Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn683
Þessi mynd var tekin af Pétri H.J.Jakobssyni af síldarlöndun á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gáfu hjónin Jónas Tryggvason og Þorbjörg Bergþórsdóttir á Blönduósi.
Minjasafn 320
Gripur nr. 320. Mynd í silfurlitum tréramma. Á myndinni er skjöldótt kýr. Efst stendur: <strong>Alfa Laval.</strong> Þessi mynd var ávalt á Læjarbakka og er orðin mjög gömul. Hún var úr búi Mörtu og Péturs á Lækjarbakka. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 507
Gripur nr. 507. Lítið járnsigti.
Minjasafn693
Mæðgurnar Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) sitjandi í tröppunum við heimili sitt að Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en hún var tekin 1986.
Minjasafn 357
Gripur nr. 357. Ósamsett fata úr tré. ca 30 - 40 cm á breidd. Lítur út eins og tunna af gamla laginu með járngjörðum utan um sig en er aðeins ca 20 cm á hæð.
Minjasafn 662
Gripur nr. 662. Hvít derhúfa frá Hólanesi hf.
Minjasafn 664 JPG
Gripur nr. 664. Flaska, líklega mjólkurflaska. Er úr gleri og er með rauðan tappa úr plasti - smellutappa. 29 cm á hæð.
Minjasafn 466
Gripur nr. 466. Steinkola. Fannst í uppgreftri á bænum Spákonufelli árið 1965. Líklega frá 12. - 13. öld. Gefandi: Kristján Hjartarson Grund, Skagaströnd í maí 1977.
Minjasafn 566
Gripur nr. 566. Rakhnífur svartur á lit. Er í svartri pappaöskju. "Gustav Felix Solingen" stendur á öskjunni.
Minjasafn719
Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) Sóllundi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 347
Gripur nr. 347. Hengilás. "L...L Secure self acting sprung Lock " stendur framan á lásnum.
Minjasafn 514
Gripur nr. 514. 11 stykki matardiskar, grunnir. Blá rönd á kantinum og tvær gullrendur örlítið innar.
Minjasafn 242
Gripur nr. 242. Skrautskál ílöng úr brenndu gleri (brotin).
Minjasafn 53
Gripur nr. 53. Brúnn rammi sem geymir tvær myndir af systkinunum Birni Ólafssyni og Björgu Ólafsdóttur frá Árbakka. Gefandi: Helga Berndsen.
Minjasafn741
Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 509
Gripur nr. 509. Kefli úr tré með svörtu garni vöfðu á.
Minjasafn 615
Gripur nr. 615. Reiknivél, ljósgrá á litin. Er merkt "FACIT". Með svörtum og rauðum tökkum. Tengist rafmagni.
Minjasafn 666
Gripur nr. 666. Dúkka úr plasti. Vantar á hana handleggina og það er hola inn í magann á henni. Svarthærð og í hvítum skóm.
Minjasafn 244
Gripur nr. 244. Klukka í brúnum viðarkassa. Máluð gyllt á framhlið. Á klukkunni eru rómverskar tölur. Var í eigu móður gefanda (Kristínar Jónsdóttur). Gefandi telur að klukkan sé síðan fyrir aldamót (1898). Klukkan stendur á smá stétt. Lykillinn fylgir með. Breidd 17 cm og 30 cm á hæð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í júní 1980.
Minjasafn757
Um þessar mundir (mars 2023) eru tæp 62 ár síðan óhugur og sorg ríkti meðal fólks á Skagaströnd. Ástæðan var að bræðurnir Hjörtur Hjartarson, sem er til vinstri á myndinni, og Sveinn Hjartarson frá Vík fórust í sjóróðri á Húnaflóa á bát sínum Skíði Hu 8, 22. nóvember 1961. Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt af málinu hinn 23. nóvember 1961: "Óttast að tveir bræður hafi farizt. Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag. — Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur og sjálfur stundaði sjómennsku.<br>Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi. Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst. Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun en hafði einskis orðið vart. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn, en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 175
Gripur nr. 175. Skeljakassi 20 cm langur og 14 cm breiður. Á kassann eru límdar skeljar og kuðungar. Aðallitur á kassanum er brúnn.
Minjasafn 533
Gripur nr. 533. Álplata með skráargati og gati fyrir hurðarhún eða handfang. Hvít með upphleyptum hring meðfram kantinum.
Minjasafn 484
Gripur nr. 484. Dúkar af ýmsum stærðum. Gefandi: Hildigunnur Jóhannsdóttir Stórholti, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn 39
Gripur nr. 39. Óinnrömmuð mynd af brúðhjónum. Fólkið ekki þekkt. ( E.t.v. er um að ræða mynd sem fylgdi römmunum og var tekin úr áður en ný mynd var sett í rammann. )
Minjasafn 338
Gripur nr. 338. Hálsfesti. Ljósgrænar og ljósdrapplitaðar perlur og sívalningar. Ekki vitað úr hverju þær eru, etv. úr plasti eða gleri. Lengd 41 cm. Vantar læsingu. Líklega úr eigu Magdalenu Helgadóttur Efri-Læk (d. 1954). Fannst í kommóðu frá Efri-Læk (1994). Kommóðan kom líklega í safnið 1978.
Minjasafn 595
Gripur nr. 595. Áldunkur notaður til að geyma kökur og smábrauð. 17 cm djúpur og 70 cm að ummáli. Er með utanáfelldu loki.
Minjasafn 563
Gripur nr. 563. Sláturnálar sem fundist hafa hingað og þangað.
Mindasafn 123
Gripur nr. 123. Gylltur rammi með konumynd, 9 x 15 cm. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í ágúst 1994. Myndin er úr búi foreldra hennar.
Minjasafn 410
Gripur nr. 410. Járnkarfa úr eigu Körlu Helgadóttur með margs konar dóti; bollar, djúpur diskur, snagi, gamalt ilmkerti o.fl.
Minjasafn 459
Gripur nr. 459. Stór, drapp - brúnn diskur.
Minjasafn686
Síldarsöltun á bryggjunni á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndina tók Pétur H.J. Jakobsson en hún er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, gefin af hjónunum Jónasi Tryggvasyni og Þorbjörgu Bergþórsdóttur á Blönduósi.
Minjasafn 669
Gripur nr. 669. Teppahreinsir með löngu skafti. Hellt er sápu og vatni í hólfið og síðan rúllað eftir teppinu. Græn - blátt og skaftið hvítt. Sápugeymirinn gulnaður.
Mindasafn 197
Gripur nr. 197. Súkkulaðikanna, hvít með gulum hringjum og krækjum endurtekið alla könnuna. Rauð ber inni á milli. Vantar lokið. Hæð 16 cm. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982 en þá var kannan 60 ára.
Minjasafn 468
Gripur nr. 468. Lítið pappabox sem merkt er: "Jólakerti" með rauðum stöfum. Einnig er mynd af stúlku með rauðu bleki. Hugsanlega áttu kertin í grip nr. 443 að fylgja með.
Minjasafn 413
Gripur nr. 413. Tréaskja sem eitthvað er sett ofan í og síðan er tréplata, sem fylgir með og passar innan í kassann, sett ofan á og þrýst niður með prikinu sem fylgir. Gat er á botni öskjunnar fyrir miðju en þar hefur eitthvað verið kreyst út úr öskjunni. (Skyrpressa?).
Minjasafn 443
Gripur nr. 443. Þrjú stykki græn, snúin skrautkerti.
Minjasafn 506
Gripur nr. 506. Tvö stykki útskornar skeiðar úr beini/horni. Önnur er matskeið en hin er teskeið.
Minjasafn733
María Birgitta Berndsen (d. ?). Aftan á þessari mynd stendur:<em> "María Birgitta Berndsen 01.1940. Gef. Helga Berndsen Karlsskála".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 477
Gripur nr. 477. Pappakassi með hnífapörum, pískara og eggjaskera.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 464
Gripur nr. 464. Hvít undirskál, emaleruð með blárri rönd við kantinn. Skálin er frekar djúp og hefur mögulega verið notuð sem, öskubakki.
Minjasafn 71
Gripur nr. 71. Brúnn rammi með sex portrett myndum af fólki og einni mynd af Höfðahólum á Skagaströnd.
Minjasafn 233
Gripur nr 233. Kökudiskur, hvítur, ílangur með blárri rönd og merkt: Jöklar h/f (skipafélaginu). Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 444
Gripur nr. 444. Ljósbrún axlabönd, úr leðri/rússkinni, af gamla laginu.
Minjasafn 378
Gripur nr. 378. Mjög gamall og fúinn spegill. Ramminn utan um hann er úr tré o er brún/grænleitur með útskornu munstri.
Minjasafn 588
Gripur nr. 588. Lukt botninn er stállitaður og skermurinn grænn. Er með löngu haldi. Ca 35 cm á hæð.
Minjasafn 217
Gripur nr. 217. Kökudiskur úr reyklituðu gleri, víkkar út á barminum. Barmurinn bylgjast. Munstur: tígulmunstrað. Breidd/þvermál 18 cm. Gefandi fékk diskinn á basar hjá kvenfélaginu Einingu. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 196 no2
Gripur nr. 196. Vaskafatakanna frá servanti. Vaskafatið er brotið. Kannan er hvít með rauðum rósum og grænum blöðum á miðri könnu. Hæð 29 cm og ummál 58 cm. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1990.
Minjasafn 22
Gripur nr. 22. Hárklippur með kambi. Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti Skagaströnd
Minjasafn 531
Gripur nr. 531. Tveir hnífar. A: er stærri með tréhaldi og lengra blaði. B: er minni með tréhaldi og stuttu blaði sem er mjög ryðgað.
Minjasafn 528
Gripur nr. 528. Áldiskur með upphleyptri mynd af skipum á sjó. Hægt er að hengja diskinn upp.
Minjasafn 480
Gripur nr. 480. Dúkur úr hvítum bómullarjafa. Saumaður af Sigríði Þorkelsdóttur frá Barkastöðum. Gæti verið 150- 160 ára gamall.
Minjasafn 426
<p>Gripur nr. 426. Tveir vegglampar. Gyllt umgjörð og blómamynd á skermi. Dálítið kínverskur stíll á þeim. </p>
Minjasafn 190 no2
Gripur nr. 190. Lampafótur. Járnstétt á þremur fótum. Í miðju er rennt tré með ábrenndri mynd af Skógarfossi. Járnstykki efst. Vantar bæði snúru og perustæði. Hæð 23 cm. Gefandi Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn677
Guðmundur Rafnsson (d. 23.9.1968) Sunnuhlíð á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi myndarinnar var Ása Jóhannsdóttir Læjarbakka, Skagaströnd.
Minjasafn 492
Gripur nr. 492. Mjög fallegur eðal- olíulamp úr postulíni. Aðpallitur er hvítur og svo er hann blár neðst á fæti og ofan á toppi. Er í laginu eins og bikar. Skreyttur rómantískum myndum af pari og blómamyndum í kring. Gylling á eyrum/höldum og á nokkrum öðrum stöðum. Lampaglas úr gleri er með.
Minjasafn 223
Gripur nr. 223. Kertastjaki, gylltur með snúnum fæti og 7 cm breiðri stétt. Óli Jónasson frá Fjalli á Skaga átti stjakann og var þetta eini skrauthluturinn sem hann lét eftir sig þegar hann lést. Gefandi var mágkona hans. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 324
Gripur nr. 324. Pressujárn. Pressujárnið var hitað á eldavél síðan var pressað með því. <strong>05</strong> stendur aftan á því. Lengd 21 cm. Er frá Lækjarbakka. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í septembr 1994.
Minjasafn705
Horfið hús, Sóllundur, stóð þar sem nú er Hólabraut 8. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 253
gripur nr. 253. Mjólkurkanna úr hvítum leir. Er með bláum rósum og einnig er blátt efst á barminum. Hæð 19 cm. Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd og átti móðir hennar könnuna. Gefin í júlí 1994.
1
…
6
7
8
…
12
Leita í myndasafninu
Leita