Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 137
Gripur nr. 137. Ullarkambur 20 cm langur og 11 cm breiður. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 64
Gripur nr. 64. Listræn mynd af Íslandi í ramma. "Hilsen fra Island" stendur í boga. Myndskreytt með ljóðrænum textum. Myndin var teiknuð af Samúel Eggertssyni fyrir 1915.
Minjasafn 340
Gripur nr. 340. Næla, sem líklega hefur verið saumuð föst á föt. Spísslöguð með tveimur steinum, sem eru sinn á hvorri hlið á spíssunum. Lengd 3,8 cm. Líklega úr eigu Magdalenu Helgadóttur Efri-Læk (d. 1954). Fannst í kommóðu frá Efri-Læk (1994). Kommóðan kom líklega í safnið 1978.
Minjasafn 65
Gripur nr. 65. Eftirprentun af Monu Lisu eftir Da Vinci innrömmuð í gylltan ramma.
Minjasafn 90 no2
Gripur nr. 90. Brúnn rammi með myndum af Húna II á síldveiðum.
Minjasafn 40
Gripur nr. 40. Mynd úr Hvalfirði í grænleitum leðurramma.
Minjasafn 88
Gripur nr. 88. Mynd af fólki sem fór á ball í Búðardal 1941 eða 1942 ásamt lýsingu á farartæki þeirra.
Minjasafn 160
Gripur nr. 160. Kaffikvörn úr járni rauð á lit. Máluð blóm framan á gul, blátt og grænt. Hæð 20 cm og breidd 14 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir 1984.
Minjasafn 86
Gripur nr. 86. Plagg í brúnum tréramma. Leiðbeiningar um batterínotkun.
Minjasafn 126
Gripur nr. 126. Ljósmynd af kirkjukór Hólaneskirkju. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd.
Minjasafn 140
Gripur nr. 140. Ístað 13 cm breitt og 13 cm hátt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 127
Gripur nr. 127. Lyfseðill frá Páli Kolka lækni. Úr eigu Fritz Magnússonar Ásbergi Skagaströnd. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 159
<p>Gripur nr. 159. Stýrishjól úr brúnum viði með hangandi lukt inni í hjólinu. Stendur á kringlóttri viðarstétt, hæð 27 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir. </p><p><br></p>
Minjasafn 391
Gripur nr. 391. Hluti af vatnskrana. Stál en haldið er úr rauðu tré.
Minjasafn 215
Gripur nr 215. Glas, reyklitað með tvö hesthöfuð framan á. Aftan á glasinu er vísa. Flár um malir. Komið aðeins skarð í barminn. Hæð 14 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 112
Gripur nr. 112. Straujárn bæði fyrir rafmagn og til að hita á hellu. Með svörtu tréhandfangi, lengd 17,5,cm, breidd 9,5,cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 254
Gripur nr. 254. Mjólkurkanna úr hvítum leir og með bláum blómum framan á. Mjög kvarnað úr börmum og stúturinn brotinn. Kom úr húsinu Brautarholti líklega úr eigu Þuríðar Jakobsdóttur eða Elísabetar K. Ferdinandsdóttur sem þar bjuggu.
Minjasafn 437
Gripur nr. 437. Bunkar af dagatölum, litlum. Hægt er að rífa af einn dag í einu. Bunkarnir er frá 1994.
Minjasafn 501
Gripur nr. 501. Halasnælda úr tré.
Minjasafn 171
Gripur nr. 171. Kola í stíl við grip 170 sem er kertastjaki. Kolan stendur á stétt og er úr gukllituðum málmi (látúni?). Er með loki yfir eldsneytisbollanum. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 47
Gripur nr. 47. Mynd af Maríu Birgittu Berndsen í ramma. 01. 1940. Gefandi: Helga Berndsen.
Minjasafn 79
Gripur nr. 79. Gylltur rammi með mynd af Jóni Pálmasyni Alþingismanni og konu hans Jónínu Margréti. Gefandi: Birgir Árnason.
Minjasafn 103
<p>Gripur nr. 103. Mjólkurbrúsi úr áli, hæð 57 cm, breiðastur 113 cm að ummáli. Gefandi: Sólveig Vattnes Herðubreið Skagaströnd í maí 1994. </p>
Minjasafn 452
Gripur nr. 452. Lítið gerfijólatré á trékubbi með myndum.
Minjasafn 213
Gripur nr 213. Borðlampi með styttumynd af karlmanni í rauðum buxum og grænum jakka og með svarta spanjólu. Hæð 32 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1988.
Minjasafn 59 no2
Gripur nr. 59. Hvítt umslag með mörgum myndum í. Sex ljósmyndir frá Skagaströnd líklega teknar 1945 - 1946. Gefandi: Gunnar Albertsson.
Minjasafn107
Gripur nr. 107. Koyo útvarp, fyrir rafmagn. Lengd 29,5 cm, hæð 19 cm. Svart á litinn. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 166
Gripur nr.166. Klemmur. Gamaldags klemma smíðuð af Birni Jóhannessyni Efra-Nesi á Skaga. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 91
Gripur nr. 91. Smellurammi með fimm myndum tengdum síldarvinnslu.
Minjasafn 52
Gripur nr. 52. Mynd af hjónunum Hannesi Jónssyni og Sigurbjörgu Sigurðardóttur frá Spákonufelli í ramma. Hannes var fæddur að Iðstöðum.
Minjasafn 57
Gripur nr. 57. Gamalt póstkort í gylltum ramma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 133 no2
Gripur nr. 133. Pennastöng, svört, 21 cm á lengd. Flöt á þrjá kanta þar sem maður heldur um. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 163
Gripur nr. 163. Kaffikanna, járnlituð með svörtu haldi en hvítt ofan á því. Er með skrúfum á botni vegna viðgerða. Gefandi: Elísabet Kristjánsdóttir Lundi, Skagaströnd 1980
Minjasafn 56
Gripur nr. 56. Hnappsstaðir á Skagaströnd í ramma. Teiknuð mynd. Gefandi: Bergljót Óskarsdóttir.
Minjasafn 385
Gripur nr. 385. Þrjú pör af gömlum ullarsokkum í poka.
Minjasafn 1
Gripur nr. 1. Ylleppur, dökkfjólublár með hvítu munstri.
Minjasafn 172
Gripur nr. 172. Koparkanna með gylltum stút og handfangi. Einnig er gyllt rönd um hana miðja. Kannan er 23 cm á hæð og 53 cm að ummáli þar sem hún er breiðust. Með könnunni fylga tvö staup á fæti í sömu litum og kannan. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 312
Gripur nr. 312. Kvenmannsveski úr svörtu leðri lengd 25 cm, hæð 15 cm. Breiðast neðst. Veskið er með svörtu leðurhaldi. Var í eigu Mörtu Guðmundsdóttur Lækjarbakka, Skagaströnd, dáin 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 434
Gripur nr. 434. Grá dömuhúfa/hattur með svörtum borða og slaufu.
Minjasafn5
Gripur nr. 5. Nærskyrta með milliverki í kringum handveg, hálsmál og lagt niður á brjóst. Hneppt á öxlum. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 349
Gripur nr. 349. Hengilás með keðju.
Minjasafn 77
Gripur nr. 77. Gler/plast rammi með lítilli mynd af Sigríði Pétursdóttur.
Minjasafn 98
Gripur nr. 98. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktum manni í sparifötum.
Minjasafn 248
Gripur nr. 248. Ljósrituð mynd af Bjarna Helgasyni frá Holti. Hann situr í bát sínum; Albert. Myndin var tekin í tilefni viðtals við hann í Morgunblaðinu. Birna Bjarnadóttir dóttir hans á frummyndina. Gefandi: Birna Bjarnadóttir frá Holti í ágúst 1994.
Minjasafn 17
Gripur nr. 17. Rakhnífur. Skaftið er 16 cm langt. Skaftið er beinlitt útflúrað með konumynd (vatnamynd eða Venus) mjög fallegt. Blaðlengd er 7 cm. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Minjasafn 435
Gripur nr. 435. Brún dömuhúfa/hattur með grænu tígluðu munstri neðan á deri/hattbarði.
Minjasafn 446
Gripur nr. 446. Gamall spegill. Fúinn. Engin rammi en það er járnskraut á hornunum.
Minjasafn 290
Gripur nr. 290. Veggáttalínulampi. Grænt glerið er undir olíuna. Kveik og lampaglas vantar. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Minjasafn 87
Gripur nr. 87. Smellurammi með níu myndum af fólki. Það eru upplýsingar um nöfn á öllu þessu fólki við hverja mynd. Skrásett af Guðrúnu Þ Guðmundsdóttir
Minjasafn 318 no2
Gripur nr. 318. Trékistill, geirnegldur, viðarlitaður. Lengd 35 cm, breidd 18,5 cm og hæð 23 cm. Kistillinn er falsaður saman á hornunum með tveimur járnlömum aftan á. Á lokinu eru tveir stórir naglhausar sem ganga niður í lamirnar. Á öðrum enda loksins en geirneglt, listi undir. Flísað er smá stykki af á annarri hliðinni á lokinu (inn að miðju loki). Skráargatið að framan er hjartalagað. Kistill þessi er frá Lækjarbakka. Smá hólf er inni í kistlinum á annarri hliðinni efst upp við brún. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 9
Gripur nr. 9. Hvítt silkislifsi með kögri. Balderuð rós i báðum endum, með gylltum vír. Lengd 130 cm en breidd 23 cm. Þetta er brúðarslifsi Vilborgar Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal , en hún gifti sig árið 1920. Slifgsið var balderað og saumað af Jakobínu Guðmundsdóttur systur Vilborgar. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 49
Gripur nr. 49. Mynd af Elínu Jónsdóttur frá Hökuldsstöðum ("Adda prests"). Gefandi: Hrefna J. í október 1994.
Minjasafn 224 og 225
Gripur nr 224 og 225. Þjóðbúningabrúða í íslenskum búningi 19. aldar upphlut með gult fléttað hár og er í hvítu pilsi. Hæð 19 cm. Hin brúðan er í íslenskum 18. aldar búningi. Húna er í rauðum kjól með leggingum neðst. Hæð 19 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir Réttarholti, Skagaströnd í júní 1990.
Minjasafn 360
Gripur nr. 360. Hárrúllur semhægt er að hita á straujárni. Hvítar úr plasti. "Top set heated rollers".
Minjasafn 116
Gripur nr. 116. Netanál (skytta). Lengd 14,5 cm, trélituð. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 35 no2
Gripur nr. 35. Gylltur rammi skreyttur með útskornu mynstri. Ca. 40 x 50 cm.
Minjasafn 400
Gripur nr. 400. Stór öngull, einfaldur, örlítið beyglaður. Líklega hákarlakrókur.
Minjasafn 97
Gripur nr. 97. Gylltur rammi með mynd af kvennahópi. Myndin er mjög máð.
Minjasafn 382
Gripur nr. 382. Kassi nr 17 hefur eingöngu að geyma kort og umslög og jólakort með umslögum. Virðast nýleg og hafa e.t.v. verið ætluð til skrauts á minjasafninu þegar því verður komið fyrir í eigin húsnæði.
Minjasafn 117
Gripur nr. 117. Kartöflustappari með tréhaldi, sem er málað grænt. Annað er úr járni. Hæð 24 cm, breidd 11 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
1
2
3
4
5
…
12
Leita í myndasafninu
Leita