Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason271
Þessi mynd var líklega tekin í ferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á hringferð um landið einhverntíma á árunum kringum 1975. Erfitt er að þekkja fólkið en fremst til hægri er Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Hægra megin við hann eru hjónin Jón Þorgeirsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003). Fólkið sem er að setjast vinstra megin við Jón Jónsson er óþekkt en vinstra megin við þau sitja hjónin Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Beint aftan við þau sitja svo hjónin Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) og Erla Valdimarsdóttir (d. 29.9.2008). Í röðinni aftan við þau er Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) lengst til hægri með konu sinni Elínborgu Árnadóttur (d. 7.4.1979), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) kona hans vinstra megin við þau og maðurinn sem veifar er Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og síðan Elísabet Árnadóttir konan hans í grænum buxum. Birna Blöndal er síðan aftan við þau, einnig í grænum buxum, og maður hennar Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) er vinstra megin við hana. Aðrir á myndinni eru óþekktir eða ekki hægt að þekkja þá með vissu.
Guðmundur Guðnason405
Kennarar við Höfðaskóla í kringum 1960. Standandi frá vinstri eru: Ingólfur Ármannsson og Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) en sitjandi eru Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri.
Reykjavík 1874
Þessi mynd sýnir Reykjavík 1874 eins og hún leit út í augum Melton Priors sem gerði myndina. Þekkja má Menntaskóla Reykjavíkur, dómkirkjuna og stjórnarráðið. Melton Prior (1845 - 1910) var þekktur teiknari sem vann mikið fyrir Illustrated London News þar sem myndir hans birtust.
Guðmundur Guðnason381
Hafsteinn Pálsson á fermingardaginn sinn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni sem fermdi hann í Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason574
Þessi fjárhús og hlaða stóðu þar sem sumarhús Snorrabergs er í dag. Takið eftir kartöflugörðunum fyrir aftan húsin.
Guðmundur Guðnason904
Hjallholt. Sennilega var myndin tekin 1965.
Guðmundur Guðnason438
Birna Guðjónsdóttir, sennilega á fermingardaginn sinn því myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri.
Guðmundur Guðnason587
Kindin í forgrunni er þrílembd og var sjálfsagt tilefni myndatökunnar. Í baksýn má aftur á móti sjá útbæinn, sennilega seint á sjöunda áratugnum. Enn standa tankarnir tveir undir Höfðanum til vinstri á myndinni. Braggarnir standa, Garður og gamla húsið á Flankastöðum. Kárastaðir, Höfðakot og Höfðaberg eru líka öll horfin ásamt Gunnarshólma (Grafarbakka). Aftur á móti hafa nú verið byggð hús við Mánabraut og fleiri hús við Bankastræti.
Guðmundur Guðnason589
Víðimýrarkirkja í Skagafirði.
Guðmundur Guðnason470
Myndin var tekin í Höfðaskóla af fólki sem er að bíða eftir kvikmyndasýningu. Frá vinstri á myndinni: Pétur Jónsson Stóra Bergi (d. 18.2.1966), Ingvar Jónsson Norður Skála (d. 29.7.1978), Pétur Þ. Ingjaldsson Höfða (d. 1.6.1996), Björgvin Jónsson Höfðabrekku (d. 4.5.1992), Þórey Jónsdóttir Norður Skála (d. 29.12.1966), Hrólfur Jónsson Bjarmalandi (d. 1.8.1989), Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Sigríður Guðnadóttir Breiðabliki (d. 4.3. 1964), Kristinn Pálsson Breiðabliki (d. 21.10.2008) og Margrét Konráðsdóttir versluninni Borg (d. 17.9.1974).
Guðmundur Guðnason573
Þetta eru fjárhús sem Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) í Reykholti átti og standa á Kerlingarholti . Á þessari mynd er hlaðan hálfbyggð en var síðan kláruð talsvert löngu síðar.
Guðmundur Guðnason618
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fermir fermingarbarn í Hólaneskirkju eldri fyrir fullri kirkju af fólki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason591
Félagsheimilið Fellsborg á lokastigum byggingarferilsins.
Ólafur Bernódusson087
Spilað á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Elísabet Hallbjörnsdóttir horfir í myndvélina en Jóney Gylfadóttir skoðar spilin sín. Stúlkan í ljósu peysunni við borðshornið er Jóhanna Sveinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason614
Hrútarnir í forgrunninum eru fallegir en þeir eru á túninu við Stóra-Berg, líklega snemma á sjöunda áratugnum. Hrútarnir hafa sennilega verið úr fjárstofni systkinanna Vilborgar Jónsdóttur (d. 9.4.1985) , Péturs Jónssonar (d. 18.2.1966) og Páls Jónssonar (d. 19.7.1979). Viborg og Pétur bjuggu saman í Stóra - Bergi en Páll á Breiðabliki. Þau systkin áttu heinma á Hofi í Skagahreppi og þar bjuggu Vilborg og Pétur fram til ársins 1944. Páll var þá fluttur til Skagastrandar (1939) sem kennari og skólastjóri við Höfðaskóla. Húsin á myndinni eru: lengst til vinstri er Litla Berg (Fellsbraut 2) þá kemur Hjarðarholt (Fellsbraut 4) og lengst til hægri er Reykholt (Fellsbraut 6) en framan við húsið eru fjárhús og hlaða Hafsteins Sigurbjarnasonar í Reykholti.
Guðmundur Guðnason849
Brautarholt. Þar áttu heimili hjónin Þuríður Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) og Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) ásamt móður Ólafs, Elísabetu Karólínu Ferdínantsdóttur (d. 11.12.1958).
Guðmundur Guðnason866
Akur (Hólabraut 13) til hægri og Asparlaundur (Bogabraut 24) til vinstri. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Bydg[1]
<P>Hér sjást húsin í útbænum. Ljósmyndarinn er óþekktur en myndin var sennilega tekin á árunum fyrir 1960. Eftirtektarvert er að á myndinni er ekki bíll við hvert hús eins og er í dag. Bankastræti sést lengst til vinstri og húsin nær Höfðanum eru, talið frá vinstri: Fjárhús sem tilheyrðu Flankastöðum, Höfðabrekka, Bjarnarhöfn og fjær (með grænu þaki) Höfðakot með sambyggðri hlöðu og yst er svo Höfðaberg. Hinum megin við Bankasrætið þ.e. nær okkur á myndinni eru frá vinstri: Höfðaborg, Flankastaðir, Kárastaðir og Stórholt. Fjær okkur á myndinni, við núverandi Skagaveg eru, talið frá <STRONG>hægri: </STRONG>Héðinshöfði, en yfir enda þess sér í Gunnarshólma (Grafarbakka), Þórsmörk er norðan við Héðinshöfða en yfir Þórsmörk sér í Bjarmaland. Fjárhús og hjallur tilheyrandi Þórsmörk ber svo í Þórshamar sem er með grænu þaki en Skálholt kemur síðast með ryðrauðu þaki. Langt í burtu sést svo Ásholt hjá Ásholtshólnum. </P><br><P> </P>
Guðmundur Guðnason590
Túnbraut 7 í byggingu. Húsið byggðu og bjuggu í Jón Pálsson og kona hans Björk Axelsdóttir með sínum börnum ásamt föður Jóns og systur, Páli Jónssyni (d. 19.7.1979) og Eddu Pálsdóttur. Jón tók við sem skólastjóri Höfðaskóla af föður sínum Páli þegar hann lét af störfum.
Guðmundur Guðnason716
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti.
Ólafur Bernódusson098
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Myndin sýnir leik milli Blönduósinga og Skastrendinga og áhorfendur sem raða sér á hliðarlínuna.
Ólafur Bernódusson084
Á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Höskuldur Bragi Bragason, Jóhanna Sveinsdóttir, Erlingur Ottósson, Atli Þórsson, Björn Hallbjörnsson (með derhúfu), Jón Arnarson, óþekktur, Bylgja Bára Bragadóttir, tveir óþekktir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Arnar Arnarsson, óþekktur, Gunnar Ásgeirsson og Katrín Sigurjónsdóttir.
Ólafur Bernódusson071
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Á myndinni kynnir Valdimar Númi Hjaltason skemmtiatriði bekkjarins sem hann var í.
Guðmundur Guðnason772
Sólheimar kringum 1970. Þá bjuggu þar Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) og Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979) og þar ólust upp börn þeirra Jón Ingi, Árni Björn og Elínborg.
Guðmundur Guðnason672
Óþekktur bær einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar. Myndin var tekin 15. júní 1968. Ef þú veist hvaða staður þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson073
Diskóprinsessa og diskóprins á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Anna Þóra Birgisdóttir og Stefán Ægir Lárusson.
Ólafur Bernódusson100
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Hér sækja Skagstrendingar að marki Blönduósinga. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Heiðar Jónsson, Börkur Árnason (stendur í markinu), Björn Sigurðsson með boltann og Baldur Magnússon er sá með gleraugun. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson170
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd sefur Helga Kristmundsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir horfir á ljósmyndarann og Halldór Gunnar Ólafsson dormar í baksýn.
Guðmundur Guðnason900
Myndin var tekin inni í Hólaneskirkju eldri. Fyrir dyrum er útför óþekkts einstaklings.
Guðmundur Guðnason859
Snjór í útbænum. Húsin eru frá vinstri: Þórshamar, Skálholt, Höfðaberg, Steinholt, Valhöll, Sólheimar (eldri) og fjárhúshlaða. Höfðaberg, Valhöll, Sólheimar og fjárhúshlaðan hafa nú öll verið rifin.
Guðmundur Guðnason348
Bogabraut 20. Húsið byggðu Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir og bjuggu þar með sonum sínum tveimur: Gunnari og Ólafi.
Guðmundur Guðnason358
Sóllundur - Hólabraut 8. Í þessu húsi bjuggu Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1997) og Sigríður Björnsdóttir (d. 17.6.1979) og bjuggu í því með dóttur sinni Sylvíu. Húsið var rifið og nýtt byggt á lóðinni af Ástmari Kára Ástmarssyni og Jóhönnu Harðardóttur.
Guðmundur Guðnason469
Hér sitja við hlaðið kaffiborð í Höfðaskóla af óþekktu tilefni, talið frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi, Guðmundur Guðnason ( d. 21.11.1988) Ægissíðu, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Hrólfur Jónsson ( d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Þórey Jónsdóttir ( 29.12.1966) Norður Skála, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður Skála og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) Höfða.
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Kristín Björnsdóttir014
Jaðar - Neðri Jaðar. Byggður af hjónunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) og Elísabetu Frímannsdóttur (d.1.9.1990) á stríðsárunum. Börnin á myndinni eru Engilráð Guðmundsdóttir ca 8 ára og Sigurður Björnsson ca 2 ára.
Guðmundur Guðnason339
Fermingarbörn vorið 1980 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju eldri. Fremsta röð frá vinstri: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, séra Pétur, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Guðmundur Guðnason722
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Gunnlaugur Sigmarsson, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti og Alda Jónsdóttir Hjallholti. Myndin var tekin á sýningu.
Skagaströnd úr lofti
Þessa mynd tók Jón Karl Snorrrason úr lofti rétt fyrir 1990. Myndin er óskýr því hún er blaðaúrklippa. Á henni stendur gamla Hólaneskirkja ennþá og miklar breytingar hafa orðið á hafnarsvæðinu síðan myndin var tekin. Þá má sjá olíutankana uppi á Höfðanum og lýsistankana austan við hann.
Guðmundur Guðnason774
Höfðakot kringum 1970. Þá bjuggu þar Hjónin Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987) ásamt bróður Halldóru, Guðmundi Péturssyni (d. 30.6.1987) . Systkinin Steindór Haraldsson og Fjóla Sigurðardóttir, barnabörn Steingríms og Halldóru, ólust upp hjá þeim.
Guðmundur Guðnason357
Akurgerði - Hólabraut 9. Þorbjörn Jónsson (d. 2.9.1986) og Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) bjuggu þarna og eignuðust fjölda barna. Seinna bjuggu í Akurgerði Hjalti Eðvaldsson (d. 31.3.1985) og konan hans Hólmfríður Rögnvaldsson (d. 13.10.2000). Húsið hefur verið rifið og nýtt hús byggt á lóðinni.
Kristín Björnsdóttir001
Efri Jaðar er gamla húsið til hægri en Neðri Jaðar er til vinstri. Hjónin Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Elísabet Frímannsdóttir ( d. 1.9.1990) byggðu Neðri Jaðar, sem enn stendur. Búið er að rífa Efri Jaðar. Barnið fremst á myndinni er Sigurður Björnsson sem átti heima á Jaðri (Neðra Jaðri). Hitt barnið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason718
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason720
Mynd úr leikritinu Vekjaraklukkan sem sett var á svið í gömlu Tunnunni um páska 1964 á vegum Höfðaskóla undir stjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundssson úr Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir úr Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Jóhanna Ásmundsdóttir Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var tekin upp úr 1960 en ekki er vitað hvaða leikrit er um að ræða. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason818
Laufás. Fremst á myndinni er brunnur.
Guðmundur Guðnason042
Þessi mynd var tekin við aðaldyrnar að Reykholtsskóla í Borgarfirði. Ekki er vitað hvenær, hvaða fólk er á henni né hvert tilefnið var. Ef þú veist svörin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason388
<P>Næst okkur á myndinni til vinstri sér ofan á Valhöll með viðbyggðu fjárhúsi og hlöðu. Í þeirri húslengju koma svo næst: Steinholt, Skálholt, Þórshamar, Þórsmörk (sést ekki en hlaðan og fjárhúsin, sem fylgdu, sjást), Héðinshöfði og Garður. Í forgrunni myndarinnar til hægri er Höfðaberg og síðan koma Höfðakot með fjárhúsum og hlöðu, Stórholt, Kárastaðir og hálfir Flankastaðir. Mörg af húsunum eru nú horfin.</P>
Guðmundur Guðnason006
Klapparstígur 7, Akureyri?. Á tröppunum eru bræðurnir Húnn og Hólmsteinn Snædal synir Róbergs Guðnasonar Snædal.
Guðmundur Guðnason898
Skagaströnd í kringum 1960. Myndin var tekin norðan frá.
Guðmundur Guðnason884
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi árið 1963. Verksmiðjan er nú horfin og komin íbúðabyggð í staðin á svæðinu.
Ólafur Bernódusson104
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd tekur Hugrún Sigurðardóttir víti. Aðrar stúlkur á vellinum eru frá vinstri: Kristín Jóna Sigurðardóttir, Hugrún Pálsdóttir og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson095
Annar bekkur Höfðaskóla veturinn 1982-83 að vinna í stofunni sinni. Hér var unnið í stöðvavinnu. Nær okkur sitja Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri við lestrarborðið. Stúlkan sem er með þeim við borðið er óþekkt. Við borðið fjær eru Ása Ósk Ásgeirsdóttir og Atli Þórsson upp við vegginn en aðrir eru óþekktir. Þau eru að vinna við íslensku-verkefna borðið.
Guðmundur Guðnason888
Allmiklar breytingar hafa orðið á Skólavörðuholtinu síðan þessi mynd var tekin árið 1963. Hún sýnir styttuna af Leifi Eiríkssyni - Leifi heppna en í baksýn er Hallgrímskirkja að rísa.
Guðmundur Guðnason619
Ægissíða var heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) sem tók þessa mynd. Þar bjó hann ásamt foreldrum sínum. Húsið er nú horfið en það stóð rétt sunnan við Réttarholt, neðan við götuna.
Guðmundur Guðnason704
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, tveir óþekktir leikarar, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, óþekktur, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti og Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka. Þeir sem krjúpa fyrir framan eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á óþekktan á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason576
Þessi Jarðýta þótti valda byltingu í jarðvinnslu þegar hún kom til Skagastrandar. Viggó Brynjólfsson átti ýtuna en löngu seinna eignaðist Gunnar Albertsson hana og síðan endaði hún lífdaga sína hjá Jakob Guðmundssyni á Árbakka. Í baksýn á myndinni eru fjárhús og hlaða undir Hólabergjunum til vinstri en yfir tönn ýtunanar sér í sænska húsið og til hægri er Röðulfell og einhver útihús.
Guðmundur Guðnason853
Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) (Bergur sterki) úr Rjúpnafelli, vinnur við girðingu í kringum Hólaneskirkju (eldri). Húsið í baksýn var Stóra Berg.
Guðmundur Guðnason864
Bogabraut 10 - Pósthúsið (nú Tónlistarskólinn). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65. Þá var pósthús og símstöð á neðri hæðinni en íbúð á efri hæðinni.
Ólafur Bernódusson068
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal. Frá vinstri: Kristín Karlsdóttir, Svenný Hallbjörnsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason700
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Óþekkt, Pálfríður Benjamínsdóttir úr Skálholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason806
Hofskirkja í Skagabyggð.
1
…
9
10
11
…
65
Leita í myndasafninu
Leita