Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 171
Gripur nr. 171. Kola í stíl við grip 170 sem er kertastjaki. Kolan stendur á stétt og er úr gukllituðum málmi (látúni?). Er með loki yfir eldsneytisbollanum. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 47
Gripur nr. 47. Mynd af Maríu Birgittu Berndsen í ramma. 01. 1940. Gefandi: Helga Berndsen.
Minjasafn 79
Gripur nr. 79. Gylltur rammi með mynd af Jóni Pálmasyni Alþingismanni og konu hans Jónínu Margréti. Gefandi: Birgir Árnason.
Minjasafn 49
Gripur nr. 49. Mynd af Elínu Jónsdóttur frá Hökuldsstöðum ("Adda prests"). Gefandi: Hrefna J. í október 1994.
Minjasafn 224 og 225
Gripur nr 224 og 225. Þjóðbúningabrúða í íslenskum búningi 19. aldar upphlut með gult fléttað hár og er í hvítu pilsi. Hæð 19 cm. Hin brúðan er í íslenskum 18. aldar búningi. Húna er í rauðum kjól með leggingum neðst. Hæð 19 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir Réttarholti, Skagaströnd í júní 1990.
Barnaból - safn156
Ragnar Stefán Rögnvaldsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Minjasafn 360
Gripur nr. 360. Hárrúllur semhægt er að hita á straujárni. Hvítar úr plasti. "Top set heated rollers".
Minjasafn 452
Gripur nr. 452. Lítið gerfijólatré á trékubbi með myndum.
Minjasafn 213
Gripur nr 213. Borðlampi með styttumynd af karlmanni í rauðum buxum og grænum jakka og með svarta spanjólu. Hæð 32 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1988.
Minjasafn 59 no2
Gripur nr. 59. Hvítt umslag með mörgum myndum í. Sex ljósmyndir frá Skagaströnd líklega teknar 1945 - 1946. Gefandi: Gunnar Albertsson.
Minjasafn107
Gripur nr. 107. Koyo útvarp, fyrir rafmagn. Lengd 29,5 cm, hæð 19 cm. Svart á litinn. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 166
Gripur nr.166. Klemmur. Gamaldags klemma smíðuð af Birni Jóhannessyni Efra-Nesi á Skaga. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 208
Gripur nr. 208. Rjómakanna bleik á lit. Munstur í leirnum. Leirkanna 7 cm á hæð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 55
Gripur nr. 55. Mynd af Skafta Fanndal Jónassyni (d. 2.9.2006) og Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d. 13.7.2003) í átthyrndum ramma. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Skagaströnd - safn360
Jólasveinninn heimsækir 2. eða 3. bekk í Höfðaskóla á litlu jólum 1991. Kennarinn í rauða kjólnum er Jóney Gylfadóttir en sú til hliðar með barn á handlegg er óþekkt. Við borðið sitja frá vinstri: Guðrún Rúnarsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, María Markovic, Magnús Filip Sævarsson, Loftur Árni Björgvinsson og þrír óþekktir.
Minjasafn 289
Gripur nr. 289. Olíulampastatif fyrir hengilampa. Grænn járnskermur er á statífinuog lítil hlíf ofaná en hringstykki (statif) er neðst fyrir lampann. Úr búi Stefáns Ágústssonar Ytri-Ey. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey Vindhælishreppi (Skagabyggð) í september 1994.
Minjasafn 104
Gripur nr. 104. Trésleif, stór úr ljósum viði, lengd 41 cm, breiðust 10 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 73
Gripur nr. 73. Brúnn rammi með mynd af Húna Hu 1.
Minjasafn 31
Gripur nr. 31. Tóbaksdós. Gefandi: Skafti Fanndal Jónasson.
Minjasafn 135
Gripur nr. 135. Halasnælda lítil 27 cm löng. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 203
Gripur nr. 203. Skrautskál, köntuð græn á lit, með munstri. Mjóst neðst en víkkar upp. Munstrað glerið. Lengd 14,5 cm og breidd 8 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1986.
Skagaströnd - safn355
Á þessari mynd er verið að selja postulínsdiska til styrktar kirkjubyggingar á Skagaströnd. Á diskunum er mynd og áletrun. Eins og oft vill verða þá eru þessir diskar að öðlast meira og meira söfnunargildi eftir því sem lengra líður frá framleiðslu þeirra. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1990.
Minjasafn 61

Gripur nr. 61. Plastumslag með útprentuðum myndum báðum megin. Öðru megin eru myndir af húsum sem búið er að rífa. Hinum megin eru myndir af fólkinu sem bjó í húsunum.

Minjasafn 412
Gripur nr. 412. Loftljósakúpull, ferningslagaður, kúptur, úr brúnleitu gleri með munstri. Perustæðið (ljósastæðið) fylgir með.
Minjasafn 206
Gripur nr 206. Litlir sauðskinnsskór með hvítum leðurbryddingum. Bláir og hvítir illeppar. Unnir af Sigríði Hjálmarsdóttur á Sauðárkróki. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 60
Gripur 60. Smellurammi með sex myndum frá sjávarsíðunni.
Minjasafn 78
Gripur nr. 78. Gler/plastrammi með mynd af óþekktum ungum manni.
Barnaból - safn266
Karen Peta Karlsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Minjasafn 525
Gripur nr. 525. Tréstytta af ungum pilti og stúlku sem sitja á grindverki og syngja og spila saman.
Minjasafn 205
Gripur nr. 205. Veggplattar. A er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, ÞINGVELLIR og á honum er mynd frá Þingvöllum með hestum á beit í forgrunni. Breidd 15 cm. B er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, SKÓGARFOSS með mynd af Skógarfossi. Breidd 15 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd.
Minjasafn 306
Gripur nr. 306. Mjólkurflaska úr glæru gleri. Á henni stendur: Mjólkursamsalan 1/2 l. Í þessum flöskum var mjólkin keypt. En flöskurnar voru í notkun í kringum 1965 - 1975. Hæð 24 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Minjasafn 9
Gripur nr. 9. Hvítt silkislifsi með kögri. Balderuð rós i báðum endum, með gylltum vír. Lengd 130 cm en breidd 23 cm. Þetta er brúðarslifsi Vilborgar Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal , en hún gifti sig árið 1920. Slifgsið var balderað og saumað af Jakobínu Guðmundsdóttur systur Vilborgar. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Barnaból - safn148
Anna Dúna Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Guðmundur Guðnason 2 496
Messa í Hólaneskirkju eldri. Í stólnum er séra Oddur Einarsson sem var sóknarprestur á Skagaströnd frá 1. desember 1981 til 1. september 1986. Við orgelið situr Sigurður Daníelsson en hann var lausráðinn organisti 1984 - 1986. (Heimild: Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012 ,eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Til hægri aftarlega, með gleraugu, má þekkja Gunnlaug Sigmarsson en nokkru framar má sjá baksvip Lárusar Ægis Guðmundssonar upplýstan af sólarljósi og framan við hann situr Adolf J. Berndsen. Aðrir eru óþekktir.
Minjasafn 103

Gripur nr. 103. Mjólkurbrúsi úr áli, hæð 57 cm, breiðastur 113 cm að ummáli. Gefandi: Sólveig Vattnes Herðubreið Skagaströnd í maí 1994.

Guðmundur Guðnason 2 375
Blönduós - gamalt póstkort. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn316
Ágústa Lóa Jóelsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1993.
Skagaströnd - safn353
Myndin var tekin í júlí 1992 af framkvæmdum við stækkun leikskólans Barnabóls. Eldri byggingin er til hægri en hún var byggð á vegum Lionklúbbs Skagastrandar og síðan afhent sveitarfélaginu til eignar og rekstar.
Minjasafn 116
Gripur nr. 116. Netanál (skytta). Lengd 14,5 cm, trélituð. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 35 no2
Gripur nr. 35. Gylltur rammi skreyttur með útskornu mynstri. Ca. 40 x 50 cm.
Minjasafn 400
Gripur nr. 400. Stór öngull, einfaldur, örlítið beyglaður. Líklega hákarlakrókur.
Minjasafn 97
Gripur nr. 97. Gylltur rammi með mynd af kvennahópi. Myndin er mjög máð.
Minjasafn 382
Gripur nr. 382. Kassi nr 17 hefur eingöngu að geyma kort og umslög og jólakort með umslögum. Virðast nýleg og hafa e.t.v. verið ætluð til skrauts á minjasafninu þegar því verður komið fyrir í eigin húsnæði.
Minjasafn 117
Gripur nr. 117. Kartöflustappari með tréhaldi, sem er málað grænt. Annað er úr járni. Hæð 24 cm, breidd 11 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn3
Gripur nr. 3. Skyrsía úr tré. Stærð 23x23 cm að ofan, botn 18x 18 cm, dýpt 6 cm. Sex rimlar í botni. Notuð var strigasía, sem var lögð í botninn. Skyrsían er úr búi Guðna Sveinssonar (d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur (d. 12.6.1966). Gefandi: Guðmundur Guðnason Frá Ægissíðu á Skagaströnd í nóvember 1975.
Minjasafn 128
Gripur nr. 128. Útsaumaður kragi með enskum og frönskum saum. Saumaður af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir, dóttir Vilborgar, Réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Minjasafn 113
Gripur nr. 113. Brauðrist, lítil fyrir rafmagn. Hæð 15 cm og breidd 17 cm. Litlir svartir og hvítir hnúðar á endunum. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 544

Gripur nr. 544. Kydill sem hægt er að stinga í jörðina.

Myndasafn 366
Gripur nr. 366. Kökudiskur. Hvítur, postulín, rimlaðir kantar, gylling meðfram brúnum. Blómaskreyting/blómakrans í ysta lagi botnsins. Mynd af Öxará í Almannagjá í botni. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 604
Gripur nr. 604. Koffort/taska úr tré. Brúnmálað. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið.
Minjasafn 37
Gripur nr. 37. Mynd af vermönnum. Vermenn af Skagaströnd og Nesjum sem fóru suður á vertíð 1903 - 1905.
Barnaból - safn304
Kristján Freyr Sigurbjörnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Minjasafn 191
Gripur nr. 191. Púðurdós. Á miðju loki er rós ígreipt í glerung, svört umgjörð utan um. Dósin er 8 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 471
Þessi mynd af Skagaströnd hefur sennilega verið tekin kringum 1990 - 1995
Minjasafn 486
Gripur nr. 486. Tveir bollar. Hvítir, skreyttir með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 485.
Minjasafn 85
Gripur nr. 85. Mynd af torfbæ og húsdýrum í brúnum tréramma, máluð mynd.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn018

Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir eru, frá vinstri, í aftari röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Agnes Sævarsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Kristján Steinar Kristjánsson, Víðir Ólafsson og Orri Blöndal.

Skagaströnd - safn361
Myndin var tekin á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991. Frá vinstri: óþekktur strákur, Þórunn Óladóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Dóra Kristín Jónasdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson og óþekkt stúlka.
Minjasafn 263
gripur nr. 263. Djúpir diskar A.,B. og C. Hvítir með gylltri rönd. Þrjú blóm á þremur stöðum á barmi. Þvermál 21 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk.
Minjasafn 124
Gripur nr. 124. Mynd af frú Dóru Þórhallsdóttur forsetafrú (kona Ásgeirs Ásgeirssonar forseta 1952 - 1968) í silfruðum ramma. 17 cm á breidd og 25 cm á hæð. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri -Harrastöðum í ágúst 1994. Myndin er úr búi foreldra hennar.
1

23
24
25

65
Leita í myndasafninu
Leita