Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 150
Gripur nr. 150. Vasapeli undan víni, kringlóttur. Brúnn á litinn með hvítu staupi, sem tappa. Hæð 14 cm. Líklega úr eigu Kristmundar Jakobssonar og gæti verið frá 1930 - 1940. Var í Ásbergi. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd 1994.
Minjasafn 143
Gripur nr. 143. Gjarðishringjur fimm stykki. Ein köntuð, tvær litlar og þrjár rúnnaðar. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 76
Gripur nr. 76. Mynd af es Laura á strandstað 1910 í gylltum ramma. Einnig er annað skip á myndinni.
Minjasafn 270
Gripur nr. 270. Glerskál, kínversk með brúnum barmi og mynd af fólki og blómum um allan bekk. Særð 10 x 10 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 479
Gripur nr. 479. Pappakassi/box sem geymir "skemmtilegt dót" sem fannst í skúffu í borði hjá Fritz Magnússyni.
Minjasafn 510
Gripur nr. 510. Nálapúði á platta. Plattinn er úr ljósum við, fallega útsagaður. Púðinn er dökkrauður og geymir tvær saumnálar.
Minjasafn 51
Gripur nr. 51. Lítill viðarrammi, rauðbrúnn eins og A í laginu. Í rammanum er mynd af óþekktum manni (Sigurður Guðmundsson frá Laufási?).
Minjasafn 419
Gripur nr. 419. Hefill, smíðaður úr tré.
Minjasafn 442
Gripur nr. 442. Glær plastpoki sem geymir allskonar saumnálar.
Minjasafn 415
Gripur nr. 415. Mjólkurpokahaldari úr plasti, lítill hvítur á litinn.
Minjasafn 561
Gripur nr. 561. Flökunarhnífur. Skaftið svart úr plasti, blaðið mjög mjótt af mikilli notkun og brýningum.
Höfðaskóli023
Börn fædd 1979 í 7. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn 418
Gripur nr. 418. Falshefill úr tré.
Minjasafn 551
Gripur nr. 551. Upptakari. "Canada dry" er meitlað í hann. Álupptakari til að opna flöskur með áþrykktum tappa.
Minjasafn 438
Gripur nr. 438. Húfa úr eigu Fritz Magnússonar.Gömul húfa, blá með festingu undir höku. Mögulega gömul reiðhúfa.
Minjasafn 33
Gripur nr. 33. Tóbaksdolla, gömul og mjög ryðguð. "Skorið tóbak" stendur á henni.
Minjasafn 593
Gripur nr. 593. Stálketill af gamla laginu, mjög ryðgaður. Var hitaður á hellu og/eða yfir eldi. Gæti líka hafa verið smurkanna undir smurolíu. Er eins og gripur nr 592 (mynd 7875) en minna ryðgaður en hann.
Minjasafn 239
Gripur nr. 239. Kökudiskur með eyrum, hvítur. Blóm eru á þrem stöðum. Græn rönd á barmi. Ummál 27 cm, lengd 31 cm. Keyptur hjá Hafsteini Sigurbjarnarsyni í Reykholti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1992.
Minjasafn795
Manni KE 99. Stærð 72 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í V- Þýskalandi. Vél MWM - Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn770
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fyrir miðri mynd spjalla þeir saman, Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði til hægri og Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) frá Eyri/Holti til vinstri. Aðrir á myndinni eru óþekktir en húsið til hægri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Lengra frá sér í Bjarmanes.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Minjasafn 559
Gripur nr. 559. Kökukefli úr ljósum viði. Höldin er laus - brotin af.
Minjasafn 454
Gripur nr. 454. Bakki úr tré. Brúnir eru málaðar dökkbrúnar. Þrír svanir, sem eru að hefja sig til flugs, málaðir fyrir miðju.
Minjasafn 420
Gripur nr. 420. Handbor úr járni eins og "T" í laginu. Lárétti hluti "T-sins" var handfangið á bornum .
Mindasafn 197
Gripur nr. 197. Súkkulaðikanna, hvít með gulum hringjum og krækjum endurtekið alla könnuna. Rauð ber inni á milli. Vantar lokið. Hæð 16 cm. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982 en þá var kannan 60 ára.
Minjasafn676
Á myndinni eru hjónin á Lækjarbakka með dótturdóttur sína á milli sín. Frá vinstri: Marta Guðmundsdóttir, Marta Pálsdóttir og Pétur Stefánsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannasdóttir Læjarbakka, Skagaströnd 20. febrúar 1995.
Minjasafn694
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) í Höfðatúni á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni austan við hafnarvogina. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992.
Minjasafn 421
Gripur nr. 421. Spariskór Stefáns bónda Ágústssonar Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Minjasafn683
Þessi mynd var tekin af Pétri H.J.Jakobssyni af síldarlöndun á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gáfu hjónin Jónas Tryggvason og Þorbjörg Bergþórsdóttir á Blönduósi.
Minjasafn 669
Gripur nr. 669. Teppahreinsir með löngu skafti. Hellt er sápu og vatni í hólfið og síðan rúllað eftir teppinu. Græn - blátt og skaftið hvítt. Sápugeymirinn gulnaður.
Minjasafn790
Helga Björg Hu 7 var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013), Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998) og Gylfa Sigurðssonar sem gerðu bátinn út frá Skagaströnd í mörg ár. Helga Björg liggur utan á Húna II sem var seinna gerður upp og á nú heimahöfn á Akureyri og er þar m.a. notaður til að fara ferðir um Eyjafjörð með Ferðamenn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í ágúst 1995.
Minjasafn 468
Gripur nr. 468. Lítið pappabox sem merkt er: "Jólakerti" með rauðum stöfum. Einnig er mynd af stúlku með rauðu bleki. Hugsanlega áttu kertin í grip nr. 443 að fylgja með.
Minjasafn 640
Gripur nr. 640. Tveir kúlulaga ljósakúplar úr hvítu gleri.
Minjasafn 524
Gripur nr. 524. Sósukanna, dröppuð með gullrönd um miðjuna og aðra mjórri með barminum.
Minjasafn 430
Gripur nr. 430. Járnbox notað undir rakvélablöð. Á lokinu stendur, upphleypt: "ROYALITY".
Minjasafn 484 no2
Gripur nr. 484. Dúkar af ýmsum stærðum. Gefandi: Hildigunnur Jóhannsdóttir Stórholti, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn674
Aftan á þessari mynd stendur: "<em>Sigurður Jónsson frá Eivindarstöðum"</em>. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd.
Minjasafn 38
Gripur nr. 38. Hlutabréf í Eimskipafélagi Íslands í ramma. Teikning eftir listamanninn Samúel Eggertsson.
Minjasafn692
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd 1959 eða 1960. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn 564
Gripur nr. 564. Ýmsir lyklar sem fundist hafa hér og þar.
Minjasafn 243
Gripur nr. 243. Skónál. Var notuð til að brydda sauðskinnsskó. Er spísslöguð fram. Lengd 5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í mars 1995.
Minjasafn 314
Gripur nr. 314. Skæri, sérstaklega blaðlöng, stállituð. Lengd 30 cm. Eigandi var Guðríður Ólafsdóttir frá Höfðahólum á Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 41
Gripur nr. 41. Lítil portrett mynd af manni. Hann er með yfirvaraskegg og röndótt bindi. Ekki er vitað af hverjum myndin er.
Minjasafn 518
Gripur nr. 518. Djúpur, hvítur diskur með breiðri bleikri rönd með barminum. Í botninum er mynd af fólki í rómantískum stíl.
Minjasafn710
Líklega var þessi mynd tekin af Skagaströnd árið 1947 eða 1948. Kolabingur er í kolaportinu við hlið kaupfélagsins, verið að reka niður stálþilið við Skúffugarðinn og verið að bræða síld miðað við að það rýkur úr skorsteininum. Karlsminni og Viðvík er gömlu bæirnir sem standa fyrir miðri víkinni og bátarnir liggja í fjörunni og bíða þess að vera ýtt á flot eitt sumarið enn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd. Gefandi: Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 176
Gripur nr. 176. Skrautskál úr leir. Hún er með tveimur eyrum. Aðallitur er dökk brúnn en í botninum græn og grænblá röndótt. Er orðin smásprungin. Skálina fékk gefandi árið 1945. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 607
Gripur nr. 607. Koffort/ferðataska sem eitt sinn var svört en er nú aflituð brún-grá. Haldið er málað rauðbrúnt. Ryðgað hlífðarjárn á öllum hornum. Tvær litlar læsingar sitthvoru megin við haldið. Taskan er illa farin og rifinn á botninum.
Minjasafn 68
Gripur nr. 68. Smellurammi með níu myndum af byggingum.
Minjasafn771
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Myndin er þó frá höfninni þar sem nokkrir sjómenn eru á spjalli um borð í bátum sínum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. </p>
Minjasafn 131
Gripur nr. 131. Stálsmellur á bláu pappaspjaldi. Gefandi: Elínborg Guðmundsdóttir Blönduósi í september 1993.
Höfðaskóli008
Hér sitja saman á kennarastofu Höfðaskóla eftir vel unnið verk, frá vinstri talið: Björn Sigurðsson, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Svava Magnúsdóttir og Árný Elfa Helgadóttir. Myndin var sennilega tekin um 1990.
Höfðaskóli027
Börn fædd 1982 í 1. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Í aftari röð eru frá vinstri: Karen Peta Karlsdóttir, Hafsteinn Auðunn Björnsson, Ólafur Guðmundsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Sveinþór Ari Arason. Fremri röð frá vinstri: Magnús Árni Hallgrímsson, Ásdís Lýðsdóttir, Andri Þór Ómarsson, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Erla Björgheim Pálsdóttir og Vilborg Magnúsdóttir kennari.
Minjasafn 249
Gripur nr. 249. Mjög fallegt bollapar. Hvítt á litinn myndskreytt rauðum blómum og gyllingu á brúnum bollans og undirskálarinnar. "September" er skrifað með gylltu innan í bollann.
Skagaströnd - safn359
Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) tilbúin í kaffisölu á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991.
Minjasafn 188
Gripur nr. 188. Mokkabollapör með grænsanseruðum bekk, gulllituð blöð og rósir í bekknum. Rósir innan í bollanum. (Ath. aðeins 1 bolli og ein undirskál) Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn687
Starfsmenn á síldarplani á Skagaströnd líklega 1938. Fremri röð frá vinstri: Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Guðjón Einarsson (d.?) Harrastöðum, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) Höfðakoti, Björn Jónsson (d.?) Brúarlandi og Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) Réttarholti (seinna Flankastöðum). Aftari röð frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Árnesi (seinna Sunnuhvoli), Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Brúarlandi (seinna Bjarmalandi), Hartmann Jóhannesson (d. ?) Garði, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) Vík, barn e.t.v. Ásta Kristjánsdóttir?, Kristján Ebenesarson (d. ?) verkstjóri, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) Lækjarbakka og Þormóður Óskarsson (d. ?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar og var gefin þangað af Kristófer Árnasyni.
Minjasafn 178
Gripur nr. 178. Kýrhornslampi, stendur á brúnni viðarstétt, sem er útskorin. Stafirnir ÍJ eru á einni hliðinni og munstri á öðrum hliðum. Smíðaður af Henning Finnbogasyni Akureyri þegar hann var 13 ára og er kýrhornið af Skjöldu gömlu í Skrapatungu. Henning smíðaði lampann fyrir Ingibjörgu húsfreyju á Skrapatungu. Lampinn er með gulum skermi. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn095
Höfðaskóli eins og hann leit út áður en byggt var við hann um og uppúr 1980. Skólinn var tekinn í notkun í þessari mynd haustið 1958 og þótti gífurleg farmför frá gamla skólanum eða Bjarmanesi, þar sem nú er rekið kaffihús.
Minjasafn 320
Gripur nr. 320. Mynd í silfurlitum tréramma. Á myndinni er skjöldótt kýr. Efst stendur: <strong>Alfa Laval.</strong> Þessi mynd var ávalt á Læjarbakka og er orðin mjög gömul. Hún var úr búi Mörtu og Péturs á Lækjarbakka. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 507
Gripur nr. 507. Lítið járnsigti.
Minjasafn693
Mæðgurnar Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) sitjandi í tröppunum við heimili sitt að Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en hún var tekin 1986.
1
…
28
29
30
…
65
Leita í myndasafninu
Leita