Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Höfðaskóli
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
1.131 mynd
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson036
<p>Hluti leikritsins: Óvitar, sýnt á árshátíð Höfðaskóla. Leikararnir eru óþekktir en í leikritinu eru fullorðnir látnir leika börn og börn leika fullorðna. </p>
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn051
Guðbjartur Guðjónsson (Bjartur í Vík) og Bernódus Ólafsson (Benni Ólafs). Bjartur er til vinstri á myndinni. Þessi mynd er tekin á sýningu í skólanum á handavinnu í Félagssarfi eldri borgara í desember 1987. Einnig var sölusýning á handunnum munum og var verið að safna fyrir stórri kaffivél og læstum skáp undir handavinnu og lager . Þetta tókst. Kvennfélagið seldi kaffi til styrktar sér.
Magnús B Jónsson035
<P>Dansatriði á árshátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Vigdís Ósk Ómarsdóttir , Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir, Elísabet Stefanía Hallbjörnsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Hafdís Eygló Þorvaldsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Stúlkurnar dönsuðu frumsaminn dans sem þær sömdu með hjálp kennara síns, Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. dansað var við lagið "How will I know" með Whitney Huston. Búningana hönnuðu stúlkurnar sjálfar og saumuðu buxurnar sem þær eru í á myndinni.</P><br><P> </P>
Ólafur Bernódusson056
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Hér eru starfsmenn Útvarps Höfðaskóla að störfum. Frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorsteinn Jónsson, Ægir Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson
Magnús B Jónsson038
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til vinstri.
Magnús B Jónsson045
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Róbert Þórðarson, Guðný Sigurðardóttir, Diðrik ? leiðbeinandi, sem nú býr í Lúxemborg, Magnús B. Jónsson, Björk Axelsdóttir, Steinunn Grímsdóttir, Karl Lúðvíksson og Kjartan Birgisson.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 089
Vígsla nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Á myndinni má þekkja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Huldu Pálsdóttur fremst. Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) er konan sem situr vinstra megin með röndóttann trefil en konan aftan við Pétur, með krosslagðar hendur, er Ingunn Júlíusdóttir (d. 22.4.1998). Lengst til vinstri er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) með myndavél. Milli Péturs og Huldu sjást Elsa Axelsdóttir Schiöth (d.14.7.1966) til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Magnús B Jónsson033
Kennaragrín á árshátíð Höfðaskóla. Kennarar flytja ræður um eigið ágæti. Frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir, Elínóra Rafnsdóttir, Inga Matthíasdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Ólafur Bernódusson, Björk Axelsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir og Jón Pálsson skólastjóri.
Magnús B Jónsson029
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Bassaleikarinn og söngvarinn á myndinni er Viggó Magnússon. Ægir Jónsson spilar á trommur. Myndin var tekin ca 1985.
Guðmundur Guðnason471
<p>Sitjandi við kaffiborð í Höfðaskóla, af óþekktu tilefni, eru frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson Reykholti (d. 18.5.1974), Ólína Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir, Erla Lárusdóttir, Edda Pálsdóttir, Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996), Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Páll Jóhannesson frá Garði (d. 29.1.1989) og Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3.1964).</p>
Magnús B Jónsson043
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1972. Fremri röð frá vinstri: Hjalti Kristjánsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Soffía Jónasdóttir, Gunnar Ásgeirsson og Óskar Óskarsson. Aftari röð: Svava Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Stefán Sveinsson og Þorlákur Sigurður Sveinsson. Aftast er kennarinn, Karl Lúðvíksson.
Magnús B Jónsson040
Þessir ungu menn sáu um að spila tónlist á árshátíðardansleiknum á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru: Davíð Reynisson frá Harrastöðum í rauðri peysu, Viggó Magnússon í grænni skyrtu og Kristján Karlsson í ljósum jakka. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason469
Hér sitja við hlaðið kaffiborð í Höfðaskóla af óþekktu tilefni, talið frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi, Guðmundur Guðnason ( d. 21.11.1988) Ægissíðu, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Hrólfur Jónsson ( d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Þórey Jónsdóttir ( 29.12.1966) Norður Skála, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður Skála og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) Höfða.
Guðmundur Guðnason722
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Guðmundur Guðnason718
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
Ólafur Bernódusson087
Spilað á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Elísabet Hallbjörnsdóttir horfir í myndvélina en Jóney Gylfadóttir skoðar spilin sín. Stúlkan í ljósu peysunni við borðshornið er Jóhanna Sveinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason716
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti.
Ólafur Bernódusson095
Annar bekkur Höfðaskóla veturinn 1982-83 að vinna í stofunni sinni. Hér var unnið í stöðvavinnu. Nær okkur sitja Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri við lestrarborðið. Stúlkan sem er með þeim við borðið er óþekkt. Við borðið fjær eru Ása Ósk Ásgeirsdóttir og Atli Þórsson upp við vegginn en aðrir eru óþekktir. Þau eru að vinna við íslensku-verkefna borðið.
Ólafur Bernódusson098
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Myndin sýnir leik milli Blönduósinga og Skastrendinga og áhorfendur sem raða sér á hliðarlínuna.
Ólafur Bernódusson071
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á myndinni kynnir Valdimar Númi Hjaltason skemmtiatriði bekkjarins sem hann var í.
Ólafur Bernódusson073
Diskóprinsessa og diskóprins á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Anna Þóra Birgisdóttir og Stefán Ægir Lárusson.
Ólafur Bernódusson068
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal. Frá vinstri: Kristín Karlsdóttir, Svenný Hallbjörnsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason700
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Óþekkt, Pálfríður Benjamínsdóttir úr Skálholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1960.
Ólafur Bernódusson099
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd býr Björn Sigurðsson sig undir að skjóta á markið hjá andstæðingunum frá Blönduósi. Skagstrendingarnir auglýstu Casita fellihýsi á búningum sínum en þau flutti Hallbjörn Hjartarson inn og var þannig einn af frumkvöðlunum í að kynna fellihýsi fyrir Íslendingum.
Ólafur Bernódusson077
Mynd frá diskóteki í Höfðaskóla 1983. Þarna er verið að dansa "ásadans" en þá er dansgólfinu skipt í fjóra reiti og þeir merktir ásunum fjórum. Síðan fara allir út á gólfið en tónlistin er stöðvuð óvænt og þá verður fólk að vera kyrrt í þeim reit sem það er í þegar tónlistin stoppar. Þá er dreginn út einn ás og þeir sem eru í viðkomandi hólfi eru dæmdir úr leik. Síðan er þetta endurtekið þar til einungis eitt par stendur uppi sem sigurvegari. Krakkarnir á myndinni eru greinilega úr leik og verða að draga sig til hliðar. Frá vinstri: Gunnar Ásgeirsson, Hólmgeir Kristmundsson, Hólmfríður Oddsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Sveinsson, óþekkt, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Anna Þóra Birgisdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson307
Skólastjórnendur Höfðaskóla á óformlegum fundi í nóvember 1989. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til hægri.
Ólafur Bernódusson411
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér fá nemendur 4. bekkjar afhenta vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Árni Max Haraldsson, Jón Haukdal Þorgeirsson, Jóhannes Villiam Grétarsson, Bryndís Axelsdóttir, Eiður Örn Þórsson, Rakel Sara Gunnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Gunnar Guðmundsson, Linda Hafdal og Gunnar Borg Jónsson.
Ólafur Bernódusson070
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Ársæll Ottósson, Guðmundur Óskarsson, Ingimar Oddsson, Þórarinn B. Ingvarsson, Ingunn Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Kristín Karlsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson369
Árið 1992 fóru þessir 14 og 15 ára krakkar í þriggja daga gönguferð með leikfimikennaranum sínum. Ferðin hófst við Blöndulón og gengu krakkarnir að Hveravöllum fyrsta daginn og gistu þar. Annan daginn gengu þau upp að rótum Langjökuls og gistu í skála sem þar er, en komið var myrkur þegar þau loks fundu skálann. Síðasta daginn gengu þau svo niður í Vatnsdal þangað sem þau voru sótt um kvöldið. Báru þau með sér nesti fyrir ferðina og svefnpoka en vegalengdin sem þau gengu var um 100 kílómetrar. Margir höfðu vantrú á að krakkarnir mundu endast ferðina, því þau þurftu að ganga 25 - 30 km á dag, en ferðin gekk upp og var góð lífsreynsla fyrir krakkana. Þessi mynd var tekin fyrir utan Höfðaskóla áður en lagt var af stað í bíl upp á Kjalveg. Frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson, Þóra Ágústsdóttir, Gunnþór Óskar Sæþórsson, Jón Örn Stefánsson, Magnús Helgason, Þorlákur Guðjónsson, Guðrún Björg Elísdóttir, Viktor Pétursson, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Carl Erik Jakobsen kennari og leiðangursstjóri og Árni Max Haraldsson.
Ólafur Bernódusson072
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal og sungið: "Svona gerum við er við skúrum okkar gólf...." Frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir kennari, Jón Arnarson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Jón Pálsson skólastjóri og Eiríkur Lýðsson.
Ólafur Bernódusson171
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna þótti gott að bregða sér í heita pottinn. Á þessari mynd eru þær Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir til vinstri og Inga Rós Sævarsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson076
<p>Fjör á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Til hægri dansar Jón Indriðason við Katrínu Sigurjónsdóttur en vinstra megin dansa þær Anna Þóra Birgisdóttir, í buxum og Sigurbjörg Guðmundsdóttir. Í horninu standa Stefán Sveinsson lengst til vinstri óþekkt og Svava Magnúsdóttir. </p>
Ólafur Bernódusson054
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er skólasjórinn Páll Leó Jónsson og tveir starfsmenn Útvarps Höfðaskóla sem starfrækt var þessa viku. Starfsmennirnir eru Viggó Magnússon útvarpsstjóri með hljóðnemann og Þorlákur Sveinsson tæknimaður. Börnin tvö í forgrunninum eu óþekkt.
Magnús B Jónsson039
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Magnús B Jónsson037
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Magnús B Jónsson030
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jóney Gylfadóttir syngur en Ægir Jónsson spilar á trommur. Myndin var tekin ca 1985.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 090
Frá vígslu nýbyggingar barnaskólans á Skagaströnd 2. nóvember 1958. Í fremstu röð frá vinstri eru: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Hulda Pálsdóttir, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekkt kona. Undir glugganum sitja talið frá hægri: Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974), Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Magnús B Jónsson042
Krakkar í Höfðaskóla fædd 1969 . Í fremstu röð eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Guðmundur Oddsson. Röð tvö f.v.: Pálína Harðardóttir, Hulda Magnúsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir. Þriðja röð f.v.: Stefán Ægir Lárusson (fæddur 1970), Arnar Erlingsson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Aftasta röð f.v.: Ingvi Sveinn Eðvarson, Ólafur Bernódusson kennari, Þráinn Bessi Gunnarsson, Hjalti Magnússon og Hjalti Reynisson.
Magnús B Jónsson079
Þessir krakkar fóru í gönguferð frá Höfðaskóla á góðviðrisdegi með kennaranum sínum. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1980 í Hólabergjunum. Á myndinni eru, frá vinstri: Óþekkt, Ragna Gunnarsdóttir, óþekkt, Jóney Gylfadóttir, Þröstur Árnason, óþekkt, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hallgrímur Oddsson (með tunguna út úr sér), Anna Dröfn Guðjónsdóttir, óþekktur, Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson, óþekktur, Óli Hjörvar Kristmundsson, óþekktur, Þorlákur Guðjónsson, óþekktur, óþekktur, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Rósa Sigurðardóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Baldur Magnússon, Theódór Karlsson og Atli Þórsson. Ef þú þekkir einhvern sem er óþekktur á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á netfangið:
[email protected]
Guðmundur Guðnason476
Kaffisamsæti í Höfðaskóla 1958 þegar byggingin var tekin í notkun. Maðurinn á miðri mynd er Sveinn Kristófersson frá litla Bergi (d. 9.5.1991). Aðrir eru óþekktir.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 091
Vígsla nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Skólabörn og foreldrar þeirra hlusta á vígsluræður.
Magnús B Jónsson031
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun. Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Guðmundur Guðnason405
Kennarar við Höfðaskóla í kringum 1960. Standandi frá vinstri eru: Ingólfur Ármannsson og Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) en sitjandi eru Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri.
Guðmundur Guðnason470
Myndin var tekin í Höfðaskóla af fólki sem er að bíða eftir kvikmyndasýningu. Frá vinstri á myndinni: Pétur Jónsson Stóra Bergi (d. 18.2.1966), Ingvar Jónsson Norður Skála (d. 29.7.1978), Pétur Þ. Ingjaldsson Höfða (d. 1.6.1996), Björgvin Jónsson Höfðabrekku (d. 4.5.1992), Þórey Jónsdóttir Norður Skála (d. 29.12.1966), Hrólfur Jónsson Bjarmalandi (d. 1.8.1989), Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3. 1964), Kristinn Pálsson Breiðabliki (d. 21.10.2008) og Margrét Konráðsdóttir versluninni Borg (d. 17.9.1974).
Guðmundur Guðnason720
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Jóhanna Ásmundsdóttir Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var tekin upp úr 1960 en ekki er vitað hvaða leikrit er um að ræða. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson104
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd tekur Hugrún Sigurðardóttir víti. Aðrar stúlkur á vellinum eru frá vinstri: Kristín Jóna Sigurðardóttir, Hugrún Pálsdóttir og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson084
Á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Höskuldur Bragi Bragason, Jóhanna Sveinsdóttir, Erlingur Ottósson, Atli Þórsson, Björn Hallbjörnsson (með derhúfu), Jón Arnarson, óþekktur, Bylgja Bára Bragadóttir, tveir óþekktir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Arnar Arnarsson, óþekktur, Gunnar Ásgeirsson og Katrín Sigurjónsdóttir.
Guðmundur Guðnason704
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, tveir óþekktir leikarar, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, óþekktur, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti og Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka. Þeir sem krjúpa fyrir framan eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á óþekktan á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson100
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Hér sækja Skagstrendingar að marki Blönduósinga. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Heiðar Jónsson, Börkur Árnason (stendur í markinu), Björn Sigurðsson með boltann og Baldur Magnússon er sá með gleraugun. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson170
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd sefur Helga Kristmundsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir horfir á ljósmyndarann og Halldór Gunnar Ólafsson dormar í baksýn.
Ólafur Bernódusson066
Litlu jól í Höfðaskóla 1983 líklega hjá 8. eða 9. bekk. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Páll Jónsson frá Brandaskarði, Ársæll Ottósson og sennilega Guðmundur Óskarsson bakvið Ársæl. Lengst til hægri er Ingimar Oddsson.
Ólafur Bernódusson074
Dansað á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Ungu mennirnir fyrir miðri mynd eru Ægir Jónsson til vinstri og Óskar Hjaltason til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson075
Hressir ungir menn á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Sá með húfuna er Björn Hallbjörnsson en hinn er Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason702
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, tveir óþekktir leikarar og Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9). Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson173
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á þessari mynd eru krakkarnir sem syntu að loknu sundinu og velheppnaðri fjáröflun. Fremri röð frá vinstri: Kristín Jóna Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Brynjar Pétursson, Inga Stefánsdóttir íþrótta- og sundkennari, Hugrún Sigurðardóttir, Helga Kristmundsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir og Árný Elfa Helgadóttir. Aftari röð: Róbert Gunnarsson, Skúli Tómas Hjartarson, Inga Rós Sævarsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Hugrún Lind Pálsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson.
Ólafur Bernódusson101
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd eru Skagastrandarstúlkur í sókn að marki Blönduósinga. Frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, óþekkt, Hugrún Pálsdóttir (með boltann) og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson210
Vorið 1987 héldu eldri borgara sýningu í Höfðaskóla á handavinnu sinn sem þau höfðu unnið yfir veturinn undir leiðsögn Guðrúnar Guðmundsdóttur sem þá sá um félagsstarf aldraðra á Skagaströnd. Í gegnum árin hefur reynst erfitt að fá karlmenn inni í félagsstarfið og þess vegna eru einungis konur á myndinni. Lengst til vinstri á myndinni er Guðrún Guðmundsdóttir leiðbeinandi og kaupkona þá Jóhann Thorarensen ( d. 6.3.2004) frá Litla Bergi, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) frá Dagsbrún, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011) frá Garði, Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011) frá Ási, Laufey Sigurvinsdóttir ( 21.12.1994) frá Litla Bergi og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Allar bjuggu þessar konur á Skagaströnd með fjölskyldum sínum mestan hluta ævinnar og settu mark sitt á bæinn. Hrefna var nýlega orðin 100 ára þegar hún lést.
Ólafur Bernódusson166
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna í lauginni þótti gott að slaka á í heita pottinum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Brynjar Pétursson situr á brúninni í íþróttajakka, María Rós Karlsdóttir, Róbert Gunnarsson, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir. Stúlkurnar sem snúa baki í myndvélina eru allar óþekktar eins og sloppklæddi drengurinn? til hægri.
Ólafur Bernódusson320
Höfðaskóli 1989
Ólafur Bernódusson096
Annar bekkur Höfðaskóla veturinn 1982-83 að vinna í stofunni sinni. Hér var unnið í stöðvavinnu og Jón Heiðar Jónsson og tvö óþekkt börn vinna við stærðfræðiborðið. Til hægri vinnur Baldur Magnússon við frjálst-val borðið.
1
2
3
4
5
…
19
Leita í myndasafninu
Leita