Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 96
Gripur nr. 96. Átta myndir af fólki í brúnum ramma. Myndirnar tók Guðrún Guðmundsdóttir af eldri borgurum á Skagaströnd á árunum 1984 - 1990.
Minjasafn 165
Gripur nr. 165. Pennabox gyllt á lit, merkt Birmingham.Var notað undir penna fyrir pennastangir. Boxið er eins og bók í laginu og opnað að ofan. No: 1346 á botninum. Penni límdur á kjölinn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Guðmundur Guðnason 2 386
Undirfell í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 11 no2
Gripur nr. 11. Hekluð treyja, ermalaus svört og rauð. Tvíhneppt með silfruðum hnöppum. Hún er síðan um 1880. Eigandi var Ingibjörg Stefánsdóttir frá Engihlíð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 282 no2
Gripur nr. 282. Silverbakki (Plett) ferkantaður með ígreiptu munstri á botninum. 35 cm langur og 27 cm breiður. Munstur á börmum bakkans. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 167
Gripur nr. 167. Seðlaveski, saumað af eiganda, Jóni Árnasyni Ólafsvöllum árið 1936. Veskið er úr sútuðu folaldaskinni og notaði hann veskið í 40 ár. Gefandi: Inga Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 50
Gripur nr. 50. Mynd af Elísabetu Berndsen Lækjabergi Hafnarfirði í ramma. Gefandi: Haraldur Árnason í janúar 1995.
Minjasafn 278 no2
Gripur nr. 278. Orgelstóll á þrífæti en langfóturinn er sexstrendur viðarfótur. Járngjörð er við enda fótarins neðst þar sem tengir saman þrífótinn. Setan er útsaumuð með krosssaum, litir: drapp, grænn, blár og rauður.
Minjasafn 82 no2
Gripur nr. 82. Stór silfurlitur rammi með skjalinu: "The International association of Lions Clubs". Einhver konar viðurkenningarplagg.
Minjasafn 495
Gripur nr. 495. Krukka úr postulíni/leir. Er grábrún að lit með blóma- og laufamunstri á loki og á barmi. Myndir af trjám, húsi og fólki er á hliðum krukkunnar.
Skagaströnd - safn403
<p>Þegar þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1943 - 1946 var mikil uppbygging á Skagaströnd. Verksmiðjuskorsteinninn er risinn en ekki búið að fjarlægja vinnupallana kringum hann. Grindin í stóru mjölskemmunni er að rísa og byggingarefni liggur út um allt. Sundlaugin er í byggingu og niðri í horninu lengst til vinstri er búið að steypa undirstöðu fyrir olíutank sem þar reis síðar. Járnplötur sem voru efni í tankinn liggja við hlið sökkulsins. Fjósið sést norðan við kaupfélagið enda ekki búið að byggja Kaupfélagsskemmunna en sökklar hennar eru þó komnir. Ef grannt er skoðað má sjá á myndinni mörg hús sem nú eru horfin eða hafa vikið fyrir nýjum. Myndina tók Guðmundur Guðnason. </p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 484
Þessi mynd var tekin af þeim Þórunni Bernódusdóttur til vinstri, Guðrúnu Pálsdóttur í miðjunni og Höllu Björg Bernódusdóttur til hægri þar sem þær sitja í tröppunum við Stórholt - Bankastræti 3. Þar voru þær Halla og Þórunn aldar upp og Guðrún er mágkona þeirra. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1971- 1973. Húsið í baksýn er Höfðakot sem nú hefur verið rifið.
Minjasafn 32
Gripur nr. 32. Rakhnífur. Rakhnífur í svartri öskju. Hnífurinn sjálfur er líka svartur King Cutter.
Guðmundur Guðnason 2 489
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á ferðalagi á hálendinu. Skálinn í baksýn er sennilega Hvítárskáli Ferðafélags Íslands við Hvítárvatn. Þar er sagt að sé draugagangur.
Minjasafn 15
Gripur nr. 15. Mortel, skálarlagað, með könnustút og fylgir því stautur með hnúð á enda. Þvermál skálar er 8x8 cm og dýpt er 5 cm en lengd stauts er 9 cm. Mortelið er úr leir með hvítri glerhúð. Þetta mortel var notað til að mylja meðöl í handa skepnum. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn 179
Gripur nr. 179. Illeppar sauðsvartir með mislitum röndum. Heklað grænblátt utan um, prjónaðir af gefanda. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 58
Gripur nr. 58. Brúnn rammi sem geymir margar myndir: tvær af Kristínu Bjarnadóttur, Hrólfur Jakobsson, Ólafur Guðlaugsson, Guðmundur Guðnason póstur, Jóhann Pétursson með lamb og Ólafur Guðmundsson í Brautarholti.
Minjasafn 36
Gripur nr. 36. Mynd af síldarsöltun á Skagaströnd.
Minjasafn 294
Gripur nr. 294. Járn-olíulampi úr járni.
Minjasafn 367
Gripur nr. 367. Skál úr glæru gleri með loki. Þegar lokið er á myndar hún hænu á hreiðri. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 199
Gripur nr. 199. Staup 3 stk. með gullrönd og mynd af einhverskonar dýri.
Minjasafn 157
Gripur nr. 157. Lukt, hvít á litin 25 cm á hæð. Notuð áður fyrr við gegningar, handlukt. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 164
Gripur nr. 164. Upptakari, fiskur 13 cm langur. Hnífurinn er neðri vörin á fiskinum. Er járnlitaður og grænn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982
Minjasafn 12
Gripur nr. 12. Gleraugu, lítil, í gylltri umgjörð. Gleraugnahúsið er merkt: Gleraugnasalan Fókus, Lækjargata 6. Óvís eigandi. Fundin og gefin af Elísabetu Árnadóttur frá Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 570
Gripur nr. 570. Útvarp. Blátt og hvítt með haldi á toppi. Merkt: "Vilhelmína Andrésdóttir".
Minjasafn 174
Gripur nr. 174. Mjólkurkanna 15 cm á hæð og 32 cm að ummáli. Kannan hefur verið hvít með myndum á t.d. hús, hallir, tré, vatn og maður á hesti. Kannan er úr búi Ingibjargar Jónsdóttur og Finns Guðmundssonar sem lengi bjuggu í Skrapatungu. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd, dóttir þeirra hjóna, í ágúst 1994.
Árni Geir Ingvarsson -safn 489
Hólaneskirkjur eldri og yngri. Eldri kirkjan, sem var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsmeistara ríkisins og byggð 1928, var rifin í febrúar 1992 eftir að sú nýja hafði verið tekin í gagnið.
Minjasafn 214
Gripur nr. 214. Ljósmynd af bátnum Gamla Kóp, sem Skafti Fanndal Jónasson í Lundi Skagaströnd átti. Myndin er í ljósum viðarramma en á hann eru límdir kuðungar og skeljar í kringum myndina. Rammann gerði Sigríður Hjálmarsdóttir Sauðárkróki. Stærð 18 x 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrúna Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 396
Gripur nr. 396. Tvö stykki netanálar límdar saman með límbandi.
Minjasafn 99 no2
Gripur nr. 99. Áldunkur sem hefur líklega verið notaður undir smábrauð og /eða kökur. Á lokið hefur einhver skrifað "Svanakex".
Minjasafn 485
Gripur nr. 485. Þrjú stykki undirskálar. Hvítar, skreyttar með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 486.
Minjasafn 272
Gripur nr. 272. Rjómakanna úr glæru gleri. Grópuð blóm í glerið framan á. Hæð 9 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk Skagaströnd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn019
Þessi mynd var tekin á leikskólanum Barnaból, líklega einhverntíma 1982 - 1984. Á myndinni eru frá vinstri: Þorlákur Ómar Guðjónsson (nær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (fjær) og Guðný Kristín Finnsdóttir.
Minjasafn 409
Gripur nr. 409. Glerfleygur með korktappa.
Minjasafn 16
Gripur nr. 16. Rakhnífur. Blaðlengd 8 cm. Heiti hnífs er GONG RAZOR Extra Hallow Ground, framleiddur í Þýskalandi 1918 af Geng Cullery Co. Hnífurinn er svartur og svart hulstur fylgir með. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Minjasafn 433
Gripur nr. 433. Langt járnblað í laginu eins og sveðja. Blaðið er með nokkrum götum efst við bakkann. Er hluti af gömlum ljá sem var hnoðaður fastur við bakka ljásins. Gamall og mjög ryðgaður.
Minjasafn 431
Gripur nr. 431. Lítill skrautplatti. Sporöskulagaður, blár með gulum krossi og gulum rósum. Gefandi Hrafna Jóhannesdóttir Hólabraut 25, Skagaströnd.
Minjasafn 48
Gripur nr. 48. Ljósmynd af Valný Benediktsdóttur frá Brandaskarði í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson.
Minjasafn 257
Gripur nr. 257. Lampafótur. Stytta af hafmeyju. Er úr gipsi. Hafmeyjan er með perustykkið á höfðinu og er hún gullbronsuð á lit en hárið er rautt og einnig steinninn sem hún situr á. Rafmagnssnúran er mjög forn úr snúnu taui. Kom úr búi Ólafs Guðmundssonar og Elísabetar Karólínu Ferdinandsdóttur Brautarholti, Skagaströnd.
Skagaströnd - safn350
Þetta hús og umhverfi þess hefur tekið stakkaskiptum frá því að þessi mynd var tekin í febrúar 1992, ekki bara í útliti heldur líka hvað starfsemina varðar sem fram fer í húsinu. Áður var í húsinu frystihús Hólanes hf seinna rækjuvinnsla, saltfiskvinnsla og harðfiskframleiðsla. Þá stóð húsið autt í nokkur ár þar til Listamiðstöðin Nes hóf sína starfsemi í húsinu eftir nokkra yfirhalningu á því.
Minjasafn 329
Gripur nr. 329. Glerkanna, stór með smáröndum á, í fjórum litum. Ígreiptar rendur efst. Glerið leggst yfir stútinn. Hæð 25 cm, breidd á barmi 13 cm. Eitt glas í sama stíl fylgir með en hæð þess er 12 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar á Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Guðmundur Guðnason 2 425
Hér er unnið að byggingu nýrrar Hólaneskirkju á hlaðinu á þeirri gömlu.
Minjasafn 10 no2
Gripur nr. 10. Upphlutsbolur svartur úr silki með gylltum, balderuðum rósum á borðum. Hann var unnin um 1910 af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili. Bakið lagt með gylltum stímum. Gefandi: Elísabet Árnadóttir í hjanúar 1977.
Minjasafn 42
Gripur nr. 42. Lítil mynd af Sigríði Guðlaugsdóttur (d. 25.3.1996) frá Bjarmalandi á Skagaströnd.
Minjasafn 195
Gripur nr. 195. Veggkertastjakar úr járni með krækjumunstri. Lilla- litaðurglerplatti, hringlaga, hangir í miðjum stjaka. Hæð 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 105
Gripur nr. 105. Heynál með tréskafti. Breidd handfangs 27 cm og lengd járnsins 30 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Skagaströnd - safn407
Viðbygging við leikskólann Barnaból formlega tekin í notkun í september 1994. Af því tilefni mættu foreldrar og velunnarar skólans og hlustuðu á ræðu og skoðuðu nýju aðstöðuna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ragnheiður Magnúsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir og Ólafía Sigurjónsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Minjasafn 66
Gripur nr. 66. Brúnn rammi með 11 litlum myndum af sjó og sjómennsku.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn017
Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir eru, frá vinstri: Kristján Steinar Kristjánsson, Einar Ásgeirsson, Vala Rós Ingvarsdóttir, Bjarni Ottósson, Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir, Þórhildur Jakobsdóttir og óþekktur.
Minjasafn 277
Gripur nr. 277. Snældustóll, viðarlitaður 29 cm langur, breidd 13,5 cm og 28 cm hár. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd. Björn var fæddur í maí 1897.
Minjasafn 408
Gripur nr. 408. Sex stykki smádiskar mismunandi í útliti.
Minjasafn 612 no2
Gripur nr. 612. Búðarkassi, svartur en skúffan er úr stáli og er krómuð. Handsveif á hliðinni. Takkarnir eru hvítir. Kassinn er ca 40 cm á hæð.
Minjasafn 62
Gripur nr. 62. Brúnn rammi með fimm myndum. Á myndinni eru: Jakobína, Snorri Gíslason, Albert Haraldsson, Jóhanna Thorarensen, Gísli Einarsson, Marta Guðmundsdóttir (óskírt - móðir Jóhanns Péturssonar frá Lækjarbakka).
Minjasafn 560
Gripur nr. 560. Járnskilti 31 x 23 cm. Á skiltinu stendur:"THE BABCOCK & WILCOX COMPANY. INTEGRAL-FURNACE BOILER" ásamt fleiru.
Minjasafn 632
Gripur nr. 632. Talsími - "skífusími". Drappaður með númeraskífu framan á. Skífan er rauð í miðjunni með tölustöfum í hring bæði á skífunni sjálfri og á plötunni undir henni. Símanúmerið 22704 er í litlu hólfu framan á símanum.
Minjasafn 188 no2
Gripur nr. 188. Mokkabollapör með grænsanseruðum bekk, gulllituð blöð og rósir í bekknum. Rósir innan í bollanum. (Ath. aðeins 1 bolli og ein undirskál) Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 228
Gripur nr. 228. Matardiskur, hvítur með bláum blómum, ummál 22,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Skagaströnd - safn416
Í áratugi var litla sundlaugin á Skagaströnd bara opin á sumrin en með tilkomu hitaveitunnar er hún nú opin allt árið. Hún var venjulega opnuð í byrjun maí því þá var skólasund í 2-3 vikur. Þessi mynd var tekin í byrjun maí 1995 en þá var sundlaugin mikið meira en full af snjó. Gripið var til þess ráðs að moka snjónum úr lauginni með gröfu og handskóflum en allra síðasti snjórinn var bræddur með því að úða vatni yfir hann. Sundkennslan hófst örlítið síðar en ætlað var en nemendur Höfðaskóla fengu sína sundkennslu þetta vorið eins og áður.
Minjasafn 29
Gripur nr. 29. Gleráhald/ílát. Ekki vitað til hvers þetta var notað en mögulega var það til að koma lyfjum í skepnur því það var í sama kassa og mortel (gripur nr. 15) sem notað var til að gera meðöl fyrir skepnur. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti 8. febrúar 1973.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
1
…
24
25
26
…
65
Leita í myndasafninu
Leita