Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Höfðaskóli
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1082
Frá lokaballi Höfðaskóla í Kántrýbæ 27. maí 2010. Krakkarnir hafa valið nemendurna á myndinni sem það sem á borðunum stendur. Nemendurnir eru frá vinstri: Stefán Velemir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Alma Dröfn Vignisdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson og Eva Dís Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 873
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru stelpurnar að dansa fyrir fólk. Frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Hanna Lísa Gestsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Anna María Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 931
Nemendur föndra fyrir jólin í Höfðaskóla 10. desember 2007. Frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson og Hanna Lísa Hafliðaflidóttir (d.13.7.2015).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 909
Arnrún Ösp Guðjónsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 910
Linda Rún Einarsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 943
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir saumar í og Elín Ósk Björnsdóttir fylgist með á föndurdegi í Höfðaskóla - íþróttahúsi- 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 934
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 11. desember 2007. Nemendurnir eru, frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson og Sæunn Ósk Steingrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 950
Ágúst Ingi Ágústsson kennari (með bindi) situr hjá umsjónarbekknum sínum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum og bíður eftir að hefja dans kringum tólatréð. Nemendurnir eru frá vinstri: Ísabella Róbertsdóttir, óþekkt, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Óskar Björnsson, Indriði Björnsson, Sólrún Ágústa Magnadóttir og Laufey Inga Stefánsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 914
Auðunn Árni Þrastarson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 930
Sylvía Ósk Hrólfsdóttir í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 903
Birkir Freyr Gunnarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1252
Myndin var tekin á aðalæfingu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg um morguninn 23. mars 2012. Hátíðin sjálf var svo um kvöldið. Á myndinni eru Eva Dögg Björgvinsdóttir og Arnar Páll Guðjónsson að kynna næsta atriði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 913
Sæunn Ósk Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1338
Danssýning 12. október 2012 í íþróttahúsinu. Krakkarnir á myndinni stíga hringdans undir stjórn Köru Arngrímsdóttur danskennara.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1251
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkurinn að sýna atriðið sitt. Frá vinstri: ? Jónasdóttir?, Páll Halldórsson, óþekkt, Linda Rún Einarsdóttir, óþekkt, Sæunn Steingrímsdóttir og Anton Þór Einarsson. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 948
Enginn er of gamall til að taka þátt í söngnum og leiknum:"Í skóginum stóð kofi einn". Á myndinni eru nemendur að dansa kringum jólatré á litlu jólunum í Höfðaskóla 19. desember 2007 og syngja um litla hérann sem leitar skjóls hjá jólasveininum. Nemendurnir eru frá vinstri: óþekktur, Ásdís Birta Árnadóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Andrea Kristjánsdóttir, Freyja Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir og Sara Rut Fannarsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 911
Rebekka Heiða Róbertsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1337
23. maí 2012 mætti lögreglan við Höfðaskóla til að skoða reiðhjól nemenda og leggja þeim lífsreglurnar í sambandi við umferðina. Á myndinni eru Agnes Sævarsdóttir kennari og Höskuldur B. Erlingsson lögreglumaður sem er að skoða hjólið hjá Daða Snæ Stefánssyni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 935
Guðný Eva Björnsdóttir, Aron Snær Fannarsson í miðið og Kristmar Ingi Ragnarsson til hægri dunda við jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 11. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 923
Myndin var líklega tekin sumarið 1997 þegar verið var að reisa límtrésbitana sem skapa íþróttahúsið. Uppsteypu er lokið. Fyrsta skóflustunga að húsinu var tekin í september 1996 en húsið var svo vígt fullbúið 15. mars 1998. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en það var Helgi Gunnarsson sem reisti húsið með sínum mannskap.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 942
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla ganga syngjandi kringum jólatré í íþróttasalnum á litlu jólum 19. desember 2007. Litlu jólin eru ávallt mjög skemmtileg þar sem allir mæta í sínu fínasta pússi og margir fá að prófa jólafötin sín í fyrsta sinn það árið.
Ólafur Bernódusson 1084
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2001. Þau eru, í fremri röð frá vinstri: Sveinn Halldór Hallgrímsson, Auðunn Árni Þrastarson og Benóný Bergmann Árnason. Aftari röð frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari, Hallbjörg Jónsdóttir, Birgitta Bjarnadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir
Helgi Gunnarsson 32
Baldvin Hjaltason til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri smíða áhorfendapallana í íþróttahúsinu 26. nóvember 1997.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1253
Áhugasamir áhorfendur á aðalæfingu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Í aftari röðinni eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Elín Ósk Björnsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir og óþekkt. Fremri röð frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen og Laufey Lind Ingibergsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1078
Dagur Freyr Róbertsson í hlutverki sínu í skemmtiatriði bekkar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 867
Myndin var tekin á jólaföndurdegi foreldrafélags Höfðskóla í skólanum í desember 1999. Á slíkum föndurdögum mættu foreldra með börnum sínum og unnu eitthvað fallegt í höndunum. Yfirleitt var húsfyllir á þessum viðburðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1472
Kleinubakstur í fullum gangi í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla 28. september 2011. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir skólafélagið Rán svo unglingarnir kæmust í skólaferðalag til útlanda. Litla stúlkan á myndinni er Klara Ósk Hjartardóttir að aðstoða móður sína Vigdísi Ómarsdóttur. Strákurinn í grænu peysunni er sonur Vigdísar, Aron Breki Hjartarson. Konan með röndóttu svuntuna er Þorgerður Þóra Hlynsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1153
Séra Magnús Magnússon og Stella Kristjánsdóttir skólastjóri Höfðaskóla á spjalli utan við íþróttahúsið 19. mars 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1364
Myndin var tekin í íþróttahúsinu 12. október 2012 á danssýningu nemenda í Höfðaskóla undir stjórn Köru Arngrímsdóttur danskennara. Börnin í fremstu röðinni eru frá vinstri: Þórunn Sif Hólmgeirsdóttir, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Gunnar Andri Elvarsson, Óðinn Örn Gunnarsson og Ísabella Líf Tryggvadóttir.
Ólafur Bernódusson 981
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983 þegar verið var að syngja og dansa kringum jólatréð. Upp við vegginn eru kennararnir Magnús B. Jónsson í köflóttri peysu og Guðmundur Haukur Sigurðsson með gleraugu. Nemendurnir eru frá vinstri: Valdimar Númi Hjaltason, Guðmundur Óskarsson ?, Kristjana Jónsdóttir, Jón Arnarson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), tveir óþekktir, Svava Sigurðardóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson (næst) Baldvin Sveinsson (í miðið), Davíð Reynisson (fjærst), Magnús kennari, Rafn Ingi Rafnsson, Sigurbjörn Kristjánsson með jólahúfu, Þorlákur Sveinsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur, Arnar Erlingsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Guðmundur kennari. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1248
Lilja Dögg Hjaltadóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 905
Sigurður Aron Björnsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 956
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 inni í stofu hjá miðstiginu þegar óþekktur jólasveinn úr Spákonufellinu kom í heimsókn. Frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir jólasveinn Leppalúðason og Elva Dröfn Árnadóttir kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 899
Elín Ósk Björnsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1081
Þessi mynd var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla 27. maí 2010 í Kántrýbæ. Þá völdu krakkarnir, til gamans, hina ýmsu fulltrúa eins og sjá má á myndinni. Útnefningarnar áttu að vera lýsandi fyrir hegðun og framkomu viðkomandi yfir veturinn. Á myndinni eru í fremri röð: Sigurlaug Máney Sæmundsen sem valin var "Krútt" ársins og einnig "Ungfrú stríðin". Hjá henni er Ívan Árni Róbertsson sem valinn var "Herra stríðinn". Í aftari röð eru frá vinstri: Stefán Velemir "Kóngur" ársins, Telma Dögg Bjarnadóttir "Drottning" ársins, Eva Dís Gunnarsdóttir "Ljóska" ársins og "Herra skellur", Erna Björgvinsdóttir "Herra lítill" og Alma Dröfn Vignisdóttir "Prinsessa" ársina og "Ungfrú Sól".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 768
Vinirnir Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í íþróttahúsinu 15. mars 2008 á einhverjum óþekktum viðburði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1246
Valgerður Guðný Ingvarsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1487
Íþróttamaraþon 25. mars 2011 í íþróttahúsinu á vegum Höfðaskóla. Krakkarnir stunduðu íþróttir í heilan sólarhring og söfnuðu áheitum til að komast í skólaferðalag til útlanda. Á myndinni eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt, Indriði Theódór Hjaltason, tvö óþekkt, Róbert Björn Ingvarsson, Aron Snær Fannarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Magnús Jens Magnússon, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Einar Ari Einarsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ívan Árni Róbertsson, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, óþekktur og Rakel Jensína Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 925
Þrír ungir menn í jólaföndri í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007. Frá vinstri: Magnús Jens Magnússon, Jóhannes Sigurpálsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 945
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla 13. desember 2007. Þá var enn kennt á báðum hæðum í íþróttahúsinu og myndin sýnir Herdísi Baldvinsdóttur kennara hjálpa Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur við að komast í brunastigann af svölum efri hæðarinnar. Það er hluti af tæmingaráætlun skólans að nemendur og aðrir sem eru á efri hæðinni í húsinu fari út á svalirnar og síðan niður stigann.
Ólafur Bernódusson 972
Myndin var tekin í efra gangi Höfðaskóla 1984. Börnin á myndinni eru óþekkt en þessi staður í skólanum er gerbreyttur í dag. Þarna er nú vinnuaðstaða kennara og fuglaskápurinn fyrir enda gangsins er horfinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1241
Myndin var tekin 23. mars 2012 í Fellsborg á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla, sem haldin var um kvöldið. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir umsjónakennari, Almar Atli Ólafsson, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Gabríel Goði Tryggvason, fjórir óþekktir nemendur, María Gret Gunnarsdóttir, Karen Líf Sigurbjargardóttir, tvær óþekktar stúlkur, Brynjar Daði Finnbogason, Hlynur Hafliðason og Brynja Hödd Ágústsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 901
Eymundur Lórens Grétarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 875
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að leika kennslustund eins og hún var um 1939 þegar Höfðaskóli var stofnaður. Frá vinstri á myndinni: Óþekktur (sitjandi), Tinna Björk Gunnarsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Ragnar Már Björnsson, Eyþór Vilhjálmsson, Anna Dúna Rúnarsdóttir og Jón Atli Magnússon. meðal áhorfenda má þekkja Patrik Snær Bjarnason með svarta húfu.
Ólafur Bernódusson 879
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að lesa fyrir fólk úr sögu skólans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 949
Elías Árnason spilar fyrir dansi á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Séra Fjölnir Ásbjörns leiðir sönginn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 891
Tanja Rán Eirnarsdóttir og Harpa Hlín Ólafsdóttir undirbúa litlu jólin í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 952
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, Anna Margét Sigurðardóttir kennari, Egill Örn Ingibergsson, Elvar Geir Ágústsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ásdís Birta Árnadóttir og Elva Dröfn Árnadóttir kennari. Efri röð frá vinstri: Birta Dögg Bessadóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, óþekktur, Aron Breki Hjartarson, óþekkt, Halldóra Guðmundsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson, tveir óþekktir, Ísak Karl Tryggvason, Róbert Björn Ingvarsson og Friðmar Kári Eiríksson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 895
Páll Halldórsson í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1249
Harpa Hlín Ólafsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012.
Ólafur Bernódusson 866
Þessa mynd tók Páll Pálsson ljósmyndari af starfsfólki Höfðaskóla veturinn 2006 - 2007. Nöfn fólksins eru á myndinni.
Ólafur Bernódusson 922
Myndin var tekin í febrúar 1999 af rampinum sem var á skólalóðinni þar til hann fauk veturinn 2018. Byrjunin á rampinum var reyndar framtak nokkurra ungra stráka sem höfðu gaman af að spreyta sig á hjólabrettum. Í mörg ár var svo rampurinn vinsælt leiksvæði og samkomustaður ungra barna og unglinga til að leika sér í/á.
Ólafur Bernódusson 869
Myndin var tekin í desember 1999 á jólaföndurdegi foreldrafélags Höfðaskóla í skólanum. Á myndinni eru einbeittar í föndrinu Ásthildur Guðmundsdóttir í hvítri peysu og Guðrún Soffía Pétursdóttir í fjóluárri peysu. Milli þeirra situr dóttir Ásthildar, Valgerður Guðmundsdóttir. Við borðið í baksýn stendur Dagbjört Bæringsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1346
Myndin var tekin 25. maí 2012 af útskrift 10. bekkjar Höfðaskóla það árið. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson, Einar Ari Einarsson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Ólafur Bernódusson umsjónarkennari bekkjarins, Anna Dís Ragnarsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Arnar Páll Guðjónsson (í hvarfi) og Aron Snær Fannarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1247
Victoría Sif Hólmgeirsdóttir leikur á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23.mars 2012.
Ólafur Bernódusson 975
Stund milli stríða hjá Ingibergi Guðmundssyni á kennarastofunni í Höfðaskóla haustið 1984.
Ólafur Bernódusson 1074
Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Haraldur Guðjónsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1085
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sigurður Hreiðarr Björgvinsson kennari, Viktor Már Einarsson, Rebekka Róbertsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Jóna Margrét Sigurðardóttir
Ólafur Bernódusson 1022
Lestarátak Í Höfðaskóla í nóvember 1998. Á myndinni les Leó Kristberg Einarsson, sem situr á borðshorni til hægri, upphátt fyrir nemendur á sal. Vinstra megin á myndinni má þekkja, frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Vignir Örn Hafþórsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Jón Oddur Hjálmtýsson. Næst Leó hægra megin er Guðni Már Lýðsson en hinum megin við Leó stendur Ingibergur Guðmundsson skólastjóri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 7
Vesturendi Íþróttahússins steypuklár snemmsumars 1997.
1
…
15
16
17
18
19
Leita í myndasafninu
Leita