Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn780
Horfið hús, Lækjarbakki. Þetta hús stóð á svipuðum stað og núverandi Lækjarbakki gerir í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka í febrúar 1995.
Minjasafn 489
Gripur nr. 489. Kanna, lítil hvít. Myndskreytt með mjög útstæðum blómum (3D). Blómin eru fimm og svo eru fjögur græn laufblöð í kringum þau. Gylling meðfram efri brún og á haldinu. Kannan er sennnilega mjólkur- eða rjómakanna.
Minjasafn 599 no2
Gripur nr. 599. Gamaldags talsími úr stáli. Er með snúningshandfangi og símtóli sem tengist kassanum með snúru. Svo er önnur snúra sem tengist í tvær stórar sívalar rafhlöður.
Minjasafn760
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Minjasafn797
Reynir BA 66. Stærð 53 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1946 í Svíþjóð. Vél Hundsted 150 hestöfl. Heimahöfn Bíldudalur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn706
Horfið hús, Ásberg eða Ásbyrgi (Köllubærinn), Breiðablik til hægri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn725
Björn Ólafsson (d. 1935) Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 610
Gripur nr. 610. Ferðataska úr brúnu leðri. Með ólalæsingum sitt hvoru megin við haldið. Einnig er járnlæsing undir haldinu. Leðurhlífar á hornum.
Minjasafn678
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1.desember 1994.
Minjasafn 575 no2
Gripur nr. 575. Saumavél. Svört handsnúin saumavél. Var í eigu móður Guðbjarts Guðjónssonar frá Vík, Skagaströnd.
Minjasafn 401
Gripur nr. 401. Þvottaklemma af gamla laginu, úr tré.
Minjasafn716
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti fyrir utan Brautarholt. Drengurinn, sem er að skoða hverfisteininn, er líklega Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 586
Gripur nr. 586. Mjólkurbrúsi 25 cm á hæð og 47 cm að ummáli. með loki og haldi. Á lokinu stendur: "A.H. Læk". (Líklega skammstöfun fyrir: Axel Helgason, Læk)
Minjasafn 552
Gripur nr. 552. Kýrhorn
Minjasafn 659
Gripur nr. 659. Æfingatæki sem hægt er að ýta saman eða toga sundur með "vöðvamæli" eða "Musclometre".
Minjasafn802
Viðey RE 12. Stærð 231 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister - Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 557
Gripur nr. 557. Tréhefill, gamall.
Minjasafn764
M/b Svanur Hu 7 frá Akureyri 1930 11 tonn að stærð. Eigendur voru Gunnlaugur Árnason, Jakob Bjarnason og fleiri frá Hvamstanga. Síðar Júlíus og Baldur Árnasynir á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála í september 1996
Minjasafn 654
Gripur nr. 654. "Hoover" ryksuga. Grá og blá með gráum poka og grænni rafmagnssnúru.
Minjasafn 668
Gripur nr. 668. Gamlir reimaðir boxhanskar.
Minjasafn715
Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka með lambhrút í bandi eftir mikinn eltingaleik við hrútinn, sem ekki var sammála Jóhanni hvað varðar frelsi og útigang. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn743
Páll Jóhannesson (d. 28.1.1989) frá Garði Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn718
Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) Sævarlandi, Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 652
Gripur nr. 652. Ofin bastkarfa, ljósleit.
Minjasafn745
Aftan á þessari mynd stendur: <em>" Jóhanna Benónísdóttir, f. 11/8. 1883 á, Steinýjarstöðum, búsitt síðast í Drangei á Skagaströnd. d, 5/3, 1957."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Minjasafn 432
Gripur nr. 432. Lítill, útsaumaður dúkur. Dúkurinn er hvítur með rauðu munstri.
Minjasafn 482
Gripur nr. 482. Sex stykki glerskálar, grænleitar. Sennilega verið notaðar sem desert eða sykurskálar.
Minjasafn681
Þetta fólk bjó í Lundi, Skagaströnd. Til vinstri er sambýlisfólkið Margrét Jóhannesdóttir og Ole Aamundsen en hjá þeim situr Björg Berndsen. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka, Skagaströnd.
Minjasafn 505
Gripur nr. 505. Poki með gömlum tölum og hnöppum.
Minjasafn 201
Gripur nr. 201. Veggvasar 2 stk. blágrænir með blómamynd framan á, gyllt efst. Vasarnir eru íbognir (mjókka niður) og eru með eyru á hlið. Gefandi keypti vasana í verslun Helgu Berndsen Karlsskála Skagaströnd líklega 1958. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn784
Sæbjörn Hu 3. Bátinn keyptu Ísleifur Haraldsson og Sigurður Bjarnason til Skagastrandar árið 1970. Hann var svo ónýttur í mars 1974 og sagaður í tvennt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson Hólabraut 22, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn689
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 á Skagaströnd 1959 eða 1960. Áhöfnin mokar síld í "veltitunnur" sem síðan voru hífðar upp á bryggju og þar hvolft úr þeim í handvagna sem var svo ekið að planinu þar sem síldarstúlkurnar biðu eftir síldinni til söltunar. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Helga Berndsen frá Karlsskála gaf myndina í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn 375
Gripur nr. 375. Tvö stykki A4 brúnir rammar; "Quality Photo Frame". Eru nýlegir, hafa sennilega verið keytir fyrir skipulag á fornmununum.
Minjasafn679
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir Árnesi Skagaströnd, Páll V.G. Kolka (d.19.7.1971) læknir og rithöfundur og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka (d. 11.6.1974). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn755
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. "Siggi í Siggabúð", eins og hann var oft kallaður, stundaði m.a. útflutning á ull og gærum um tíma meðfram dagvöruverslun sinni. Verslunin Borg var einnig heimili Sigurðar og konu hans Margrétar Konráðsdóttur (d. 17.9.1974) en verslunin var í litlu húsi sem stóð norðan við mjölskemmuna. Seinna var svo rekið rafmagnsverkstæði í húsinu, sem nú hefur verið rifið. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 667
Gripur nr. 667. Ferningslaga púði. Verið er dökk-appelsínugult, heklað net. Innan í því er púðinn sem er grænn.
Minjasafn 388
Gripur nr. 388. Glær poki með gylltum stöngum með krók á endum. Voru fylgihlutir til að halda uppi Hansa hillum og skápum sem voru vinsæl húsgögn í kringum 1960 - 1980.
Minjasafn783
Fólkið á myndinni var heimilisfólk að Höfðahólum á Skagaströnd. Mynd af bænum er fyrir miðju en hann stóð þar sem í dag er tjaldsvæðið á Skagaströnd. Guðríður Rafnsdóttir og Ásgeir Klemensson voru hjónin á bænum en Sigríður, Ólafur og Axel voru þeirra börn. Árni Sigurðsson var sonur Guðríðar og þar með hálfbróðir þeirra. Árni ólst upp hjá móður sinni og Ásgeiri manni hennar í Höfðahólum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 198
Gripur nr. 198. Smörkúpa úr glæru gleri, botn og lok. Glerið er munstarð. Glerhöld til hliðar. Lengd 20 cm og breidd 12 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Minjasafn734
Aftan á þessari mynd stendur skrifað:<em> "Efnabær 19 aldar. Haukagil í Hvítarsíðu í Borgarfirði Mindin tekin sumarið 1884. Ljósmynd Sigfús Eymundsson".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi 8. október 1977.
Minjasafn 530
Gripur nr. 530. Tvö pör hurðarhúna. Annað parið er með innskornu munstri á húnunum. Hitt parið er með slétta og glansandi húna.
Minjasafn747
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) Viðvík á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn730
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 663
Gripur nr. 663. Hvítt blómahengi sem farið er að gulna. Úr plasti með keðjum til að hengja það upp.
Minjasafn684
Síldarsöltun 1958 eða 1959 á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd
Minjasafn798
Jón á Stapa SH 215. Stærð 121 rúmlest brúttó. Smíðaár 1961 í Svíþjóð. Vél June - Munkt. 425 hestöfl. Heimahöfn Ólafsvík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 611
Gripur nr. 611. Ál-mjólkurbrúsi með loki og haldi. 19 cm djúpur og 45 cm að ummáli.
Minjasafn799
Geir RE 406. Stærð 73 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í A- Þýskalandi. Vél MAK - Diesel 240 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn756
Skröyfa var líklega norskt síldarskip þar sem saltað var um borð. Myndin er sennilega frá því um aldamótin 1900 og kemur úr búi Carls Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd. Áhafnarmeðlimirnir eru óþekktir enda sennilega allir norskir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. maí 1996.
Minjasafn739
Sigurfari Hu 32 að koma úr róðri. Um Sigurfara segir svo í bókinni <em>"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010"</em> eftir Lárus Ægi Guðmundsson<em>:" Sigurfari Hu 32. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, 3,5 brl. með 6 ha. Bolinder vél. Þetta var gullfallegur hringlotaður bátur. Hann var hvítmálaður með bikaðan botn og breiðan rauðan fleyg sem náði aftur á bóga en svona skraut var ekki algengt. Eigendur hans voru Snorri Gíslason, Guðjón Einarsson og Hrólfur Jakobsson sem var formaður. Þeir félagar eignuðust bátinn 1935 en seldu hann til Drangsness 1943".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 631
Gripur nr. 631. Rafmagnsritvél. "Message Concept 20".
Minjasafn 567
Gripur nr. 567. Tómt hulstur undan rakhníf. "GONG" stendur á hulstrinu ásamt fleiru.
Minjasafn778
Jaðar til vinstri og Gamli Jaðar til hægri. Gamli Jaðar er nú löngu horfinn. Börnin á myndinni eru óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka á Skagaströnd. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 229
Gripur nr. 229. Vasaúr. Vantar gler og keðju á úrið. Tegund: <strong>Eterna</strong>. Ummál 4,5 cm. Vísarnir eru heilir og eru tölurnar rómverskar. Úrið er í svartri pappaöskju. Eigandi var Skafti Fanndal Jónasson. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 265
Gripur nr. 265. Diskur.
Minjasafn 646
Gripur nr. 646. Járn ekki ósvipað vöflujárni en með öðruvísi munstri. Mögulega notað til að grilla samlokur eða annað. Hitað á hellu.
Minjasafn 508
Gripur nr. 508. Útskorinn penni. Á hann er grafið "JOMERU 1917". Virkaði eins og fjaðurpenni, var díft í blek til að skrifa síðan. Penninn er úr beini.
Minjasafn 658
Gripur nr. 658. Fjórir snagar sem hafa verið skrúaðir á plötu/planka. Blámálað.
Minjasafn746
Jakobína Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) Litla-Bergi. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhanna Thorarensen 1. júlí 1996.
1
…
8
9
10
11
12
Leita í myndasafninu
Leita