Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 482
Gripur nr. 482. Sex stykki glerskálar, grænleitar. Sennilega verið notaðar sem desert eða sykurskálar.
Minjasafn 657
Gripur nr. 657. Gamalt skákborð 27,5 x 28 cm. Úr tré.
Minjasafn 381
Griður nr. 381. Mjög gamall og mjög fúinn og niðurnýddur rammi. Brúnn með máðri gylltri rönd. Ramminn er laus og bakið fúið. (Hefur e.t.v. lent í bruna?)
Minjasafn 627
Gripur nr. 627. Kartöflustappari með grænu haldi.
Minjasafn672
Blaðaúrklippa með mynd af Guðjóni Ingólfssyni.
Minjasafn752
Óþekktur maður myndaður á ljósmyndastofu H. Einarssonar á Akureyri. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 608
Gripur nr. 608. Ferðataska úr leðri gráleit með svörtu haldi úr plasti. Stórar læsingar sitt hvoru megin við haldið. Merkispjaldið ennþá fast við haldið.
Minjasafn 513
Gripur nr. 513. Skeljaskraut. Hangandi "órói" sem hefur vafna körfu á toppnum og síðan hanga margar skeljar niður úr körfunni. Einnig er snæri sem búið er að vefja skeljum á.
Minjasafn 354
Gripur nr. 354. Tré-þvottaklemmur af gamla laginu. Sex stykki.
Minjasafn 553
Gripur nr. 553. Tréskófla líklega notuð til að moka mjöli, sykri eða einhverju þvílíku við matargerð eða bakstur.
Minjasafn 606
Gripur nr. 606. Ferðataska, ljósgrátt og grátt "netmunstur". Með svörtu haldi og svörtum plasthlífum á hornum. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið, dálítið ryðgaðar.
Minjasafn 624
Gripur nr. 624. Plasttré á fæti (blómapotti). Þjappað af rauðum og hvítum plastblómum. Gulllitaðar kúlur eru innan í blómunum.
Minjasafn 405
Gripur nr. 405. Tvær postulínsskálar, mjög djúpar. Litaðar bláar með brúnum blómum. Skálarnar eru hvítar í grunninn og að innanverðu.
Minjasafn 592
Gripur nr. 592. Stálketill af gamla laginu, mjög ryðgaður. Var hitaður á hellu og/eða yfir eldi. Gæti líka hafa verið smurkanna undir smurolíu.
Minjasafn 440
Gripur nr. 440. Dagatal útgefið af Kaupfélagi Skagstrendinga 1966. Rifinn er af einn dagur í einu. Dagatalið er úr búi Ólafs Guðmundssonar Brautarholti á Skagaströnd.
Minjasafn759
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Sveinn Hjartarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Minjasafn691
Húni II Hu 2 frá Höfðakaupstað í óþekktri höfn 1963. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd 1995.
Minjasafn753
Sigríður Pétursdóttir (d.?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 638
Gripur nr. 638. Skilti úr tré málað rautt og hvítt með teiknaðri mynd af Andrési önd á tveimur stöðum misstórum. Einnig er teiknuð mynd af einhvers konar snák. Efst á skiltinu stendur: S.R. 1963 sem er skammstöfun fyrir: Síldarverksmiðja Ríkisins. Á skiltinu stand svo fjögur karlmannsnöfn: Óli A., Sigurður B., Frímann L. og Jóhann B. Þ. en allir þessir menn unnu hjá S.R. um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1170
Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttir til hægri skoða gamla muni til að hafa til sýnis í gamla húsinu Árnesi, sem er safn um heimilishald um aldamótin 1900. Myndin var tekin í júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 838
Myndin var tekin 11. júní 2008. Þá voru menn hálfnaðir með að rífa viðbyggingar við Árnes áður en uppbygging hússins hófst. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson gröfumaður, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurður Björnsson smiður og Heiðmar Kristjánsson handlangari.
Minjasafn 643
Gripur nr. 643. Lampaskermur gulur/gylltur með kögurböndum til skrauts á neðri brún og kringum skerminn efst.
Minjasafn 333
Gripur nr. 333. Skóþræll, viðarlitaður. Var notaður til hjálpar við að komast úr skóm. Lengd 21 cm. Breiðastur 10 cm. Smíðaður af Gissuri Jóhannssyni Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd september 1994.
Minjasafn 395
Gripur nr. 395. Nokkrar netanálar saman í poka.
Minjasafn774
Verslunarhús Kaupfélags Skagstrendinga, sem stendur við Einbúastíg á Skagaströnd, en hefur nú annað hlutverk en verslun. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1.desember 1994.
Minjasafn 601 no
Gripur nr. 601. Trékistill, málaður brúnn. Er með skrárgati 34 cm djúpur, 61 cm breiður og 32 cm langur.
Minjasafn772
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er á leið í messu á Hólaneskirkju. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt. </p>
Minjasafn 549
Gripur nr. 549. Tvær ausur. Önnur úr áli en hin með glerungi.
Minjasafn754
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Árni Svanberg Jónsson f. 15/1 1919. í Kambakoti d. á Vífilsstaðahæli 14/4 1957." </em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 644
Gripur nr. 644. Handskófla úr áli ca 40 cm á lengd. Úr Kaupfélagi Skagastrandar. Gefandi: Elsa Stefánsdóttir Efri- Lækjardal, Engihlíðarhreppi.
Minjasafn690
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 í Skagastrandarhöfn 1959 eða 1960. Síldinni mokað með sérsmíðuðum háfum í "veltitunnnur" sem síðan eu hífðar í land, tæmdar þar og hífðar svo um borð aftur. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Gunnlaugur Árnason, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000)(í köflóttri skyrtu). Bak við Sigmar er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn708
<p>Horfið hús, Sæborg eða Góubærinn, stóð við Oddagötu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1984 af Guðrún Þ. Guðmundsdóttur.</p>
Minjasafn 630
Gripur nr. 630. Lítill, svartur talsími með handfangi.
Minjasafn 660
Gripur nr. 660. Fimm hljómplötur eftir Hallbjörn J. Hjartarson.
Minjasafn 665
Gripur nr. 665. Stór glerkrukka með glerloki. Sía fylgir með ofan í krukkunni.
Minjasafn 542
Gripur nr. 542. Hvítur, stakur snagi með rauðri kúlu.
Minjasafn765
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996.
Minjasafn 548
Gripur nr. 548. Grænn netinnkaupapoki með höldum.
Minjasafn703
Horfið hús, Litlu-Sólheimar, stóð við Skagaveg. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1982 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn781
<p> Þessi mynd var tekin 1947 af horfnu húsi, Viðvík. Húsið stóð ca þar sem er Strandgata 8 er í dag. Húsið var reist á sjöunda áratug 19. aldar en í því var um árabil rekið veitinga- og gistihús fram undir lok 19. aldarinnar. það var Ólafur Jónsson "vert" frá Helgavatni í Vatnsdal sem rak veitingahúsið ásamt konu sinni Valgerði Narfadóttur. Sagt er að Ólafur hafi verið vel af manni og ekki vílað margt fyrir sér m.a. við að halda uppi lögum og reglu hjá gestum Viðvíkur. Þau hjón áttu sex börn sem mörg hver urðu nafnkunn á Íslandi. Má þar nefna Pétur A. Ólafsson sem var um tíma allt í öllu á Patreksfirði og Láru Ólafsdóttur sem þekkt er úr bók Þórbergs Þórðarsonar: Bréf til Láru. Eftir að Ólafur vert hafði rekið gistihúsið Viðvík í allnokkur ár flutti hann til Akureyrar og gerðist veitingamaður á Oddeyrinni þar. Í fjörunni neðan við Viðvík stóð stór steinn - Semingssteinn. Nafn sitt hlaut steinninn af því að þar fannst sjórekið lík Semings Semingssonar. Semingur hafði setið að sumbli á veitingahúsinu en verið vikið út þaðan vegna óláta. Brást hann illa við og sagðist mundi koma bráðum aftur. Hann reið svo inn að Blöndu þar sem hann drukknaði 20. júlí 1867. Semingssteinn stendur nú á grasbletti austan við Hafnarhúsið með áfastri plötu sem segir sögu steinsins. (Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka á Skagaströnd.)
Minjasafn 598 no2
Gripur nr. 598. Áldunkur notaður undir sykurmola (sykurmolarnir eru ennþá í honum). Ofan í dunknum er viskastykki sem var gefið með honum.15 cm djúpur og 65 cm að ummáli. Ekkert lok fylgir dunkinum.
Minjasafn794
Eyjaberg VE 130. Stærð 94 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1959 í A- Þýskalandi. Vél MWM Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Vestmannaeyjar. Strandaði og sökk 1965. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn788
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl til að setja hann síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Minjasafn748
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Höfðatúni á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 362
Gripur nr. 362. Glerskál, glær með rauðbrúnni slikju. Munstruð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
1
…
8
9
10
11
12
Leita í myndasafninu
Leita