Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 208
Gripur nr. 208. Rjómakanna bleik á lit. Munstur í leirnum. Leirkanna 7 cm á hæð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 55
Gripur nr. 55. Mynd af Skafta Fanndal Jónassyni (d. 2.9.2006) og Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d. 13.7.2003) í átthyrndum ramma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 289
Gripur nr. 289. Olíulampastatif fyrir hengilampa. Grænn járnskermur er á statífinuog lítil hlíf ofaná en hringstykki (statif) er neðst fyrir lampann. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Minjasafn 104
Gripur nr. 104. Trésleif, stór úr ljósum viði, lengd 41 cm, breiðust 10 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 73
Gripur nr. 73. Brúnn rammi með mynd af Húna Hu 1.
Minjasafn 31
Gripur nr. 31. Tóbaksdós. Gefandi: Skafti Fanndal Jónasson.
Minjasafn 135
Gripur nr. 135. Halasnælda lítil 27 cm löng. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 203
Gripur nr. 203. Skrautskál, köntuð græn á lit, með munstri. Mjóst neðst en víkkar upp. Munstrað glerið. Lengd 14,5 cm og breidd 8 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1986.
Minjasafn 191
Gripur nr. 191. Púðurdós. Á miðju loki er rós ígreipt í glerung, svört umgjörð utan um. Dósin er 8 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 206
Gripur nr 206. Litlir sauðskinnsskór með hvítum leðurbryddingum. Bláir og hvítir illeppar. Unnir af Sigríði Hjálmarsdóttur á Sauðárkróki. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 60
Gripur 60. Smellurammi með sex myndum frá sjávarsíðunni.
Minjasafn 78
Gripur nr. 78. Gler/plastrammi með mynd af óþekktum ungum manni.
Minjasafn 525
Gripur nr. 525. Tréstytta af ungum pilti og stúlku sem sitja á grindverki og syngja og spila saman.
Minjasafn 205
Gripur nr. 205. Veggplattar. A er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, ÞINGVELLIR og á honum er mynd frá Þingvöllum með hestum á beit í forgrunni. Breidd 15 cm. B er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, SKÓGARFOSS með mynd af Skógarfossi. Breidd 15 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd.
Minjasafn 306
Gripur nr. 306. Mjólkurflaska úr glæru gleri. Á henni stendur: <strong>Mjólkursamsalan 1/2 l</strong>. Í þessum flöskum var mjólkin keypt. En flöskurnar voru í notkun í kringum 1965 - 1975. Hæð 24 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Minjasafn 165
Gripur nr. 165. Pennabox gyllt á lit, merkt Birmingham.Var notað undir penna fyrir pennastangir. Boxið er eins og bók í laginu og opnað að ofan. No: 1346 á botninum. Penni límdur á kjölinn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Minjasafn 11 no2
Gripur nr. 11. Hekluð treyja, ermalaus svört og rauð. Tvíhneppt með silfruðum hnöppum. Hún er síðan um 1880. Eigandi var Ingibjörg Stefánsdóttir frá Engihlíð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 282 no2
Gripur nr. 282. Silverbakki (Plett) ferkantaður með ígreiptu munstri á botninum. 35 cm langur og 27 cm breiður. Munstur á börmum bakkans. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 167
Gripur nr. 167. Seðlaveski, saumað af eiganda, Jóni Árnasyni Ólafsvöllum árið 1936. Veskið er úr sútuðu folaldaskinni og notaði hann veskið í 40 ár. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 50
Gripur nr. 50. Mynd af Elísabetu Berndsen Lækjabergi Hafnarfirði í ramma. Gefandi: Haraldur Árnason í janúar 1995.
Minjasafn 278 no2
Gripur nr. 278. Orgelstóll á þrífæti en langfóturinn er sexstrendur viðarfótur. Járngjörð er við enda fótarins neðst þar sem tengir saman þrífótinn. Setan er útsaumuð með krosssaum, litir: drapp, grænn, blár og rauður.
Minjasafn 82 no2
Gripur nr. 82. Stór silfurlitur rammi með skjalinu: "The International association of Lions Clubs". Einhver konar viðurkenningarplagg.
Minjasafn 495
Gripur nr. 495. Krukka úr postulíni/leir. Er grábrún að lit með blóma- og laufamunstri á loki og á barmi. Myndir af trjám, húsi og fólki er á hliðum krukkunnar.
Minjasafn 10 no2
Gripur nr. 10. Upphlutsbolur svartur úr silki með gylltum, balderuðum rósum á borðum. Hann var unnin um 1910 af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili. Bakið lagt með gylltum stímum. Gefandi: Elísabet Árnadóttir í hjanúar 1977.
Minjasafn 15
Gripur nr. 15. Mortel, skálarlagað, með könnustút og fylgir því stautur með hnúð á enda. Þvermál skálar er 8x8 cm og dýpt er 5 cm en lengd stauts er 9 cm. Mortelið er úr leir með hvítri glerhúð. Þetta mortel var notað til að mylja meðöl í handa skepnum. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn 179
Gripur nr. 179. Illeppar sauðsvartir með mislitum röndum. Heklað grænblátt utan um, prjónaðir af gefanda. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 58
Gripur nr. 58. Brúnn rammi sem geymir margar myndir: tvær af Kristínu Bjarnadóttur, Hrólfur Jakobsson, Ólafur Guðlaugsson, Guðmundur Guðnason póstur, Jóhann Pétursson með lamb og Ólafur Guðmundsson í Brautarholti.
Minjasafn 36
Gripur nr. 36. Mynd af síldarsöltun á Skagaströnd.
Minjasafn 294
Gripur nr. 294. Járn-olíulampi úr járni.
Minjasafn 199
Gripur nr. 199. Staup 3 stk. með gullrönd og mynd af einhverskonar dýri.
Minjasafn3
Gripur nr. 3. Skyrsía úr tré. Stærð 23x23 cm að ofan, botn 18x 18 cm, dýpt 6 cm. Sex rimlar í botni. Notuð var strigasía, sem var lögð í botninn. Skyrsían er úr búi Guðna Sveinssonar (d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur (d. 12.6.1966). Gefandi: Guðmundur Guðnason Frá Ægissíðu á Skagaströnd í nóvember 1975.
Minjasafn 128
Gripur nr. 128. Útsaumaður kragi með enskum og frönskum saum. Saumaður af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir, dóttir Vilborgar, Réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Minjasafn 113
Gripur nr. 113. Brauðrist, lítil fyrir rafmagn. Hæð 15 cm og breidd 17 cm. Litlir svartir og hvítir hnúðar á endunum. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 544
<p>Gripur nr. 544. Kydill sem hægt er að stinga í jörðina. </p>
Myndasafn 366
Gripur nr. 366. Kökudiskur. Hvítur, postulín, rimlaðir kantar, gylling meðfram brúnum. Blómaskreyting/blómakrans í ysta lagi botnsins. Mynd af Öxará í Almannagjá í botni. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 604
Gripur nr. 604. Koffort/taska úr tré. Brúnmálað. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið.
Minjasafn 37
Gripur nr. 37. Mynd af vermönnum. Vermenn af Skagaströnd og Nesjum sem fóru suður á vertíð 1903 - 1905.
Minjasafn 61
<p>Gripur nr. 61. Plastumslag með útprentuðum myndum báðum megin. Öðru megin eru myndir af húsum sem búið er að rífa. Hinum megin eru myndir af fólkinu sem bjó í húsunum.</p>
Minjasafn 412
Gripur nr. 412. Loftljósakúpull, ferningslagaður, kúptur, úr brúnleitu gleri með munstri. Perustæðið (ljósastæðið) fylgir með.
Minjasafn 486
Gripur nr. 486. Tveir bollar. Hvítir, skreyttir með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 485.
Minjasafn 85
Gripur nr. 85. Mynd af torfbæ og húsdýrum í brúnum tréramma, máluð mynd.
Minjasafn 263
gripur nr. 263. Djúpir diskar A.,B. og C. Hvítir með gylltri rönd. Þrjú blóm á þremur stöðum á barmi. Þvermál 21 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk.
Minjasafn 124
Gripur nr. 124. Mynd af frú Dóru Þórhallsdóttur forsetafrú (kona Ásgeirs Ásgeirssonar forseta 1952 - 1968) í silfruðum ramma. 17 cm á breidd og 25 cm á hæð. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri -Harrastöðum í ágúst 1994. Myndin er úr búi foreldra hennar.
Minjasafn 96
Gripur nr. 96. Átta myndir af fólki í brúnum ramma. Myndirnar tók Guðrún Guðmundsdóttir af eldri borgurum á Skagaströnd á árunum 1984 - 1990.
Minjasafn 485
Gripur nr. 485. Þrjú stykki undirskálar. Hvítar, skreyttar með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 486.
Minjasafn 272
Gripur nr. 272. Rjómakanna úr glæru gleri. Grópuð blóm í glerið framan á. Hæð 9 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk Skagaströnd.
Minjasafn 409
Gripur nr. 409. Glerfleygur með korktappa.
Minjasafn 16
Gripur nr. 16. Rakhnífur. Blaðlengd 8 cm. Heiti hnífs er GONG RAZOR Extra Hallow Ground, framleiddur í Þýskalandi 1918 af Geng Cullery Co. Hnífurinn er svartur og svart hulstur fylgir með. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Minjasafn 433
Gripur nr. 433. Langt járnblað í laginu eins og sveðja. Blaðið er með nokkrum götum efst við bakkann. Er hluti af gömlum ljá sem var hnoðaður fastur við bakka ljásins. Gamall og mjög ryðgaður.
Minjasafn 431
Gripur nr. 431. Lítill skrautplatti. Sporöskulagaður, blár með gulum krossi og gulum rósum. Gefandi Hrafna Jóhannesdóttir Hólabraut 25, Skagaströnd.
Minjasafn 48
Gripur nr. 48. Ljósmynd af Valný Benediktsdóttur frá Brandaskarði í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson.
Minjasafn 257
Gripur nr. 257. Lampafótur. Stytta af hafmeyju. Er úr gipsi. Hafmeyjan er með perustykkið á höfðinu og er hún gullbronsuð á lit en hárið er rautt og einnig steinninn sem hún situr á. Rafmagnssnúran er mjög forn úr snúnu taui. Kom úr búi Ólafs Guðmundssonar og Elísabetar Karólínu Ferdinandsdóttur Brautarholti, Skagaströnd.
Minjasafn 329
Gripur nr. 329. Glerkanna, stór með smáröndum á, í fjórum litum. Ígreiptar rendur efst. Glerið leggst yfir stútinn. Hæð 25 cm, breidd á barmi 13 cm. Eitt glas í sama stíl fylgir með en hæð þess er 12 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar á Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 32
Gripur nr. 32. Rakhnífur. Rakhnífur í svartri öskju. Hnífurinn sjálfur er líka svartur King Cutter.
Minjasafn 42
Gripur nr. 42. Lítil mynd af Sigríði Guðlaugsdóttur (d. 25.3.1996) frá Bjarmalandi á Skagaströnd.
Minjasafn 195
Gripur nr. 195. Veggkertastjakar úr járni með krækjumunstri. Lilla- litaðurglerplatti, hringlaga, hangir í miðjum stjaka. Hæð 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 105
Gripur nr. 105. Heynál með tréskafti. Breidd handfangs 27 cm og lengd járnsins 30 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 66
Gripur nr. 66. Brúnn rammi með 11 litlum myndum af sjó og sjómennsku.
Minjasafn 367
Gripur nr. 367. Skál úr glæru gleri með loki. Þegar lokið er á myndar hún hænu á hreiðri. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 277
Gripur nr. 277. Snældustóll, viðarlitaður 29 cm langur, breidd 13,5 cm og 28 cm hár. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd. Björn var fæddur í maí 1897.
1
2
3
4
5
…
12
Leita í myndasafninu
Leita