Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 357
Gripur nr. 357. Ósamsett fata úr tré. ca 30 - 40 cm á breidd. Lítur út eins og tunna af gamla laginu með járngjörðum utan um sig en er aðeins ca 20 cm á hæð.
Höfðaskóli016
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 1991 - 1992. Nöfn fólksins eru í myndinni. Á þessum tíma var Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri.
Minjasafn 670
Gripur nr. 266. Sósukanna með sama munstri og gripur 268 (mynd nr. 7593). Með bláum rósum og bekk, orðin ljót að innan og dálítið sprungin á annarri hliðinni. Úr búi Björns Helgasonar Efra Læk á Skagaströnd.
Minjasafn 218
Gripur nr. 218. Ljósmynd af Guðjóni Ingólfssyni sem bjó í Grund. Hann var fæddur á Fjalli á Skaga. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 217
Gripur nr. 217. Kökudiskur úr reyklituðu gleri, víkkar út á barminum. Barmurinn bylgjast. Munstur: tígulmunstrað. Breidd/þvermál 18 cm. Gefandi fékk diskinn á basar hjá kvenfélaginu Einingu. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 443
Gripur nr. 443. Þrjú stykki græn, snúin skrautkerti.
Minjasafn 664 JPG
Gripur nr. 664. Flaska, líklega mjólkurflaska. Er úr gleri og er með rauðan tappa úr plasti - smellutappa. 29 cm á hæð.
Minjasafn 514
Gripur nr. 514. 11 stykki matardiskar, grunnir. Blá rönd á kantinum og tvær gullrendur örlítið innar.
Minjasafn 242
Gripur nr. 242. Skrautskál ílöng úr brenndu gleri (brotin).
Minjasafn 53
Gripur nr. 53. Brúnn rammi sem geymir tvær myndir af systkinunum Birni Ólafssyni og Björgu Ólafsdóttur frá Árbakka. Gefandi: Helga Berndsen.
Minjasafn741
Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 566
Gripur nr. 566. Rakhnífur svartur á lit. Er í svartri pappaöskju. "Gustav Felix Solingen" stendur á öskjunni.
Minjasafn719
Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) Sóllundi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 464
Gripur nr. 464. Hvít undirskál, emaleruð með blárri rönd við kantinn. Skálin er frekar djúp og hefur mögulega verið notuð sem, öskubakki.
Minjasafn 22
Gripur nr. 22. Hárklippur með kambi. Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti Skagaströnd
Minjasafn733
María Birgitta Berndsen (d. ?). Aftan á þessari mynd stendur:<em> "María Birgitta Berndsen 01.1940. Gef. Helga Berndsen Karlsskála".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 509
Gripur nr. 509. Kefli úr tré með svörtu garni vöfðu á.
Minjasafn 615
Gripur nr. 615. Reiknivél, ljósgrá á litin. Er merkt "FACIT". Með svörtum og rauðum tökkum. Tengist rafmagni.
Minjasafn 666
Gripur nr. 666. Dúkka úr plasti. Vantar á hana handleggina og það er hola inn í magann á henni. Svarthærð og í hvítum skóm.
Minjasafn 196 no2
Gripur nr. 196. Vaskafatakanna frá servanti. Vaskafatið er brotið. Kannan er hvít með rauðum rósum og grænum blöðum á miðri könnu. Hæð 29 cm og ummál 58 cm. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1990.
Minjasafn 459
Gripur nr. 459. Stór, drapp - brúnn diskur.
Minjasafn686
Síldarsöltun á bryggjunni á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndina tók Pétur H.J. Jakobsson en hún er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, gefin af hjónunum Jónasi Tryggvasyni og Þorbjörgu Bergþórsdóttur á Blönduósi.
Minjasafn 253
gripur nr. 253. Mjólkurkanna úr hvítum leir. Er með bláum rósum og einnig er blátt efst á barminum. Hæð 19 cm. Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd og átti móðir hennar könnuna. Gefin í júlí 1994.
Minjasafn 402
Gripur nr. 402. Kassi 19 hefur að geyma fornminjar sem eru óskráðar og þurfa því fagfræðilega greiningu.
Minjasafn767
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Tunnurnar á myndinni hafa líklega verið notaðar í tunnuboðhlaupi sem var lengi einn af föstum viðburðum á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Minjasafn762
<p>Aftan á þessari mynd stendur: <em>"M/b Farsæll ca 6 tonn. Árni Guðmonsson og synir áttu bátinn. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996"</em>. Líklega er myndin af Farsæli St 42 sem eigendurnir fluttu með sér þegar þeir fluttu til Skagastrandar frá Strandasýslu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.</p>
Minjasafn 27
Gripur nr. 27. Mynd af Hallgrími Ottóssyni í brúnum ramma.
Minjasafn 403
Gripur nr. 403. Lítið sigti úr áli. ca 10 cm á breidd.
Minjasafn 348
Gripur nr. 348. Hengilás, brúnleitur, ryðgaður.
Minjasafn 413
Gripur nr. 413. Tréaskja sem eitthvað er sett ofan í og síðan er tréplata, sem fylgir með og passar innan í kassann, sett ofan á og þrýst niður með prikinu sem fylgir. Gat er á botni öskjunnar fyrir miðju en þar hefur eitthvað verið kreyst út úr öskjunni. (Skyrpressa?).
Minjasafn 393
Gripur nr. 393. Lítill plastpoki með gömlum lúðukrókum, úr eigu Brynjólfs?. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Minjasafn 339
Gripur nr. 339. Ermahnappar. Annar er kantaður með hvítri plötu, sem er sanseruð. Lengd 2 cm og breidd 1,3 cm. Hinn hnappurinn er sporöskjulagaður með hvítri perlu á. Lengd 2 cm. Líklega úr eigu Magdalenu Helgadóttur Efri-Læk (d. 1954). Fannst í kommóðu frá Efri-Læk (1994). Kommóðan kom líklega í safnið 1978.
Minjasafn 152
Gripur nr. 152. Hárklippur tvö stykki járnlitaðar. Jón Sumarliðason , eiginmaður gefanda, notaði klippurnar en hann gerði mikið af því að klippa menn. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn680
Á þessari mynd eru hjónin Guðný Þorvaldsdóttir (d.5.10.1953) og Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) Viðvík, Skagaströnd og sonur þeirra Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) sem stendur á milli þeirra. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 662
Gripur nr. 662. Hvít derhúfa frá Hólanesi hf.
Höfðaskóli054
Börn fædd 1988 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Ívar Gylfason, Guðmundur Lárus Guðmundsson, Óðin Örn Sævarsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason og Jón Atli Magnússon. Miðröð frá vinstri: Guðmundur Kristinn Oddsson kennari, Valgerður Guðmundsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Ómar Ingi Ómarsson, Björgvin Matthías Hallgrímsson og Sindri Jóelsson.
Höfðaskóli001
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla líklega 2005 eða 2006. Einar Sigurbergur Arason kennari afhendir nemendum sínum, sem fæddir voru árið 1997, einkunnir sínar eftir veturinn. Nemendurnir eru, frá vinstri: Gunnþór Kristjánsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Aron Breki Hjartarson, óþekktur, Róbert Björn Ingvarsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, tvær óþekktar stúlkur og Halldóra Guðmundsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 506
Gripur nr. 506. Tvö stykki útskornar skeiðar úr beini/horni. Önnur er matskeið en hin er teskeið.
Minjasafn 71
Gripur nr. 71. Brúnn rammi með sex portrett myndum af fólki og einni mynd af Höfðahólum á Skagaströnd.
Minjasafn 233
Gripur nr 233. Kökudiskur, hvítur, ílangur með blárri rönd og merkt: Jöklar h/f (skipafélaginu). Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 444
Gripur nr. 444. Ljósbrún axlabönd, úr leðri/rússkinni, af gamla laginu.
Minjasafn 466
Gripur nr. 466. Steinkola. Fannst í uppgreftri á bænum Spákonufelli árið 1965. Líklega frá 12. - 13. öld. Gefandi: Kristján Hjartarson Grund, Skagaströnd í maí 1977.
Minjasafn 477
Gripur nr. 477. Pappakassi með hnífapörum, pískara og eggjaskera.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 347
Gripur nr. 347. Hengilás. "L...L Secure self acting sprung Lock " stendur framan á lásnum.
Höfðaskóli018
Börn fædd 1984 í 2. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn 175
Gripur nr. 175. Skeljakassi 20 cm langur og 14 cm breiður. Á kassann eru límdar skeljar og kuðungar. Aðallitur á kassanum er brúnn.
Minjasafn 378
Gripur nr. 378. Mjög gamall og fúinn spegill. Ramminn utan um hann er úr tré o er brún/grænleitur með útskornu munstri.
Minjasafn 588
Gripur nr. 588. Lukt botninn er stállitaður og skermurinn grænn. Er með löngu haldi. Ca 35 cm á hæð.
Minjasafn 244
Gripur nr. 244. Klukka í brúnum viðarkassa. Máluð gyllt á framhlið. Á klukkunni eru rómverskar tölur. Var í eigu móður gefanda (Kristínar Jónsdóttur). Gefandi telur að klukkan sé síðan fyrir aldamót (1898). Klukkan stendur á smá stétt. Lykillinn fylgir með. Breidd 17 cm og 30 cm á hæð. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í júní 1980.
Minjasafn757
Um þessar mundir (mars 2023) eru tæp 62 ár síðan óhugur og sorg ríkti meðal fólks á Skagaströnd. Ástæðan var að bræðurnir Hjörtur Hjartarson, sem er til vinstri á myndinni, og Sveinn Hjartarson frá Vík fórust í sjóróðri á Húnaflóa á bát sínum Skíði Hu 8, 22. nóvember 1961. Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt af málinu hinn 23. nóvember 1961: "Óttast að tveir bræður hafi farizt. Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag. — Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur og sjálfur stundaði sjómennsku.<br>Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi. Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst. Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun en hafði einskis orðið vart. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn, en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 484
Gripur nr. 484. Dúkar af ýmsum stærðum. Gefandi: Hildigunnur Jóhannsdóttir Stórholti, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn 324
Gripur nr. 324. Pressujárn. Pressujárnið var hitað á eldavél síðan var pressað með því. <strong>05</strong> stendur aftan á því. Lengd 21 cm. Er frá Lækjarbakka. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í septembr 1994.
Minjasafn705
Horfið hús, Sóllundur, stóð þar sem nú er Hólabraut 8. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 480
Gripur nr. 480. Dúkur úr hvítum bómullarjafa. Saumaður af Sigríði Þorkelsdóttur frá Barkastöðum. Gæti verið 150- 160 ára gamall.
Minjasafn 11
Gripur nr. 11. Hekluð treyja, ermalaus svört og rauð. Tvíhneppt með silfruðum hnöppum. Hún er síðan um 1880. Eigandi var Ingibjörg Stefánsdóttir frá Engihlíð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 648
Gripur nr. 648. Flaska úr gleri með korktappa. Þrístrend með íhvolfar hliðar.
Minjasafn 223
Gripur nr. 223. Kertastjaki, gylltur með snúnum fæti og 7 cm breiðri stétt. Óli Jónasson frá Fjalli á Skaga átti stjakann og var þetta eini skrauthluturinn sem hann lét eftir sig þegar hann lést. Gefandi var mágkona hans. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 142
Gripur nr. 142. Járn, ekki vitað til hvers notað. Stendur á því <strong>Bjarg</strong>. Gulllitað. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Höfðaskóli098
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1950 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Rúnar Þór Ingvarsson, Ingþór Þorfinnsson, Árni Ingibjörnsson, Andrés Árni Baldursson, Stefán Jósefsson og Páll Jónsson skólastjóri. Miðröð frá vinstri: Sólveig Georgsdóttir, Signý Ástmarsdóttir, Sóley Benjamínsdóttir, Alda Jónsdóttir og Særún Jónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Stefanía Guðjónsdóttir, Árný Viggósdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir (d.5.8.2019), Jóhanna Ásmundsdóttir, Matthildur Hafsteinsdóttir og Brynja Axelsdóttir.
1
…
29
30
31
…
65
Leita í myndasafninu
Leita