Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason 2 423
Fjallsminni eða Hólabraut 2
Guðmundur Guðnason 2 377
Örlygsstaðir og Hlíð í Skagabyggð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn 329
Haustið 2003 kom forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn til Skagastrandar ásamt fylgiliði. Meðal annars leit hann við í Höfðaskóla við miklar vinsældir nemenda og starfsfólks þar. Á þessari mynd er Ólafur í miðjum hópi fagnandi skólabarna utan við íþróttahúsið. Til hægri sést aftan á sýslumann Húnavatnssýslu, Bjarna Stefánsson og forsetafrúna Dorrit Moussaief.
Minjasafn 172
Gripur nr. 172. Koparkanna með gylltum stút og handfangi. Einnig er gyllt rönd um hana miðja. Kannan er 23 cm á hæð og 53 cm að ummáli þar sem hún er breiðust. Með könnunni fylga tvö staup á fæti í sömu litum og kannan. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 312
Gripur nr. 312. Kvenmannsveski úr svörtu leðri lengd 25 cm, hæð 15 cm. Breiðast neðst. Veskið er með svörtu leðurhaldi. Var í eigu Mörtu Guðmundsdóttur Lækjarbakka, Skagaströnd, dáin 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Skagaströnd - safn375
Fermingarsysturnar Ingibjörg Kristinsdóttir til vinstri og Ester Axelsdóttir til hægri. Árið er 1962.
Barnaból - safn003
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, Magnús Líndal Þrastarson og Gunnar Helgason.
Minjasafn 140
Gripur nr. 140. Ístað 13 cm breitt og 13 cm hátt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 160
Gripur nr. 160. Kaffikvörn úr járni rauð á lit. Máluð blóm framan á gul, blátt og grænt. Hæð 20 cm og breidd 14 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir 1984.
Guðmundur Guðnason 2 468
Guðmundur Óskarsson frá Ásholti með skólatöskuna sína e.t.v. á fyrsta skóladeginum í Höfðaskóla.
Guðmundur Guðnason 2 352
Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 248
Gripur nr. 248. Ljósrituð mynd af Bjarna Helgasyni frá Holti. Hann situr í bát sínum; Albert. Myndin var tekin í tilefni viðtals við hann í Morgunblaðinu. Birna Bjarnadóttir dóttir hans á frummyndina. Gefandi: Birna Bjarnadóttir frá Holti í ágúst 1994.
Baldur Eðvarðsson - safn 2
Þorvaldur Skaftason á Höfðanum með Skagaströnd í baksýn. Myndin var sennilega tekin kringum 1965. Við vinstri öxl Þorvaldar má sjá Efri-Læk sem nú er löngu horfinn. Vinstra megin við Þorvald er Jaðar hvítmálaður og þar enn lengra til vinstri er Efri Jaðar sem líka er löngu horfinn.
Minjasafn5
Gripur nr. 5. Nærskyrta með milliverki í kringum handveg, hálsmál og lagt niður á brjóst. Hneppt á öxlum. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 112
Gripur nr. 112. Straujárn bæði fyrir rafmagn og til að hita á hellu. Með svörtu tréhandfangi, lengd 17,5,cm, breidd 9,5,cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 77
Gripur nr. 77. Gler/plast rammi með lítilli mynd af Sigríði Pétursdóttur.
Barnaból - safn211
Jón Örn Stefánsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Minjasafn 98
Gripur nr. 98. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktum manni í sparifötum.
Barnaból - safn044

Þessi mynd var tekin af gestum í 6. ára afmælisveislu Elísabetar Eikur Guðmundsdóttur 25. ágúst 1981. Aftasta röð frá vinstri: Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), afmælisbarnið Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Björn Sigurðsson og Anna Aspar Aradóttir. Næst aftasta röð frá vinstri: Gunnar Borg Jónsson, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, óþekktur, Halla Kristín Árnadóttir, óþekktur, Ragna Fanney Gunnarsdóttir og Árný Guðrún Ólafsdóttir. Strákurinn í bláu peysunni og bláum sokkum hægra megin á myndinni er Jón Ólafur Sigurjónsson og Arnar Ólafur Viggósson situr fremst til vinstri. Þorlákur Guðjónsson snýr baki í myndavélina en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir eitthvert barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Minjasafn 159

Gripur nr. 159. Stýrishjól úr brúnum viði með hangandi lukt inni í hjólinu. Stendur á kringlóttri viðarstétt, hæð 27 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.

Minjasafn 501
Gripur nr. 501. Halasnælda úr tré.
Barnaból - safn314
Berglind Ósk Ingvadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Minjasafn 290
Gripur nr. 290. Veggáttalínulampi. Grænt glerið er undir olíuna. Kveik og lampaglas vantar. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Barnaból - safn259
Elísabet Vattnes Sigurbjörnsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983
Minjasafn 17
Gripur nr. 17. Rakhnífur. Skaftið er 16 cm langt. Skaftið er beinlitt útflúrað með konumynd (vatnamynd eða Venus) mjög fallegt. Blaðlengd er 7 cm. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Barnaból - safn148
Anna Dúna Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Minjasafn 435
Gripur nr. 435. Brún dömuhúfa/hattur með grænu tígluðu munstri neðan á deri/hattbarði.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn008

Þessi mynd, sem er af grímuklæddum nemendum Höfðaskóla, var tekin 19. apríl 1995. Uppi á sviðinu eru frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, óþekktur (af augljósum ástæðum) og Vignir Hafþórsson. Framan við Vigni er Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.

Minjasafn 49
Gripur nr. 49. Mynd af Elínu Jónsdóttur frá Hökuldsstöðum ("Adda prests"). Gefandi: Hrefna J. í október 1994.
Minjasafn 103

Gripur nr. 103. Mjólkurbrúsi úr áli, hæð 57 cm, breiðastur 113 cm að ummáli. Gefandi: Sólveig Vattnes Herðubreið Skagaströnd í maí 1994.

Barnaból - safn223
Birkir Rafn Gíslason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn362
Myndin var tekin á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991. Á myndinni eru mæðgurnar Auður Eva Guðmundsdóttir og Þórunn Bernódusdóttir að klippa og líma.
Minjasafn 88
Gripur nr. 88. Mynd af fólki sem fór á ball í Búðardal 1941 eða 1942 ásamt lýsingu á farartæki þeirra.
DX-11
Piparkökubakstur í Barnabóli 30. nóvember 2002. Á þessari mynd eru frá vinstri: Cornelia Silud Boncales, Eymundur Grétarsson, Elmar Grétarsson, Amy Eymundsdóttir og Linda Ómarsdóttir. Amy er amma barnanna á myndinni en Cornelia er móðir drengjanna tveggja.
Guðmundur Guðnason2 343
Á þessari mynd sjást uppáhalds skepnur Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar - kindur. Í baksýn má sjá gapandi sárið í Höfðanum eftir grjótnám þar. Til vinstri sjást svo nokkur fjárhús, sem karlarnir sem bjuggu í Bankastræti undir Höfðanum, áttu.
Minjasafn 349
Gripur nr. 349. Hengilás með keðju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 480
Húsið til vinstri var Sunnuhlíð - Bogabraut 19. Húsið hefur verið rifið og nýtt hús reist á sama stað.
Minjasafn 434
Gripur nr. 434. Grá dömuhúfa/hattur með svörtum borða og slaufu.
Minjasafn 127
Gripur nr. 127. Lyfseðill frá Páli Kolka lækni. Úr eigu Fritz Magnússonar Ásbergi Skagaströnd. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 215
Gripur nr 215. Glas, reyklitað með tvö hesthöfuð framan á. Aftan á glasinu er vísa. Flár um malir. Komið aðeins skarð í barminn. Hæð 14 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 86
Gripur nr. 86. Plagg í brúnum tréramma. Leiðbeiningar um batterínotkun.
Minjasafn 126
Gripur nr. 126. Ljósmynd af kirkjukór Hólaneskirkju. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn015

Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir standa við leifarnar af "Kerlingunni" sem var klettadrangur sem minnti á kerlingu að lesa í bók. Um hana var þjóðsaga um tröllskessu sem var að bíða eftir karli sínum af sjó en beið of lengi og lenti í sól og breyttist í stein. "Kerlingin" er því miður horfin nú. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Einar Karlsson, Kristján Steinar Kristjánsson, Orri Blöndal, Drífa Kristjánsdóttir, Víðir Ólafsson, Vala Ingvarsdóttir, Bjarni Ottósson, Þórhildur Jakobsdóttir og Agnes Sævarsdóttir.

Árni Geir Ingvarsson -safn 486
Akur eða Hólabraut 13. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1975 því húsið sem sér í til hægri er Hólabraut 15 sem var byggr 1973.
Árni Geir Ingvarsson - safn 414
Húsið næst okkur á myndinni er Héðinshöfði. Í húsinu voru tvær íbúðir en það hefur nú verið rifir fyrir mörgum árum.
104-0429_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að bíða eftir að fá grillaða pylsu hjá starfsfólki leikskólans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 413
Þakjárn fauk af að hluta á húsinu Skagavegur 10 - 12 í norð-austan stórviðri. Á þessari mynd eru smiðir mættir á staðinn til að koma á nýju járni eftir að veðrið er dottið niður.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn004
Jón S. Pálsson sem lengi var kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn336
Þessi mynd var tekin við leikskólann Barnaból líklega kringum 1990. Konurnar á myndinni eru Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992) vinstra megin og Hallveig Ingimarsdóttir til hægri. Börnin eru frá vinstri: Elva Mjöll Þórsdóttir, óþekktur, Ólafur Guðmundsson, Karen Peta Karlsdóttir, tvö óþekkt börn, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, óþekktur, Birna Ágústsdóttir, tveir óþekktir en fremst er Hermann Guðjónsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 391
Gripur nr. 391. Hluti af vatnskrana. Stál en haldið er úr rauðu tré.
Barnaból - safn263
Marta Kristín Jónsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1988.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn005
Þessir krakkar, sem voru saman í bekk í Höfðaskóla, fæddust 1947 og 1948. Á myndinni eru þau með kennara sínum Jóni S. Pálssyni. Standandi frá vinstri: Pétur Jóhannsson, Ísleifur Haraldsson, Jóhann Björn Þórarinsson, María Bjarnadóttir (d.1984), Jóhann Ingibjörnsson, Jón S. Pálsson kennari, Búi Þór Birgisson (d. 18.9.2009), Steinunn Margrét Ellertsdóttir (d. 2014), Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson. Sitjandi frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Jóhanna Valdimarsdóttir.
Minjasafn 437
Gripur nr. 437. Bunkar af dagatölum, litlum. Hægt er að rífa af einn dag í einu. Bunkarnir er frá 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 470
Akurgerði eða Hólabraut 9. Húsið hefur verið rifið og nýtt reist á sama stað.
Minjasafn 87
Gripur nr. 87. Smellurammi með níu myndum af fólki. Það eru upplýsingar um nöfn á öllu þessu fólki við hverja mynd. Skrásett af Guðrúnu Þ Guðmundsdóttir
Guðmundur Guðnason 2 385
Þessi mynd var tekin á kirkjutröppunum við Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri á myndinni eru: séra Guðni Þór Ólafsson, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur á Skagaströnd 1987 - 1990, Sigurgeir Árni Ægisson, Jóhanna Ólafsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Sigurgeir Magnússon.
Minjasafn 47
Gripur nr. 47. Mynd af Maríu Birgittu Berndsen í ramma. 01. 1940. Gefandi: Helga Berndsen.
Minjasafn 79
Gripur nr. 79. Gylltur rammi með mynd af Jóni Pálmasyni Alþingismanni og konu hans Jónínu Margréti. Gefandi: Birgir Árnason.
Minjasafn 254
Gripur nr. 254. Mjólkurkanna úr hvítum leir og með bláum blómum framan á. Mjög kvarnað úr börmum og stúturinn brotinn. Kom úr húsinu Brautarholti líklega úr eigu Þuríðar Jakobsdóttur eða Elísabetar K. Ferdinandsdóttur sem þar bjuggu.
Guðmundur Guðnason 2 496
Messa í Hólaneskirkju eldri. Í stólnum er séra Oddur Einarsson sem var sóknarprestur á Skagaströnd frá 1. desember 1981 til 1. september 1986. Við orgelið situr Sigurður Daníelsson en hann var lausráðinn organisti 1984 - 1986. (Heimild: Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012 ,eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Til hægri aftarlega, með gleraugu, má þekkja Gunnlaug Sigmarsson en nokkru framar má sjá baksvip Lárusar Ægis Guðmundssonar upplýstan af sólarljósi og framan við hann situr Adolf J. Berndsen. Aðrir eru óþekktir.
1

22
23
24

65
Leita í myndasafninu
Leita