdóttir (nær), óþekkt (fær) og Sonja Sif Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 947
Dansað kringum jólatréð á litlu jólum Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum. Allir taka þátt í söng og hreyfileikjum, sem tilheyra jólaböllum, og skemmta sér vel í sparifötunum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 951
Á myndinni , sem tekin var á litlu jólum í Höfðakóla 19. desember 2007, er Heiðrún Tryggvadóttir kennari lengst til vinstri með umsjónarbekknum sínum. Frá vinstri: Heiðrún, Tryggvi Fjölnisson sonur hennar, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir (fjær), Freyja Einarsdóttir (nær), Andrea Kristjánsdóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 929
Guðmann Einar Magnússon til vinstri og Ísak Karl Tryggvason til hægri á heimleið úr Höfðaskóla með jólaföndrið sitt 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 915
Sunna Björg Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 938
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri í árlegri heimsókn í Höfðaskóla 11. desember 2007. Þá fer hann yfir ýmislegt gagnlegt í sambandi við eldvarnir á heimilum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1244
Elvar Geir Ágústsson vinstra megin og Einar Ari Einarsson hægra megin, ljósa- og hljóðmenn, á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Myndin var tekin á síðust æfingu þá um morguninn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 944
Árleg er haldin brunaæfing í Höfðaskóla í samvinnu við slökkviliðið á Skagaströnd. Þá er tæmingaráætlun skólans virkjuð til að kenna nemendum rétt viðbrögð og til að læra hvað betur má fara í neyðartilvikum eins og ef eldur kemur upp í húsnæðinu. 13. desember 2007 var haldin slík æfing og til að gera hlutina sem raunverulegasta var forstofan fyllt af reyk og nemendurnir þurftu að fara í gegnum kófið með kennurum sínum. Á myndinni er Elva Þórisdóttir að taka við nemendum um leið og þeir koma út úr reyknum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 426
Kristján Örn Róbertsson á sviðinu í Fellsborg 9. apríl 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 761
Myndin var tekin 30. mars 2007 á skóla-íþróttamóti í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Maðurinn til vinstri er óþekktur en skeggjaði maðurinn er íþróttakennarinn á Húnavöllum Milan Durica. Áður en hann gerðist kennari á Húnavöllum kenndi hann við Höfðaskóla í nokkur ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 906
Sveinn Halldór Hallgrímsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla af sönghópi ungra stúlkna á einhverri skemmtun þar. Myndin var tekin 1967 - 1968. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Þorleifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Sigríður Birna ? , Elsa Lára Blöndal, Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigrún Lárusdóttir sem leikur undir á gítar. Ef þú manst hvers dóttir Sigríður Birna er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 940
Kristmar Ingi Ragnarsson til vinstri og Elvar Geir Ágústsson til hægri í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 764
Heiðrún Tryggvadóttir kennari með umsjónarbekkinn sinn í íþróttahúsinu 19. apríl 2007. Frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, óþekktur, Sara Rut Fannarsdóttir, Sonja Ólafsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, óþekkt, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir, Alex Már Gunnarsson og Heiðrún. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 902
Tryggvi Fjölnisson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 986
Þessar ungu stúlkur eru að syngja í söngkeppninni "Gargið", á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 6. mars 2008. Stúlkurnar eru frá vinstri: Rakel Jensína Jónsdóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir og Halldóra Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 908
Laufey Lind Ingibergsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 897
Ágúst Ingi Ágústsson kennari í Höfðaskóla við undirbúning kennslu 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 939
Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari til vinstri og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla til hægri skemmta sér vel í vinnunni í skólanum 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1168
Hluti kennara og starfsfólks Höfðaskóla slakar á eftir litlu jólin 19. desember 2003. Frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Dagbjört Bæringsdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 987
Elva Dröfn Árnadóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla fylgjast með söngkeppni skólans, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 900
Svandís Lilja Hallgrímsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 932
Alma Dröfn Vignisdóttir og Elvar Geir Ágústsson dunda sér við jólaföndur í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Höfðaskóli málaður. Bíllinn tilheyrði Þresti Líndal, sem var húsvörður í skólanum um árabil.
Ólafur Bernódusson 817
Skólabörn úr Höfðaskóla bíða þolinmóð í anddyri Fellsborgar á æfingu fyrir Elinborgardag 16. nóvember 2007. Standandi er Róbert Ingvarsson en sitjandi eru frá vinstri: tvö óþekkt, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Auðunn Árni Þrastarson, Tryggvi Fjölnisson ?, óþekktur, Eymundur Lórens Grétarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 980
Ólafur Bernódusson kennari og göngustjóri afhendir Ágústi Inga Ágústssyni kennara viðurkenningarskjal fyrir að hafa gengið á topp Spákonufells 23. .maí 2008. Óskar Björnsson og Torfi Friðrik Magnason bíða eftir sínum skjölum. Fjallgangan var hluti af valkvæðum atriðum á útivistardögum í Höfðaskóla
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 920
Elva Þórisdóttir kennari og Heba Líf Jónsdóttir nemandi í Höfðaskóla í jólaundirbúningi 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 991
Aldís Embla Björnsdóttir til vinstri og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015) til hægri syngja í söngkeppninni "Gargið" hjá Höfðaskóla 6. mars 2008. Andlitsmálningin var greinilega gerð með söngkonuna Heru Hjartardóttur í huga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 893
Ingimar Gísli Guðjónsson vinnur að viðgerðum á jóla-gluggaskrauti í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 936
Birgitta Rut Bjarnadóttir í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 878
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá var sett upp sýning á ljósmyndum úr skólastarfi undangenginna ára og á gömlum aflögðum munum úr starfinu. Á myndinni eru tvær reynslumiklar skólakonur að skoða fyrsta fjölritann sem notaður var í skólanum. Konurnar eru Elínborg Jónsdóttir kennari til vinstri og Bergþóra Gísladóttir skólamálastjóri A-Hún til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1243
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkur að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Birta Dögg Bessadóttir, Haraldur Guðjónsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Freydís Kristjánsdóttir og Kristmundur Baldvinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 927
Þau skemmtu sér vel í jólaföndrinu í Höfðaskóla 10. desember 2007. Frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir systir hans og Sigurbjörg Birta Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 937
Myndin var tekin 11. desember 2007 Höfðaskóla - íþróttahúsi - á jólaföndurdegi. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir kennari að hjálpa nokkrum nemendum að leggja síðustu hönd á gripi sína. Stúlkan með gleraugun er Birta Dögg Bessadóttir og strákurinn með gleraugun er Unnar Leví Sigurbjörnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 953
Þessar þrjár blómarósir skemmtu sér vel á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1242
Myndin var tekin 23. mars 2012 í Fellsborg á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla, sem haldin var þá um kvöldið. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Guðrún Björgvinsdóttir, Ólafur Halldórsson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Árnason, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Arna Rún Arnarsdóttir. Framan við nemendurna stendur ?Erna Berglind Hreinsdóttir?umsjónakennari .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 955
Guðlaugur Ómar Guðmundsson afhendir Hönnu Lísu Hafliðadóttur (d. 13.7.2015) happdrættisvinning á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 946
Myndin var tekin í íþróttasalnum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Á henni situr Ólafur Bernódusson kennari með umsjónarbekknum sínum og fylgist með happadrættisútdrætti. Á bekknum aftan við Ólaf eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson, Torfi Friðrik Magnason, Viktor Örn Valdimarsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Guðjón Pálsson
1
…
15
16
17
18
19
Leita í myndasafninu
Leita