Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli093
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1966 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðfinnur Bjarni Ottósson, Einar Ásgeirsson, Fritz Hendrik Berndsen, Kristján Karlsson, Guðjón Árnason, Víðir Ólafsson, Kristján Steinar Kristjánsson, Ari Þórsson, Orri Blöndal og Jóhannes Sveinsson. Fremri röð frá vinstri: Vala Rós Ingvarsdóttir, S. Drífa Kristjánsdóttir, Jónas Baldursson kennari, Agnes Sævarsdóttir og Þórhildur Jakobsdóttir.
Minjasafn 505
Gripur nr. 505. Poki með gömlum tölum og hnöppum.
Minjasafn679
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir Árnesi Skagaströnd, Páll V.G. Kolka (d.19.7.1971) læknir og rithöfundur og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka (d. 11.6.1974). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn725
Björn Ólafsson (d. 1935) Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Höfðaskóli025
Börn fædd 1977 í 9. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn722
Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) Bjarmalandi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. júní 1996.
Minjasafn 610
Gripur nr. 610. Ferðataska úr brúnu leðri. Með ólalæsingum sitt hvoru megin við haldið. Einnig er járnlæsing undir haldinu. Leðurhlífar á hornum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 594
Hafnir á Skaga. Hafnir eru í Skagabyggð.
Minjasafn 201
Gripur nr. 201. Veggvasar 2 stk. blágrænir með blómamynd framan á, gyllt efst. Vasarnir eru íbognir (mjókka niður) og eru með eyru á hlið. Gefandi keypti vasana í verslun Helgu Berndsen Karlsskála Skagaströnd líklega 1958. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn784
Sæbjörn Hu 3. Bátinn keyptu Ísleifur Haraldsson og Sigurður Bjarnason til Skagastrandar árið 1970. Hann var svo ónýttur í mars 1974 og sagaður í tvennt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson Hólabraut 22, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn 575 no2
Gripur nr. 575. Saumavél. Svört handsnúin saumavél. Var í eigu móður Guðbjarts Guðjónssonar frá Vík, Skagaströnd.
Höfðaskóli101
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1957 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðjón Guðjónsson. Fremri röð frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttr, Unnur Gunnarsdóttir, Fjóla Sigurðardóttir, Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987) og Guðrún Einarsdóttir.
Höfðaskóli064
Börn fædd 1990 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Gunnlaug Þ. Gunnlaugsdóttir kennari, Ragnar Már Björnsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Ágústa Lóa Jóelsdóttir, Unnar Már Garðarsson og Arís Eva Vilhelmsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sunna Gylfadóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Björk Guðmundsdóttir og Steinar Orri Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 639
Myndin sýnir bæina undir Bjarginu (Króksbjargi á Skaga) ásamt útihúsum. Næst okkur er Hlíð, þá Örlygsstaðir og Örlygsstaðir II en fjærst eru Hróarsstaðir.
Minjasafn783
Fólkið á myndinni var heimilisfólk að Höfðahólum á Skagaströnd. Mynd af bænum er fyrir miðju en hann stóð þar sem í dag er tjaldsvæðið á Skagaströnd. Guðríður Rafnsdóttir og Ásgeir Klemensson voru hjónin á bænum en Sigríður, Ólafur og Axel voru þeirra börn. Árni Sigurðsson var sonur Guðríðar og þar með hálfbróðir þeirra. Árni ólst upp hjá móður sinni og Ásgeiri manni hennar í Höfðahólum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 198
Gripur nr. 198. Smörkúpa úr glæru gleri, botn og lok. Glerið er munstarð. Glerhöld til hliðar. Lengd 20 cm og breidd 12 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Minjasafn 586
Gripur nr. 586. Mjólkurbrúsi 25 cm á hæð og 47 cm að ummáli. með loki og haldi. Á lokinu stendur: "A.H. Læk". (Líklega skammstöfun fyrir: Axel Helgason, Læk)
Höfðaskóli049
<p>Börn fædd 1993 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Árný Sif Gestsdóttir og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir. Miðröð frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Alex Már Gunnarssson og Davíð Víðisson. Fremsta röð frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Jóna Fanney Svavarsdóttir kennari, Sara Rut Fannarsdóttir og Elísabet Anna Einarsdóttir. </p>
Minjasafn 552
Gripur nr. 552. Kýrhorn
Minjasafn717
Brautarholt. Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985), íbúi þar, er til hægri en konan er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með son sinn Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 375
Gripur nr. 375. Tvö stykki A4 brúnir rammar; "Quality Photo Frame". Eru nýlegir, hafa sennilega verið keytir fyrir skipulag á fornmununum.
Minjasafn 388
Gripur nr. 388. Glær poki með gylltum stöngum með krók á endum. Voru fylgihlutir til að halda uppi Hansa hillum og skápum sem voru vinsæl húsgögn í kringum 1960 - 1980.
Höfðaskóli - safn 192
Gunnar Guðmundsson spilar stærðfræðispil í Höfðaskóla einhverntíma í kringum 1990.
Höfðaskóli003
Skólaslit Höfðaskóla líklega 2005 eða 2006. Nemnedur fæddir árið 1994 fá afhentar einkunnir sínar úr höndum Herdísar Baldvinsdóttur kennara, lengst til vinstri. Nemendurnir eru, frá vinstri: óþekkt, Torfi Friðrik Elíasson, Viktor Örn Valdimarsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Stefán Velemir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ellen Sigurjónsdóttir og Ingimar Guðjónsson. Ef þú þekkir óþekkta nemandann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli099
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1959. Aftari röð frá vinstri: Jón Hallur Stefánsson, Guðrún Ágústsdóttir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Ragnheiður Magnúsdóttir og Hörður Jónasson. Fremri röð frá vinstri: Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Gréta Ingvarsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Minjasafn739
Sigurfari Hu 32 að koma úr róðri. Um Sigurfara segir svo í bókinni <em>"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010"</em> eftir Lárus Ægi Guðmundsson<em>:" Sigurfari Hu 32. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, 3,5 brl. með 6 ha. Bolinder vél. Þetta var gullfallegur hringlotaður bátur. Hann var hvítmálaður með bikaðan botn og breiðan rauðan fleyg sem náði aftur á bóga en svona skraut var ekki algengt. Eigendur hans voru Snorri Gíslason, Guðjón Einarsson og Hrólfur Jakobsson sem var formaður. Þeir félagar eignuðust bátinn 1935 en seldu hann til Drangsness 1943".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn743
Páll Jóhannesson (d. 28.1.1989) frá Garði Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli107
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1945 - 1948 ásamt kennara sínum. Fyrsta röð (aftast) frá vinstri: Jóhann Björn Þórarinsson, Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) kennari, og Birgir Júlíusson. Önnur röð frá vinstri: Ísleifur Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Ómar Þorbjörnsson, Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Thorleif Jóhannsson, Búi Birgisson (d. 18.9.2009) og Hallbjörn Björnsson. Þriðja röð frá vinstri: Árni Sigurðsson (d. 14.11.2008) , Pálfríður Benjamínsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Pétur Jóhannsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir og Grétar Haraldsson. Fremsta röð frá vinstri: Birna Guðjónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, Sigrún Kristófersdóttir, Dagný Hannesdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d. 2015) og Fjóla Jónsdóttir.
Höfðaskóli - safn 314
Í smíðatíma í Höfðaskóla líklega 1988 eða 1989. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Höfðaskóli087
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1967 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Þórarinn K. Þórsson, Arnar Arnarsson, Ingvar Þór Jónsson, Björn Hallbjörnsson og Hrólfur Pétursson. Fremri röð frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Bergþóra H. Birgisdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir kennari, Svenný Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir og Erna Rós Magnúsdóttir.
Minjasafn 659
Gripur nr. 659. Æfingatæki sem hægt er að ýta saman eða toga sundur með "vöðvamæli" eða "Musclometre".
Höfðaskóli060
Börn fædd 1988 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ívar Gylfason, Arnór Snorri Gíslason, Kristján Pétur Guðjónsson, Jón Atli Magnússon, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Rebekke Maren Þórarinsdóttir, Sigurgeir Snævar Árnason og Garðar Geirfinnsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Óðinn Örn Sævarsson, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli047
Börn fædd 1995 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Ernst Guðni Hólmgeirsson, Sigurjón Elí Eiríksson, Sæþór Bragi Ágústsson, Kristmar Ingi Ragnarsson og Erling Arnar Erlingsson. Miðröð frá vinstri: Ingvar Páll Hallgrímsson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir kennari, Linda Rós Ómarsdóttir og Magnús Jens Magnússon. Fremsta röð frá vinstri: Saga Lind Víðisdóttir og Silvía Ósk Hrólfsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 588
Græna húsið á myndinni eru Kárastaðir sem eru nú horfnir. Þar bjuggu Kári Kristjánsson (d.11.12. 1990) og Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) ) ásamt móður sinni Sigurbjörgu Sigurbjörnsdóttur (d. 31.12.1965). Seinna kom til þeirra bræðra ráðskonan Jónína Valdimarsdóttir ásamt dóttur sinni Kristínu Sigurðardóttur. Upphaflega voru Kárastaðir bara jarðhæð með skúrþaki en síðar var hæð byggð ofan á. Enn síðar var svo byggð viðbyggingin með skúrþaki sem sér í vinstra megin.
Höfðaskóli - safn 229
Guðbjörg Ólafsdóttir, heimilisfræðikennari við Höfðaskóla í nokkur ár, í vinnunni í eldhúsi Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Minjasafn 667
Gripur nr. 667. Ferningslaga púði. Verið er dökk-appelsínugult, heklað net. Innan í því er púðinn sem er grænn.
Minjasafn797
Reynir BA 66. Stærð 53 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1946 í Svíþjóð. Vél Hundsted 150 hestöfl. Heimahöfn Bíldudalur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn755
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. "Siggi í Siggabúð", eins og hann var oft kallaður, stundaði m.a. útflutning á ull og gærum um tíma meðfram dagvöruverslun sinni. Verslunin Borg var einnig heimili Sigurðar og konu hans Margrétar Konráðsdóttur (d. 17.9.1974) en verslunin var í litlu húsi sem stóð norðan við mjölskemmuna. Seinna var svo rekið rafmagnsverkstæði í húsinu, sem nú hefur verið rifið. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn706
Horfið hús, Ásberg eða Ásbyrgi (Köllubærinn), Breiðablik til hægri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Höfðaskóli009
Þessir tveir menn störfuðu við Höfðaskóla um árabil. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), til vinstri, var kennari í hlutastarfi, prófdómari og forfallakennari. Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kenndi unglingum í skólanum í mörg ár. Myndin var tekin á skólatröppunum en ekki er vitað hvenær þó líklega hafi það verið einhverntíma á árunum 1965 - 1970.
Minjasafn 599 no2
Gripur nr. 599. Gamaldags talsími úr stáli. Er með snúningshandfangi og símtóli sem tengist kassanum með snúru. Svo er önnur snúra sem tengist í tvær stórar sívalar rafhlöður.
Minjasafn720
Kristín Bjarnadóttir (d.?) frá Kálfshamarsvík (Viðvík). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Inga Þorvaldsdóttir Straumnesi 1. desember 1994.
Minjasafn734
Aftan á þessari mynd stendur skrifað:<em> "Efnabær 19 aldar. Haukagil í Hvítarsíðu í Borgarfirði Mindin tekin sumarið 1884. Ljósmynd Sigfús Eymundsson".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi 8. október 1977.
Minjasafn 401
Gripur nr. 401. Þvottaklemma af gamla laginu, úr tré.
Minjasafn678
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1.desember 1994.
Minjasafn747
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) Viðvík á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn730
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn689
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 á Skagaströnd 1959 eða 1960. Áhöfnin mokar síld í "veltitunnur" sem síðan voru hífðar upp á bryggju og þar hvolft úr þeim í handvagna sem var svo ekið að planinu þar sem síldarstúlkurnar biðu eftir síldinni til söltunar. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Helga Berndsen frá Karlsskála gaf myndina í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn760
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Höfðaskóli062
Börn fædd 1982 í 10. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Ólafur Guðmundsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Magnús Árni Hallgrímsson og Sveinn Elvar Jóelsson. Fremri röð frá vinstri: Geirþrúður Guðmundsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir og Karen Karlsdóttir.
Höfðaskóli034
Börn fædd 1974 í 9. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Jóhanna G. Karlsdóttir, Guðný K. Finnsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Ása Ósk Ásgeirsdóttir. Miðröð frá vinstri: Aðalheiður Marta Steindórsdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Jón Heiðar Jónsson, Bryndís F. Ingimarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Páll Leó Jónsson kennari. Fremsta röð frá vinstri: Atli Þórsson, Björn Sigurðsson, Baldur Magnússon, Reynir Lýðsson og Friðrik Gunnlaugsson.
Minjasafn798
Jón á Stapa SH 215. Stærð 121 rúmlest brúttó. Smíðaár 1961 í Svíþjóð. Vél June - Munkt. 425 hestöfl. Heimahöfn Ólafsvík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli033
Börn fædd 1977 í 6. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Jónasdóttir, Ólafur Magnússon, María Jóna Gunnarsdóttir, Sylvía Kristín Sigurþórsdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir og Jóhanna Jónsdóttir kennari. Fremri röð frá vinstri: Jóhannes Heiðmar Indriðason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Þóra D. Ásgeirsdóttir og Ragna Fanney Gunnarsdóttir.
Minjasafn715
Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka með lambhrút í bandi eftir mikinn eltingaleik við hrútinn, sem ekki var sammála Jóhanni hvað varðar frelsi og útigang. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 631
Gripur nr. 631. Rafmagnsritvél. "Message Concept 20".
Minjasafn 567
Gripur nr. 567. Tómt hulstur undan rakhníf. "GONG" stendur á hulstrinu ásamt fleiru.
Minjasafn 530
Gripur nr. 530. Tvö pör hurðarhúna. Annað parið er með innskornu munstri á húnunum. Hitt parið er með slétta og glansandi húna.
Minjasafn716
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti fyrir utan Brautarholt. Drengurinn, sem er að skoða hverfisteininn, er líklega Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 663
Gripur nr. 663. Hvítt blómahengi sem farið er að gulna. Úr plasti með keðjum til að hengja það upp.
Minjasafn802
Viðey RE 12. Stærð 231 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister - Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
1
…
34
35
36
…
65
Leita í myndasafninu
Leita