Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn764
M/b Svanur Hu 7 frá Akureyri 1930 11 tonn að stærð. Eigendur voru Gunnlaugur Árnason, Jakob Bjarnason og fleiri frá Hvamstanga. Síðar Júlíus og Baldur Árnasynir á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála í september 1996
Minjasafn 654
Gripur nr. 654. "Hoover" ryksuga. Grá og blá með gráum poka og grænni rafmagnssnúru.
Höfðaskóli028
Börn fædd 1980 í 3. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir kennari, Sigríður Magnúsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Gunnar Dór Karlsson og Valrún Eva Vilhelmsdóttir. Miðröð frá vinstri: Kristinn Björnsson, Bjarney Gunnarsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurður Haukur Grétarsson. Fremsta röð frá vinstri: Arnþór Haukdal Rúnarsson, Sigurður S.Ó. Hallgrímsson, Fjóla Ómarsdóttir og Rakel Peta Finnsdóttir.
Höfðaskóli091
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1951 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Björn Bragi Sigmundson og Reynir Sigurðsson. Miðröð frá vinstri: Óskar Jóhannesson (fæddur 1950), Rúnar Jósefsson, Karl Lúðvíksson, Ólafur Halldór Bernódusson, Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Ísleifur Þorbjörnsson.
Höfðaskóli083
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1954 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018), Magnús Guðlaugsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Gréta Jónsdóttir, Sigríður Ingibjörnsdóttir og Kjartan Bjarnason. Miðröð frá vinstri: Hallbjörn Þorbjörnsson, Heiðar Elvan Friðriksson, Ragnar Smári Ingvarsson, Magnús Lárusson, Heiðar Ólason og Hallbjörn Ágústsson. Fremsta röð frá vinstri: Anna Hannesdóttir, Jónína Baldursdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Guðrún Lárusdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Minjasafn739
Sigurfari Hu 32 að koma úr róðri. Um Sigurfara segir svo í bókinni <em>"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010"</em> eftir Lárus Ægi Guðmundsson<em>:" Sigurfari Hu 32. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, 3,5 brl. með 6 ha. Bolinder vél. Þetta var gullfallegur hringlotaður bátur. Hann var hvítmálaður með bikaðan botn og breiðan rauðan fleyg sem náði aftur á bóga en svona skraut var ekki algengt. Eigendur hans voru Snorri Gíslason, Guðjón Einarsson og Hrólfur Jakobsson sem var formaður. Þeir félagar eignuðust bátinn 1935 en seldu hann til Drangsness 1943".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 631
Gripur nr. 631. Rafmagnsritvél. "Message Concept 20".
Minjasafn 567
Gripur nr. 567. Tómt hulstur undan rakhníf. "GONG" stendur á hulstrinu ásamt fleiru.
Minjasafn778
Jaðar til vinstri og Gamli Jaðar til hægri. Gamli Jaðar er nú löngu horfinn. Börnin á myndinni eru óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka á Skagaströnd. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 322
Myndin var tekin á reiðhjóladegi í Höfðaskóla. Þá komu nemendur með hjólin sín og leystu ýmsar reiðhjólaþrautir eftir að lögreglan hafi yfirfarið hjólin þeirra og athugað hjálmanotkun krakkanna. Fremstur í röðinni er Brynjar Max Ólafsson, númer tvö er Guðlaugur Ómar Guðmundsson, þrjú er Kristbjörg Ragnheiðardóttir og fjórða er Sonja Sif Ólafsdóttir. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin kringum 2000.
Minjasafn 229
Gripur nr. 229. Vasaúr. Vantar gler og keðju á úrið. Tegund: <strong>Eterna</strong>. Ummál 4,5 cm. Vísarnir eru heilir og eru tölurnar rómverskar. Úrið er í svartri pappaöskju. Eigandi var Skafti Fanndal Jónasson. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Höfðaskóli - safn 111
Þessi mynd úr Höfðaskóla hefur líklega verið tekin af einhverju skemmtiatriði á opnu húsi í skólanum einhverntíma um miðjan tíunda áratuginn. Framan við borðin standa Jenný Lind Sigurjónsdóttir til vinstri og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) til hægri. Uppi á borðunum eru frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Rósa Björk Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen og Hanna Rúna Gestsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 265
Gripur nr. 265. Diskur.
Höfðaskóli031
Börn fædd 1979 í 4. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, Eiður Örn Þórsson, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Rakel Sara Gunnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir og Jóhanna Jónsdóttir. Miðröð frá vinstri: Bryndís Axelsdóttir, Jóhannes William Grétarsson, Sigurður Árni Ægisson, Jón Haukdal Þorgeirsson og Gunnar Borg Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Árni Max Haraldsson, Linda Hafdal, Hilmar Árdal Eðvarðsson og Gunnþór Sævarsson.
Höfðaskóli088
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1952 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ingi Jóhann Hafsteinsson (d. 12.12.1987), María Magnúsdóttir kennari og Hinrik Jóhannesson. Miðröð frá vinstri: Kristinn Ágústsson, Ari Ólafsson, Rúnar Hartmannsson, Skúli Bjarnason, Árni Másson, Helgi Gunnarsson og Kári Lárusson. Fremsta röð frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir, Ása Hrólfsdóttir, Steinunn Steinþórsdóttir, Ingibjörg Þorfinnsdóttir, Margrét Guðlaugsdóttir og Eyrún Birgisdóttir.
Minjasafn745
Aftan á þessari mynd stendur: <em>" Jóhanna Benónísdóttir, f. 11/8. 1883 á, Steinýjarstöðum, búsitt síðast í Drangei á Skagaströnd. d, 5/3, 1957."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 563
<p>Á þessari gömlu mynd af innbænum er byggðin strjálli en í dag. Fellsbraut, Suðurvegur, Sunnuvegur og Túnbraut eru að mestu óbyggðar en einnig sýnir myndin horfin hús s.s. Stóra-Berg, Dagsbrún, Ólafsvellir, Brautarholt, fjárhús o.fl.. </p>
Minjasafn 658
Gripur nr. 658. Fjórir snagar sem hafa verið skrúaðir á plötu/planka. Blámálað.
Minjasafn746
Jakobína Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) Litla-Bergi. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhanna Thorarensen 1. júlí 1996.
Minjasafn721
Elísabet Berndsen (d.?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Haraldur Árnason í jánúar 1995.
Minjasafn 657
Gripur nr. 657. Gamalt skákborð 27,5 x 28 cm. Úr tré.
Minjasafn772
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er á leið í messu á Hólaneskirkju. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt. </p>
Höfðaskóli076
Börn fædd 1988 í 1. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Íris Ósk Jóhannesdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir og Óðinn Örn Sævarsson. Miðröð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir kennari, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Jón Atli Magnússon. Fremsta röð frá vinstri: Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Eydís Ósk Einarsdóttir, Ívar Gylfason og Kristján Freyr Sigurbjörnsson.
Höfðaskóli - safn 311
Gestir á opnum degi í Höfðaskóla til að halda upp á 50 ára afmæli skólans 1989. Frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, óþekkt, Aðalheiður Sif Árnadóttir og Adolf H. Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 609
Myndin var tekin utan við Akur þar sem Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) móðurbróðir barnanna á myndinni bjó. Börnin eru Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Vala Rós Ingvarsdóttir sem leiðir Hebba frænda sinn. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1970.
Höfðaskóli026
Börn fædd 1976 í 10. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Höfðaskóli097
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1950 ásmat kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Særún Jónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) kennari, Jóhanna Ásmundsdóttir og Stefanía Guðjónsdóttir. Miðröð frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, Rúnar Þór Ingvarsson, Ingþór Þorfinnsson, Guðmundur Ingi Jónatansson (d.4.12.2015), Stefán Jósefsson og Óskar Jóhannesson. Fremsta röð frá vinstri: Signý Ástmarsdóttir, Árný Viggósdóttir, Sólveig Georgsdóttir, Sóley Benjamínsdóttir og Brynja Axelsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 585
Þessi mynd af Skagaströnd sýnir vel framkvæmdir við byggingu raðhúsanna við Mánabraut 1 - 11 á sínum tíma. Á myndinni má líka sjá nokkur hús sem nú eru horfin t.d. Héðinshöfða, niðri í horninu hægra megin, Efri-Læk, sem ber yfir suðurenda plötunnar að Mánabraut 7, og Efri-Jaðar, sem ber yfir vinkilbygginguna til vinstri.
Höfðaskóli044
Börn fædd 1991 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Kristján Heiðmar Kristjánssson, Gunnar Már Sæmundsson, Sævar Hlynur Tryggvason, Patrik Snær Bjarnason og Jóhann Örn Stefánsson. Miðröð frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir kennari og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Helena Mara Velimir, Tinna Erlingsdóttir og Hanna María Gylfadóttir.
Minjasafn752
Óþekktur maður myndaður á ljósmyndastofu H. Einarssonar á Akureyri. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 549
Gripur nr. 549. Tvær ausur. Önnur úr áli en hin með glerungi.
Minjasafn 611
Gripur nr. 611. Ál-mjólkurbrúsi með loki og haldi. 19 cm djúpur og 45 cm að ummáli.
Minjasafn799
Geir RE 406. Stærð 73 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í A- Þýskalandi. Vél MAK - Diesel 240 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 668
Gripur nr. 668. Gamlir reimaðir boxhanskar.
Minjasafn756
Skröyfa var líklega norskt síldarskip þar sem saltað var um borð. Myndin er sennilega frá því um aldamótin 1900 og kemur úr búi Carls Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd. Áhafnarmeðlimirnir eru óþekktir enda sennilega allir norskir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. maí 1996.
Minjasafn715
Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) frá Lækjarbakka með lambhrút í bandi eftir mikinn eltingaleik við hrútinn, sem ekki var sammála Jóhanni hvað varðar frelsi og útigang. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn743
Páll Jóhannesson (d. 28.1.1989) frá Garði Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn718
Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) Sævarlandi, Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 565
Sólheimar við Skagaveg á Skagaströnd.
Minjasafn 652
Gripur nr. 652. Ofin bastkarfa, ljósleit.
Skagaströnd - safn 424
Þetta hús, Ólafsvellir/Náttbrún, stóð nokkurn vegin þar sem nú er stjórnsýsluhúsið við Túnbraut 1-3. Lengst af bjuggu í húsinu hjónin Jón Hinrik Árnason (d. 11.4.1986) og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir (d.18.6.1965) ásamt dóttur þeirra Ingiríði Jónsdóttur (d. 21.10.2011). Hjá þeim var líka sonur Unu, hinnar dóttur þeirra, Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004). Síðasti íbúi hússins mun hafa verið Guðlaugur Melsteð Guðlaugsson (d. 8.7.1990). Samkvæmt heimildum frá Þorvaldi Skaftasyni stóð til að rífa húsið, sem þá var orðið fyrir vegna byggingar stjórnsýsluhússins, en Guðlaugur þverneitaði að fara. Var þá gripið til þess ráðs að fá prestinn til að tala Guðlaug til. Prestur bauð honum í bíltúr í bíl sínum og eftir langan bíltúr með presti var búið að rífa Náttbrún þegar þeir félagar komu til baka. Samkvæmt sömu heimildum nefndi Ole Aamundsen (Óli norski) (d.?) húsið Ólafsvelli en Jón Árnason kallaði það alltaf Náttbrún.
Árni Geir Ingvarsson - safn 605
Á þessari mynd af Skagaströnd má sjá nokkur horfin hús. Lengst til vinstri er Karlsminni sem ekki er til lengur, þá kemur Strandgata 10, sem enn stendur, en þar við hliðina er Viðvík sem er horfin. Síðan koma tvö hús sem enn standa, Höfðatún og Vík en þá kemur að fjárhúsum og lengra frá, með rauðu þaki, glittir í Bergsstaði sem einig hefur verið rifið. Næst er svo Sævarland og bak við það hægra megin er Sæból sem brann til grunna á sínum tíma. Lengst til hægri er svo Oddagata 1 sem enn er búið í.
Minjasafn 646
Gripur nr. 646. Járn ekki ósvipað vöflujárni en með öðruvísi munstri. Mögulega notað til að grilla samlokur eða annað. Hitað á hellu.
Höfðaskóli102
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1947 og 1948 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Pétur Jóhannsson, Ísleifur Haraldsson, Jóhann Björn Þórarinsson, María Bjarnadóttir (d. 1984), Jóhann Ingibjörnsson, Jón S. Pálsson kennari, Búi Birgisson (d. 18.9.2009), Steinunn Ellertsdóttir, Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Jóhanna Valdimarsdóttir.
Minjasafn 508
Gripur nr. 508. Útskorinn penni. Á hann er grafið "JOMERU 1917". Virkaði eins og fjaðurpenni, var díft í blek til að skrifa síðan. Penninn er úr beini.
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Minjasafn 432
Gripur nr. 432. Lítill, útsaumaður dúkur. Dúkurinn er hvítur með rauðu munstri.
Höfðaskóli - safn 197
Árný Guðrún Ólafsdóttir við vinnu sína í Höfðaskóla kringum 1990.
Minjasafn 482
Gripur nr. 482. Sex stykki glerskálar, grænleitar. Sennilega verið notaðar sem desert eða sykurskálar.
Minjasafn 643
Gripur nr. 643. Lampaskermur gulur/gylltur með kögurböndum til skrauts á neðri brún og kringum skerminn efst.
Minjasafn 333
Gripur nr. 333. Skóþræll, viðarlitaður. Var notaður til hjálpar við að komast úr skóm. Lengd 21 cm. Breiðastur 10 cm. Smíðaður af Gissuri Jóhannssyni Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd september 1994.
Minjasafn 381
Griður nr. 381. Mjög gamall og mjög fúinn og niðurnýddur rammi. Brúnn með máðri gylltri rönd. Ramminn er laus og bakið fúið. (Hefur e.t.v. lent í bruna?)
Höfðaskóli - safn 276
Ólafur Bernódusson kennari við Höfðaskóla undirbýr kennslustund í efnafræði. Myndin var sennilega tekin á tíunda áratugnum.
Minjasafn 601 no
Gripur nr. 601. Trékistill, málaður brúnn. Er með skrárgati 34 cm djúpur, 61 cm breiður og 32 cm langur.
Minjasafn672
Blaðaúrklippa með mynd af Guðjóni Ingólfssyni.
Höfðaskóli065
Börn fædd 1984 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðni Már Lýðsson, Hákon Unnar Þórarinsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Herman Freyr Guðjónsson, Leó Kristberg Einarsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Hafþór Freyr Sigmundsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Elín Anna Konráðsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, María Guðrún Guðmundsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 630
Heiðar Elvan Friðriksson leikur við kisu með veiðistöng. Útihúsin til vinstri tilheyrðu Akurgerði (Hólabraut 9) og gulleita húsið til hægri var Bergsstaðir. Enn lengra í baksýn má sjá landfastan hafís á Húnaflóanum.
Höfðaskóli056
Börn fædd 1986 í 9. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftari röð frá vinstri: Sonja Hjördís Berndsen, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ragnar Ásmundur Einarsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Hörður Aðils Vilhelmsson, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Eiður Bjarki Þórarinsson.
Minjasafn768
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til hægri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Lengra frá sér í Bjarmanes. Fólkið er að fylgjast með einhverjum skemmtiatriðum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt. </p>
Höfðaskóli - safn 247
Vorið 2001 fóru elstu nemendur Höfðaskóla í skólaferðalag til Danmerkur ásamt tveimur kennurum og einum stuðningsfulltrúa. Þessi mynd var tekin í einni af mörgum lestarferðum hópsins. Frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, óþekktur, Birkir Rúnar Jóhannsson, Hörður Aðils Vilhelmsson og Dóra Rebekka Sævarsdóttir.
1
…
35
36
37
…
65
Leita í myndasafninu
Leita