Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn240
Þessi ungi drengur er óþekktur. Hann var á leikskólanum Barnaból, sennilega á árunum kringum 1985. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 459
<p>1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Hér er Guðmundur Björnsson að moka frá húsinu að Fellsbraut 15 svo íbúarnir komist út. </p>
Barnaból - safn270
Dagbjört Agnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1985.
Barnaból - safn238
Auður Eva Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn236
Trausti Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn249
Þóra Lísebet Gestsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Barnaból - safn232
Loftur Björgvinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn285
Jóna Gréta Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn003
Þessi mynd var tekin á skólatröppunum við Höfðaskóla. Á myndinni, sem tekin var 1972, eru krakkar sem fædd voru 1962 og því saman í bekk. Fremsta röð frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Erla Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Sólveig Gunnarsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Jóhann Grímsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Gunnar Gunnarsson og Vilhelm Harðarson. Aftast eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Guðmundur Jónsson og Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002).
Skagaströnd - safn413
Ofsaveður gekk yfir Skagaströnd 24. október 1995. Foktjón varð víða um bæinn en á þessari mynd sjást fjárhús - "Snorrahúsin"- sem hrundu að hluta til í veðrinu. Þessi hús stóðu undir bergjunum austan við beygjuna á Vetrarbrautinni. Þök fuku af hlöðum, útihúsum og bílskúrum í veðrinu ásamt því að nokkrar flaggstangir í bænum þoldu ekki álagið og brotnuðu.
Barnaból - safn210
Árni Max Haraldsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Óþekktur ljósmyndari365
Skagaströnd Iceland er ritað á þessa mynd. Margir mundu e.t.v. ekki kannast við staðinn ef ekki væri fyrir Spákonufellið sem gnæfir yfir í baksýn. Annars sýnir myndin hvernig umhorfs var við Einbúann - klettinn sem er til hægri á myndinni - áður en hafist var handa við hafnargerð 1934 með uppfyllingu hérna megin við Einbúann. Stóra húsið á miðri mynd var fjós og hesthús og sennilega pakkhús að hluta. Hvíta húsið til vinstri var aðsetur verslunarstjórans. Við hornið á hesthúsinu vinstra megin sér í Assistentastofu, sem var húsnæði aðstoðarmanns verslunarstjórans. Litla húsið í Einbúanum var þvottahús og húsið sem sést fram undan stóra hesthúsinu til hægri var Sæmundsenbúð. Ljósmyndin er líklega handmáluð en er upprunalega póstkort sem á stendur 17. nóvember 1913 svo sennilega hefur myndin verið tekin þá.
Skagaströnd - safn348
Rjúpnafell rifið 24. janúar 1991.
Barnaból - safn149
Ingibjörg Axelsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Guðmundur Guðnason 2 369
Skatastaðir í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 340
Gripur nr. 340. Næla, sem líklega hefur verið saumuð föst á föt. Spísslöguð með tveimur steinum, sem eru sinn á hvorri hlið á spíssunum. Lengd 3,8 cm. Líklega úr eigu Magdalenu Helgadóttur Efri-Læk (d. 1954). Fannst í kommóðu frá Efri-Læk (1994). Kommóðan kom líklega í safnið 1978.
Barnaból - safn080
Afmæli í Barnabóli 27. janúar 1997. Við enda borðsins sitja bræðurnir Gunnar og Elías Sæmundssynir en til hægri er Rósa Rúnarsdóttir. Við borðsendann nær okkur er Ásta Hallý Lúðvíksdóttir í rauðum og bláum búningi til vinstri en systir hennar Hjördís Laufey Lúðvíksdóttir snýr að okkur í bláköflóttri peysu. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn368
Þessi mynd var tekin 1.febrúar 1992 þegar Stóra Berg var rifið. Húsið stóð suð-austan við kirkjuna rétt hjá Iðavöllum.
Skagaströnd - safn349
Hólaneskirkja eldri rifin 19. febrúar 1992. Kirkjan var vígð 1928 en var afhelguð 1991 nokkru áður en hún var rifin.
Barnaból - safn278
Helga Dögg Jónsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn010
Myndin var tekin á jóla-barnaballi í Höfðaskóla um jólin 1962. Strákurinn með svarta bindið til vinstri er Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009). Fyrir ofan jólasveininn sést Þorvaldur Skaftason en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir konurnar á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn289
Sindri Njáll Hafþórsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Minjasafn 65
Gripur nr. 65. Eftirprentun af Monu Lisu eftir Da Vinci innrömmuð í gylltan ramma.
Barnaból - safn230
Arnar Ólafur Viggósson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn335
<p>13. september 2001 fóru krakkarnir í leikskólanum Barnaból út á golfvöll - Háagerðisvöll - til að kynna sér golfíþróttina. Á þessari mynd er Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) að kenna Lindu Rún Einarsdóttur að pútta.</p>
Guðmundur Guðnason 2 377
Örlygsstaðir og Hlíð í Skagabyggð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 90 no2
Gripur nr. 90. Brúnn rammi með myndum af Húna II á síldveiðum.
Barnaból - safn286
Albert Ingi Haraldsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn018
Skólaskemmtun í Fellsborg. Börnin eru úr árgangi 1976 - 1977. Frá vinstri: Björgvin Ingi Kristjánsson, óþekkt, Theódór Karlsson, Ragna Fanney Karlsdóttir, Þorlákur Guðjónsson, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Írena Rúnarsdóttir, óþekkt, María Jóna Gunnarsdóttir, Kristján Gunnar Rúnarsson, Þóra Ásgeirsdóttir, þrjú óþekkt, Auðna Ýr Agnarsdóttir, Jósef Stefánsson og Arna Guðrún Jónsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn092
Í tilefni af 20 ára afmælis Barnabóls fengu allir afmælishúfur á kollinn. Á þessari mynd sem tekin var 19. júní 1997 eru frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Davíð Víðisson, Patrik Snær Bjarnason, Laufey Inga Stefánsdóttir, fjögur óþekkt börn, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Örn Kristjánsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn307
Guðlaugur Ómar Guðmundsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Barnaból - safn177
Bára Dröfn Kristinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Minjasafn 57
Gripur nr. 57. Gamalt póstkort í gylltum ramma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Barnaból - safn172
Anna Sólrún Bates á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn214
Theódór Líndal Helgason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson -safn 475
<p>Unnið við að mála gluggana á suðurhlið Bogabrautar 16 á lognværum, grænum sumardegi.</p>
Barnaból - safn315
Ívar Einarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
104-0434_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að fylgjast með einhverri uppákomu sem nemendur Barnabóls voru með.
Barnaból - safn200
Gunnar Borg Jónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985
Barnaból - safn309
Ægir Hreinn Bjarnason á leiksskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1993.
Jón Jónsson241
Þessi mynd var tekin á grímuballi Höfðaskóla 1985 í Fellsborg. Á myndinni eru mæðurnar Sólveig Eiðsdóttir og dóttir hennar Sóley Elsa Magnúsdóttir.
Barnaból - safn291
Ívar Gylfason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn412
Það getur stundum verið nauðsynlegt að hafa bakdyr á húsum. Þannig var það veturinn 1995 á Strandgötu 10 því eins og sést þá eru framdyrnar rækilega á kafi undir skaflinum sem hefur skafið fram af þaki hússins.
Barnaból - safn312
Maríanna Ástmarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Barnaból - safn295
Fjóla Dögg Björnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Minjasafn 133 no2
Gripur nr. 133. Pennastöng, svört, 21 cm á lengd. Flöt á þrjá kanta þar sem maður heldur um. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 411
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni sést yfir hluta af Hólabraut nær okkur og Bogabraut fjær.
Barnaból - safn281
Ólafur Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Skagaströnd - safn402
<p>Einungis tveir af þessum bröggum standa ennþá (maí 2015). Hvíti bragginn var kallaður Skáli og skiptist í Norður skála og Suður skála. Búið var í báðum endum fram yfir 1970 og lengi vel var skrifstofa Höfðahrepps í herbergi í norður enda Norður skála. Nú er Skáli notaður sem bílskúrar og geymslur. Skátaskálinn/Skátabragginn er sunnan við Skála en þar réð skátafélagið Sigurfari lengi vel ríkjum. Seinna var Skátaskálinn svo notaður sem mötuneyti fyrir starfsmenn Síldarverksmiðju ríkisins, þá sem billjardstofa en er nú í einkaeign. Braggarnir tveir sem sjást í baksýn voru um tíma notaðir til íbúðar og sá sem er nær okkur þó mun lengur en hinn. Næst okkur á myndinni til vinstri er hafnavogin en hún stóð þarna þar til hún var flutt niður á höfn. </p>
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn013
Myndin var tekin á skólaskemmtun Höfðaskóla í Fellsborg 5. mars 1997. Frá vinstri eru: Gunnlaugur Briem, Þóra Lísebet Gestsdóttir, María Markovic, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Jón Gunnar Einarsson og óþekktur.
Barnaból - safn216
Kristbjörg Una Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Barnaból - safn219
Einar Oddsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd
Barnaból - safn165
Jenný Lind Sigurjónsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990
Guðmundur Guðnason 2 423
Fjallsminni eða Hólabraut 2
Minjasafn 163
Gripur nr. 163. Kaffikanna, járnlituð með svörtu haldi en hvítt ofan á því. Er með skrúfum á botni vegna viðgerða. Gefandi: Elísabet Kristjánsdóttir Lundi, Skagaströnd 1980
Minjasafn 56
Gripur nr. 56. Hnappsstaðir á Skagaströnd í ramma. Teiknuð mynd. Gefandi: Bergljót Óskarsdóttir.
Minjasafn 385
Gripur nr. 385. Þrjú pör af gömlum ullarsokkum í poka.
Barnaból - safn239
Guðjón Ebbi Guðjónsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Minjasafn 40
Gripur nr. 40. Mynd úr Hvalfirði í grænleitum leðurramma.
Barnaból - safn334
28. ágúst 2001 kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Barnaból. Þá var þessi mynd tekin. Starfskonurnar eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri til hægri. Lögreglumaðurinn er óþekktur og hver og einn verður að þekkja sjálfan sig á myndinni.
1
…
21
22
23
…
65
Leita í myndasafninu
Leita