Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 11
Gripur nr. 11. Hekluð treyja, ermalaus svört og rauð. Tvíhneppt með silfruðum hnöppum. Hún er síðan um 1880. Eigandi var Ingibjörg Stefánsdóttir frá Engihlíð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 648
Gripur nr. 648. Flaska úr gleri með korktappa. Þrístrend með íhvolfar hliðar.
Minjasafn 142
Gripur nr. 142. Járn, ekki vitað til hvers notað. Stendur á því <strong>Bjarg</strong>. Gulllitað. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 403
Gripur nr. 403. Lítið sigti úr áli. ca 10 cm á breidd.
Minjasafn 481
Gripur nr. 481. Skál úr brúnleitu gleri með skornu munstri. Er sporöskjulaga.
Minjasafn 380
Gripur nr. 380. Tvær teiknaðar myndir frá 1950 af manni með undihöku og í jakkafötum. Á annarri horfir hann upp og á hinni horfir hann niður. Myndirnar eru í sinnhvorum brúna rammanum.
Minjasafn 583
Gripur nr. 583. Mjólkurbrúsi 44 cm á hæð ( frá stút) og 68 cm að ummáli. Er með mjóan stút við opið en enginn tappi.
Minjasafn 534
Gripur nr. 534. Lítið skóhorn úr horni.
Minjasafn 540
Gripur nr. 540. Flatt málm-málband sem rúllast upp á hjól og er í stativi með handfangi svo hægt sé að halda á þessu. Á hliðinni er sveif svo hægt sé að vinda málbandið inn á miðjuhjólið. Krókur er á enda málbandsins.
Minjasafn707
Horfið hús, Stóra-Berg, stóð suð-austur af Hólaneskirkju. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 626
Gripur nr. 626. Álspaði fyrir steikingapönnur.
Minjasafn 562 no2
Gripur nr. 562. Mjór, lítill hamar. Skaftið er úr tré en hausinn úr járni.
Minjasafn 623
gripur nr. 623. Lítill trérammi, brúnn með tígulmunstri með rauðu í. Stærð: 10 x 15 cm.
Minasafn 504
Gripur nr. 504. Hárklippur úr stáli. Annað handfangið brotið af.
Minjasafn800
Gísli Árni RE 375. Stærð 355 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1965 í Noregi. Vél Wichmann 700 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 251 no2
Gripur nr. 251. Útskorin (tálguð) barnagull, líklega úr ýsubeini níu stykki. Þetta er í fuglslíki , smá búkur (engir fætur) og teygja hálsinn upp. Hæð frá 2,1 cm - 3,6 cm. Einnig eru tvö stk. líklega skorin úr viði. Eru líklega kýr. Hæð 3 cm og lengd 3,7 cm. Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi gaf þetta og telur hún líklegt að maður hennar Jón Sumarliðason eða synir hans hafi skorið þetta út. Gefið í mars 1995.
Minjasafn 449
Gripur nr. 449. Heklaður, ílangur dúkur. Hefur sennilega verið hvítur einu sinni en er nú bleik-drappaður.
Minjasafn 192
Gripur nr. 192.Tappatogari úr járni með keilulöguðum hring sem handfang. 10 cm langur. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 212 no2
Gripur nr. 212. Borðlampi úr gleri. Á honum er mynd af konu í gulum og rauðum kjól. Er með litlum rauðum skermi. Hæð 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1988.
Minjasafn701
<p>Horfið hús, Rjúpnafell, en þar bjó lengst af Guðberg Stefánsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1988 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 406
Gripur nr. 406. Kúpull fyrir loftljós með einni peru. Hvítt gler með skrúfgangi efst.
Minjasafn 618 no2
Gripur nr. 618. Hvítur glerplatti merktur:" Kántrýbær - Skagaströnd, Villta vestrið".
Minjasafn 26
Gripur nr. 26. Fantur, 14 cm á hæð og 26 að ummáli. Sprunginn á tveimur stöðum, skarð í brún. Leirinn er gulgrár, sléttur að utan með rauf í hring rétt neðan við brúnina. Úr búi Vilborgar og Árna frá Miðgili Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Minjasafn775
Þessi mynd af Bjarmanesi var tekin 1943. Eftir það var byggt bíslag og tröppur við húsið að austanverðu (hliðin sem snýr að okkur) en síðan var það rifið aftur og húsið sett í sitt upprunalega horf eins og það er á þessarri mynd. Húsið var lengi notað sem skóli en er nú kaffi- og samkomuhús í eigu sveitarfélagsins. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júní 1996.
Minjasafn 277 no2
Gripur nr. 277. Snældustóll, viðarlitaður 29 cm langur, breidd 13,5 cm og 28 cm hár. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd. Björn var fæddur í maí 1897.
Minjasafn 609
Gripur nr. 609. Ferðataska brún og drapplituð í "netmunstri". Hlífðarjárn eru á öllum hornum dálítið ryðguð. Læsingar sitt hvoru megin við haldið dálítið ryðgaðar. Merkispjald bundið við haldið.
Minjasafn 323
Gripur nr. 323. Skeifa með hóffjöðrum öðru megin. Undan Hólarauð frá Höfðahólum. Rauður var notaður við að hræra steypuna í Lækjarbakka þegar það var byggt 1945. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 139
Gripur nr. 139. Reglustika 40 cm löng úr ljósum viði, hvít málning á helmingi hennar sem sýnir cm kvarða. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994..
Minjasafn776
Horfið hús. Ægissíða er löngu horfin en húsið stóð á horninu rétt sunnan við Réttarholt. Konan í dyrunum er líklega húsmóðirin í Ægissíðu, Klemensína K. Klemensdóttir (d. 12.6.1966). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Eðvarð Ingvason.
Minjasafn 642
Gripur nr. 642. Kvenmannsveski úr grænu köflóttu efni en er með svörtu leðri á hliðum, köntum og á haldi. Er lokuð með rennilás.
Minjasafn724
Björg Ólafsdóttir (d. 1953) frá Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 402
Gripur nr. 402. Kassi 19 hefur að geyma fornminjar sem eru óskráðar og þurfa því fagfræðilega greiningu.
Minjasafn767
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Tunnurnar á myndinni hafa líklega verið notaðar í tunnuboðhlaupi sem var lengi einn af föstum viðburðum á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Minjasafn762
<p>Aftan á þessari mynd stendur: <em>"M/b Farsæll ca 6 tonn. Árni Guðmonsson og synir áttu bátinn. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996"</em>. Líklega er myndin af Farsæli St 42 sem eigendurnir fluttu með sér þegar þeir fluttu til Skagastrandar frá Strandasýslu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.</p>
Minjasafn 27
Gripur nr. 27. Mynd af Hallgrími Ottóssyni í brúnum ramma.
Minjasafn 348
Gripur nr. 348. Hengilás, brúnleitur, ryðgaður.
Minjasafn 546
Gripur nr. 546. Skaftpottur, lítill með löngu haldi.
Minjasafn 44
Gripur nr. 44. Mynd af fjórum mönnum í smelluramma. Mennirnir eru Björgvin Jónsson, Björn Þorleifsson, Páll Jóhannesson og Pálmi Sigurðsson.
Minjasafn 600
Gripur nr. 600. Tvö stykki fléttaðar bastkörfur. Misstórar með einu handfangi upp úr fyrir miðju. Sú minni er með leðuról þvert yfir, sem heldur köfunni saman.
Minjasafn732
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Nikulás Helgason bóndi á Bakka og víðar á Skagaströnd, f. 26/2 1858 í Glaumbæ í Engihlíðarhreppi d. á Blunduósi ?".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 220
Gripur nr. 220. Kassetta með 100 íslenskum kvæðalögum. Kvæðamannafélagið Iðunn flytur. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 95
Gripur nr. 95. Brúnn rammi með níu myndum af húsum á Skagaströnd, mörg þeirra horfin í dag. Myndirnar tók Guðrún Þ. Guðmundsdóttir af húsunum þegar átti að fara að rífa þau.
Minjasafn 473
Gripur nr. 473. Staup /skotglas fyrir áfengi. Glært gler með gylltum röndum og einni rauðri rönd og einni silfraðri rönd.
Minjasafn 616 no2
Gripur nr. 616. Minjagripir um Kántrýbæ. Alls konar dót merkt Kántýbæ. M.a. tveir bolir, öskubakki, kveikjari, barmnælur og fleira.
Minjasafn 476
Gripur nr. 476. Ostabakki úr hvítu plasti með loki yfir.Lokið er skreytt með bláum blómum.
Minjasafn 286
Gripur nr. 286. Kaffikanna úr áli með svörtu haldi og einnig hnúð á loki. Hæð 23 cm. Hringur fylgir einnig með sem er fyrir könnupokann. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey Vindhælishreppi. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Minjasafn 635
Gripur nr. 635. Blár bakki, sennilega eftirrétta - eða kaffibakki.
Minjasafn 661
Gripur nr. 661. Skautapar úr tré og járni. Er með leðurólum til að festa þá á fæturna.
Minjasafn 280
Gripur nr. 280. Lyklahús sem er eins og skápur og er skrárgat í miðju framan á. Lyklahengikrókar eru inni í skápnum og eru tvær hurðir á lömum á framhlið. Skápurinn er úr brúnum við. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 168
<p>Gripur nr. 168. Vatnsflaska, glær 20 cm há breiðust í miðju, með mjókkandi stút upp. Vatnsglas fylgdi með þessum flöskum og var því hvolft ofan á stútinn. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.</p>
Minjasafn 469
Gripur nr. 469. Fjögur stykki eggjabikarar úr plasti. Svartur fótur en staupið sjálft er rautt.
Minjasafn 471
Gripur nr. 471. Einfaldur spegill. Enginn rammi en það er þykk "gullrönd" þvert yfir neðstu og efstu brún spegilsins.
Minjasafn 133
Gripur nr. 133. Pennastöng, svört, 21 cm á lengd. Flöt á þrjá kanta þar sem maður heldur um. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 574
Gripur nr. 574. Segulbandstæki í brúnni leðurtösku með rennilás, sem passar akkúrat um tækið. Gamalt "spólutæki".
Minjasafn 619
Gripur nr. 619. Platti, brúnn og ljósbrún-drappaður úr leir/postulíni. Á honum stendur: "KÁNTRÝBÆR" "Nashville Cowboy" og fleira.
Minjasafn 450
Gripur nr. 450. Hvít postulíns/leir-kanna með glerungi. Rautt munstur meðfram haldi og á brúnum.
Minjasafn 523
Gripur nr. 523. Sykurkar, hvítt úr leir með glerungi, orðið ljótt að innan.
Minjasafn 101
Gripur nr. 101. Teiknuð mynd í ljósum viðarramma af Gunnari Grímssyni fyrrverandi kaupfélagsstjóra. Var myndin höfð í Höfðaútibúi á skrifstofunni. Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri lánaði safninu myndina í maí 1994.
Minjasafn737
Hindenburg Hu 45 í eigu Ole Aamundsen í Lundi kemur úr róðri. Skipstjóri á bátnum var Indriði Brynjólfsson frá Ytri - Ey en hásetarnir eru óþekktir. Hindenburg var tæp fjögur tonn að stærð. Myndin, sem sennilega var tekin einhverntíma kringum 1940, er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn782
Húni Hu 1. Báturinn var smíðaður úr stáli í Austur Þýskalandi 1957, 75 tonn að stærð með 280 hestafla MWM vél. Húni var smíðaður fyrir Húnvetning hf á Skagaströnd. Báturinn fórst út af Hópsnesi með 8 manna áhöfn 2. mars 1976 en hafði þá nafnið Hafrún ÁR og var löngu kominn úr eigu Húnvetnings hf. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála á Skagaströnd 6.maí 1996.
1
…
7
8
9
…
12
Leita í myndasafninu
Leita