Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 390
Gripur nr. 390. Gaffall beyglaður fremst en grænn litur hefur sest í beyglurnar (spanskgræna?).
Minjasafn 154
Gripur nr. 154. Blómahengi hnýtt, ljósbrúnt. Lengd 110 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn766
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Minjasafn 411
Gripur nr. 411. Járnstétt undan borðfánastöng. Þungur, þríhyrnings-/píramídalagaður, skreyttur með upphleyptum myndum s.s. af Íslandi, víkingaskipi, Maríu mey o.fl. Skrúfgangur er efst á stéttinni þar sem fánastöngin var skrúfuð á stéttina.
Minjasafn 67
Gripur nr. 67. Smellurammi með 11 litlum myndum af bátum/skipum.
Minjasafn695
Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) Rjúpnafelli á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1985.
Minjasafn 211
Gripir nr. 211. Sykurkar og rjómakanna úr hvítum leir, skreyting: gult blóm og græn lauf. Hæð 9 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 46
Gripur nr. 46. Lítil ljósmynd af Jóhönnu Benónýsdóttur frá Steinnýjarstöðum í ramma. Síðast var Jóhann búsett í Drangey á Skagaströnd.
Minjasafn 582
Gripur nr. 582. Trékistill (púlt), brúnmálaður. Aftast er hann ferhyrningslaga en svo koma tvær lamir sem eru fastar við lokið sem hallar niður fram. Stærð 42 x 51 x 17 cm. 9 cm þykkt frmast.
Minjasafn 43
Gripur nr. 43. Lítil portrett mynd af Nikulási Helgasyni bónda á Bakka.
Minjasafn 491
Gripur nr. 491. Stórt ullarteppi, brúnt, hvítt, grátt og munstrað.
Minjasafn 279
Gripur nr. 279. Mjólkurbrúsi, tekur 3 lítra. Hann er úr áli með loki og haldi. Merktur Skafti Fanndal. Öll heimili áttu sína mjólkurbrúsa undir mjólk. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Höfðaskóli069
Börn fædd 1989 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Baldur Magnússon kennari, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Þóey Fjóla Aradóttir, Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson.
Minjasafn 578
Gripur nr. 578. Stórt hallamál úr tré, 61 cm á lengd, 6 cm hátt og 3 cm á þykkt.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn009
Myndin var tekin á jóla-barnaballi í Höfðaskóla um jólin 1962. Konan fremst á myndinni er Laufey Sigurvinsdóttir frá Litla Bergi og dóttir hennar K.Hrönn Árnadóttir í ný saumuðum kjól. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 7 no2
Gripur nr. 7. Náttserkur úr hvítu lérefti, lagður með milliverkum yfir brjóst og axlir. Síður. Einnig milliverk framan á ermum, sem eru langar. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 54
Gripur nr. 54. Lítil mynd af Einari Jónssyni frá Óseyri á Skagaströnd í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 589 no2
Gripur nr. 589. Stór glær glerflaska með stút niður úr, víðust um miðjuna en endar í nokkurs konar trekt efst. Glertappi með haldi í trektinni. Tappi í stútnum neðst úr gleri og keramiki. Flaskan er í rauðu járn stativi en neðst á því er stétt úr hvítu gleri þar sem miðjan er laus lítil glerskál sem felld er ofan í stéttina. Á flöskunni stendur: " 1 ml alcohol amylique 20° C". Tapinn efst er brotinn. Hér er um einhvers konar rannsóknartæki að ræða sem gæti hafa verið notað á rannsóknarstofu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Minjasafn 365
Gripur nr. 365. Klukka. Lítil falleg klukka úr postulíni/leir, með blómaskreytingum framan á og gylltum ramma í kringum skífuna. Gylltir vísar. Innbyggð spiladós sem spilar hugljúfa tóna.
Minjasafn 234
Gripur nr. 234. Kökudiskur á fæti. Fótuinn er málaður blár (ekki stéttin). Tíglamunstur er í glerið á stéttinni og diskinum. Ummál disksins er 15 cm en stéttin er 9 cm. (Brotin) Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 490 no2
Gripur nr. 490. Hvít mjólkurkanna með upphleyptu munstri af blómum. Sprungin og skarð í efri brún.
Minjasafn 416
Gripur nr. 416. Margnota, rauður, plast- eggjabakki sem hægt er að loka utan um 12 egg.
Minjasafn 83 no2
Gripur nr. 83. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktri konu.
Minjasafn 550
Gripur nr. 550. Álspaði, steikingaspaði.
Minjasafn 488
Gripur nr. 488. Ljósapera - glópera - mjög stór, glær. Ummálið er 38 cm.
Minjasafn712
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Fólkið á myndinni er óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 317
Gripur nr. 317. Svört myndavél, 13 cm löng og 8 cm breið. Framan á vélinni stendur: <strong>Rowstart</strong>. Vélinni fylgir ljósbrún leðurtaska með ól. Gefandi fékk vélina í fermingargjöf árið 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 451
Gripur nr. 451. Lítið rautt box með gylltum stöfum. Í lokinu stendur: "Ólafur Sveinsson, Austurstræti 5, Reykjavík, Talsími 311". Í boxinu er ryðguð nál vafin í bómull.
Minjasafn700
Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) frá Háagerði (seinna Baldursheimi á Skagaströnd). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984.
Minjasafn 622
Gripur nr. 622. Áldunkur, bleikdrappaður á lit, ferhyrndur 23 cm á hæð.
Minjasafn 371
Gripur nr. 371. A3 plastmöppur tvö stykki. Nýlegar, sennilega verið keyptar fyrir skipulag á fornmununum. Vasarnir eru tómir á annarri. Rauðar á lit.
Minjasafn 625
Gripur nr. 625. "Skammbyssa" mjög gömul og mjög ryðguð. Gefandi: Magnús Blöndal, Skagaströnd í desember 1991.
Minjasafn 189
Gripur nr. 189. Tréreglustika 40 cm löng. Hún er úr ljósum viði 3 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 158
Gripur nr. 158. Kaffibox, hvítt merkt <strong>Coffee</strong> með blómamynd á. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1980.
Minjasafn 81
Gripur nr. 81. Brúnn rammi með mynd af Sigurði Sölvasyni kaupmanni. Gefandi: Birgir Árnason.
Minjasafn 236
Gripur nr. 236. Pipar- og saltstaukar úr glæru gleri með tíglamunstri. Stállok skrúfað ofan á. Hæð 11 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn727
Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Einar Jónsson , Óseyri á Skagaströnd f, að Illugastöðum á Vatnsnesi 27/1 1862 d. á Blunduósi?". </em>Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 23
Gripur nr. 23. Bólusetningarsprauta, umgerð úr járni með glerglasi og nál. Vantar í hana bulluna og járnið til að draga hana upp og ýta niður (bulluskaftið). (Varúð hún er ekki í öskju og nálin stendur út!). Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 331
Gripur nr. 331. Kaffibaukur málaður bleiklitur. Hæð 12 cm og þvermál 12 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd.
Skagaströnd - safn406
Viðbygging við leikskólann Barnaból formlega tekin í notkun í september 1994. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri flytur tölu í tilefni dagsins. Frá vinstri á myndinni eru: Halla Lýðsdóttir en dóttir hennar Þórey Fjóla Aradóttir stendur við hlið hennar með blómaspöng í hárinu. Sonur Höllu, Guðjón Örn Arason, situr fyrir framan mömmu sína í skrautlegu vesti. Bára Þorvaldsdóttir þáverandi leikskólastjóri heldur um axlir Bergrósar Hafsteinsdóttur fyrir framan sig. Svandís Hannesdóttir er næst en framan við hana er Arnrún Finnsdóttir. Vilhelm Harðarson stendur í horninu og framan við hann er dóttir hans, Ástrós Vilhelmsdóttir og tvö óþekkt börn. Ragnar Ingvarsson er með son sinn Alexander Ragnarsson í fanginu og síðan koma Ingólfur Bjarnason og Magnús B. Jónsson. Jensína Lýðsdóttir er konan í rauðu blússunni og framan við hana er Patrik Bjarnason sonur hennar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn714
Guðmundur Kr. Guðnason (d 21.11.1988) frá Ægissíðu, póstur, ljósmyndari og kirkjuáhugamaður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 569
Gripur nr. 569. Útvarp, lítið brúnt að lit. Bakið er farið af og "innvolsið" er sýnilegt en er laust í.
Minjasafn 526
Gripur nr. 526. Brúnleitur blómavasi/glas úr gleri á hvítum fæti.
Minjasafn 580
Gripur nr. 580. Lítil græn "Facit" reiknivél, handknúin.
Minjasafn 370 no3
Gripur nr. 370. Tvær mjólkurflöskur úr glæru gleri. Á annarri stendur: Mjólkursamsalan 1. En á þeirri minni, sem er alveg eins, stendur: Mjólkursamsalan 1/2.
Minjasafn 359
Gripur nr. 359. Myndavél. "Braunoptik" stendur á linsunni. "Imperial" stendur framan á henni. Svört á litinn. Brún leðurtaska fylgir með.
Minjasafn 45
Gripur nr. 45. Mynd frá Haukagili í Borgarfirði tekin sumarið 1884. Fólkið á myndinni er ekki þekkt. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 462
Gripur nr. 462. Tertuhnífur? úr glæru plasti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 170
Gripur nr. 170. Kertastjaki, sem er með svanshöfuð framúr og vængi til hliðar. Lengd 21 cm. Stendur svanurinn á smá stétt og er kertastjakinn úr gulllituðum málmi (látúni ?). Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Álftamýri 40, Reykjavík. Hún er móðir Salóme Jónu Þórarinsdóttur Lundi Skagaströnd. Gefið í júlí 1994.
Minjasafn751
Hjónin Jón Pálmason (d. 1.2.1973) þingmaður frá Akri og konan hans Jónína V. Ólafsdóttir (d. 3.1.1980). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Mindasafn 209
Gripur nr. 209. Skeifuhitamælir. Mælirinn er inni í skeifunni sem er grænleit með gylltum tökkum (hausar á hóffjöðrunum). Hæð 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd,
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn086
Líklega hefur þessi mynd verið tekin í sumarferðalagi starfsfólks Hólaness hf einhverntíma á áttunda ártugnum. Ekki er vitað hvar þessi reisulegi sveitabær er en fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna Sjöfn Jónasdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 397
Gripur nr. 397. Stutt reipi með silgjum á sitthvorum enda. (Gætu verið gjarðishringir?)
Minjasafn 255
Gripur nr. 255. Fantur, lítill úr hv´tum leir. Hæð 6 cm en ummál 3,5 cm. Úr Brautarholti frá Ólafi Guðmundssyni.
Minjasafn 109
Gripur nr. 109. A: Fantur úr ljósbeis lituðum leir, hæð 11 cm , breidd 7,5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994. B: Fantur´ljósbeis litaður leir, hæð 14 cm. Ekki vitað um gefanda.
Minjasafn 304
Gripur nr. 304. Svunta ísaumuð í hvítt léreft. Handfölduð með drapplituðu garni. Þrjár blómamyndir saumaðar neðst á kantinn á svuntunni. Band er á smekknum yfir hálsinn en smekkurinn er þríhyrndur. Blóm eru saumuð í spíssana og á brjóst. Hæð 70 cm en 64 cm breiðust. Var saumuð af gefanda árið 1939. Gefandi: Ingiríður Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd í júní 1982.
Minjasafn 602
Gripur nr. 602. Skrifpúlt með lokuðu hólfi undir. Skúffulaga, málað myntugrænt. 13 cm þar sem það er dýpst, 38 cm langt og 39 cm breitt. Er með skráargati.
Minjasafn 539
gripur 539. Tveir hraunhnullungar úr Heimaeyjargosinu 1973. Misstórir.
Minjasafn 463
Gripur nr. 463. Margnota plast-eggjabakki, sem hægt er að loka, gulur á lit. Hýsir 6 egg.
Minjasafn 547
Gripur nr. 547. Trésleif 36 cm á lengd.
1
…
26
27
28
…
65
Leita í myndasafninu
Leita