Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Minjasafn

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 108

Gripur nr. 108. Stór glerflaska, one gallon, glær, hæð 31 cm, breiðust utan um. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.

Minjasafn 54
Gripur nr. 54. Lítil mynd af Einari Jónssyni frá Óseyri á Skagaströnd í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 589 no2
Gripur nr. 589. Stór glær glerflaska með stút niður úr, víðust um miðjuna en endar í nokkurs konar trekt efst. Glertappi með haldi í trektinni. Tappi í stútnum neðst úr gleri og keramiki. Flaskan er í rauðu járn stativi en neðst á því er stétt úr hvítu gleri þar sem miðjan er laus lítil glerskál sem felld er ofan í stéttina. Á flöskunni stendur: " 1 ml alcohol amylique 20° C". Tapinn efst er brotinn. Hér er um einhvers konar rannsóknartæki að ræða sem gæti hafa verið notað á rannsóknarstofu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Minjasafn700
Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) frá Háagerði (seinna Baldursheimi á Skagaströnd). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984.
Minjasafn 45
Gripur nr. 45. Mynd frá Haukagili í Borgarfirði tekin sumarið 1884. Fólkið á myndinni er ekki þekkt. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 463
Gripur nr. 463. Margnota plast-eggjabakki, sem hægt er að loka, gulur á lit. Hýsir 6 egg.
Minjasafn 547
Gripur nr. 547. Trésleif 36 cm á lengd.
Minjasafn712
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Fólkið á myndinni er óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 304
Gripur nr. 304. Svunta ísaumuð í hvítt léreft. Handfölduð með drapplituðu garni. Þrjár blómamyndir saumaðar neðst á kantinn á svuntunni. Band er á smekknum yfir hálsinn en smekkurinn er þríhyrndur. Blóm eru saumuð í spíssana og á brjóst. Hæð 70 cm en 64 cm breiðust. Var saumuð af gefanda árið 1939. Gefandi: Ingiríður Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd í júní 1982.
Minjasafn 280 no2
Gripur nr. 280. Lyklahús sem er eins og skápur og er skrárgat í miðju framan á. Lyklahengikrókar eru inni í skápnum og eru tvær hurðir á lömum á framhlið. Skápurinn er úr brúnum við. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 92
Gripur nr. 92. Brúnn rammi með gylltum útlínum. í rammanum er mynd af kvenfélagskonum úr kvenfélaginu Eining og kvenfélaginu Heklu.
Minjasafn698
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) sitjandi á tröppunum heima hjá sér að Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984
Minjasafn 603
Gripur nr. 603. Stór brún kista með stóru skrauti kringum skráargatið. Laus fjöl í botni. Lokið er laust af hjörunum. Höld á hliðunum. Kistan er 38 cm djúp, 68 cm breið og 37 cm löng.
Minjasafn 328
Gripur nr. 328. Skátahnífur stállitaður með smá haki í fyrir ofan miðju. Hnífurinn er mjög þunnur. Lengd 19 cm. Þessi hnífur var notaður í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Eigandi hnífsins var Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 461
Gripur nr. 461. Tvö stykki fléttaðar körfur. Önnur er brún en hin er máluð græn.
Minjasafn 193
Gripur nr. 193. Fiskispaði úr járni með tréhaldi. lengd 36 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn702
Horfið hús, Ólafsvellir þar bjó lengi Jón Ólafsson. Stjórnsýsluhúsið í baksýn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1988 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 259
Gripur nr. 259. Glerbakki úr glæru gleri 10 x 10 cm með raufamunstri á hliðunum. Kemur úr búi Ólafs Guðmundssonar fá Brautarholti.
Minjasafn 125
Gripur nr. 125. Mynd af tjörninni í Reykjavík í brúnum viðarramma. Hæð 19 cm og breidd 24 cm. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í ágúst 1994.
Minjasafn 470
Gripur nr. 470. Lillu ediksýra, banvænt óblandað. Tappinn er bleikur. Enn er vökvi í glasinu.
Minjasafn 556
Gripur nr. 556. Gler eða postulínsplatti með mynd af Húna II Hu 2 með Spákonufell í baksýn. Aftan á plattanum eru dálitlar upplýsingar um Húna.
Minjasafn699
Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum til vinstri og Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík á sjómannadegi 1985 eftir að hafa hlotið heiðurmerki sjómannadagsins. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd.
Minjasafn 34
Gripur nr. 34. Derhúfa. Tvær derhúfur, hvítar með bláu merki framan á merkt með fiski og stöfunum S og H (Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna?)
Minjasafn 80
Gripur nr. 80. Brúnn rammi með gylltum hornum með mynd af Árna Svanberg frá Kambakoti. .
Minjasafn 295
Gripur nr. 295. Borðdúkur 76 x 74 cm. Dúkurinn er saumaður í hvítt léreft. Dregnir hafa verið þræðir úr léreftinu í þrjá bekki yst í dúknum. Hann er saumaður með nokkurs konar harðangri og klaustursaum. Fjórar dúllur eru heklaðar og saumaðar í hvert horn. Þessi dúkur er hreinasta listaverk.
Minjasafn 522
Gripur nr. 522. Handsmíðuð berjatína úr tré með stálgöfflum.
Minjasafn 379
Gripur nr. 379. Mynd í ramma af móður og dóttur. Myndin er mjög máð og er í ramma sem er koparlitaður.
Minjasafn 637
Gripur nr. 637. Flaska úr leir/postulíni. Hvít en er mjög skítug. Líklega var einu sinni í henni korktappi en ekki nú. Flaskan er 16 cm á hæð.
Minjasafn 488
Gripur nr. 488. Ljósapera - glópera - mjög stór, glær. Ummálið er 38 cm.
Minjasafn 370 no3
Gripur nr. 370. Tvær mjólkurflöskur úr glæru gleri. Á annarri stendur: Mjólkursamsalan 1. En á þeirri minni, sem er alveg eins, stendur: Mjólkursamsalan 1/2.
Minjasafn 359
Gripur nr. 359. Myndavél. "Braunoptik" stendur á linsunni. "Imperial" stendur framan á henni. Svört á litinn. Brún leðurtaska fylgir með.
Minjasafn 602
Gripur nr. 602. Skrifpúlt með lokuðu hólfi undir. Skúffulaga, málað myntugrænt. 13 cm þar sem það er dýpst, 38 cm langt og 39 cm breitt. Er með skráargati.
Minjasafn 550
Gripur nr. 550. Álspaði, steikingaspaði.
Minjasafn 397
Gripur nr. 397. Stutt reipi með silgjum á sitthvorum enda. (Gætu verið gjarðishringir?)
Minjasafn 539
gripur 539. Tveir hraunhnullungar úr Heimaeyjargosinu 1973. Misstórir.
Minjasafn 622
Gripur nr. 622. Áldunkur, bleikdrappaður á lit, ferhyrndur 23 cm á hæð.
Minjasafn 255
Gripur nr. 255. Fantur, lítill úr hv´tum leir. Hæð 6 cm en ummál 3,5 cm. Úr Brautarholti frá Ólafi Guðmundssyni.
Minjasafn 109
Gripur nr. 109. A: Fantur úr ljósbeis lituðum leir, hæð 11 cm , breidd 7,5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994. B: Fantur´ljósbeis litaður leir, hæð 14 cm. Ekki vitað um gefanda.
Minjasafn 383
Gripur nr. 383. Hvítur platti með gulum blómum. Áfastir eru þrír snagar - voru eitt sinn fjórir.
Minjasafn 63
Gripur nr. 63. Stór mynd af litlum torfæ. "Drottirnn blessi heimilið".
Minjasafn 317
Gripur nr. 317. Svört myndavél, 13 cm löng og 8 cm breið. Framan á vélinni stendur: Rowstart. Vélinni fylgir ljósbrún leðurtaska með ól. Gefandi fékk vélina í fermingargjöf árið 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 451
Gripur nr. 451. Lítið rautt box með gylltum stöfum. Í lokinu stendur: "Ólafur Sveinsson, Austurstræti 5, Reykjavík, Talsími 311". Í boxinu er ryðguð nál vafin í bómull.
Minjasafn792
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip: "Höfðaborg Hu 10. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919. Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti togarinn sem Skagstrendingar eignuðust. Skipið hét Belgaum RE 153 þegar það var keypt til Skagastrandar í nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f. Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu. Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina dekklekanum fram á gólfið. Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar en árangur varð ekki mikill. Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í maímánuði 1955." Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
Minjasafn 138

Gripur nr. 138. Sex brýni ýmsar gerðir, sum mikið notuð, einnig grjótbrýni. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.

Minjasafn 441
Gripur nr. 441. Lítil hvít kanna úr postulíni. Haldbrotin. Rauð lína með blómamunstri á miðri könnu og gylltar rendur með efri brún og neðan við miðju.
Minjasafn 72
Gripur nr. 72. Brúnn rammi með fjórum myndum. Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir og þrjár myndir um borð í Skíða Hu.
Minjasafn742
Björn Þorleifsson (d. 26.5.1956). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 372
Gripur nr. 372. Þrjú stykki rauðar úrklippubækur. Nýlegar, e.t.v. verið keyptar undir skipulag á fornmununum. Bækurnar eru tómar, þ.e. engar úrklippur í þeim.
Minjasafn 361
Gripur nr. 361. Sykurkar úr gleri. Glært með blárri slikju. Er með haldi. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 148
Gripur nr. 148. Vatnskranar. Tveir úr kopar og einn úr stáli. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 541
Gripur nr. 541. Tvær skeifur, gamlar og mjög ryðgaðar.
Minjasafn 144
Gripur nr. 144. Hald af kommóðu, gylt 8,5 cm langt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Minjasafn 605
Gripur nr. 605. Koffort/taska úr tré. Er með haldi og ryðgaðri járnlæsingu. Járnhlífar eru á hornunum á lokinu að framan.
Minjasafn 51
Gripur nr. 51. Lítill viðarrammi, rauðbrúnn eins og A í laginu. Í rammanum er mynd af óþekktum manni (Sigurður Guðmundsson frá Laufási?).
Minjasafn 655
Gripur nr. 655. Ryksuga, blá með álskafti. Geyminn er kúlulaga og stendur á fæti, engin hjól.
Minjasafn 573 no2
Gripur nr. 573. Útvarp. Stórt með gulleitri grind . Svart með brúnum hliðum.
Minjasafn 374
Gripur nr. 374. Smellurammi ónotaður. Er enn í pakkningunni en glerið er brotið.
Minjasafn 335
Gripur nr. 335. Kartöflustappari með grænu tréhaldi. Lengd 23 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétrusson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 494
Gripur nr. 494. Kökudiskur. Hvítur með blómaskreytingu í botni. Rimlaður á brúnum. Diskurinn er brotinn en brotin fylgja með þannig að hægt er að líma hann saman aftur.
Minjasafn 572
Gripur nr. 572. Útvarp. Brúnt, stórt með gulleita grind.
1

4
5
6

12
Leita í myndasafninu
Leita