Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 590
Gripur nr. 590. Skyrdallur? - eins og gripur nr. 357 (mynd 7651). Líkist lítilli hálftunnu úr tré. Er með tveimur járngjörðum utan um sig en þær eru orðnar lausar. Líklega skyrdallur.
Minjasafn 558
Gripur nr. 558. Tréhefill, gamall.
Minjasafn 425
Gripur nr. 425. Málverk af Bjarmanesi (Gamla skólanum) eftir Óskar Inga Óskarsson. Verkið sýnir húsið, séð frá suð-austri, eins og það leit út fyrir endurbyggingu á því þar sem m.a. tröppurnar og bísalagið á austurhliðinni voru fjarlægt.
Minjasafn 436
Gripur nr. 436. Lítill einfaldur járn-kertastjaki útataður í vaxi.
Minjasafn 502
Gripur nr. 502. Græn askja sem á stendur: "Sprauta. Bólusetning. Garnaveiki.". Í öskjunni er svo sprauta sem er skrúfuð saman og liggur í bómull.
Minjasafn779
Horfið hús. Garður, sem stóð við núverandi Skagaveg. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 414
Gripur nr. 414. Rauð plastkanna, sennilega verið notuð sem mjólkurkanna. Vantar lok með opi sem fylgdi slíkum könnum nýjum.
Minjasafn 634
Gripur nr. 634. Veggklukka með merki Skagstrendings hf, stílfærðum erni með útbreidda vængi. Silfruð með bláum ramma og merkinu efst fyrir miðju. Neðst stendur: "Swiss made".
Minjasafn763
<p>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson stendur eftirfarandi um þennan bát: <em>" Vinur ÍS 101. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Ísafirði árið 1934 og var 12 brl. með 38 ha. Tuxham vél. Sumarið 1948 fluttu Árni Ólafur Guðmonsson og kona hans, Halla Júlíusdóttir, til Skagastrandar frá Ströndum og með þeim synir þeirra Baldur og Júlíus. Síðsumars þetta sama ár keyptu þeir feðgar, Árni, Júlíus og Baldur, bátinn Vin ÍS101 frá Hnífsdal. Þetta var mikil ólánsfleyta og hafði tvisvar týnt manni meðan hann var þar vestur frá og síðan gerðist það að Árni féll útbyrðis af bátnum þetta ár og drukknaði. Báturinn var seldur til Steingrímsfjarðar og sökk hann á Húnaflóa 28. nóvember 1949. Vinur var líklega aldrei skráður HU."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Gunnlaugur Árnason karlsskála 12. september 1996. </p>
Minjasafn726
Elín Jónsdóttir (d. ?) (Adda prests) frá Höskuldsstöðum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði í október 1994.
Minjasafn773
Gömul mynd frá Skagaströnd, lílklega tekin 1946 eða 1947. Ekki er búið að reka niður stálþil um Skúffugarðinn né fylla upp í "Dokkina". Hafnarhúsið er komið á sinn stað og verið að ljúka við smíði mjölskemmunnar. Mörg af húsunum sem sjást á myndinni eru nú horfin. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðný Finnsdóttir 12. desember 1994.
Minjasafn728
Aftan á þessari mynd stendur:<em> "Magnús kennari var ættaður úr Skagafirði. Giftur Maríu Birgittu Berndsen d. 1940. Hann var faðir Fritz Magnússonar Berndsen Ásbergi Skagastr. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Ef þú veist hvers son Magnús var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 204
Gripur nr. 204. Veggplatti með mynd af fugli.
Minjasafn682
Systurnar Pálína Sigríður Frímannsdóttir (d. 5.7.1962) í Steinholti til vinstri og Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) á Jaðri til hægri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Hrefna Jóhannesdóttir í október 1994.
Minjasafn 342
Gripur nr. 342. Skruatkanna úr glær-rósóttu gleri. Var brotin en hefur verið límd saman. Hæð 10 cm og breidd 6 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn675
Einar Guðjónsson frá Harrastöðum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrefna Jóhannesdóttir í október 1994.
Minjasafn 200 no2
Gripur nr. 200. Borð, sporöskjulaga borðplata, stendur á einum fæti sem er renndur og út frá fætinum eru þrír angar, sem borðið stendur á. Borðið er brúnt á litinn með lítilli skúffu undir að framan. Það var gefið til safnsins 1977 og þá var álitið að það væri 100 ára um gamalt. Mál á borðplötu er 66 cm langt og 48 cm þar sem það er breiðast. (við skoðun í júlí 2015 fannst aðeins skúffan úr borðinu). Gefandi: Vilhelmína Andrésdóttir Ásgarði, Skagaströnd.
Minjasafn 597 no
Gripur nr. 597. Áldunkur notaður undir sykur ( sykur er ennþá í honum). 16. cm djúpur og 49 cm að ummáli. Er með ofanífelldu loki.
Minjasafn 424
Gripur nr. 424. Spegill með gul-brúnum ramma. Á rammanum er útskorið munstur.
Minjasafn 529
Gripur nr. 529. Rakblaðabrýni. Lítil handsnúin vél sem var notuð til að brýna rakvélablöð af gömlu gerðinni.
Minjasafn 576
Gripur nr. 576. Lítil saumavél úr stáli mjög ryðguð. Vantar kassann/stéttina undir hana.
Minjasafn758
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Minjasafn 579
Gripur nr. 579. Rafmagns- reiknivél "Odhner" grá á litin ennþá með rúllu í. Vélinni fylgir hlíf úr gul-dröppuðu leðri.
Minjasafn 467
Gripur nr. 467. Askur. Smíðaður og gefinn af Sigurði Guðmundssyni frá Laufási á Skagaströnd árið 1977.
Minjasafn 394
Gripur nr. 394. Fjögur stykki smokkfiskönglar. Önglarnir eru misstórir, rauðir með önglakrans neðst. Notaðir til að veiða smokkfisk á færi. Gefandi: Kristján Hjartarson Grund, Skagaströnd í maí 1977.
Minjasafn 341
Gripur nr. 341. Mjólkurkanna úr hvítum leir með gráyrjum. Munstruð að framan, græn lauf, gulir, bláir og brúnir ávextir. Eitt stórt laufblað á bakhlið. Hæð 20 cm en breidd 9 cm. Kannan er allnokkuð sprungin og stúturinn brotinn. Var í eigu Ástu Sveinsdóttur Vík, Skagaströnd. Var mjög gömul þegar eigandi keypti hana úr dánarbúi tengdamóður sinar 1961. Gefandi: Amy Eymundsdóttir Brimnesi, Skagaströnd 17. nóvember 1994.
Minjasafn 649
Gripur nr. 649. Glerflaska sem búið er að mála rauða, græna og bláa.
Minjasafn704
Horfið hús, Baldursheimur, lengi bjó þar Sigurjón Jóhannsson barnakennari. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 275
Gripur nr. 275. Stórt fiskfat með blárri rönd á barminum og annarri aðeins neðar. Fatið hefur verið spengt á þremur stöðum og er í sundur. Áreiðanlega mjög gamalt. 41 cm á lengd og 34 cm breitt. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 316
Gripur nr. 316. Vatnshitari fyrir rafmagn. Var notaður til að hita vatn, aðallega í stórum pottum, oftast á þvottadögum. Hitaranum var þá stungið niður í vatnið og haldið þar, þar til vatnið var orðið nógu heitt. Rautt skaft og kló. Stállitaður armur með stálgormum fremst, 30 cm langur. Var í eigu Guðríðar Ólafsdóttur frá Höfðahólum á Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 520
Gripur nr. 520. Hvítt ílangt fat úr tré, skreytt með rauðum blómum í miðjunni á botninum.
Minjasafn 519
Gripur nr. 519. Skrautskál úr bláleitu gleri með skornu munstri. Stendur á fæti í sama stíl.
Minjasafn 653
Gripur nr. 653. Rafmagnslampi sem búið er að skreyta með skeljum og kuðungum.
Minjasafn 568
Gripur nr. 568. Penni, blár með tveimur gylltum gjörðum, einni við samskeytin og hinni efst við toppinn. Með "fjaðra-oddi"/lindarpenni.
Minjasafn709
Horfið hús, Brautarholt, þar bjó lengi Ólafur Guðmundsson með konu sinni og móður. Stóð við Fellsbraut. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1975.
Minjasafn697
Fysrstu íbúarnir í þjónustuíbúðum aldraðra við Ægisgrund á Skagaströnd, myndin tekin 1985. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) frá Þórsmörk, Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996) frá Syðra-Hóli og Kristín Indriðadóttir (d. 25.10.1987) frá Efra-Jaðri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn713
Þessi mynd var líklega tekin seint á fimmta áratugnum (1947 - 1950). Síldarverksmiðjan er lengt til vinstri og lengst til vinstri á henni eru þrærnar, sem geymdu hráefni - síldina - verksmiðjunnar. Svo kemur verksmiðjuhúsið sjálft en frá því liggur sver pípa yfir í stóru Mjölskemmuna. Eftir pípunni var fullunnu síldarmjölinu dælt en það var síðan sekkjað í skemmunni. Á myndinni er líklega bræðsla í gangi því það rýkur úr skorsteininum sem táknar að gufuketillinn var kyntur til að knýja túrbínuna - rafalinn - sem framleiddi rafmagn fyrir verksmiðjuna. Einnig var gufan leidd í stokk yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Stóra hvíta húsið næst okkur á myndinni - Hafnarhúsið - var í upphafi (1935) reist þar sem verksmiðjan stendur en var flutt á þennan stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Þegar myndin var tekin var verið að klára að gera Skúffugarðinn eða því nýlokið. Litli skúrinn sem ber í verksmiðjuna var kamar sem reistur var þegar framkvæmdir við Skúffugarðinn stóðu yfir. Svarti skúrinn, sem sést við enda Hafnarhússins, var verfæra- og verkstæðishús vegna framkvæmdanna. Hann var seinna færður og reistur ca þar sem kamarinn stendur. Bátarnir í fjörunni eru: Otur næst okkur en hann áttu saman bræðurnir Júlíus og Baldur Árnasynir. Fjær er Ludendorf Hu 46 sem Ole Aamundsen átti. Hinir bátarnir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Gunnari Albertssyni 29. september 1996.
Minjasafn 392
Gripur nr. 392. Pilkur/sakka með þríkrækju ca 20 cm á lengd. Notaður á færi til veiða í sjó.
Minjasafn 515
Gripur nr. 515. Lítill tréaskur. Kemur úr búi Körlu Helgadóttur og Fritz Magnússonar.
Minjasafn 577 no3
Gripur nr. 577. Saumavél, svört með máðum gylltum skreytingum. Handsnúin. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Minjasafn761
Aftan á þessari mynd stendur, innan í teiknaðri skreytingu<em>:" Íslenzkar Eimskipamyndir. Safn af 50 ekta ljósmyndum. 38 Geir. Togari. Brutto: 306 smálestir. Vélaafl: 550 hestöfl. Eigandi: Hrönn h/f Reykjavík. Westminster Tobacco Co. Ltd. London.". </em> Þessi mynd var sem sagt nr. 38 í seríu 50 mynda af íslenskum skipum. Geir, sem var smíðaður í Englandi 1947, bar einkennisstafina Re 241. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 587
Gripur nr. 587. Mjólkurbrúsi 19 cm á hæð og 45 cm að ummáli. Er með loki og haldi. Búið er að tengja saman lokið og haldið með snæri.
Minjasafn 532
Gripur nr. 532. Gylltur öskubakki úr áli, áttstrendur.
Minjasafn 149
Gripur nr. 149. Rafmagnsrakvélar í hvítum og svörtum kössum. Hvít/grá Philips, hvít Philipshave 3. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 500
Gripur nr. 500. Þríhyrnings-/píramídalag hilla úr tré. Hillan er dökkbrún á lit, lökkuð. Fallega útskorin með spegluðu munstri.
Minjasafn 25
Gripur nr. 25. Fantur, 13 cm á hæð, ummál 26 cm. Sprunginn með tveimur skörðum á barminum. Úr gulgráum leir. Rákir í leirinn upp og niður, rauf í hring rétt við barminn. Úr búi Vilborgar og Árna frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Minjasafn738
Mótorbáturinn Ásgeir Hu 1 við bryggju á Skagaströnd. Bátinn áttu Ole Aamundsen frá Lundi og Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum. Ásgeir var um 7,5 tonn að stærð. Myndin, sem tekin var einhverntíma á árunum 1944 - 1947, er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Minjasafn 145
Gripur nr. 145. Trétappi í flösku 3 cm hár. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 350
Gripur nr. 350. Hvítur plasttappi sem smelltur er á flöskustúta í notkun.
Minjasafn 475
Gripur nr. 475. Þrjú stykki plastskálar. Voru eitt sinn glærar en smá gult er í einni þeirra. Skálarnar eru litlar með skornu munstri.
Minjasafn789
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl í beitur til að setja þær síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Minjasafn 591 no2
Gripur nr. 591. Skyrdallur? úr tré með tveimur járngjörðum. Dallurinn er svipaður útlits og gripir nr. 590 (mynd 7873) og 357 (mynd 7651). Dallurinn er 25 cm djúpur og tvær rimar eru hærri en hinar, staðsettar hvor á sinni hlið dallsins.
Minjasafn 351
Gripur nr. 351. Skráargat. Lítið skraut fyrir skráargatsop.
Minjasafn 439
Gripur nr. 439. Brennimark eða brennijárn. Merkið brennir: 82G eða C. Úr eigu Bjargar Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal.
Minjasafn 427
Gripur nr. 427. Gamall spegill, enginn rammi en járnskraut á hornunum.
Minjasafn 512 no2
Gripur nr. 512. Lítil skæri, mjög ryðguð.
Minjasafn 207
Gripur nr. 207. Stálbolli, þvermál 10 cm. Merktur 1940 undir honum. Líklega frá langömmu gefanda. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 332
Gripur nr. 332. Stólpípa. Á henni er brúnn gúmmíbelgur og 7 cm langur plastleggur. Alls er lengdin 18 cm. Var í eigu Sigríðar Ásgeirsdóttur Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn671
<p>Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Vilborg Guðmundsdóttir Engihlíð, Borgað". </em>Það er það eina sem vitað er um þessa mynd, sem tilheyrir Minja- og Munasafninu á Skagaströnd. Ef þú þekkir einhvern á myndinni, eða veist eitthvað um hana, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Minjasafn 377
Gripur nr. 377. Tréspaði eða skurðbretti. Með mynd af hana á ásamt lauf og blómaskrauti.
1
…
8
9
10
11
12
Leita í myndasafninu
Leita