Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Höfðaskóli
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 912
Lilja Dögg Hjaltadóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1645
Eva Ósk Björgvinsdóttir vinstra mnegin og Heba Líf Jónsdóttir til hægri að selja miða á grímuball Höfðaskóla í Fellsborg 22. febrúar 2012.
Ólafur Bernódusson 1024
Krakkarnir á myndinni eru að lesa sér til gamans í lestrarátaki í Höfðaskóla í nóvember 1998. Frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir og Birna Þórkatla Sæmundsdóttir. Nemandinn til hægri er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1653
Myndin var tekin 6. mars 2012 þegar nemendur Höfðaskóla léku leikritið Latibær í Fellsborg. Leikararnir eru: yst til vinstri Rakel Jensína Jónsdóttir ofar og Guðrún Rós Hjaltadóttir neðar. Fyrir miðju frá vinstri: Eva Ósk Björgvinsdóttir, ?Birta Dögg Bessadóttir?, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Aldís Embla Björnsdóttir. Til hægri er Aron Breki Hjartarson ofar og óþekktur neðar. Á sviðsbrúninni situr Aron Snær Fannarsson. Ef þú þekkir óþekkta leikarann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1618
Myndin var tekin 1. febrúar 2012 af Báru Þorvaldsdóttur við vinnu sína sem bókavörður í Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson 1001
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á þessari mynd er málun og sköpun í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: ?Guðrún Elsa Helgadóttir?, María Gunnarsdóttir (fjærst), óþekkt, Þóra Ágústsdóttir með pensil á lofti. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ásta Ósk Ásgeirsdóttir og Sigurbjörg Jónasdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 29
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins af starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem sá um að byggja húsið. Mennirnir eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Rúnar Kristjánsson, Björn Sigurðsson, Rolf Árnason (d.3.6.2014), Hrólfur Pétursson, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurjón Karlsson, Einar Gunnarsson, Gunnar Dór Karlsson, Árni Max Haraldsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), óþekktur, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Gunnar Helgason, Magnús Hjaltason og Hjörtur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson 1086
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 1999. Þau eru, fremri röð frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Trostan Agnarsson kennar, Birkir Gunnarsson og Eymundur Lórens Grétarsson.
Ólafur Bernódusson 1023
Myndin var tekin í Höfðaskóla í nóvember 1998 þegar þar stóð yfir lestrarátak. Nemendur komu sér þá vel fyrir þar sem þeir vildu og lásu sér til skemmtunar í hálftíma á hverjum morgni. Á myndinni eru, talið frá hægri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1072
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 30. nóvember 2017 í Fellsborg. Á henni syngja nemendur úr tveimur bekkjum saman. Aftari röð frá vinstri: Gabríel Goði Tryggvason, Hlynur Árnason, Anna Marie Gruenberger og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Í fremri röð frá vinstri: Bjarni Bragi Bessason, Sigurjón Ýmir Alexson, Arnar Gísli Birkisson, óþekktur, Lárey Mara Sigurðardóttir, Birgitta Finnbogadóttir, óþekktur og Gunndís Katla Þrastardóttir.
Ólafur Bernódusson 1082
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Sigurpálsson.
Ólafur Bernódusson 1003
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er Ingibergur Guðmundsson kennari að skipuleggja skólablað með nokkrum nemendum. Frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, óþekktur, Svanur Árnason, óþekkt (nær), Ingibergur, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og þrjú óþekkt.
Ólafur Bernódusson 982
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983. Krakkar úr 11 ára bekk flytja frumsaminn leikþátt fyrir aðra nemendur skólans. Leikararnir eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Friðrik Birgisson og Hólmfríður Oddsdóttir.
Ólafur Bernódusson 973
Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), bæjarverkstjóri á Skagaströnd, fær kaffisopa á kennarastofunni í Höfðaskóla veturinn 1983-84.
Ólafur Bernódusson 1081
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir 2001. Þau eru, frá vinstri: Birgitta Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Árnason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1079
Nokkrir nemendur í skemmtiatriði síns bekkjar á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Mathis Gruenberger, Sólveig Baldvinsdóttir, Arnrún Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadótti, Þórunn Hólmgeirsdóttir og óþekktur nemandi.
Ólafur Bernódusson1077
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Fjöldi fólks mætti á skólalóðina og fylgdist með ásamt nemendum Höfðaskóla.
Helgi Gunnarsson 3
Hrólfur Pétursson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri vinna við sökkla undir íþróttahúsið haustið 1996. Mennirnir tveir, lengra frá, eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 31
Hallbjörn Björnsson rafvirki sá um rafmagnið í íþróttahúsinu. Myndin af honum þar var tekin 26. nóvember 1997.
Ólafur Bernódusson1052
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar bygging íþróttahússins var í fullum gangi. verið er að reisa hluta af límtrés bitunum sem mynda útveggi og þak hússins. Mennirnir á myndinni eru líklega, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Sigurður Björnsson standandi og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) sitjandi.
Ólafur Bernódusson1054
Myndin var tekin sumarið 1997. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri ganga frá festinu á límtrésbita sem er hluti af útvegg og þaki hússins.
Ólafur Bernódusson1053
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar verið var að reisa límtrésbitana sem mynda útveggi og þak íþróttahússins. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) krýpur, Baldvin Hjaltason í rauðum samfestingi fylgist með og Sigurður Björnsson borgar yfir kúbeini til að stýra sperrunni rétt á festingarnar. Til hægri athugar Helgi Gunnarsson eitthvað við síðustu sperru.
Ólafur Bernódusson1076
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta yngstu nemendur Höfðaskóla draga um hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Adolf H. Berndsen oddviti fylgist með ásamt öðrum Skagstrendingum. Hávaxinn til vinstri, í bláum jakka, er Helgi Gunnarsson, sem sá um byggingu hússins.
2001094
Íþróttahúsið í byggingu. Myndin var tekin 1997 en húsið var vígt 15. mars 1998.
URL
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1250
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir situr á sviðsbrúninni, Benóný Bergmann Sæmundsen og Helgi Sveinn Árnason.
Ólafur Bernódusson 868
Myndin var tekin í desember 1999 á jólaföndurdegi í Höfðaskóla. Fólkið á myndinni eru vinstri: óþekktur, Dóra Jónasdóttir, Linda Björk Ævarsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og Dagbjört Bæringsdóttir.
Ólafur Bernódusson 865
Þessa mynd tók Páll Pálsson ljósmyndari af 10. bekkingum í Höfðaskóla veturinn 2000 - 2001. Aftasta röð frá vinstri: Tinna Björk Gunnarsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Jenny Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson umsjónarkennari, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Lilja Nótt Sævarsdóttir og Guðrún Hjálmtýsdóttir. Fremst frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Dóra Björk Magnúsdóttir og Birkir Rúnar Jóhannsson.
Helgi Gunnarsson 5
Útveggir íþróttasalar íþróttahússins komnir vorið 1997. Steypu"fæturnir" til hægri eru til mótvægis við límtrésbitana sem koma þegar húsið er reist.
Ólafur Bernódusson 983
"Svona gerum við þegar...." sungið og leikið á litlu jólum 1983 í Höfðaskóla. Krakkarnir eru frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Inga Kristjánsdóttir og tvö óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helgi Gunnarsson 28
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tæknifræðingur sveitarfélagsins til vinstri og Helgi Gunnarsson verktaki til hægri fagna með veisluföngum í reisugilli íþróttahúsinu sumarið 1997.
Ólafur Bernódusson 1073
Kristmundur Baldvinsson og Dagný Dís Bessadóttir kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1005
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er verið að baka pönnukökur fyrir alla í skólanum. Lengst til vinstri eru tvær óþekktar. Ása Ásgeirsdóttir er við enda borðsins. Þá koma frá vinstri: óþekkt, Elísabet Hallbjörnsdóttir, óþekkt, Árný Helgadóttir (fjær), Elín Ómarsdóttir (nær),tveir óþekktir, Hólmgeir Kristmundsson og óþekkt.
Ólafur Bernódusson 1075
Freydís Kristjánsdóttir og Daði Snær Stefánsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1080
Hópur bekkjarfélaga í framkalli eftir að hafa sýnt skemmtiatriði sitt á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Freydís Kristjánsdóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson, Dagný Dís Bessadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson, Haraldur Guðjónsson og Pascal Gruenberger.
Ólafur Bernódusson 876
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að syngja fyrir fólk og leika það sem sungið er um. Krakkarnir eru frá vinstri: Ómar Ísak Hjartartarson, Patrik Snær Bjarnason, tvö óþekkt, Rósa Björg Einarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir ? (fjær), óþekkt (nær), Lilja Nótt Sævarsdóttir, óþekktur, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og óþekkt. Lengst til hægri stendur Aðalheiður Sif Árnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 976
Strákarnir eru að stækka mynd eftir fyrirmynd á myndvarpanum. Strákarnir eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Jóhannes Heiðmar Indriðason. Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984.
Helgi Gunnarsson 27
Reisugilli í íþróttahúsinu sumarið 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014), helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Gunnar Dór Karlsson og Árni Max Haraldsson.
Ólafur Bernódusson 1004
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Þessi hópur er að vinna við sauma gardínukappa. Vinstra megin við borðið er Bryndís Ingimarsdóttir og óþekkt stúlka. Hægra megin er óþekkt stúlka næst gluggunum, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir í miðjunni og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) næst okkur. Strákurinn við saumavélina er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 1076
Jóhann Almar Reynisson til vinstri og Dagur Freyr Róbertsson til hægri kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1077
Pascal Gruenberger ábúðafullur sem hljóðmaður í skemmtiatriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Ólafur Bernódusson 1002
Myndin var tekin 1985 í Höfðaskóla í vinnuviku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnustöðvar til að vera í. Á myndinni eru frá vinstri: Björk Axelsdóttir kennari, Brynjar Pétursson, Svava Magnúsdóttir (nær), Aðalheiður Sif Árnadóttir (fjær), Margrét Anna Jóhannsdóttir, óþekktur, (fjær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (nær), Ba Eðvarðsson, Jón Pálsson skólastjóri og Áslaug Jóhannsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 974
Björk Axelsdóttir kennari fær sér kaffisopa í langa fríinu á kennarastofunni í Höfðaskóla 1984.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1619
Agnes Sævarsdóttir og Björn Ingi Óskarsson í vinnunni í Höfðaskóla 1. febrúar 2011, hún sem kennari og hann sem tæknimaður.
Ólafur Bernódusson 1083
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2002. Þau eru, í fremri röð frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson og Pascal Gruenberger. Aftari röð frá vinstri: Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Helga Gunnarsdóttir kennari, Dagný Dís Bessadóttir og Freydís Kristjánsdóttir.
Höfðaskóli - safn459
Lögreglan skoðar reiðhjól nemenda við Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000.
Ólafur Bernódusson1078
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Eftir að yngstu börnin úr Höfðaskóla höfðu dregið um hvert þeirra fengi að taka skóflustnguna hlaut Þórður Óskarsson hnossið. Á myndinni er hann að bisa við að ná upp fyrstu torfunni meðan aðrir klappa fyrir honum.
Ólafur Bernódusson1146
Birta Dögg Bessadóttir til vinstri og Guðrún Rós Hjaltadóttir til hægri á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla árið 2014.
Höfðaskóli - safn460
Einhvertíma að vori til kringum 2000 var lögreglan fengin til að koma og skoða reiðhjól nemenda í Höfðaskóla. Á myndinni eru þau tilbúin með hjálmana sína, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Ragnar Már Björnsson, Patrik Snær Bjarnason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tveir óþekktir.
Ólafur Bernódusson1145
Egill Örn Ingibergsson til vinstri og Elmar Jóhann Grétarsson til hægri á sviðinu í Fellsborg kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla 2014.
Ólafur Bernódusson1075
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta krakka úr Höfðaskóla draga um það hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Eldri krakkar og fullorðnir fylgjast með í nepjunni.
Höfðaskóli - safn648
Þessi mynd var tekin af Höfðaskóla áður en tröppurnar vestan á húsinu voru brotnar niður fyrir mistök. Eldri hluti skólans, sá til vinstri á myndinni, var tekinn í notkun 1958 en viðbyggingin hægra megin 1982. Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar innan dyra í skólanum á þessum tíma.
1
…
15
16
17
18
19
Leita í myndasafninu
Leita