Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 503
Gripur nr. 503. Hlekkir úr leðri og skinni með járnkeðju.
Minjasafn 456 no2
Gripur nr. 456. Par af dömu-hælaskóm. Dökkbrúnt leður, reimaðir með brúnum reimum.
Minjasafn 256
Gripur nr. 256. Lampi fyrir rafmagn. Hann er úr plast sívalningi, hvítur með svörtum skáröndum. Svört 6 cm stétt undir. Gylltur barmur. Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 164
Gripur nr. 164. Upptakari, fiskur 13 cm langur. Hnífurinn er neðri vörin á fiskinum. Er járnlitaður og grænn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982
Minjasafn 174
Gripur nr. 174. Mjólkurkanna 15 cm á hæð og 32 cm að ummáli. Kannan hefur verið hvít með myndum á t.d. hús, hallir, tré, vatn og maður á hesti. Kannan er úr búi Ingibjargar Jónsdóttur og Finns Guðmundssonar sem lengi bjuggu í Skrapatungu. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd, dóttir þeirra hjóna, í ágúst 1994.
Minjasafn 574 no3
Gripur nr. 574. Segulbandstæki í brúnni leðurtösku með rennilás, sem passar akkúrat um tækið. Gamalt "spólutæki".
Minjasafn 389
gripur nr. 389. Kleinujárn, mjög gamalt. Grænn litur á hjólinu ( spanskgræna?).
Minjasafn 195
Gripur nr. 195. Veggkertastjakar úr járni með krækjumunstri. Lilla- litaðurglerplatti, hringlaga, hangir í miðjum stjaka. Hæð 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 408
Gripur nr. 408. Sex stykki smádiskar mismunandi í útliti.
Minjasafn 455
Gripur nr. 455. 14 stykki hljómplötur án hulstra. Ýmsar plötur, allar saman innvafðar í pappa.
Minjasafn 264
Gripur nr. 264. Diskar, grunnir, hvítir með blárri rönd. Þvermál 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 19
Gripur nr. 19. Peningabudda, brún úr leðri, með tveimur hólfum. Aftara hólfið leggst fram yfir fremra hólfið og lokar buddunni. Stærð 11 cm á lengd og 7,5 cm á breidd. Mjög gömul. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Minjasafn 632
Gripur nr. 632. Talsími - "skífusími". Drappaður með númeraskífu framan á. Skífan er rauð í miðjunni með tölustöfum í hring bæði á skífunni sjálfri og á plötunni undir henni. Símanúmerið 22704 er í litlu hólfu framan á símanum.
Minjasafn 396
Gripur nr. 396. Tvö stykki netanálar límdar saman með límbandi.
Minjasafn 99 no2
Gripur nr. 99. Áldunkur sem hefur líklega verið notaður undir smábrauð og /eða kökur. Á lokið hefur einhver skrifað "Svanakex".
Minjasafn 555
Gripur nr. 555. Lítil trekt úr blikki.
Minjasafn 493
Gripur nr. 493. Vasi, stór og fallegur úr leir. Vasinn er grár og hvítur á litinn með grófa áferð að utan. Stór handföng sitt hvoru megin.
Minjasafn 252
Gripur nr. 252. Kertastjaki úr leir. Keilulagaður með þremur örmum. Blágrænn á lit með gulum röndum á börmum og einnig á stjakanum. Kom úr dóti úr búi Ólafs Guðmundssonar frá Brautarholti þegar hús hans var rifið.
Minjasafn 287
Gripur nr. 287. Pressutunga. Járnstykki sem sett var inn í straubolta en járnið var hitað á eldi og er mjög þungt. 20 cm langt 4 cm breitt og 6 cm þykkt. Er úr búi Stefáns Stefánssonar Ytri-Ey Vindhælishreppi. Gefandi: Stefán Stefánsson ytri -Ey.
Minjasafn 227
Gripur nr. 227. Stytta af Maríu mey. María er í hvítum kyrtli með bláu bandi. Hún heldur saman höndunum og er með kross-hálsfesti (talnaband?) á öðrum handleggnum. Styttan var keypt í verslun Sigurðar Sölvasonar á Skagaströnd. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í ágúst 1992.
Minjasafn6
Gripur nr.6. Nærskyrta úr hvítu lérsfti. Saumuð með tungum í hálsmál og handvegi. Munstur með enskum og frönskum saum á brjóst. Merkt B.G.. Hneppt á öxlum. Unnið Af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 147
Gripur nr. 147. Tappar úr plasti, rauðir fyrir flöskur. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Minjasafn 121
Gripur nr. 121. Veggsími í brúnum viðarkassa, tvær bjöllur framan á og statíf fyrir til dæmis blöð. Tegund Ericson. Hæð símans er 40 cm, breidd 24 cm og þykkt 15 cm. Gefandi: Þorvaldur Skaftason Skagaströnd.
Minjasafn 641
Gripur nr. 641. Ljósakúpull, kúlulaga úr hvítu gleri með gulum lóðréttum línum og brotnum grænum og rauðum línum, einnig lóðréttum. Mest ummál um miðjuna en mjókkar upp og niður frá miðju.
Minjasafn 291
Gripur nr. 291. Hluti af kaffikvörn. Var notuð til að mala brenndar kaffibaunir í kaffiduft sem síðan var hellt upp á.
Minjasafn2
Gripur nr 2. Hvítt brjóst, stífað. Notað við peysuföt. Gefið af Elísabetu Árnadóttur í maí 1977.
Minjasafn695
Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) Rjúpnafelli á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1985.
Minjasafn 404
Gripur nr 404. Kastarola (lítill skaftpottur). Eitt langt hald/skaft. Ekkert lok, stútur á einni hlið. "Smörlíkispottur".
Minjasafn 228
Gripur nr. 228. Matardiskur, hvítur með bláum blómum, ummál 22,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 214
Gripur nr. 214. Ljósmynd af bátnum Gamla Kóp, sem Skafti Fanndal Jónasson í Lundi Skagaströnd átti. Myndin er í ljósum viðarramma en á hann eru límdir kuðungar og skeljar í kringum myndina. Rammann gerði Sigríður Hjálmarsdóttir Sauðárkróki. Stærð 18 x 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrúna Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 612 no2
Gripur nr. 612. Búðarkassi, svartur en skúffan er úr stáli og er krómuð. Handsveif á hliðinni. Takkarnir eru hvítir. Kassinn er ca 40 cm á hæð.
Minjasafn 62
Gripur nr. 62. Brúnn rammi með fimm myndum. Á myndinni eru: Jakobína, Snorri Gíslason, Albert Haraldsson, Jóhanna Thorarensen, Gísli Einarsson, Marta Guðmundsdóttir (óskírt - móðir Jóhanns Péturssonar frá Lækjarbakka).
Minjasafn 188 no2
Gripur nr. 188. Mokkabollapör með grænsanseruðum bekk, gulllituð blöð og rósir í bekknum. Rósir innan í bollanum. (Ath. aðeins 1 bolli og ein undirskál) Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 322
Gripur nr. 322. Garðhrífa og skófla. Járnstöng með skóflu á öðrum enda og klóru á hinum endanum. Lengd 46 cm. Eigandi var Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka f. 1914 -d. 2006. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 181
Gripur nr. 181. Veggteppi, ofið með glitvefnaði, er dökk brúnt á litinn. Hæð 107 cm og lengd 192 cm. Ofið af gefanda á Kvennaskólanum á Blönduósi. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 358
Gripur nr. 358. Kassi með þurrum sjávarlífverum. Kuðungar, gaddakrabba, krossfiskur og fleira. Einnig bláir plattar með skrauti úr hafinu. Gefandi: Rósa Björg Högnadóttir Miðnesi, Skagaströnd.
Minjasafn 15
Gripur nr. 15. Mortel, skálarlagað, með könnustút og fylgir því stautur með hnúð á enda. Þvermál skálar er 8x8 cm og dýpt er 5 cm en lengd stauts er 9 cm. Mortelið er úr leir með hvítri glerhúð. Þetta mortel var notað til að mylja meðöl í handa skepnum. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn 179
Gripur nr. 179. Illeppar sauðsvartir með mislitum röndum. Heklað grænblátt utan um, prjónaðir af gefanda. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 157
Gripur nr. 157. Lukt, hvít á litin 25 cm á hæð. Notuð áður fyrr við gegningar, handlukt. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 134
Gripur nr. 134. Tréhöldur, níu stórar og tvær litlar, allar þræddar upp á snæri. Brennimerktar: Óskar, Jón og fl. Notaðar til að binda upp reiðing. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 89
Gripur nr. 89. Málverk í silfurramma af akkeri á ströndu.
Minjasafn711
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Maðurinn með hvítu húfuna til vinstri er Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Bautarholti, Frakkaklæddi maðurinn hægra megin við Ólaf er Hörður Ragnarsson en konan í dökku dragtinni og hvítu bandaskónum er líklega Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Til hægri spjalla saman þeir Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi til vinstri og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) Höfðaborg (Bankastræti 9) til hægri með hvíta húfu. Aðrir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 536
Gripur nr. 536. Lítill pappakassi sem geymir nokkra steina. Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti, Skagaströnd
Minjasafn 29
Gripur nr. 29. Gleráhald/ílát. Ekki vitað til hvers þetta var notað en mögulega var það til að koma lyfjum í skepnur því það var í sama kassa og mortel (gripur nr. 15) sem notað var til að gera meðöl fyrir skepnur. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
Minjasafn735
Þrír ungir drengir á árabát vestan við uppfyllinguna frá Einbúanum út í Spákonufellsey. Í baksýn til hægri sér í talíu á þrífæti sem notuð var til að færa til grjót í uppfyllingunni undir bryggjuna. Myndin var sennilega tekina 1934 eða 1935 þegar hafnarframkvæmdir stóðu sem hæst. Drengirnir eru Theódór Ólafsson, Jörgen Berndsen og Steinþór Ólafsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Minjasafn 300
Gripur nr. 300. Dúkur, ílangur, útsaumaður í hvítt léreft, með hvítri blúndu utan um, 90 cm langur og 27 cm breiður. Ísaumuð mynd af stúlku með blómvönd á sinn hvorn enda. Á miðjum dúk er blómahringur saumaður með kontorsting. Dúkurinn var saumaður af gefanda. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í maí 1982.
Minjasafn 352
Gripur nr. 352. Hald. Lítið hald/handfang, gult.
Minjasafn 621
Gripur nr. 621. Dagatal af árinu 1987. Kínverskur stíll er á dagatalinu og á því er falleg útsaumuð mynd. Dagatalið er frá Asiaco hf.
Minjasafn 309
Gripur nr. 309. Tréplatti notaður þegar verið var að saga út smástykki. Lengd 16 cm, breidd 16 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir, Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Minjasafn 407
Gripur nr. 407. Loftljósaskermur af gamla laginu. Ferningslagað, glært gler með upphleyptu munstri. Skermurinn var skrúfaður á perustæðið.
Minjasafn 281
Gripur nr. 281. Bakki úr eir. Sporöskjulagaður 35 cm langur 25 cm breiðastur. Á barminum er munstur og ígreiptar rósir á hvorri hlið. Gefandi: Bergljót Óskarsdóttir Skagaströnd í ágúst 1991.</font>
Minjasafn 565
Gripur nr. 565. Pínulítil plastkarfa sem fjögur lítil plastblóm standa upp úr. Hefur líklega verið barnaleikfang.
Minjasafn 156 no2
Gripur nr. 156. Borð, lítið 56 cm á lengd, 31 cm breitt og 48 cm á hæð. Fætur bogadregnar og lítil hilla undir. Dökk brúnt með gulum rákum. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 337
Gripur nr. 337. Leirskál með ígreyptum stjörnum inn í bogadregnum hringjum. Eilítið sprungin innan í. Þvermál 25 cm, hæð 11 cm. Skálin var í eigu Bjarnínu Árnadóttur Litla -Bergi, Skagaströnd. Gefandi var tengdadóttir eiganda. Gefandi: Jóhanna Thorarensen Skagaströnd 8. nóvember 1994.
Minjasafn 136
Gripur nr. 136. Gamall hengilás (Sul) 5 cm breiður og 4 cm á hæð. Hefur verið svartur en málningin farin að mást af. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 260
Gripur nr. 260. Kökudiskur, hvítur með eyrum. Með bleikum rósum, einni stórri og tveimur litlum á börmum. Annað eyrað er brotið af. Þvermáll disksins er 25 cm. Þennan disk átti Magðalena Helgadóttir Efri-Læk, Skagaströnd dáin 1954.
Minjasafn 487
Gripur nr. 487. Þrjú stykki undirskálar. Hvítar, skreyttar með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 486.
Minjasafn 67
Gripur nr. 67. Smellurammi með 11 litlum myndum af bátum/skipum.
Minjasafn 236
Gripur nr. 236. Pipar- og saltstaukar úr glæru gleri með tíglamunstri. Stállok skrúfað ofan á. Hæð 11 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
1
2
3
4
5
…
12
Leita í myndasafninu
Leita