Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Myndir frá Skagaströnd 003
Þarna sést í Sólheima til vinstri, hornið á efri Sólheimum nær okkur en tvílyfta húsið eru Sólheimar. Bjarmaland til hægri. Næst okkur á myndinni sér ofan á þakið á Valhöll vinstra megin en Steinholt hægra megin.
larus063
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Smiðir á vegum Helga Gunnarssonar vinna við þakfrágang á kirkjuskipinu 1989.
larus010
Síðasta messan í gömlu kirkjunni 6. október 1991. Á myndinni má sjá Steindór Haraldsson, Elínu Njálsdóttur, Ólaf Magnússon, Gunnar Helgason, Eygló Gunnarsdóttur, Guðrún Angantýrsdóttir, Sigurbjörg Angantýrsdóttir, Jóhann Sigurjónsson og Sigurjón Guðbjartsson. Kirkjukórinn syngur við undirleik Julians Hewlet.
larus075
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri, óþekkt barn, Hrólfur Pétursson, Torfhildur Stefánsdóttir, óþekkt, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekktur, Pétur Eggertsson, Ólafur Bernódusson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Finnur Kristinsson, Jón Ingi Ingvarsson og Guðný Finnsdóttir.
larus061
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sökkullinn frágengin en unnið að steypuvinnu við byrjun á kirkjuturninum. Gamla kirkjan í baksýn.
larus064
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Kirkjuturninn steyptur 24. maí.
hem029
Fremsta húsið er verslunarstjórahúsið því næst er verslunin sem er ljós á litinn og pakkhúsið. Við pakkhúsið sér í Assistentastofu en þar bjó verslunarþjónninn - aðstoðarmaður verslunarstjórans. Fyrir ofan sést í Læk og Jaðar.<br>Að sögn Þorvaldar Skaftasonar var svarti skúrinn, sem stendur við Einbúann, fluttur inn á Ennismela við Blönduós og var notaður sem vegavinnuskúr. Þar keypti Skafti Fanndal Jónasson frá Fjalli skúrinn árið 1942 og flutti til Skagastrandar. Stækkaði síðan skúrinn um helming og hóf sinn búskap ásamt Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur og tveim sonum, Hjalta og Jónasi. Skúrnum var gefið nafnið Dagsbrún og þar bjó fjölskyldan til 1958 en þá var fjölskyldan orðin sjö manns og þá hafði verið byggt við skúrinn sem er á myndinni..
mundi514
Gamla Hólaneskirkjan sem var byggð á árunum 1926 - 1928 og vígð 17. júní 1928. Hún þjónaði söfnuðinum til 1991 þegar ný kirkja var vígð nánast á sama stað á Skagaströnd.
larus080
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989. Kirkjukórinn sem söng við athöfnina. Frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Kristján Hjartarson, Sigmar Jóhannesson, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Rosemary Hewlett. Við hljóðfærið situr Julian Hewlett.
larus081
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps.
hem022
Bærinn Spákonufell og útihús honum tilheyrandi eru til vinstri. Spákonufellskirkja er til hægri, á hlaðinu á Spákonufelli. Spákonufell var landnámsjörð Þórdísar spákonu og höfuðból sem átti stærstan hluta þess lands sem byggðin á Skagaströnd stendur á í dag. Kirkja stóð um það bil þar sem kirkjugarður sóknarinnar er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en kirkan var aflögð 1928 þegar ný kirkja - Hólneskirkja - var vígð niður á Skagaströnd.
mundi404
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Sigrún Kristófersdóttir gengur niður tröppurnar en Steinunn Margrét Ellertsdóttir er í kirkjudyrunum
larus005
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, til vinstri, hættir störfum 1981 og Séra Oddur Einarsson tekur við, milli þeirra eru bræðurnir Kristján Hjartarson organisti og kórstjórnandi vinstra megin og Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari hægra megin.
larus091
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt og Örnólfur Hall arkitekt, á milli tveggja tíma - gamla kirkjan til vinstri og sú nýja til hægri.
hem028
Verslunarstjórahúsið í byggingu árið 1906. Þetta hús stóð vestan við gamla kaupfélagið og var, eins og nafnið bendir til, byggt sem íbúð fyrir verslunarstjóra Höphnersverslunar sem þá var á Skagaströnd. Í húsinu voru tvær íbúðir og kjallari. Seinna var húsið í eigu Kaupfélags Skagstrendinga og enn síðar í eigu Kaupfélags Húnvetninga. Lengst af bjuggu í húsinu kaupfélagsstjórar og/eða aðrir starfsmenn kaupfélagsins. Í nokkur ár var síðan húsið leigt út á almennum markaði og síðast bjuggu í því fjölskyldur Eðvarðs Ingvasonar og Þórs Arasonar. Húsið var svo rifið í kringum 1980.
larus087
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Helgi Gunnarsson yfirsmiður og verktaki í þungum þönkum.
larus017
Vígsla nýju kirkjunnar þann 20. október 1991. Biskup Íslands, vígslubiskup og klerkar sem voru við vígsluna.
052
Bærinn að Brandaskarði
larus071
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989. Í íslenskum hátíðarbúning, frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994).
Sigmar Hróbjartsson - safn007
Á þessari mynd er verið að byggja annan af tönkunum sem stóðu við Höfðann
30600012
Hafnarvitinn fram á löngu bryggu, sem heitir í dag Útgarður. Vitinn var byggður 1951.
Jón Jónsson 120
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
mundi519
Fremst á miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali var kallað Grafarbakki vegna nálægðar við mógrafir. Húsið var að lokum notað til æfinga fyrir slökkvuliðið og brennt.
larus094
Frágangur lóðar Hólaneskirkju. Arkitektar kirkjunar eru: Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall.
mundi383
Starfskona - líklega Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) - stillir hitastigið í sundlauginni með því að skrúfa frá eða fyrir heitavatnsrennsli í hana.
mundi516
Þetta er Laufás byggt af Sigurði Guðmundssyni (d.2.12.1984) smið giftur Margréti Björnsdóttur (d.11.9.1993) frá Syðra-Hóli á Skagaströnd. Hann var með trésmíðaverkstæði á neðri hæðinni en þau bjuggu á þeirri efri. í Útbyggingunni til hægri var fjós. Húshlutann til vinstri byggði Jón Kristjánsson Jónsson (d.20.12.2017) og Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988).
mundi400
Tveir óþekktir ungir drengir í Hofskirkju 1961. Ef þú þekkir drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
hem017
Fremst á myndin má sjá Jóhönnu Hemmert sitja líklega ásamt dóttur sinni Hólmfríði á túninu og vinnufólkið er í heyskap. Lengst til hægri er íbúðarhús verslunarstjóra Höphnersverslunar ljóst á litinn. Það var byggt 1774 en rifið 1908. Næst því er fjós og hesthús kaupmannsins sem sennilega var einnig notað sem pakkhús að hluta. Lengra til vinstri er lítið hús sem ber í stærra hús en litla húsið er Assistentastofa eða íbúðarhús verslunarþjónsins sem starfaði í versluninni. Ljósa lágreista húsið er verslunin sjálf en áfast við hana er háreist pakkhús. Við hornið á pakkhúsinu sér í þúst en það er íbúðarhúsið Sæmundsenbúð. Til vinstri við fólkið koma Brúarland, Móar, Lækur, Lækjarbakki, Karlsminni og Viðvík í röð. Fyrir neðan Viðvík er bátur og í fjörunni er Semingssteinn. Á Hólanesinu handan við víkina er stórt íbúðarhús og verslun Carls Berndsen og fram af því Árnes. Litla húsið, vinstra megin við Hólaneshúsin er Stiesenbær. Nær fjöllunum til vinstri er Stóra Berg og efst Litla Berg. Innst með ströndinni til hægri sést Bráðræði. Myndin er tekin fyrir 1907 sennilega árið 1904.
Sigmar Hróbjartsson - safn008
Myndin er tekin 1945 - 46. Verksmiðjan er í byggingu og skip liggur við hafnargarðinn sem er á þessum tíma mun styttri en hann (Útgarður) er í dag. Skipið á mydnini er varðskipið Ægir smíðað 1929. Dökka bóman, sem virðist tengjast afturmastrinu á Ægi, er í raun á krana sem var við vinnu á bryggjunni.
Ólafur Bernódusson008
Austruhlið Bjarmaness. Búið að rífa tröppur og forstofu sem þar voru.
Ólafur Bernódusson006
Hrólfur Pétursson vinnur við uppslátt á tröppum sunnan á Bjarmanesi 2003 eða 2004
Jón Jónsson122
Steypuvinna við nýju kirkjuna
larus078
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps. Konurnar tvær fremst á myndini eru óþekktar en á næsta bekk eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) kona hans, Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990) og Guðný Finnsdóttir. Standandi eru frá vinstri: Finnur Kristinsson, Jón Ingi Ingvarsson, Guðný Finnsdóttir, Laufey Ingimundardóttir (d. 31.12.1992), Birna Blöndal, óþekkt, Gunnar Sveinsson, óþekktur, Rúnar Kristjánsson, Guðrún Hrólfsdóttir og Grétar Haraldsson með kvikmyndatökuvél.
larus088
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Frá vinstri: Páll Þorfinnsson rafvirki, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og Örnólfur Hall arkitekt.
larus015
Predikunarstóll Hólaneskirkju eldri. Myndin tekin 6. október 1991.
larus016
Myndin er af kirkjuskipinu inni í Hólaneskirkju eldri. Á henni er Steindór Haraldsson meðhjálpari lengst til hægri en hitt fólkið er óþekkt. Myndin var tekin 6. október 1991.
larus021
Samkoma í Fellsborg eftir vígslu Hólaneskirkju 20. október 1991. Helgi Gunnarsson byggingameistari tekur við viðurkenningu fyrir vel unnin störf úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar formanns byggingarnefndar.
mundi412
Hlíð í Skagahreppi
larus057
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991. Ólafur Skúlason biskup predikar en í kórnum sitja prestarnir Egill Hallgrímsson, Guðni Þór Ólafsson og Pétur Þ. Ingjaldsson sem er innstur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir002
Brautarholt var bær sem byggður var inn í Gónhól - hólinn sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Þar bjó lengi Ólafur Guðmundsson sem í daglegu tali var kenndur við Brautarholt
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga 1963 að mig mynni
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga árið 1963 frá Hólaneskirkju. Fólkið á myndinni er,<br>talið frá vinstri: Kristinn Jóhannsson, Jóhann Pétursson. Guðmundur Jóhannesson, Karla Berndsen kona Þórarins, Þórbjörn Jónsson, Magnús Daníelson frá Syðri-ey, Óli Jón Bogason og Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
mundi425
<P> Andrésarbúðin eða verslun A. Guðjónssonar (Verslun Andrésar Guðjónssonar) Lengst til vinstri var heyhlaða síðan fjós og verslun Andrésar Guðjónssonar. Þegar Guðjón Andrésson tók við versluninni af föður sínum var fjósið gert að verslun líka og hlöðunni breytt í lager. Eftir 1970 hét versluninn Fellskjör um tíma en síðan verslun Hallbjörns Hjartarsonar. Hallbjörn hætti svo verslun í húsinu og stofnaði Kántribæ. Húsið brann en fjósið og hlaðan standa enn endurbyggð ásamt nýjum Kántrýbæ. </P>
hem030
Frú Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú við orgelið í stofunni heima hjá sér.
hem002
Á myndinni er til vinstri verslunarstjórahúsið því næst er fjós og hesthús. Við norðurenda þess gægist fram hornið á Assistentastofu. Húsið sem er lengst til hægri upp í Einbúanum var þvottahús. Myndin er frá 1913 eða fyrr, áður en nokkrar landfyllingar komu til sögunnar kringum Einbúann.
larus092
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalagnir.
larus089
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sigurjón Ástmarsrson vörubílstjóri t.v. og Jón Hannesson steypustöðvareigandi t.h. standa við vörubíl Sigurjóns
hem024
Myndin er tekin frá Spákonufellsey árið 1915-20. Á henni sjást frá vinstri verslunarstjórahúsið, Flankastaðir, Þvottahúsið og hægra megin við Einbúann er Assistentastofa, en þar bjó verslunarþjónninn sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Pakkhús kemur svo, lengra frá, og verslunin, ljós á litinn, nær okkur. Næst er svo Sæmundsenbúð og lengst til hægri Brúarland.
larus069
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson í fyrstu messunni í nýrri kálfkláraðri Hólanesskirkju 30. júlí 1989.
Jón Jónsson 117
Á myndinni eru frá vinstri. Steindór Haraldsson, Sr. Ægir Sigurgeirsson, Níels Grímsson, Sigurgeir Árni Ægisson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Hulda Árnadóttir og Birna Bjarnadóttir
mundi381
Börn að leik í sundlauginni á Skagaströnd. Frá vinstri: tvö óþekkt, Gréta Jónsdóttir, Hilmar Gunnarsson og Gylfi Jóhannsson.
larus040
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.<br>Biskupinn Herra Ólafur Skúlason við altarið og sóknarnefndarfólk ásamt prestum og meðhjálpara raða sér í kring. Frá vinstri: herra Bolli Gústafsson vígslubiskup á Hólum (1991 - 2002), Hallbjörn Hjartarson, herra Sigurður Guðmundsson fyrrverandi vígslubiskup á Hólum (1986 - 1991) áður prestur á Grenjaðarstað, Fjóla Jónsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, herra Ólafur Skúlason biskup, Steindór R. Haraldsson, Gylfi Sigurðsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson.
mundi388
Félagsheimilið Fellsborg á áttunda áratugnum.
mundi528
Ferðalangar frá Skagaströnd borða nestið sitt í skjóli við klettborg. Maðurinn sem stendur með hatt er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Jón Jónsson (d.9.7.1991) situr hægra megin við Pétur á myndinni, einnig með hatt.
Sigmar Hróbjartsson - safn005
Á þessari mynd er verið að byggja þrærnar. Undirstöðurnar undir rörin milli skemmu og verksmiðju ekki komin 1945 - 46
mundi402
Hofskirkja 1961
mundi518
Ásholt til vinstri og Ás til hægri. Myndin er tekin af hlaðinu í Ægissíðu þar sem ljósmyndarinn Guðmundur Guðnason átti heima.
mundi552
Frá vinstri: séra Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996), sr Árni Sigurðsson (d.26.10.2020) , sr Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991). Húsin á bak við eru,næst götunni, frá vinstri: Sólvellir, samkomuhúsið Tunnan og rafstöðin.
Skagaströnd verksmiðjan 001
Hér er verið að vinna við byggingu færibands fram á löndunarbryggjuna
Sigmar Hróbjartsson - safn013
Menn sem unnu við byggingu verksmiðjunnar 1945 - 46 bjuggu í tjöldum. Tjaldborgin var á túninu neðan við Tjaldklaufina. Aðkomuverkamennirnir sváfu í tjöldunum en borðuðu í mötuneyti.
Ólafur Bernódusson009
Austur og norður hliðar Bjarmaness. Búið að brjóta niður annan skorstein hússins og framkvæmdir í fullum gangi
1
2
3
4
5
…
65
Leita í myndasafninu
Leita