Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 447
Gripur nr. 447. Tveir gamlir síldardiskar. Annar með grænni málningu á. Diskar sem þessir voru notaðir til að strá salti yfir hvert síldarlag í tunnunum þegar síld var söltuð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Skagaströnd en móðir hennar átti diskana.
Minjasafn 309
Gripur nr. 309. Tréplatti notaður þegar verið var að saga út smástykki. Lengd 16 cm, breidd 16 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir, Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Minjasafn6
Gripur nr.6. Nærskyrta úr hvítu lérsfti. Saumuð með tungum í hálsmál og handvegi. Munstur með enskum og frönskum saum á brjóst. Merkt B.G.. Hneppt á öxlum. Unnið Af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 260
Gripur nr. 260. Kökudiskur, hvítur með eyrum. Með bleikum rósum, einni stórri og tveimur litlum á börmum. Annað eyrað er brotið af. Þvermáll disksins er 25 cm. Þennan disk átti Magðalena Helgadóttir Efri-Læk, Skagaströnd dáin 1954.
Minjasafn 487
Gripur nr. 487. Þrjú stykki undirskálar. Hvítar, skreyttar með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 486.
Minjasafn 153
Gripur nr. 153. Mjólkurpokastatíf hvítt úr plasti. Notað undir mjólkur plastpoka. Þetta var til á hverju heimili meðan mjólk var afgreidd í slíkum pokum. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 390
Gripur nr. 390. Gaffall beyglaður fremst en grænn litur hefur sest í beyglurnar (spanskgræna?).
Minjasafn 154
Gripur nr. 154. Blómahengi hnýtt, ljósbrúnt. Lengd 110 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn766
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Minjasafn 158
Gripur nr. 158. Kaffibox, hvítt merkt <strong>Coffee</strong> með blómamynd á. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1980.
Minjasafn 81
Gripur nr. 81. Brúnn rammi með mynd af Sigurði Sölvasyni kaupmanni. Gefandi: Birgir Árnason.
Minjasafn 236
Gripur nr. 236. Pipar- og saltstaukar úr glæru gleri með tíglamunstri. Stállok skrúfað ofan á. Hæð 11 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn727
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Einar Jónsson , Óseyri á Skagaströnd f, að Illugastöðum á Vatnsnesi 27/1 1862 d. á Blunduósi?". </em>Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 23
Gripur nr. 23. Bólusetningarsprauta, umgerð úr járni með glerglasi og nál. Vantar í hana bulluna og járnið til að draga hana upp og ýta niður (bulluskaftið). (Varúð hún er ekki í öskju og nálin stendur út!). Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 331
Gripur nr. 331. Kaffibaukur málaður bleiklitur. Hæð 12 cm og þvermál 12 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd.
Minjasafn 491
Gripur nr. 491. Stórt ullarteppi, brúnt, hvítt, grátt og munstrað.
Minjasafn 569
Gripur nr. 569. Útvarp, lítið brúnt að lit. Bakið er farið af og "innvolsið" er sýnilegt en er laust í.
Minjasafn 526
Gripur nr. 526. Brúnleitur blómavasi/glas úr gleri á hvítum fæti.
Minjasafn 580
Gripur nr. 580. Lítil græn "Facit" reiknivél, handknúin.
Minjasafn 54
Gripur nr. 54. Lítil mynd af Einari Jónssyni frá Óseyri á Skagaströnd í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 589 no2
Gripur nr. 589. Stór glær glerflaska með stút niður úr, víðust um miðjuna en endar í nokkurs konar trekt efst. Glertappi með haldi í trektinni. Tappi í stútnum neðst úr gleri og keramiki. Flaskan er í rauðu járn stativi en neðst á því er stétt úr hvítu gleri þar sem miðjan er laus lítil glerskál sem felld er ofan í stéttina. Á flöskunni stendur: " 1 ml alcohol amylique 20° C". Tapinn efst er brotinn. Hér er um einhvers konar rannsóknartæki að ræða sem gæti hafa verið notað á rannsóknarstofu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Minjasafn 365
Gripur nr. 365. Klukka. Lítil falleg klukka úr postulíni/leir, með blómaskreytingum framan á og gylltum ramma í kringum skífuna. Gylltir vísar. Innbyggð spiladós sem spilar hugljúfa tóna.
Minjasafn 234
Gripur nr. 234. Kökudiskur á fæti. Fótuinn er málaður blár (ekki stéttin). Tíglamunstur er í glerið á stéttinni og diskinum. Ummál disksins er 15 cm en stéttin er 9 cm. (Brotin) Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 490 no2
Gripur nr. 490. Hvít mjólkurkanna með upphleyptu munstri af blómum. Sprungin og skarð í efri brún.
Minjasafn 416
Gripur nr. 416. Margnota, rauður, plast- eggjabakki sem hægt er að loka utan um 12 egg.
Minjasafn 83 no2
Gripur nr. 83. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktri konu.
Minjasafn 488
Gripur nr. 488. Ljósapera - glópera - mjög stór, glær. Ummálið er 38 cm.
Minjasafn712
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Fólkið á myndinni er óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 304
Gripur nr. 304. Svunta ísaumuð í hvítt léreft. Handfölduð með drapplituðu garni. Þrjár blómamyndir saumaðar neðst á kantinn á svuntunni. Band er á smekknum yfir hálsinn en smekkurinn er þríhyrndur. Blóm eru saumuð í spíssana og á brjóst. Hæð 70 cm en 64 cm breiðust. Var saumuð af gefanda árið 1939. Gefandi: Ingiríður Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd í júní 1982.
Minjasafn 147
Gripur nr. 147. Tappar úr plasti, rauðir fyrir flöskur. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Minjasafn 287
Gripur nr. 287. Pressutunga. Járnstykki sem sett var inn í straubolta en járnið var hitað á eldi og er mjög þungt. 20 cm langt 4 cm breitt og 6 cm þykkt. Er úr búi Stefáns Stefánssonar Ytri-Ey Vindhælishreppi. Gefandi: Stefán Stefánsson ytri -Ey.
Minjasafn 565
Gripur nr. 565. Pínulítil plastkarfa sem fjögur lítil plastblóm standa upp úr. Hefur líklega verið barnaleikfang.
Minjasafn 641
Gripur nr. 641. Ljósakúpull, kúlulaga úr hvítu gleri með gulum lóðréttum línum og brotnum grænum og rauðum línum, einnig lóðréttum. Mest ummál um miðjuna en mjókkar upp og niður frá miðju.
Minjasafn 291
Gripur nr. 291. Hluti af kaffikvörn. Var notuð til að mala brenndar kaffibaunir í kaffiduft sem síðan var hellt upp á.
Minjasafn2
Gripur nr 2. Hvítt brjóst, stífað. Notað við peysuföt. Gefið af Elísabetu Árnadóttur í maí 1977.
Minjasafn 305
Gripur nr. 305. Smákökumót fyrir gyðingakökur. Rautt tréskaft er en síðan járn,sem er hannað utan um járnið.Járninu er ýtt áfram og myndast þá útskornar laufaðar kökur á jöðrum. Þetta er járn frá 1950. Lengd 19 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli, Vindhælishreppi (Skagabyggð) 5. nóvember 1994.
Minjasafn 371
Gripur nr. 371. A3 plastmöppur tvö stykki. Nýlegar, sennilega verið keyptar fyrir skipulag á fornmununum. Vasarnir eru tómir á annarri. Rauðar á lit.
Minjasafn 625
Gripur nr. 625. "Skammbyssa" mjög gömul og mjög ryðguð. Gefandi: Magnús Blöndal, Skagaströnd í desember 1991.
Minjasafn 189
Gripur nr. 189. Tréreglustika 40 cm löng. Hún er úr ljósum viði 3 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 411
Gripur nr. 411. Járnstétt undan borðfánastöng. Þungur, þríhyrnings-/píramídalagaður, skreyttur með upphleyptum myndum s.s. af Íslandi, víkingaskipi, Maríu mey o.fl. Skrúfgangur er efst á stéttinni þar sem fánastöngin var skrúfuð á stéttina.
Minjasafn 67
Gripur nr. 67. Smellurammi með 11 litlum myndum af bátum/skipum.
Minjasafn695
Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) Rjúpnafelli á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1985.
Minjasafn 211
Gripir nr. 211. Sykurkar og rjómakanna úr hvítum leir, skreyting: gult blóm og græn lauf. Hæð 9 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 46
Gripur nr. 46. Lítil ljósmynd af Jóhönnu Benónýsdóttur frá Steinnýjarstöðum í ramma. Síðast var Jóhann búsett í Drangey á Skagaströnd.
Minjasafn 582
Gripur nr. 582. Trékistill (púlt), brúnmálaður. Aftast er hann ferhyrningslaga en svo koma tvær lamir sem eru fastar við lokið sem hallar niður fram. Stærð 42 x 51 x 17 cm. 9 cm þykkt frmast.
Minjasafn 43
Gripur nr. 43. Lítil portrett mynd af Nikulási Helgasyni bónda á Bakka.
Minjasafn 279
Gripur nr. 279. Mjólkurbrúsi, tekur 3 lítra. Hann er úr áli með loki og haldi. Merktur Skafti Fanndal. Öll heimili áttu sína mjólkurbrúsa undir mjólk. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 578
Gripur nr. 578. Stórt hallamál úr tré, 61 cm á lengd, 6 cm hátt og 3 cm á þykkt.
Minjasafn 7 no2
Gripur nr. 7. Náttserkur úr hvítu lérefti, lagður með milliverkum yfir brjóst og axlir. Síður. Einnig milliverk framan á ermum, sem eru langar. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 370 no3
Gripur nr. 370. Tvær mjólkurflöskur úr glæru gleri. Á annarri stendur: Mjólkursamsalan 1. En á þeirri minni, sem er alveg eins, stendur: Mjólkursamsalan 1/2.
Minjasafn 359
Gripur nr. 359. Myndavél. "Braunoptik" stendur á linsunni. "Imperial" stendur framan á henni. Svört á litinn. Brún leðurtaska fylgir með.
Minjasafn 45
Gripur nr. 45. Mynd frá Haukagili í Borgarfirði tekin sumarið 1884. Fólkið á myndinni er ekki þekkt. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 462
Gripur nr. 462. Tertuhnífur? úr glæru plasti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 170
Gripur nr. 170. Kertastjaki, sem er með svanshöfuð framúr og vængi til hliðar. Lengd 21 cm. Stendur svanurinn á smá stétt og er kertastjakinn úr gulllituðum málmi (látúni ?). Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Álftamýri 40, Reykjavík. Hún er móðir Salóme Jónu Þórarinsdóttur Lundi Skagaströnd. Gefið í júlí 1994.
Minjasafn751
Hjónin Jón Pálmason (d. 1.2.1973) þingmaður frá Akri og konan hans Jónína V. Ólafsdóttir (d. 3.1.1980). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Mindasafn 209
Gripur nr. 209. Skeifuhitamælir. Mælirinn er inni í skeifunni sem er grænleit með gylltum tökkum (hausar á hóffjöðrunum). Hæð 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd,
Minjasafn 550
Gripur nr. 550. Álspaði, steikingaspaði.
Minjasafn 397
Gripur nr. 397. Stutt reipi með silgjum á sitthvorum enda. (Gætu verið gjarðishringir?)
Minjasafn 255
Gripur nr. 255. Fantur, lítill úr hv´tum leir. Hæð 6 cm en ummál 3,5 cm. Úr Brautarholti frá Ólafi Guðmundssyni.
Minjasafn 109
Gripur nr. 109. A: Fantur úr ljósbeis lituðum leir, hæð 11 cm , breidd 7,5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994. B: Fantur´ljósbeis litaður leir, hæð 14 cm. Ekki vitað um gefanda.
1
2
3
4
5
…
12
Leita í myndasafninu
Leita