Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn298
Kristján Pétur Guðjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn268
Braga Bragadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd. Móðir hennar var Alda ? sem bjó á Flankastöðum ásamt henni og systkinum hennar, Höskuldi Braga Bragasyni og Bylgju Báru Bragadóttur.
Jón Jónsson296
Þessir ungu drengir hafa raðað sér upp á ráslínu til að taka þátt í víðavangshlaupi á vegum umf. Fram á Skagaströnd í maímánuði einhverntíma á árunum kringum 1985. Frá vinstri á myndinni eru: óþekktur, Jóhannes Indriðason, Jónas Þorvaldsson, Jón Örn Stefánsson, óþekktur, Jósef Stefánsson, Gunnar Borg Jónsson, Reynir Lýðsson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Theódór Karlsson, Jón Arnarson aftan við Þorlák og Theódór, Steinþór Karlsson, Jón Heiðar Jónsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Björn Sigurðsson, Þröstur Árnason, Baldur Magnússon, Atli Þórsson, Svanur Árnason. Lárus Ægir Guðmundsson lýsir leiðinni sem á að hlaupa áður en hann ræsir hlauparana.
Barnaból - safn264
Vignir Örn Hafþórsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn077
Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í leikskólanum Barnaból 20. desember 1996. Við borðið nær okkur sitja, frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, óþekktur, Arnar Freyr Sigurjónsson (fjær), óþekkt (nær), Brynjar Max Ólafsson. Við borðið fjær okkur eru, frá vinstri: Davíð Víðisson, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Hanna María Gylfadóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn242
Eyþór Örn Ernstson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn081
Söngkór í leikskólanum Barnaból æfir söng fyrir öskudaginn 4. febrúar 1997. Frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Laufey Inga Stefánsdóttir (nær), Hafrún Kristjánsdóttir, (fjær), Aðalheiður Ragnarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson, Arnar Freyr Sigurjónsson (nær), Elna Ragnarsdóttir (fjær), Sunna Guðlaugsdóttir, Valþór Vilhelmsson, Guðjón Örn Arason, Þórður Indriði Björnsson, Alexander Ragnarsson, Patrik Snær Bjarnason, tveir óþekktir, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Örn Kristjánsson og Kristján Ýmir Hjartarson.
Barnaból - safn057
Þórir Óskar Björnsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn317
Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Barnaból - safn065
Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir. Myndin var tekin 23. ágúst 1996 á leikskólanum Barnaból.
Barnaból - safn166
Sonja Hjördís Berndsen á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn233
Haraldur Brynjar Sigurðsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn 111
Þessi mynd var tekin í desember 1990 á leikskólanum Barnaból þegar börnin þar bökuðu piparkökur með aðstoð foreldra sinna. Á myndinni er Rúnar Loftsson að skreyta kökur en stúlkan til vinstri, með flétturnar, er Jóna Gréta Guðmundsdóttir. Hin stúlkan er Anna María Magnúsdóttir sem situr hjá mömmu sinni Ernu Högnadóttur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn138
Fermingarbörn 1980 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Sitjandi frá vinstri: Þórhildur Björg Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Pétur, Sigurbjörg Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Drengirnir eru frá vinstri: Jóhannes Kristján Sveinsson, Orri Blöndal, Ari Jón Þórsson, Einar Þór Ásgeirsson, Guðjón Árnason (nær), Þröstur Sigurðsson (fjær), Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson (fjær), Kristján Karlsson (nær) og Fritz Hendrik Berndsen.
Barnaból - safn007
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni hjálpast þeir að feðgarnir Sigurbjörn Björgvinsson til vinstri og Guðjón Hall Sigurbjörnsson við að fletja út deigið og skera út kökur.
Barnaból - safn198
Ívar Logi Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Barnaból - safn067
Hafrún Eva Kristjánsdóttir.Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Ólafur Bernódusson567
<p>Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Gist var á tjaldstæði í nokkrum litlum húsum eins og sést í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: Marta Kristín Jónsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Ásdís Lýðsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Adolf Lúðvíksson og Sveinn Jóelsson. </p>
Barnaból - safn190
Karen Peta Karlsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988
Barnaból - safn274
Halla Kristín Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn247
Birna Ágústsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn308
Íþróttahúsið var vígt 15.3.1998. Þessi mynd var tekin 27. desember 2000.
Barnaból - safn162
Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Barnaból - safn297
Íris Ósk Jóhannesdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn 130
Fjórar litlar stúlkur í dúkkuleik á leikskólanum Barnaból veturinn 1991. Frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir,Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Sonja Hjördís Berndsen.
Jón Jónsson234
Þetta ágæta fólk var umsjónarfólk með þolsundi skólakrakka úr Höfðaskóla í sundlauginni á Skagaströnd 1987. Frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) og Sylvía Hrólfsdóttir. Öll áttu þau börn sem tóku þátt í þolsundinu.
Barnaból - safn 118
<p>Myndin var tekin 19. apríl 1991 á fimm ára afmæli Harðar Aðils Vilhelmssonar sem á myndinni gengur um með nammipoka og býður skólasystkinum sínum á leikskólanum Barnaból að fá sér mola. Elva Ösp Gunnarsdóttir er að fá sér en Jenný Lind Sigurjónsdóttir, í bláum smekkbuxum og Eydís Inga Sigurjónsdóttir bíða eftir að röðin komi að þeim.</p>
Barnaból - safn049
Myndin er af börnum úr leikskólanum á Blönduósi þegar þau komu í heimsókn í leikskólann Barnaból árið 1980.
Barnaból - safn203
Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1985.
Barnaból - safn048
<p>Þessi mynd var tekin á leikskólanum Barnaból á litlu jólunum 1981. Fremst til vinstri er Jón Ólafur Sigurjónsson, Jón Örn Stefánsson situr hægra megin við hann í rauðleitri peysu og Arnar Ólafur Viggósson er lengra til hægri í bláum smekkbuxum og Gunnar Guðmundsson hægra megin við hann. Við hlið Jóns Ólafs í fölbleikum fötum situr Árný Guðrún Ólafsdóttir. Hildur Inga Rúnarsdóttir stendur með aðra hönd á mjöðm en framan við hana til hægri situr flötum beinum Viktor Pétursson en við hlið hennar í ljósblárri peysu er Jóhannes William Grétarsson. Aftan við Viktor, í brúnleitu vesti, er Þorlákur Guðjónsson og aftan við hann til vinstri er Írena Rúnarsdóttir. Sitt hvoru megin við Írenu eru systkin, Jósep ? og Sara? Aftan við Hildi Ingu til vinstri er Ólafur Magnússon og vinstra megin við hann, í rauðum kjól, er Þóra Ágústsdóttir. Stúlkan í dökk bláa kjólnum sitjandi til vinstri er Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og á endanum til vinstri við Bergþóru sér í Salóme Ýr Rúnarsdóttur. Aftan við Bergþóru, með fingurinn við munninn, er Auðna Ýrr Oddsdóttir. Konan vinstra megin er óþekkt en hún heldur á Björgvin Ragnarssyni. Framan við hana örlítið hægra megin er María Jóna Gunnarsdóttir. Konan hægra megin er Bára Þorvaldsdóttir með Elínu Ósk Ómarsdóttur í fanginu og leggur hönd á höfuð Kolbrúnar Jennýar Ragnarsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Skagaströnd - safn220
Þessi mynd var tekin á tröppum Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær né hvert tilefnið var. Lengst til vinstri er Jón Pálsson, maðurinn með hattinn og klút í brjóstvasanum er Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005). Fyrir aftan hann er Björk Axelsdóttir með slæðu og hvítt veski en aftan við hana til hægri er tengdafaðir hennar Páll Jónsson (d. 19.7.1979). Maðurinn sem er annar frá hægri er Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978). Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni, eða veist tilefni myndatökunnar, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn273
Þóra Ágústsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn 119
Þessi mynd var tekin á foreldradegi í leikskólanum Barnaból 6. júní 1991. Frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, María Halldóra Alexandersdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir (snýr baki að ljósmyndaranum), Lilja Kristinsdóttir (fjærst), Daníel Guðmundsson (í miðið), óþekktur, Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d. ?), Herborg Þorláksdóttir (snýr baki að ljósmyndaranum) og Ingibjörg Axelma Axelsdóttir.
Barnaból - safn 104
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er Dagný Sigmasrdóttir að skreyta kökur ásamt börnum sínum þeim Sverri Berndsen til vinstri og Sonju Berndsen til hægri.
Baldur Eðvarðsson - safn 1
Þessi mynd var tekin yfir útbæinn á Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin 1966 eða 1967 en á henni eru allmörg hús, sem ekki standa lengur. Næst okkur í hægra horni myndarinnar sér ofan á Höfðaberg og Höfðakot, sem bæði eru horfin. Þar sem vörubíllinn stendur var bílastæði fyrir Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) vörubílstjóra en hann bjó í Stórholti, sem ber yfir Höfðakot, á þessum tíma. Þórsmörk er annað hús, hinum megin við vörubílinn, en það hús er horfið ásamt fjáhúsunum sem standa andspænis því. Næstu tvö hús, Héðinshöfði og Garður eru líka horfin fyrir löngu. Hægra megin við Gamla kaupfélagið stendur Kaupfélagshúsið, sem er enn eitt af húsunum, sem hefur verið rifið. Litli skúrinn sem ber í síldarverksmiðju-skorsteininn var afgreiðsluhús fyrir bensín og ólíur frá Esso olíufélaginu og ef grannt er skoðað má sjá dælurnar við hlið skúrsins. Hinn litli skúrinn, sem er vinstra megin við Esso skúrinn, var hafnarvigtin áður en hún var flutt á núverandi stað við höfnina. Lengra til vinstri upp af stóru skemmunni eru tveir braggar, sem nú eru horfnir. Í bröggunum voru íbúðir en undir það síðasta stóðu þeir tómir. Við enda Skúffugarðsins er ker sem verið er að ganga frá eftir að það var smíðað í slippnum við Bjarmanes. Stóri báturinn við bryggjuna er sennilega Helga Björg HU 7 og enn standa löndunarkraninn og færibandið sem lá frá honum og upp í verksmiðju.
Barnaból - safn222
Álfheiður Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn279
Eydís Inga Sigurjónsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn 121
<p>Krakkarnir í leikskólanum Barnaból voru að líta á hesta í haganum 27. júní 1991 þegar þessi mynd var tekin. Á myndinni eru frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, tvö óþekkt börn, Sigurgeir Árnason, óþekkt barn í fanginu á Sveinbjörgu Dóru Sveinbjörnsdóttur (d. 25.9.2006), Sonja Berndsen, Sindri Hafþórsson (fjærst), tvö óþekkt (nær), Bára þorvaldsdóttir með óþekkt barn í fanginu og síðan er Arnór Gíslason lengst til hægri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Barnaból - safn147
Þessi mynd var tekin af fyrir hádegisdeild í Lundi í leikskólanum Barnaból í febrúar 1998. Fremsta röð frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Saga Lind Víðisdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Megnús Jens Magnússon, Einar Ari Einarsson og Ólöf Hafþórsdóttir stendur til hliðar. Miðröð frá vinstri: Tinna Ósk Agnarsdóttir, Friðberg Rúnar Jóelsson, Halla Björk Víðisdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Ellen Sigurjónsdóttir og Elías Gunnar Hafþórsson. Aftasta röð frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Helga Bergsdóttir, Kristmar Ingi Ragnarsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Ingunn Embla Kristínardóttir og Árný Sif Gestsdóttir.
Barnaból - safn004
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd er Vignir Hafþórsson lengst til vinstri og Hermann Freyr Guðjónsson situr við hlið hans. Á móti þeim við borðið sitja Leó Kristberg Einarsson í bláum bol og Björgvin Ragnarsson sem bítur í pylsuna sína. Drengurinn aftan við Leo er óþekktur.
Þórður Jónsson041
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Páli Jónssyni (d. 19.7.1979) organista og skólastjóra. Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir. Aftari röð frá vinstri: Stefán H. Ingólfsson (d. 21.10. 2004), Ómar Þorbjörnsson, Páll, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020).
Barnaból - safn217
Friðrik Arnbjörnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1990.
Séra Pétur og Dómhildur - safn128
Á myndinni er fermingarárgangurinn 1957 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Fremsta röð frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Ævar Axelsson, séra Pétur og Óskar Axelsson. Stúlkurnar eru frá vinstri: Ragna Bjarnadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jóhanna Bertelsdóttir, Margrét Anna Þórðardóttir, Margrét Haraldsdóttir, Áslaug Jónsdóttir og Helga Jóhannesdóttir.
Barnaból - safn018
Hér er stóruppvask í gangi á leikskólanum Barnabóli í júlí 1986. Uppvaskararnir eru Andri Þór Ómarsson og Elva Dröfn Árnadóttir.
Barnaból - safn 124
<p>Grillveisla í leikskólanum Barnaból 8. júlí 1991. Á myndinni eru að borða grillaðar pylsur frá vinstri : Sonja Berndsen, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Sóley Elsa Magnúsdóttir og Ragnar Stefán Rögnvaldsson.</p>
Skagaströnd - safn108
Skagaströnd kringum 1950. Í portinu næst okkur, á milli kaupfélagshússins og skemmunnar, er kolabingurinn en kaupfélagið seldi kol eftir vigt. Yfir horn mjölskemmunnar, vinstra megin, sést hið merka hús Viðvík þar sem á árum áður var rekið gisti- og veitingahús. Til vinstri við Viðvík er svo Karlsminni en þar var eitt sinn rekin verslun um tíma. Myndina tók Björn Bergmann.
Skagaströnd - safn095
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) formaður stjórnar verkamannabústaða á Skagaströnd afhendir hjónunum Gunnari Benónýssyni (d. 29.7.2003) og Bergljótu Óskarsdóttur (d. 22.2.2004) íbúð sína að Mánabraut 1 í febrúar 1983.
Séra Pétur og Dómhildur - safn146
Fermingarbörn ársins 1971 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri). Sitjandi frá vinstri: Anna Haukdal Jónsdóttir, Þórfríður Kristín Grímsdóttir, séra Pétur og Guðrún Einarsdóttir. Miðröð frá vinstri : Guðjón Guðjónsson, Axel Jóhann Hallgrímsson, Unnur Gunnarsdóttir, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Guðrún Björg Friðriksdóttir (d. ?)og Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987). Aftasta röð frá vinstri: Marías Bjarni Viggósson, Vilhelm Þór Þórarinsson, Málfríður Jóhannsdóttir, Fjóla Sigurðardóttir og Sesselja Guðmundsdóttir.
Barnaból - safn083
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fengu heimsókn leikhóps sem sýndi þeim einhvern leikþátt 17. apríl 1997. Á myndinni fylgjast börnin agndofa með tilburðum leikaranna sem ekki sjást á myndinni.
Barnaból - safn 131
Þrír ungir drengir í bílaleik á leikskólanum Barnaból veturinn 1991. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sigurgeir Snævar Árnason og Leifur Ingi Vilhelmsson.
Guðmundur Guðnason269
Jón Hilmar Indriðason á fermingardaginn sinn vorið 1982 í Hólaneskirkju (eldri) ásamt prestinum séra Oddi Einarssyni.
Barnaból - safn311
Arnrún Bára Finnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Barnaból - safn 136
Myndin var tekin á litlu jólum i leikskólanum Barnaból í desember 1991. Krakkarnir ganga syngjandi kringum jólatréð. Stúlkan í hvíta kjónum til vinstri er Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og hún leiðir Önnu Maríu Magnúsdóttur. Stúlkan í bláa kjólnum með blómamynstrinu er Eydís Inga Sigurjónsdóttir en aftan við hana eru, talið frá vinstri; Ragnar Einarsson, Albert Ingi Haraldsson og óþekkt stúlka. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson246
1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru krakkarnir í eldhúsinu að baka fyrir hófið sem haldið var í vikulokin. Frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, Baldur Eðvarðsson og Helga Kristmundsdóttir.
Barnaból - safn322
Katrín Björk Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Barnaból - safn231
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn033
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 14. desember 1985. Næst okkur á myndinni eru bræðurnir Gunnar Guðmundsson vinstra megin og Ólafur Guðmundsson hægra megin. Við borðir sitja líka Kristín Björnsdóttir með dætur sínar Þóru Ágústsdóttur til vinstri og Birnu Ágústsdóttur til hægri.
Barnaból - safn005
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd er Gréta Gunnarsdóttir að gantast við Brynjar Sigurðsson.
Barnaból - safn059
Guðjón Örn Arason. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Barnaból - safn141
Þessir krakkar voru í Sæbóli, sem er deild á leikskólanum Barnaból, sennilega 2001 eða 2002. Frá vinstri: Sigríður Sól Indriðadóttir, Páll Halldórsson, Þórunn Bernódusdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Huginn Frár Guðlaugsson (nær), Ægir Jónas Jensson (fjær), Sigurbjörg Birta Berndsen, Saga Lind Víðisdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Úlfur Snær Guðmundsson, Egill Örn Ingibergsson, Valgerður Sif Indriðadóttir (fjær), Indriði Theódór Hjaltason (nær), Aldís Embla Björnsdóttir (fjær), Knútur Jensson (nær), Fjóla Ævarsdóttir, Ásdís Rán kristjánsdóttir og Ívan Árni Róbertsson. Myndina tók Páll Pálsson ljósmyndari frá Akureyri.
1
…
16
17
18
…
65
Leita í myndasafninu
Leita