Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Minjasafn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
705 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn793
Hrafn Sveinbjarnarson GK 10. Stærð 110 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í Noregi. Vél Alpha-Diesel 385 hestöfl. Heimahöfn Grindavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 93 no2
Gripur nr. 93. Brúnn rammi með mynd af Sigurði Jónssyni.
Minjasafn 376
Gripur nr. 376. Tvö stykki brúnir rammar, nýlegir. Í öðrum þeirra er: "Reikningur frá verzlun Carl Berndsen á Hólanesi". Í hinum rammanum er: "Reikningur frá Verslunarfélagi Vindhælinga. Hólanesi".
Minjasafn736
Bátar í höfninni á Skagaströnd. Lengst til vinstri er Ludendorf Hu 46, Hindenburg Hu 45 í miðju, en þá báta átti Ole Aamundsen í Lundi. Síðan kemur Stóri Gulur sem var í eigu Ernst Berndsen frá Karlsskála. Fjórði báturinn, sá minnsti, næst lengst til vinstri, er óþekktur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: María Magnúsdóttir Asparlundi á Skagaströnd í janúar 1995.
Minjasafn 656 JPG
Gripur nr. 656. Stólkollur eða lítið borð. Úr tré málaður ljósblár. Fjórir fætur og rammi utan um fæturna.
Minjasafn 423
Gripur nr. 423. Platti úr líni. Blátt efni með útsaumuðum gulum blómum. Tveir vasar framan á.
Minjasafn 429
Gripur nr. 429. Lítil tré askja. Lokið skreytt með máluðum laufum og hálfu epli.
Minjasafn 115
Gripur nr. 115. Tréklemmur sex stykki með gömlu lagi. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 613
Gripur nr. 613. Reiknivél, svört með handsveif. "VICTOR" stendur framan á henni. Pappírsrúllan er ennþá í.
Minjasafn786
Þessi mynd var tekin af mönnum við köfunarstörf. Kafarinn með hjálminn er Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) en sá sem er að klæða hann, og snýr baki í okkur, er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Maðurinn í köflótta jakkanum er Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) en hann var verkstjóri og var í sambandi við Guðmund gegnum talstöð meðan hann var í kafi. Guðmundur var kafari í mörg ár og kafaði víða í höfnum á Íslandi. Á myndinni er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) í "frosk-kafara" búningi lengst til vinstri en hinir tveir eru óþekktir. Hjólin, sem Karl og óþekkti maðurinn með húfuna halla sér upp að, var loftdælan sem notuð var til að dæla lofti niður í búninginn hjá Guðmundi kafara. ( Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrönn Árnadóttir Hólabraut 14, Skagaströnd).
Minjasafn 527
Gripur nr. 527. Trjábútur sem búið er að líma á nokkrar tegundir jurta úr íslenskri náttúru.
Minjasafn 639
Gripur nr. 639. Kvenmannsveski. Rennt, úr brúnu og svörtu efni og með brúnu leðri á köntum og haldi.
Minjasafn801
Fróðaklettur GK 250. Stærð 251 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Hafnarfjörður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn785
Flosi Hu 15. Bátinn keyptu Gunnar Sveinsson og Eiður Hilmarsson til Skagastrandar 1960 og gerðu hann þar út í nokkur ár. Hjalti Skaftason flutti bátinn norður fyrir vini sína á vörubíl sem hann hafði umráð yfir á þessum tíma. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrönn Árnadóttir Hólabraut 14, Skagaströnd.
Minjasafn 162
Gripur nr. 162. Eldspýtnahulstur í bláu plasthulstri með mynd af Surtsey á lokinu. Hulstrið tekur fjóra eldspýtustokka. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Minjasafn731
Hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aftan á myndinni stendur: <em>"Hjónin Skafti Fanndal Jónasson og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir. Skafti fæddur á Fjalli Skaga. Jóna ólst upp í Ásbúðum Skaga".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, í júlí 1996.
Minjasafn 596
Gripur nr. 596. Áldunkur notaður til að geyma í kökur og smábrauð. 16 cm djúpur og 64 cm að ummáli. Er með ofanífelldu loki.
Minjasafn 355 og 356
Gripur nr. 355. ísskauti af gömlu gerðinni. Trésóli með járnblaði og leðurreimum. Gefandi: Elísabet Árnadóttur Réttarholti, Skagaströnd.
Minjasafn 231
Gripur nr. 231. Sykurkar með tveim stuttum, útstandandi eyrum og loki. Karið er hvítt með gulu og brúnu munstri efst á barmi. Hæð 11 cm en ummál 33 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 620
Gripur nr. 620. Jólaljósasería mjög gömul. Litlir skermar á öllum perunum og þeir eru gulir, rauðir, grænir, bleikir, bláir og hvítir. Á skermunum eru mismunandi myndir. Gefandi: Rósa Björg Högnadóttir Miðnesi, Skagaströnd í maí 1995.
Minjasafn 629
Gripur nr. 629. Ljósriti "Dry Photo Copier 051" drappaður á litinn. Gefandi: Ragnhildur ?? 16. maí 1994.
Minjasafn 516
Gripur nr. 516. Pínulítill bakki með óþekktu notagildi. Bakkinn er hvítur með gyllingu á kanti og litlum, upphleyptum, bleikum blómum fyrir miðju.
Minjasafn 472
Gripur nr. 472. Hvít postulínsklukka til að hengja á vegg. Tölustafirnir og vísarnir eru brúnir.
Minjasafn 268
<p>Gripur nr. 268. Skurðbretti úr leir með bláu einlitu munstri. Gat er á endanum til að hengja brettið upp á. Lengd 20 cm og breidd 11 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efra-Læk, Skagaströnd.</p>
Minjasafn 584
Gripur nr. 584. Mjólkurbrúsi 28 cm á hæð og 57 cm að ummáli. Er með loki og haldi.
Minjasafn 458
Gripur nr. 458. Hangandi ljósakróna/skermur úr efni/líni, bleik og rauð með bleikum blómum. Festingin er rauð.
Minjasafn740
M.b. Ásgeir Hu 1 liggur í suðvestan brimi í Skagastrandarhöfn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson Höfðahólum á Skagaströnd.
Minjasafn 535
Gripur nr. 535. Pappakassi sem geymir gömul, heimasaumuð föt, efnisbúta og snið.
Minjasafn 594
Gripur nr. 594. "Keystone" hakkavél/matarkvörn úr stáli. Hægt að skrúfa fasta á borðbrún. Biti var settur í trekt efst á vélinni síðan var sveifinni snúið og þá kom bitinn hakkaður út um framenda vélarinnar.
Minjasafn791
<p>Báturinn frammi við bryggjuendann er Vísir Hu 10 í eigu Jósefs Stefánssonar (d. 9.12.2001), Jóns Stefánssonar (d. 3.8.1991) og Sigurðar Árnasonar (d. 26.3.2013). Fyrir aftan Vísi er líklega Svanur Hu 4 sem var í eigu bræðranna Baldurs Árnasonar (d. 14.11.2009) og Júlíusar Árnasonar (d. 24.3.1985) en seinna í eigu feðganna Þórhalls Árnasonar (d. 4.2.2008) og Árna Ólafs Þórhallssonar. Utan á honum er líklega Jóhanna Eldvík Hu í eigu Viggós Maríussonar (d.30.7.1973). Í baksýn er síldarverksmiðjan og athafnasvæði hennar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi:Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.</p>
Minjasafn 585
Gripur nr. 585. Mjólkurbrúsi 20 cm á hæð og 45 cm að ummáli. Opið á brúsanum er dálítið beyglað svo að lokið kemst ekki alveg ofan í. Er með haldi.
Minjasafn 483
Gripur nr. 483. Sykurkar úr glæru gleri með útskornu munstri. Er með tvö eyru/handföng, eitt hvorum megin.
Minjasafn673
Ballferð í Búðardal 1941 - 1942 farin á vörubíl með tvöföldu húsi. Efst á húsinu stendur NORÐURBRAUT og á skiltinu bak við fólkið stendur : Afgreiðsla Bifreiðastöð Akureyrar. Fólkið á myndinni er, talið frá hægri: Guðrún Sigurðardóttir Brimnesi, óþekktur, Sigurlaug Stefánsdóttir (kona Ragnars Þorsteinssonar), Jörgen Berndsen, Elísabet Berndsen, Elísabet Frímannsdóttir, Hulda Pétursdóttir, Margrét Pétursdóttir, Sveinberg Jónsson bílstjóri, Sigríður Ásgeirdóttir, Sigfús Andrésson , Carla Berndsen, Fritz Berndsen, Bertel Björnsson, Finnur Frímannsson, Hrólfur Jónsson og Hallgrímur Jónsson frá Ljáskógum. Myndin tilheyrir Muna- og Minjasafninu á Skagaströnd en gefandi hennar var Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka, Skagaströnd
Minjasafn 422
Gripur nr 422. Lítill heklaður dúkur, hvítur á lit.
Minjasafn 8 no2
Gripur nr. 8. Tvennar nærbuxur úr hvítu lérefti, tvær stærðir. Þær eru hnésíðar með blúndu á skálmum. Þetta er sýnishorn af nærfatnaði kvenna frá 1905. Þá var ekki horft í tíma og vinnu við gerð þessarar hluta. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur Miðgili Langadal. gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 194
Gripur nr. 194. Vatnsglös 2 stk með stúlkumyndum. Hæð 12 cm. Stendur 1900 og 1930 - 1890 á þeim en glösin eru ekki frá þeim tíma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn749
Marta Guðmundsdóttir (d. 31.3.1957) frá Lækjarbakka með tvö óþekkt börn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka 1995. Ef þú þekkir börnin á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 614
Gripur nr. 614. Reiknivél, svört með grænum, rauðum, hvítum og bláum tökkum. Tengist rafmagni.
Minjasafn744
Pálmi Sigurðsson (d. 21.4.1992) Pálmalundi (Hólabraut 27) á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 69
Gripur nr. 69. Brúnn rammi með 12 myndum af bátum og fólki.
Minjasafn796
Rán SU 58. Stærð 56 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í Danmörku. Vél Deutz - Diesel 230 hestöfl. heimahöfn Fáskrúðsfjörður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 457
Gripur nr. 457. Hvít postulínsklukka, trekkt. Hægt er að opna glerið framan á henni til að geta trekkt hana upp með þar til gerðum lykli.
Minjasafn 521
Gripur nr. 521. Pennastokkur úr tré. Hægt er að opna hann á tveimur stöðum. Ofan á lokinu er mynd af öndum á vatni.
Minjasafn 151
Gripur nr. 151. Hitapoki, grænblár 38 cm langur og 19 cm breiður. Fyrir vatn. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 628 no2
gripur nr. 628. Remington ritvél, stór og þung. Er svört og dálítið ryðguð.
Minjasafn 417
gripur nr. 417. Ausa úr járni eða áli. Ca. 40 cm á lengd með krók á enda skaftsins.
Minjasafn 543
Gripur nr. 543. Fiskispaði úr áli.
Minjasafn 571
Gripur nr. 571. Útvarp. Grænt og hvítt með haldi, sem er fest í hliðum útvarpsins.
Minjasafn 70
Gripur nr. 70. Smellurammi með fimm gömlum kvittunum/reikningum.
Minjasafn 554
Gripur nr. 554. Gamall hitamælir á tréplatta.
Minjasafn769
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Hér er verið að keppa í reiptogi. Maðurinn næst okkur á kaðlinum er Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) á Flankastöðum næsti er óþekktur, en síðan kemur Guðmundur Jóhannesson frá Garði, þá óþekktur en sá fimmti frá okkur er Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Viðvík og Höfðatúni. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Minjasafn 310
Gripur nr. 310. Eldhúsáhöld. Eftirlíking af gömlum eldhúsáhöldum. Þau eru öll til að hengja upp og fylgir upphengi. Þetta eru gaffall, skeið, fiskispaði og lítil ausa. Þetta er allt úr járni og svart á lit. Merkt: <strong>Taiwan</strong> að aftan. Keypt í Kolaportinu í Reykjavík 30 nóvember 1994 af gefanda. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í nóvember 1994.
Minjasafn723
<p>Hjónin Hannes Jónsson frá Spákonufelli og Sigurborg Sigurðardóttir kona hans. Aftan á þessari mynd stendur: <em>Hannes Jónsson frá Spákonufelli f. að Eiðsstöðum í Blöndudal 13/7 1882 d. í Hafnarfirði 17/6 , 1960 kona hans. Sigurborg Sigurðardóttir f. 13/11 1892. d. í Kópavogi. ?. </em>Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.</p>
Minjasafn 363
Gripur nr. 363. Kakóbaukur úr áli með loki. Hliðarnar eru 2 x rauðar og 2 x bláar. Myndskreytt "Droste´s cacao".
Minjasafn 633 JPG
Gripur nr. 633. Ullarteppi, hvítt með brúnu, gráu og svörtu munstri.
Minjasafn 75
Gripur nr. 75. Smellurammi með þremur myndum. Af gömlu kirkjunni að Spákonufelli. Hafís á Skagaströnd og af fólki við verslunarhús á Skagaströnd.
Minjasafn 647
Gripur nr. 647. Lukt, "Original Petromax rapid" gerð úr járni. Olíulukt 31 cm á hæð. Vantar glerið.
Minjasafn803
Hamravík KE 75. Stærð 192 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1963 í Noregi. Vél Lister - Diesel 495 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 232
Gripur nr. 232. Öskubakki, hvítur með gylltri rönd á barmi og er skútumynd á botninum og áletrunin: Built in 1851. Þvermál 15,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1995.
Minjasafn 386
Gripur nr. 386. Mótaður steinplatti. Hringlaga og kúptur.
1
…
8
9
10
11
12
Leita í myndasafninu
Leita