Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 392
Gripur nr. 392. Pilkur/sakka með þríkrækju ca 20 cm á lengd. Notaður á færi til veiða í sjó.
Höfðaskóli038
Börn fædd 1996 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Aron Snær Fannarsson, Ívan Árni Róbertsson, Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson og Huginn Frár Guðlaugsson. Miðröð frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Björk Hlöðversdóttir kennari, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir, Valgerður Sif Indriðadóttir og Eik Guðmundsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Freyja Sif Einarsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Guðrún Helga Magnúsdóttir.
Minjasafn728
Aftan á þessari mynd stendur:<em> "Magnús kennari var ættaður úr Skagafirði. Giftur Maríu Birgittu Berndsen d. 1940. Hann var faðir Fritz Magnússonar Berndsen Ásbergi Skagastr. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Ef þú veist hvers son Magnús var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn761
Aftan á þessari mynd stendur, innan í teiknaðri skreytingu<em>:" Íslenzkar Eimskipamyndir. Safn af 50 ekta ljósmyndum. 38 Geir. Togari. Brutto: 306 smálestir. Vélaafl: 550 hestöfl. Eigandi: Hrönn h/f Reykjavík. Westminster Tobacco Co. Ltd. London.". </em> Þessi mynd var sem sagt nr. 38 í seríu 50 mynda af íslenskum skipum. Geir, sem var smíðaður í Englandi 1947, bar einkennisstafina Re 241. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 204
Gripur nr. 204. Veggplatti með mynd af fugli.
Minjasafn682
Systurnar Pálína Sigríður Frímannsdóttir (d. 5.7.1962) í Steinholti til vinstri og Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) á Jaðri til hægri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Hrefna Jóhannesdóttir í október 1994.
Minjasafn 342
Gripur nr. 342. Skruatkanna úr glær-rósóttu gleri. Var brotin en hefur verið límd saman. Hæð 10 cm og breidd 6 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn675
Einar Guðjónsson frá Harrastöðum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrefna Jóhannesdóttir í október 1994.
Minjasafn738
Mótorbáturinn Ásgeir Hu 1 við bryggju á Skagaströnd. Bátinn áttu Ole Aamundsen frá Lundi og Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum. Ásgeir var um 7,5 tonn að stærð. Myndin, sem tekin var einhverntíma á árunum 1944 - 1947, er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Minjasafn 200 no2
Gripur nr. 200. Borð, sporöskjulaga borðplata, stendur á einum fæti sem er renndur og út frá fætinum eru þrír angar, sem borðið stendur á. Borðið er brúnt á litinn með lítilli skúffu undir að framan. Það var gefið til safnsins 1977 og þá var álitið að það væri 100 ára um gamalt. Mál á borðplötu er 66 cm langt og 48 cm þar sem það er breiðast. (við skoðun í júlí 2015 fannst aðeins skúffan úr borðinu). Gefandi: Vilhelmína Andrésdóttir Ásgarði, Skagaströnd.
Minjasafn 597 no
Gripur nr. 597. Áldunkur notaður undir sykur ( sykur er ennþá í honum). 16. cm djúpur og 49 cm að ummáli. Er með ofanífelldu loki.
Minjasafn 424
Gripur nr. 424. Spegill með gul-brúnum ramma. Á rammanum er útskorið munstur.
Minjasafn 529
Gripur nr. 529. Rakblaðabrýni. Lítil handsnúin vél sem var notuð til að brýna rakvélablöð af gömlu gerðinni.
Höfðaskóli035
Börn fædd 1973 í 10. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hugrún Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir og Gígja Óskarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Helga B. Kristmundsdóttir, Brynjar Pétursson, Birgir Rúnarsson, Hugrún Pálsdóttir, Árný Helgadóttir og Ingibergur Guðmundsson kennari. Fremsta röð frá vinstri: María Rós Karlsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Jóhanna V. Sveinsdóttir, Róbert Gunnarsson og Margrét Jóhannsdóttir.
Höfðaskóli075
Börn fædd 1986 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hörður Aðils Vilhelmsson, Elínborg Ásdís Árnadóttir, Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Elva Þórisdóttir kennari. Miðröð frá vinstri: Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Sóley Elsa Blöndal og Sonja Hjördís Berndsen. Fremsta röð frá vinstri: Ragnar Ásmundur Einarsson, Eiður Bjarki Þórarinsson og Ívar Logi Grétarsson.
Minjasafn758
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Höfðaskóli037
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 2003 - 2004. Fjórða röð frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Tinna Guðmundsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Elva Þórisdóttir, Björk Hlöðversdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir. Þriðja röð frá vinstri: Sólveig Róarsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Hildur Ingólfsson, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Dagbjört Bæringsdóttir, Árdís Indriðadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Steinunn Steinþórsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Svandís Hannesdóttir, Helga Ólína Aradóttir, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Dagný Úlfarsdóttir, Árni Geir Ingvarsson og Birkir Rúnar Sigurhjartarson (d. 13.6.2009). Fremsta röð frá vinstri: Jensína Lýðsdóttir, Carl Erik Jakobsen og Berglind Guðmundsdóttir.
Minjasafn 351
Gripur nr. 351. Skráargat. Lítið skraut fyrir skráargatsop.
Höfðaskóli - safn 267
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni eru stúlkur að bíða eftir að það komi að þeirra atriði á afmælishátíðinni. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Rósa Björk Einarsdóttir og Laufey Sunna Guðlaugsdóttir.
Höfðaskóli100
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1948 og 1949 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Sigurður Pálmason, Sveinn S. Ingólfsson kennari, Gissur Jóhannsson, Þórir Ágústsson (d. 24.9.2000) og Helgi Bjarnason (d. 1.3.2007). Fremri röð frá vinstri: Ester Axelsdóttir (d. 15.10.2015), Jóna Kristjánsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, María Jónsdóttir og Anna Bára Sigurjónsdóttir.
Höfðaskóli021
Börn fædd 1981 í 5. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Höfðaskóli - safn 116
Þegar stund gafst milli stríða í vinnuviku í Höfðaskóla notuðu þessar stúlkur tækifærið til að fá sér nammi í horninu við innganginn í skólann. Frá vinstri: Anna María Magnúsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Birgitta Maggý ? og Rebekka Laufey Ólafsdóttir.
Höfðaskóli059
Börn fædd 1991 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir kennari, Hanna María Gylfadóttir, Sævar Hlynur Tryggvason, Eyþór Vilhjálmsson, Elna Ragnarsdóttir, Guðjón Örn Arason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og Patrik Snær Bjarnason. Fremri röð frá vinstri: Ásta Halla Lúðvíksdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Gunnar Már Sæmundsson og Jóhann Örn Stefánsson.
Minjasafn 341
Gripur nr. 341. Mjólkurkanna úr hvítum leir með gráyrjum. Munstruð að framan, græn lauf, gulir, bláir og brúnir ávextir. Eitt stórt laufblað á bakhlið. Hæð 20 cm en breidd 9 cm. Kannan er allnokkuð sprungin og stúturinn brotinn. Var í eigu Ástu Sveinsdóttur Vík, Skagaströnd. Var mjög gömul þegar eigandi keypti hana úr dánarbúi tengdamóður sinar 1961. Gefandi: Amy Eymundsdóttir Brimnesi, Skagaströnd 17. nóvember 1994.
Minjasafn 207
Gripur nr. 207. Stálbolli, þvermál 10 cm. Merktur 1940 undir honum. Líklega frá langömmu gefanda. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1982.
Minjasafn 332
Gripur nr. 332. Stólpípa. Á henni er brúnn gúmmíbelgur og 7 cm langur plastleggur. Alls er lengdin 18 cm. Var í eigu Sigríðar Ásgeirsdóttur Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Höfðaskóli050
Börn fædd 1987 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Olga Betty Antonsdóttir, Linda Björk Halldórsdóttir og Rósa Björk Einarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og umsjónarkennari, Björn Viðar Jóhannsson, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Berndsen og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Eyþór Ingi Egilsson, Kristinn Andri Hjálmtýsson og Sindri Njáll Hafþórsson.
Minjasafn704
Horfið hús, Baldursheimur, lengi bjó þar Sigurjón Jóhannsson barnakennari. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn780
Horfið hús, Lækjarbakki. Þetta hús stóð á svipuðum stað og núverandi Lækjarbakki gerir í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka í febrúar 1995.
Minjasafn681
Þetta fólk bjó í Lundi, Skagaströnd. Til vinstri er sambýlisfólkið Margrét Jóhannesdóttir og Ole Aamundsen en hjá þeim situr Björg Berndsen. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka, Skagaströnd.
Minjasafn 515
Gripur nr. 515. Lítill tréaskur. Kemur úr búi Körlu Helgadóttur og Fritz Magnússonar.
Minjasafn773
Gömul mynd frá Skagaströnd, lílklega tekin 1946 eða 1947. Ekki er búið að reka niður stálþil um Skúffugarðinn né fylla upp í "Dokkina". Hafnarhúsið er komið á sinn stað og verið að ljúka við smíði mjölskemmunnar. Mörg af húsunum sem sjást á myndinni eru nú horfin. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðný Finnsdóttir 12. desember 1994.
Minjasafn 577 no3
Gripur nr. 577. Saumavél, svört með máðum gylltum skreytingum. Handsnúin. Gefandi: Stefán Stefánsson Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Höfðaskóli094
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1963 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Kristján Ólafsson, Ragnar Jónsson, Gunnar Ingimarsson, Björn Ingi Óskarsson, Þorlákur Jónsson, Árni Geir Ingvarsson og Hjörtur Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Steinunn Berndsen, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir og Valdís Valdimarsdóttir.
Minjasafn 587
Gripur nr. 587. Mjólkurbrúsi 19 cm á hæð og 45 cm að ummáli. Er með loki og haldi. Búið er að tengja saman lokið og haldið með snæri.
Minjasafn 532
Gripur nr. 532. Gylltur öskubakki úr áli, áttstrendur.
Minjasafn 149
Gripur nr. 149. Rafmagnsrakvélar í hvítum og svörtum kössum. Hvít/grá Philips, hvít Philipshave 3. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 500
Gripur nr. 500. Þríhyrnings-/píramídalag hilla úr tré. Hillan er dökkbrún á lit, lökkuð. Fallega útskorin með spegluðu munstri.
Höfðaskóli012
Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) starfaði við Höfðaskóla í yfir 50 ár. Myndin er af Elínborgu að fá sér kaffisopa á kennarastofunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli041
Börn fædd 1997 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftari röð frá vinstri: Gunnþór Ingi Kristjánsson, Róbert Björn Ingvarsson, Bára Þorvaldsdóttir kennari, Aron Breki Hjartarson og Elvar Geir Ágústsson. Fremri röð frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Halldóra Ósk Guðmundsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, og Rakel Jensína Heiðarsdóttir.
Minjasafn 25
Gripur nr. 25. Fantur, 13 cm á hæð, ummál 26 cm. Sprunginn með tveimur skörðum á barminum. Úr gulgráum leir. Rákir í leirinn upp og niður, rauf í hring rétt við barminn. Úr búi Vilborgar og Árna frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd í febrúar 1977.
Minjasafn 145
Gripur nr. 145. Trétappi í flösku 3 cm hár. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 350
Gripur nr. 350. Hvítur plasttappi sem smelltur er á flöskustúta í notkun.
Minjasafn 475
Gripur nr. 475. Þrjú stykki plastskálar. Voru eitt sinn glærar en smá gult er í einni þeirra. Skálarnar eru litlar með skornu munstri.
Minjasafn789
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl í beitur til að setja þær síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Minjasafn 576
Gripur nr. 576. Lítil saumavél úr stáli mjög ryðguð. Vantar kassann/stéttina undir hana.
Minjasafn 591 no2
Gripur nr. 591. Skyrdallur? úr tré með tveimur járngjörðum. Dallurinn er svipaður útlits og gripir nr. 590 (mynd 7873) og 357 (mynd 7651). Dallurinn er 25 cm djúpur og tvær rimar eru hærri en hinar, staðsettar hvor á sinni hlið dallsins.
Minjasafn 579
Gripur nr. 579. Rafmagns- reiknivél "Odhner" grá á litin ennþá með rúllu í. Vélinni fylgir hlíf úr gul-dröppuðu leðri.
Minjasafn 439
Gripur nr. 439. Brennimark eða brennijárn. Merkið brennir: 82G eða C. Úr eigu Bjargar Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal.
Minjasafn 467
Gripur nr. 467. Askur. Smíðaður og gefinn af Sigurði Guðmundssyni frá Laufási á Skagaströnd árið 1977.
Minjasafn 427
Gripur nr. 427. Gamall spegill, enginn rammi en járnskraut á hornunum.
Minjasafn 394
Gripur nr. 394. Fjögur stykki smokkfiskönglar. Önglarnir eru misstórir, rauðir með önglakrans neðst. Notaðir til að veiða smokkfisk á færi. Gefandi: Kristján Hjartarson Grund, Skagaströnd í maí 1977.
Árni Geir Ingvarsson - safn 568
Héðinshöfði, sem er húsið með tvílita þakinu á myndinni, er nú horfinn. Í húsinu, sem stóð við Skagaveg, voru alltaf tvær íbúðir, ein í hvorum enda.
Höfðaskóli077
<p>Börn fædd 1982 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Karen Peta Karlsdóttir, Andri Þór Ómarsson, Magnús Árni Hallgrímsson, Ásdís Lýðsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Bjarni G. Þórmundsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Hafsteinn Auðunn Björnsson , Þóra Lísebet Gestsdóttir, Sveinþór Ari Arason og Geirþrúður Guðmundsdóttir. </p>
Minjasafn 512 no2
Gripur nr. 512. Lítil skæri, mjög ryðguð.
Minjasafn 649
Gripur nr. 649. Glerflaska sem búið er að mála rauða, græna og bláa.
Minjasafn671
<p>Aftan á þessari mynd stendur: <em>"Vilborg Guðmundsdóttir Engihlíð, Borgað". </em>Það er það eina sem vitað er um þessa mynd, sem tilheyrir Minja- og Munasafninu á Skagaströnd. Ef þú þekkir einhvern á myndinni, eða veist eitthvað um hana, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Höfðaskóli073
Börn fædd 1985 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Birna Þórkatla Sæmundsdóttir, Eva rún Rúnarsdóttir, Kristinn Daníel Guðmundsson, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari. Miðröð frá vinstri: Birkir Rúnar Jóhannsson, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson og Tinna Björk Gunnarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Lýður Ragnar Arason, Þórður Óskarsson, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna, Lilja Nótt Sævarsdóttir), Anna María Magnúsdóttir og Anna Dúna Rúnarsdóttir.
Minjasafn 377
Gripur nr. 377. Tréspaði eða skurðbretti. Með mynd af hana á ásamt lauf og blómaskrauti.
Minjasafn 489
Gripur nr. 489. Kanna, lítil hvít. Myndskreytt með mjög útstæðum blómum (3D). Blómin eru fimm og svo eru fjögur græn laufblöð í kringum þau. Gylling meðfram efri brún og á haldinu. Kannan er sennnilega mjólkur- eða rjómakanna.
1
…
33
34
35
…
65
Leita í myndasafninu
Leita