Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Mannvirki

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 650
Gripur nr. 650. Vigt úr stáli og áli, rauð á litinn, orðin allmikið ryðguð. Vigtar allt að 10 kg.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn002
Þessi mynd var tekin á jólaballi barna í Höfðaskóla senilega um jólin 1962. Fullorðna fólkið á myndinni er frá vinstri: Þórarinn Guðlaugsson (d.?), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d. 6.3.2007), óþekkt, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Jensína ?, frá Brandaskarði (d. ?) og Guðrún B. Árnadóttir (d.?) sem leiðir son sinn Ólaf Ingibjörnsson. Aðrir eru óþekktir en ef þú veist meira um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 364
Gripur nr. 364. Pressujárn. Kassi eingöngu með pressujárn og fylgihlutum.
Minjasafn792
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip: "Höfðaborg Hu 10. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919. Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti togarinn sem Skagstrendingar eignuðust. Skipið hét Belgaum RE 153 þegar það var keypt til Skagastrandar í nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f. Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu. Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina dekklekanum fram á gólfið. Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar en árangur varð ekki mikill. Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í maímánuði 1955." Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
Minjasafn 138

Gripur nr. 138. Sex brýni ýmsar gerðir, sum mikið notuð, einnig grjótbrýni. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.

Minjasafn 346
Gripur nr. 346. Púði, ofið púðaborð, litir gult, grænt og karrýgult. Breiður bekkur eftir miðju, mjórri til sitt hvorrar hliðar. Ofið af Guðríði Ólafsdóttur. Á bakinu er mynd af dansandi pari, dýri, húsi, tré og fleiru. Utan um er flauelskantur, brúnn. Stærð 54 x 39 cm. Var í eigu Guðríðar Ólafsdóttur frá Höfðahólum, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 511
Gripur nr. 511. Skrautplatti. Sagaður út og límdur saman þannig að hann myndar tvö kirsuber/jarðaber. Plattinn er úr tré, dökkbrúnn.
Minjasafn 293

Gripur nr. 293. Kaffihitakanna, Termos, er til að halda heitu. Kannan er lítil, svört að neðan og hvít að ofan. Tappinn svartur. Blátt límband er á haldi. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.

Minjasafn 74
Gripur nr. 74. Brúnn rammi með mynd af áhöfn á skipi. Skipið heitir Skröyfa. Gefandi: Helga Berndsen á Skagaströnd 6. maí 1996.
Minjasafn 603
Gripur nr. 603. Stór brún kista með stóru skrauti kringum skráargatið. Laus fjöl í botni. Lokið er laust af hjörunum. Höld á hliðunum. Kistan er 38 cm djúp, 68 cm breið og 37 cm löng.
Minjasafn 328
Gripur nr. 328. Skátahnífur stállitaður með smá haki í fyrir ofan miðju. Hnífurinn er mjög þunnur. Lengd 19 cm. Þessi hnífur var notaður í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Eigandi hnífsins var Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 461
Gripur nr. 461. Tvö stykki fléttaðar körfur. Önnur er brún en hin er máluð græn.
Minjasafn 193
Gripur nr. 193. Fiskispaði úr járni með tréhaldi. lengd 36 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn702
Horfið hús, Ólafsvellir þar bjó lengi Jón Ólafsson. Stjórnsýsluhúsið í baksýn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1988 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 259
Gripur nr. 259. Glerbakki úr glæru gleri 10 x 10 cm með raufamunstri á hliðunum. Kemur úr búi Ólafs Guðmundssonar fá Brautarholti.
Minjasafn 125
Gripur nr. 125. Mynd af tjörninni í Reykjavík í brúnum viðarramma. Hæð 19 cm og breidd 24 cm. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í ágúst 1994.
Minjasafn 470
Gripur nr. 470. Lillu ediksýra, banvænt óblandað. Tappinn er bleikur. Enn er vökvi í glasinu.
Minjasafn 383
Gripur nr. 383. Hvítur platti með gulum blómum. Áfastir eru þrír snagar - voru eitt sinn fjórir.
Minjasafn 280 no2
Gripur nr. 280. Lyklahús sem er eins og skápur og er skrárgat í miðju framan á. Lyklahengikrókar eru inni í skápnum og eru tvær hurðir á lömum á framhlið. Skápurinn er úr brúnum við. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 636
Gripur nr. 636. Skrautplatti með upphleyptri mynd af púðluhundi sem stendur á afturfótunum.
Minjasafn 379
Gripur nr. 379. Mynd í ramma af móður og dóttur. Myndin er mjög máð og er í ramma sem er koparlitaður.
Minjasafn 637
Gripur nr. 637. Flaska úr leir/postulíni. Hvít en er mjög skítug. Líklega var einu sinni í henni korktappi en ekki nú. Flaskan er 16 cm á hæð.
Minjasafn 335
Gripur nr. 335. Kartöflustappari með grænu tréhaldi. Lengd 23 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétrusson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 655
Gripur nr. 655. Ryksuga, blá með álskafti. Geyminn er kúlulaga og stendur á fæti, engin hjól.
Minjasafn 573 no2
Gripur nr. 573. Útvarp. Stórt með gulleitri grind . Svart með brúnum hliðum.
Minjasafn 374
Gripur nr. 374. Smellurammi ónotaður. Er enn í pakkningunni en glerið er brotið.
Minjasafn 605
Gripur nr. 605. Koffort/taska úr tré. Er með haldi og ryðgaðri járnlæsingu. Járnhlífar eru á hornunum á lokinu að framan.
Minjasafn 617
Gripur nr. 617. Gömul plaköt sem auglýsa Kántrýbæ.
Minjasafn 94
Gripur nr. 94. Gylltur rammi með Lions Club skírteini Guðmundar Guðnasonar.
Minjasafn 387
Gripur nr. 387. Lítill pappakassi með íhlutum úr einhvers slags snúningsvél. Á henni stendur "Spin - fix". Tveir silfurmálaðir bútar/völur voru með í kassanum.
Minjasafn 373
Gripur nr. 373. Tvö stykki ónotaðir rammar. Rammarnir eru viðarbrúnir með gyllingu yst. Átta form fyrir smámyndir eru í hvorum ramma. E.t.v. verið keyptir fyrir skipulag á fornmununum.
Minjasafn 538
Gripur nr. 538. 11 stykki tré-þvottaklemmur af gamla laginu.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn092
Frá Kúvíkum í Reykjarfirði syðri á Ströndum.
Minjasafn 92
Gripur nr. 92. Brúnn rammi með gylltum útlínum. í rammanum er mynd af kvenfélagskonum úr kvenfélaginu Eining og kvenfélaginu Heklu.
Minjasafn698
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) sitjandi á tröppunum heima hjá sér að Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984
Minjasafn 453
Gripur nr. 453. Líklega skurðarbretti úr ljósum við. Þrír svartir blettir eru á brettinu, sennilega brunablettir.
Minjasafn 353
Gripur nr. 353. Lítill hvítur tappi með járnfestingu, fyrir flösku.
Minjasafn 108

Gripur nr. 108. Stór glerflaska, one gallon, glær, hæð 31 cm, breiðust utan um. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.

Minjasafn 441
Gripur nr. 441. Lítil hvít kanna úr postulíni. Haldbrotin. Rauð lína með blómamunstri á miðri könnu og gylltar rendur með efri brún og neðan við miðju.
Minjasafn 72
Gripur nr. 72. Brúnn rammi með fjórum myndum. Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir og þrjár myndir um borð í Skíða Hu.
Minjasafn742
Björn Þorleifsson (d. 26.5.1956). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 372
Gripur nr. 372. Þrjú stykki rauðar úrklippubækur. Nýlegar, e.t.v. verið keyptar undir skipulag á fornmununum. Bækurnar eru tómar, þ.e. engar úrklippur í þeim.
Minjasafn 361
Gripur nr. 361. Sykurkar úr gleri. Glært með blárri slikju. Er með haldi. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 148
Gripur nr. 148. Vatnskranar. Tveir úr kopar og einn úr stáli. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 541
Gripur nr. 541. Tvær skeifur, gamlar og mjög ryðgaðar.
Minjasafn 144
Gripur nr. 144. Hald af kommóðu, gylt 8,5 cm langt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Minjasafn 63
Gripur nr. 63. Stór mynd af litlum torfæ. "Drottirnn blessi heimilið".
Minjasafn 369

Gripur nr. 369. Kökubox gamalt, stendur Tivoli á lokinu. Boxið er rautt en lokið er glært. Boxið er fullt af smáhlutum svo sem: belti, lítil skinnklípa með feldi, innstunga af gömlu gerðinni o.fl. Mögulega úr geymslu húsmóður?

Minjasafn 292
Gripur nr. 292. Kaffihitakanna. Stállituð með svörtum tappa, haldi og botni. Úr búi Sigríðar Björnsdóttur og Hrólfs Jakobssonar. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 522
Gripur nr. 522. Handsmíðuð berjatína úr tré með stálgöfflum.
Minjasafn 494
Gripur nr. 494. Kökudiskur. Hvítur með blómaskreytingu í botni. Rimlaður á brúnum. Diskurinn er brotinn en brotin fylgja með þannig að hægt er að líma hann saman aftur.
Minjasafn 572
Gripur nr. 572. Útvarp. Brúnt, stórt með gulleita grind.
Minjasafn 295
Gripur nr. 295. Borðdúkur 76 x 74 cm. Dúkurinn er saumaður í hvítt léreft. Dregnir hafa verið þræðir úr léreftinu í þrjá bekki yst í dúknum. Hann er saumaður með nokkurs konar harðangri og klaustursaum. Fjórar dúllur eru heklaðar og saumaðar í hvert horn. Þessi dúkur er hreinasta listaverk.
Minjasafn699
Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum til vinstri og Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík á sjómannadegi 1985 eftir að hafa hlotið heiðurmerki sjómannadagsins. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd.
Minjasafn 34
Gripur nr. 34. Derhúfa. Tvær derhúfur, hvítar með bláu merki framan á merkt með fiski og stöfunum S og H (Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna?)
Minjasafn 80
Gripur nr. 80. Brúnn rammi með gylltum hornum með mynd af Árna Svanberg frá Kambakoti. .
Minjasafn 556
Gripur nr. 556. Gler eða postulínsplatti með mynd af Húna II Hu 2 með Spákonufell í baksýn. Aftan á plattanum eru dálitlar upplýsingar um Húna.
Minjasafn 478
Gripur nr. 478. Prjónuð skotthúfa. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Skagaströnd.
Minjasafn 237
Gripur nr. 237. Sykurkar úr glæru gleri, munstrað. Karið er ílangt og stendur á stétt. Lengd 13 cm, breidd 6,5 cm og hæð 7,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 537
Gripur nr. 537. Ál-kaffikanna með svörtu haldi og svartan hnapp á lokinu, sem er fest við könnuna með löm.
1

27
28
29

65
Leita í myndasafninu
Leita