Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson519
<p> Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum, sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum, var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd bíða krakkarnir eftir að röðin komi að þeim. Næst okkur á myndinni er Gunnar Guðmundsson þá Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og Árný Guðrún Ólafsdóttir er stúlkan með ljósa hrokkna hárið. Stúlkan í gráu og svörtu peysunni er Hildur Inga Rúnarsdóttir. Aðrir eru óþekktir.</p>
Ólafur Bernódusson514
Myndin var tekin af skólakrökkum og kennurum úr Höfðaskóla um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54. Báturinn var á leið með krakkana út að borgarísjaka sem strandaði nokkuð fyrir innan Skagaströnd á 40 metra dýpi. Myndin var tekin í október 1993.
Adolf H Berndsen - safn038
Líklega er þessi mynd af skólahóp frá Höfðaskóla. Frá vinstri í aftari röð: Guðný Kristjánsdóttir frá Háagerði, Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Laufey Sigríður Ólafsdóttir Sævarlandi, Ólína Gyða Hafsteinsdóttir Reykholti og Kristinn Pálsson (d.21.10.2008) kennari. Í fremri röð eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson Þórsmörk, Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Valgarður Bertelsson, Ingi Sigurðsson Brekku, Jónas Skaftason Dagsbrún, og Sigurður Björnsson Jaðri.
Ólafur Bernódusson551
Fjöltefli í Höfðaskóla líklega veturinn 1990. Páll Leó Jónsson skólastjóri og skákáhugamaður stendur til hægri og skoðar stöðuna. Ekki er vitað hver skákmaðurinn var sem tefldi við nemendurna en frá vinstri eru á myndinni: Linda Rós Rúnarsdóttir, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson, Jón Heiðar Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason180
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Á þessari mynd er Þingvallabærinn og kirkjan en hátíðartjöldin eru í baksýn. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Ólafur Bernódusson478
Særún Níelsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Ólafur Bernódusson479
<p>Þetta er annar hvor tvíburanna Vilborg Jóhannsdóttir eða Áslaug Jóhannsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla. Þær systur eru eineggja tvíburar og því afar líkar og erfitt að þekkja þær sundur á myndum. </p>
Skagaströnd - safn020
Kálfshamarsvík. Þar var áður töluverð byggð og skemmtilegt er að ganga um svæðið því þar eru öll bæjarstæði vel merkt og saga þeirra sögð í stuttu máli á aðgengilegum skiltum. Þess utan er þarna sérstaklega fallegt stuðlaberg sem gaman er að skoða.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn017
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi. Mennirnir eru óþekktir en líklega er maðurinn með hattinn Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólaness hf.
Óþekktur ljósmyndari349
Bærinn að Spákonufelli. Hann stóð þar sem nú er kirkjugarður Skagstrendinga
Skagaströnd - safn002
Húsið var byggt á níunda áratugnum. Þegar það var tekið í notkun voru m.a. skrifstofur Höfðahrepps og Búnaðarbankaútibú á neðstu hæð. Hótel Dagsbrún var á annari hæð en skrifstofur Skagstrendings hf og Hólaness hf á efstu hæðinni.
Óþekktur ljósmyndari314
Verslunarhúsin á Hólanesi voru reist 1885 en brunnu til kaldra kola sjö árum síðar 1892.<font size="1"> (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 83) </font> Þar brunnu inni m.a. gjafakorn sem átti að úthluta fátækum þannig að sumum varð meiri eftirsjá að korninu en húsunum sjálfum.
Guðmundur Guðnason197
Bólstaðarhlíð - myndin sennilega tekin á sjöunda áratugnum.
Þórður Jónsson027
3. bekkur miðskóla Höfðaskóla 1962. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkur bekkur var starfræktur á Skagaströnd og þá fyrir nemendur fædda 1945 og 1946. Útbúin var sérstök kennslustofa í suðurenda á ganginum á efri hæðinni því þetta var áður en byggt var við skólann. Þessi stofa var svo notuð í mörg ár eða allt til þess að byggt var við skólann upp úr 1980. Á myndinni eru frá vinstri í fremri röð: Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum og Þórunn Bernódusdóttir Stórholti. Aftari röð frá vinstri: Hallbjörn Björnsson Jaðri, Lárus Ægir Guðmundsson, Ómar Þorbjörnsson Akurgerði og Kristinn Lúðvíksson Steinholti.
Óþekktur ljósmyndari234
Mikil umferð er um Skagastrandarhöfn allt árið en einkum þó á sumrin meðan á strandveiðunum stendur. Þetta er ekkert nýtt eins og þessi mynd frá 1936 - 1938 sýnir en þá var síld um allan Húnaflóa á sumrin og fjöldi báta, sem stundaði síldveiðar. Þá lá Skagastrandarhöfn vel við því stutt var þaðan á miðin. Í framhaldinu var svo tekin ákvörðun um að byggja síldarverksmiðju á Skagaströnd því mönnum datt ekki í hug að síldin mundi allt í einu breyta hegðunarmunstri sínu og hætta að ganga inn í Húnaflóann eins og hún hafði gert um áratugi. Á myndinni eru síldarskip í Skagastrandarhöfn kringum 1936. Húsið til hægri með skúrþakinu hét Kárastaðir, Dvergasteinn var húsið næst okkur fyrir miðri mynd með áfastri dökkri hlöðu. Þórshamar er nýlega húsið með kvistinum og neðar með götunni, sömu megin, er Garður. Til vinstri á myndinni eru Brúarland og Móar ásamt fleiri húsum sem einhver voru skepnuhús. Stóra þriggja hæða húsið nær sjónum er Gamla kaupfélagshúsið og á reitnum hjá því hægra megin er Kaupfélagshúsið og enn lengra til hægri grillir í frysthúsið. Húsið næst okkur á myndinni, ljóst með dökku þaki er óþekkt (stendur ca þar sem Skálholt stendur í dag). Ef þú kannt skil á hvað hús þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á: myndasafn@skagastrond .is.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn020
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi. Myndin var tekin sunnan frá. Ekki er vitað hvenær hún var tekin en alllangt er síðan uppfylling kom upp að húsinu, þannig að líklega er myndin frá sjötta áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari214
<p>Gamli Sólheimabærinn. Bærinn stóð við Skagaveg skáhalt á móti núverandi Sólheimum. Á myndinni er Karla Berndsen að taka upp kartöflur.</p>
Skagaströnd - safn050
Sigurður Guðmundsson glímir við steypusíló í viðbyggingu við Höfðaskóla 1978.
Óþekktur ljósmyndari316
Síldaverksmiðjan í byggingu árin 1945 - 1947. Myndin hefur líklega verið tekin af efstu hæð vinnupalls sem var utan á stóra verksmiðjuskorsteininum. Þrærnar sem eru lengst frá á myndinni hafa verið brotnar niður og fjarlægðar og sama má segja um rörið sem á myndinni liggur frá verksmiðjunni að mjölskemmunni sem er utan myndar. Eftir þessu röri var mjölinu blásið heim í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt þar til það var selt og sent í burtu. Eins og sjá má á myndinni var hafnargarðurinn - Útgarður- ekki kominn nema að litlu leiti.
Óþekktur ljósmyndari327
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann stóð niður við sjó við Landsenda (nyrsta enda Höfðans) en brann eftir að flutt var úr honum einhverntíma á sjöunda áratugnum. Til hægri við bæinn grillir í Landsendarétt sem þarna var.
Séra Pétur og Dómhildur - safn098
Á þessari mynd, sem tekin var fyrir utan Hólaneskirkju eldri, eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Regína Berndsen (fædd Hansen) (d. ?) Stóra Bergi. Regína var gift Fritz Berndsen en á Stóra Bergi var símstöð í umsjón þeirra hjóna.
Ólafur Bernódusson482
Ólafur Bernódusson kennari 10. bekkjar veturinn 1990 - 91 í Höfðaskóla
Skagaströnd - safn010
Hólanesfrystihúsið við Einbúastíg. Húsið var byggt í mörgum áföngum og viðbyggingum. Þar var eitt sinn sláturhús á neðstu hæðinni en seinna var fiskvinnsla í öllu húsinu á vegum Hólaness hf. Með breytingum í útgerðarháttum og tilkomu kvótakerfis lagðist fiskvinnsla af í húsinu. Þar eru nú m.a. rannsóknastofur líftæknifyrirtækisins Biopol.
Séra Pétur og Dómhildur - safn116
Séra Pétur Þ. Inggjaldsson (d. 1.6.1996) spjallar við Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) á einhverri sýningu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn003
<p>Eldri hluti Höfðaskóla var tekinn í notkun 1958 en nýrri hlutinn um 1980. Eldri hlutinn er fjær okkur á myndinni. </p>
Óþekktur ljósmyndari351
Spákonufellsbærinn 1949. Bærinn stóð þar sem nú er kirkjugarður Skagstrendinga.
Óþekktur ljósmyndari346
Þessi mynd var tekin fyrir 1906 og er af gamla íbúðarhúsi danska kaupmannsins sem byggt var 1774 en rifið 1908. Svarta húsið var fjós og hesthús kaupmannsins og líklega pakkhús að hluta til. Hvíta húsið hægra megin við bátinn var Búðin og áfast við hana er pakkhús/kornhlaða sem líklega var aðal lagergeymsla Búðarinnar. Búðin stóð fram á sjöunda áratuginn og var undir það síðast notuð sem sementsgeymsla fyrir KAST = Kaupfélag Skagstrendinga. Kornhlaðan var sennilega rifin um eða rétt fyrir miðja 20 öldina. Hægra megin við þessar byggingar, á kafi í snjó er Sæmundsenbúðin. Báturinn á myndinni hét Traffik og var eign Hoephnersverslunar.
Óþekktur ljósmyndari281
Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) við nokkur málverka sinna á sýningu sem hann hélt í Höfðaskóla á sjómannadegi einhverntíma á níunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson517
Í maí 1994 voru að venju haldinn útivistardagur í Höfðaskóla. Eitt af verkefnunum sem í boði voru fyrir nemendurna í unglingadeildunum var að prófa bjargsig út á Höfða undir leiðsögn og stjórn Carl Lehman Jakobsen íþróttakennara. Á þessari mynd er einn af nemendunum að stíga fyrsta skrefið út í óvissuna. Calle situr á brúninni og fylgist með en fleiri nemendur bíða eftir að röðin komi að þeim.
Séra Pétur og Dómhildur - safn134
Séra Oddur Einarsson með skírnarbarn í Hólaneskirkju (eldri).
Óþekktur ljósmyndari197
Eftir messu í Spákonufellskirkju. Þessi kirkja stóð á svipuðum stað og kirkjugarðurinn er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en kirkjan á Hólanesi, sem tók við af þeirri á myndinni, var vígð 1928 þannig að myndin var sennilega tekinn fyrir þann tíma. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson484
Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Skagaströnd - safn008
Hafnarhúsið var upphaflega byggt 1935 á lóðinni þar sem síldarverksmiðjan var seinna byggð. Hafnarhúsið var því flutt á núverndi stað einhvertíma á árunum 1943 - 1945. Húsið er timburhús sem seinna var klætt með lituðu bárustáli.
Óþekktur ljósmyndari211
<p>Bærinn Hnappsstaðir. Í baksýn er Þorfinnshús (Bogabraut 9) en það var byggt 1948 þannig að myndin var tekin eftir þann tíma, sennilega kringum 1950.</p>
Ólafur Bernódusson540
Veturinn 1995 héldu krakkarnir í 8. - 10. bekk Höfðaskóla körfuboltamaraþon. Þá voru íþróttir kenndar í Fellsborg því ekki var búið að byggja íþróttahúsið og því fór maraþonið fram þar. Með maraþoninu voru krakkarnir að safna fé til kaupa á ýmsum íþróttaáhöldum. Á þessari mynd grípa í spil á milli leikja þau Guðjón Hall Sigurbjörnsson til vinstri og Guðrún Elsa Helgadóttir til hægri.
Skagaströnd - safn012
Þessi mynd er af húsakosti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli. Vinstra megin er golfskálinn en geymsluhús er til hægri.
Skagaströnd - safn047
Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum, byggingafulltrúi Höfðahrepps, skoðar frágang á uppslætti við smíði viðbyggingar við Höfðaskóla 1978.
Ólafur Bernódusson502
Eyþór Kári Egilsson hjólar hér í gegnum braut sem lögreglan setti upp á skólavellinum á hjóladegi í Höfðaskóla í maí 1994. Brautin gat verið snúin fyrir 7 - 8 ára gutta en enginn fékk að fara hana fyrr en að undangenginni hjólaskoðun lögreglunnar.
Óþekktur ljósmyndari267
Kennarar og skólastjóri í Höfðaskóla veturinn 1960 - 1961. Aftari röð frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) og Sveinn Ingólfsson. Fremri röð frá vinstri: María Magnúsdóttir og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Ólafur Bernódusson 532
Togarinn Arnar Hu 1 tók þátt í togararallyi í maí 1993. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar um borð tóku með sér ýmis konar lífverur í land en þær höfðu komið í trollið hjá Arnari. Börnum úr Höfðaskóla, Blönduósskóla og Húnavöllum var boðið að koma og skoða lífverurnar. Eins og sjá má á myndinni þá var áhuginn gríðarlegur hjá krökkunum.
Kvenfélagið Eining - safn117
Þessi mynd var tekin inni í Hólaneskirkju eldri sem vígð var 17. júní 1928. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin en hún sýnir altarið með altaristöflunni sem var gjöf til Spákonufellskirkju 1838 frá Peter Duus en fór svo í Hólaneskirkju þegar hún var byggð. Stóri ofninn til vinstri var fjarlægður úr kirkjunni síðar þegar tekin var upp rafmagnskynding í henni. Hólaneskirkja eldri var afhelguð og rifin 1991 og þá var tekin í notkun Hólaneskirkja hin nýrri.
Guðmundur Guðnason108
Þessi mynd var tekin neðan við Einbúann á þeim tíma sem sjór féll upp að honum. Það þýðir að myndin hefur sennilega verið tekin ekki seinna en 1934 því það ár var hafist handa við hafnargerð á þessu svæði. Þá var stutt bryggja, byggð um 1922, rétt austan við Hólsnefið, sem er systi oddi Höfðans. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Litli/efri Lækur, Jaðar, óþekkt, Karlsskáli, Lækur, Lundur, Lækjarbakki og Karlsminni. Bátarnir eru óþekktir en Spákonufellið er í baksýn.
Skagaströnd - safn011
Rafmagnsverkstæðið Neistinn við Strandgötu 32.
Óþekktur ljósmyndari331
Brautarholt 1966. Brautarholt stóð utan í hólnum á milli Fellsbrautar 9 og Fellsbrautar 13. Húsið til hægri er Röðulfell (Fellsbraut 19) en til vinstri sér í þakið á Vinaminni (Hólabraut 16) og í hornið á Hólabraut 14.
Hjördís Sigurðardóttir - safn039
<p>Starfsfólk Hólaneskirkju í desember 2000. Á myndinni eru tveir prestar því séra Magnús Magnússon, lengst til vinstri í fremstu röð, var að taka við af séra Guðmundi Karli Brynjarssyni, sem er lengst til hægri í sömu röð. Annars eru á myndinni konur þeirra beggja, organistinn, meðhjálparinn og kirkjukórinn. Í öftustu röð frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Halldór G. Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Einar Haukur Arason, Gylfi Sigurðsson, og Valdimar ?. Í næst öftustu röð eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Steindór R. Haraldsson meðhjálpari. Í fremstu röð kórfélaga eru frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Dagný Hannesdóttir, Kristín Blöndal, Kristjana Jónsdóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Sitjandi frá vinstri: séra Magnús, Berglind Guðmundsdóttir kona hans, Michael Jones organisti og stjórnandi kirkjukórsins, Kamilla Gísladóttir kona séra Guðmundar sem er lengst til hægri. Myndin var tekin í Hólaneskirkju. </p>
Óþekktur ljósmyndari263
Litla Berg til vinstri og Stóra Berg til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á tveimur fyrstu áratugum 20. aldar. Skóli var haldinn á Stóra Bergi 1909 og nokkur næstu ár. <font size="1">(Byggðin undir Borginni bls 147)</font>
Ólafur Bernódusson553
Eftir að nýja kirkjan á Skagaströnd var tekin í notkun var sú gamla afhelguð og síðan rifin en þá var þessi mynd tekin. Sú gamla, sem stóð rétt austan við hina nýju, var vígð 17. júní 1928 en var síðan rifin 19. febrúar 1992.
Guðmundur Guðnason114
Frystihús KAST (Kaupfélags Skagstrendinga), sem seinna komst í eigu Hólaness hf og hefur verið mikið breytt og bætt. Til vinstri sést að bryggjan, sem reist var framan við frystihúsið 1922, er enn uppistandandi. Myndin hefur sennilega verið tekin í kringum 1940.
Skagaströnd - safn025
Myndin var tekin þegar Ólafsvellir/Náttbrún var rifin. Húsið stóð nokkurn vegin á horninu þar sem nú mætast Oddagata og Túnbraut. Vörubíllinn á myndinni var H 34 í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007), sem situr undir stýri á myndinni. Myndin var tekin einhverntíma rétt fyrir 1990 en Stjórnsýsluhúsið, sem er í baksýn, var tekið í notkun 1987.
Skagaströnd - safn096
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2004) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir Birnu Bjarnadóttur lykilinn að íbúð sinni að Mánabraut 3 í febrúar 1983. Maður Birnu, Níels Grímsson, var fjarverandi.
Þórður Jónsson029
<p>Birgir Júlíusson í Höfðabergi til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri standa hér á tröppunum við Gamla skólann - Bjarmanes. Þegar myndin var tekin var inngangurinn í húsið að austanverðu en nú hefur húsið verið endurbyggt í sinni upprunalegu mynd og því er þessi inngangur horfinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma á árunum fyrir 1958 því þá var skólastarfsemin færð í nýja byggingu sem enn er í notkun. </p>
Óþekktur ljósmyndari246
Bankastræti í júní 1986. Síðan þessi mynd var tekin hafa fjögur af húsunum horfið þó byggt hafi verið nýtt í stað eins þeirra. Í húsaröðinni til vinstri er Höfðaberg, sem er lengst frá okkur, horfið. Höfðakot sem stendur við enda götunnar er horfið og í hægri röðinni eru horfin húsin á Flankastöðum og Kárastöðum en þau eru hús númer tvö og þrjú frá okkur talið. Nýtt hús hefur svo risið að Flankastöðum.
Ólafur Bernódusson486
Hafdís Ásgeirsdóttir veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn018
Hólaneshúsið á Hólanesi. Í baksýn sér í frystihús Hólaness hf. Bíllinn er Willis Jeep H 17.
Séra Pétur og Dómhildur - safn105
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin fyrir utan Hólaneskirkju - eldri af kirkjukórnum. Aftan á myndinni stendur: <em> Kirkjukór Hólaneskirkju. Guðmundur Guðnason Ægissíðu, Stefán Kristinsson Herðubreið, Hjördís Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson Kaupfél. húsi, Jón Kristinsson síðar rafveitustjóri v/ rafstöðina í Laxá á Ásum. Ingibjörg Bertelsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Páll Jónsson organisti og skólastjóri, sr. Pétur Þ. Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Ingibjörg Sæmundsdóttir Hólanesi, Sigurlaug Björnsdóttir Iðavöllum.</em>
Þórður Jónsson043
<p>Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla af umsjónarbekk Elínborgar Jónsdóttur (d. 7.1.2007) líklega 1958 eða 1959. Nemendurnir á myndinni eru fædd 1951 og voru fyrsti hópurinn sem hóf nám sitt í nýbyggðum Höfðaskóla. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Ísleifur Þorbjörnsson (d.28.8.2021). Miðröð frá vinstri: Sævar Hafsteinsson, Ólafur Bernódusson, Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Rúnar Jósefsson og Óskar Jóhannesson (fæddur 1950). Aftasta röð frá vinstri: Bergur Jón Þórðarson, Björn Bragi Sigmundson, Reynir Sigurðsson, Fritz Bjarnason, Karl Lúðvíksson og Elínborg kennari.
Óþekktur ljósmyndari268
Myndin var tekin um 1960 af nokkrum strákum í Höfðaskóla. Strákarnir eru frá vinstri: í efri röð: Gísli Kristjánsson, Frits Bjarnason, Sævar Hallgrímsson, Pétur Jóhannsson, Árni B. Birgisson, Ingþór Þorfinnsson og Ísleifur Þorbjörnsson. Fremri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Magnús B. Jónsson, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986), Ómar Þorbjörnsson, Gylfi Jóhannsson og Gunnar Jónsson.<font size="1"> (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 255)</font>
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Á þessari mynd er verið að salta síld í Skagastrandarhöfn. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1943, sennilega árið 1935 eða 1936. Húsin sem sjást í baksýn eru frá vinstri: Viðvík, þar sem lengi var rekin veitingasala og gistihús, Vík, Sæból, Sæborg og Bjarg. </P>
Óþekktur ljósmyndari302
Í bókinni Byggðin undir Borginni á bls. 63 segir svo um þessa mynd: <em>" Verslunarstaðurinn árið 1910; fremst er verslunarstjórahúsið, þá assistentastofan, pakkhúsið og búðin. Fjær eru Gamli-Lækur og Jaðar. Á grindurnar í hægra horninu var breiddur fiskur, en Höphnersverslun hafði þá mesta fiskverkun. Spákonufellið gnæfir yfir og til hægri er Einbúinn".</em>
Barnaból - safn028
Það var glatt á hjalla hjá systrunum á þessari mynd við piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 16. desember 1984. frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Bak við þær systur sér í Málfríði Jóhannsdóttur.
1
…
13
14
15
…
65
Leita í myndasafninu
Leita