Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 280
Eva Dögg Bergþórsdóttir sýnir gamla hátísku á tískusýningu í Höfðaskóla á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 114
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Rebekka Laufey Ólafsdóttir að reyna að komast ákveðna vegalengd undir neti án þess að snerta það.
Höfðaskóli - safn 353
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að æfa sig í að lesa eitthvað upp sem þau svo fluttu á afmælisdeginum sjálfum.
Höfðaskóli - safn 132
Á þessari mynd eru nemendur og kennarar að gera sér glaðan dag með því að búa sig upp að vild og mála sig í framan. Hér verður hver að þekkja sig en á myndinni má m.a. sjá kennarana Helgu Ólínu Aradóttir með skegg, Lárus Ægi Guðmundsson með appelsínugula hárkollu, Guðbjörgu Ólafsdóttur með rauða hárkollu, Þórunni Bernódusdóttur með blómahatt og Báru Þorvaldsdóttur með vefjahött. Myndin var tekin á torginu á Hnappstaðatúninu seint á 10. áratugnum.
Höfðaskóli - safn 289
Á myndinni er hluti starfsfólks Höfðaskóla í eldhúsi skólans. Líklega var myndin tekin í nóvember 1999 á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Dagný Úlfarsdóttir kennari, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Guðbjörg Ólafsdóttir kennari, Guðrún Soffía Pétursdóttir stuðningsfulltrúi og Unnur Kristjánsdóttir kennari.
Höfðaskóli - safn 256
<p>Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Þessi mynd var tekin af leikþætti þar sem sett var á svið dagur í skólanum. Fremst á myndinni sér aftan á Sindra Njál Hafþórsson. Hinir eru frá vinstri: Hanna María Gylfadóttir, ?Ívar Gylfason?, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekkt, Kristinn Hjálmtýsson og Hákon Unnar Þórarinsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Höfðaskóli - safn 183
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs meðal annars með því að fara í ratleik um allan bæ og leysa hinar margvíslegustu þrautir. Ein þrautin var að fá lánaða hluti út í bæ til að geta síðan bakað pönnukökur í skólanum á eftir. Hér hefur einn hópurinn í ratleiknum bankað upp á að Oddagötu 5 til að fá eitthvað lánað. Frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Hrefna Björnsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Jóhanna, Bessi og Hrefna eiga (áttu) heima á Oddagötu 5.
Höfðaskóli - safn 261
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni er þeir klárir til að taka þátt í týskusýningu, Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Ívar Kristberg Einarsson til hægri.
Höfðaskóli - safn 300
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Hér eru krakkarnir að útbúa sér nesti til dagsins. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Bæring Skarphéðinsson, Sverrir Berndsen, Elva Dröfn Árnadóttir og Ásdís Lýðsdóttir. Hægra megin við borðið eru: Davíð Bragi Björgvinsson (næst), Guðjón Hall Sigurbjörnsson (í miðið) og Heiðrún Ósk Níelsdóttir (fjærst).
Höfðaskóli - safn 163
Guðmundur Oddson var kennari við Höfðaskóla um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 571
Akur eða Hólabraut 13 á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 186
Laufey Inga Stefánsdóttir við skólavinnu í íþróttahúsinu. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Höfðaskóli - safn 251
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Þetta góða fólk kom í heimsókn í Höfðaskóla á einhverjum opnum degi þar. Frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Lárus Ægir Guðmundsson og séra Guðmundur Karl Brynjarsson. María og Lárus voru bæði fyrrverandi kennarar við skólann og Guðmundur var sóknarprestur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 636
Lækjarbakki er fyrir miðri mynd. Til vinstri eru fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Lækjarbakka en eru nú horfin. Til hægri er braggi sem er horfinn en þar var m.a. rekið bílaverkstæði og var seinna slökkvistöð Skagastrandar.
Höfðaskóli - safn 339
Auður Eva Guðmundsdóttir vinnur verkefni í Höfðaskóla líklega kringum 1990.
Höfðaskóli - safn 392
Einhverntíma á jólaföstunni hittist starfsfólk Höfðaskóla gjarnan og gerir saman laufabrauð. Þessi mynd var tekin við þetta tækifæri 2. desember árið 2000. Þarna fletja þau út kökurnar sínar Hans Holger Jörgensen og Ingibjörg Jónasdóttir sem bæði voru kennarar við skólann á þessum tíma.
Höfðaskóli - safn 202
Þessi mynd var tekin á útivistardegi hjá Höfðaskóla einhverntíma kringum 1985. Gunnar Borg Jónsson reynir sig við að ganga eftir slá með því að nota tvo steina sem hann þarf að færa til skiptis og standa á. Vilborg Magnúsdóttir kennari og Þorlákur Sveinsson fylgjast með að farið sé að settum reglum.
Höfðaskóli - safn 288
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Þessi mynd er af einu keppnisliðinu þ.e. nemendur fæddir 1978. Frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Þóra Ágústsdóttir og Sigurður Berndsen. Lukkudýr bekkjarins er á borðinu hjá liðinu.
Höfðaskóli - safn 329
Kaffitími á kennarastofunni í Höfðaskóla. Frá vinstri eru kennararnir: Ólafur Bernódusson, Sigríður Stefánsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Reynir Grímsson. Myndin var tekin á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 149
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 213
<p>Þrír starfsmenn Höfðaskóla láta fara vel um sig í skólanum þegar næði gafst. Frá vinstri: Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) ræstitæknir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, með dóttur sína í fanginu, og Jóhanna Jónsdóttir kennari með dóttur sína, Lindu Hafdal, í fanginu.</p>
Höfðaskóli - safn 286
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Á þessari mynd er lið eins bekkjarins þ.e. nemenda fæddra 1975. Frá vinstri: Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Jóhannes Óskarsson og Svanur Árnason. Á borðinu hjá þeim er lukkudýr bekkjarins. .
Árni Geir Ingvarsson - safn 608
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Árni Geir Ingvarsson fyrir utan Akur þar sem amma þeirra, Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) bjó. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Höfðaskóli - safn 165
Aðalheiður Sif Árnadóttir kennari í jólastuði í Kántrýbæ þegar starfsfólk Höfðaskóla kom þar saman til að fá sér að borða. Allir urðu að klæða sig upp í einhverja óvenjulega búninga til að fá að vera með. Myndin var tekin 27.maí 2000.
Höfðaskóli - safn 152
Nemendur fæddir 1982 í stærðfræðitíma í Höfðaskóla líklega 1997 eða 1998. Aftasta röð frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir og Karen Peta Karlsdóttir. Miðröð frá vinstri: Ásdís Lýðsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Ólafur Guðmundsson. Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Elvar Jóelsson og Magnús Árni Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 133
<p>Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin en það liggur greinilega vel á þeim vinkonunum Guðrúnu Hjálmtýsdóttur til vinstri og Önnu Maríu Magnúsdóttiur til hægri.</p>
Höfðaskóli - safn 224
Myndin var tekin í heimilisfræðitíma í eldhúsinu í Höfðaskóla í nóvemberlok 1998. Líklega er verið að steikja laufabrauð. Á myndinni eru frá vinstri: Leó Kristberg Einarsson, Guðbjörg Ólafsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Jón Ingi Ragnarsson.
Höfðaskóli - safn 361
Nemendurnir eru mis alvarlegir á fundi í Höfðaskóla með kennara. Ef miðað er við bækurnar á borðunum er umræðuefnið landafræði. Myndin var sennilega tekin einhverntíma 1993 - 1995. Frá vinstri: Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Linda Hafdal, Auður Eva Guðmundsdóttir (við borðið), Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 177
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í náttfötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er einn hópurinn að skoða hvert næsta verkefni ratleiksins er. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Bára Þorvaldsdóttir.
Höfðaskóli - safn 141
<p>Myndin sýnir unga skólabræður úr Höfðaskóla í heimsókn á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Sindri Njáll Hafþórsson, Björn Viðar Jóhannsson, Friðvin Ingi Ernstsson, Eyþór Kári Egilsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.</p>
Höfðaskóli - safn 164
Oft heldur starfsfólk Höfðaskóla upp á lok skólaársins með því að fara í dags ferðalag saman. Þessi mynd var tekin úti í Drangey í einu slíku ferðalagi. Fjóla Jónsdóttir horfir fram af brúninni en Jens ? og Dagbjört Bæringsdóttir fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 620
Hér eru þrjú systkini sem áttu heima á Bogabraut 16, frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Gréta Ingvarsdóttir. Á myndinni eru þau utan við Akur (Hólabraut 13). Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1970.
Höfðaskóli - safn 384
Hlustað og fylgst með í Höfðaskóla á einhverjum fundi. Frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, óþekkt, óþekkt, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Eiður Örn Þórsson og Jón Ólafur Sigurjónsson. Sennilega var myndin tekin kringum 1995. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 295
Einar Haukur Arason smíðakennari í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin vorið 1987 á kennarastofunni.
Höfðaskóli - safn 236
Þessi mynd var tekin 1983 eða 1984 í tíma hjá fjórða bekk í Höfðaskóla. Við borðið nær okkur eru: óþekkt (?Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir?), Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson. Við borðið fjær eru frá vinstri: Ása Ósk Ásgeirsdóttir, óþekkt, Atli Þórsson, óþekkt og Reynir Lýðsson.
Höfðaskóli - safn 345
Þessi mynd var tekin af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum líklega árið 1984 eða 1985. Frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Ingunn Kristjánsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, fimm óþekktir, Jensína Lýðsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Baldvin Sveinsson, Þráinn Bessi Gunnarsson og Guðmundur Óskarsson.
Höfðaskóli - safn 128
Hér er greinilega hópavinna í gangi í skólastofunni. Fremst til vinstri eru Birna Ágústsdóttir og Sigrún Líndal, sem er í appelsínugulum bol. Aftan við þær er Hallgrímur Axelsson. Strákurinn í hvíta bolnum er Bæring Skarphéðinsson en hann situr við borð með Birki Rafn Gíslasyni.
Höfðaskóli - safn 225
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Jóna María Guðrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 640
Þeir sem kunnugir eru á Skagaströnd munu sjá að bærinn hefur breyst töluvert frá því að þessi mynd var tekin, sennilega upp úr 1980. Sökkull er komin undir nýju kirkjuna en sú gamla stendur enn, bygging íþróttahússins er ekki hafin, Stóra-Berg stendur enn og sama má segja um Ásbyrgi, Drangey, Rjúpnafell og Sæborg (Góubærinn) en öll þessi hús eru nú horfin. Kántrýbær er eins og hann var fyrir bruna og endurbætur á Bjarmanesi eru ekki hafnar.
Höfðaskóli - safn 130
Birna Sæmundsdóttir. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 325
Þrír ungir strákar úr Höfðaskóla bíða eftir að komast á sviðið í Fellsborg til að æfa árshátíðaratriði sitt. Myndin var sennilega tekin kringum 1990. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Kristinn Björgvinsson og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 227
Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir í Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Höfðaskóli - safn 129
Skólabræður úr Höfðaskóla, Birkir Rúnar Jóhannsson til vinstri og Kristinn Daníel Guðmundsson til hægri. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 138
Þessi mynd, úr skólastofunni Hreiðrinu, var sennilega tekin á öskudegi einhverntíma kringum 1995. Frá vinstri: Erla María Lárusdóttir, óþekktur, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Auður Eva Guðmundsdóttir og Ástmar Sigurjónsson. Ef þú veist hver óþekkti nemandinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 387
Líney Jósefsdóttir í Höfðaskóla þar sem hún kenndi um tíma. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 355
Líklega eru stúlkurnar tvær á myndinni að undirbúa árshátíð Höfðaskóla eða einhverja aðra sýningu. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1990. Til vinstri er Karen Peta Karlsdóttir en til hægri er óþekkt stúlka (?Svava Magnúsdóttir?) . Ef þú þekkir stúlkuna til hægri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 241
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku vorið 2001. Frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir (nær), Eva Dögg Bergþórsdóttir (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson, Guðrún Hjáltýsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen (nær), Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) (fjær), Ragnar Einarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir (nær), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir (fjær), Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir (næst), Stefán Agnar Gunnarsson (í miðju), Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir (fjærst), óþekkt, Pétur Jensen (nær) og Birkir Rúnar Jóhannsson (fjær). Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 324
Hér vinna þrjár stúlkur að sameiginlegu verkefni í Höfðaskóla sennilega einhverntíma kringum 1992. Frá vinstri: Elísabet Vattnes, Þóra Ágústsdóttir og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 298
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sverrir Berndsen, Birna Ágústsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og Birkir Rafn Gíslason.
Höfðaskóli - safn 187
Hér er kíkt inn í kennslustund í íþróttahúsinu einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Nemendurnir eru, frá vinstri: Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Elna Ragnarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, óþekkt stúlka, Kristján Ýmir Hjartarson og Þórður Indriði Björnsson.
Höfðaskóli - safn 126
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Á myndinni stilla börn fædd 1990 sér upp með kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Fremsta röð frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og óþekktur. Miðröð frá vinstri: Ívar Gylfason, Unnur kennari, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekkt, óþekktur, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Árnason og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftasta röð frá vinstri: Hákon Þórarinsson, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Óðinn Örn Sævarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 341
Þessir ungu menn, með verlaunapening um hálsinn, eru sennilega fótboltalið frá Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1998 -2000. Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Friðvin Ingi Ernstsson, Ívar Gylfason, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Albert Ingi Haraldsson og Eyþór Kári Egilsson.
Höfðaskóli - safn 168
Tóbaksvarnaráð hélt samkeppni í nokkur ár meðal 8. bekkinga á landinu um besta áróðurefnið gegn tóbaksreykingum. 8. bekkir Höfðaskóla sigruðu tvisvar í þessari keppni en verðlaunin voru vikuferð til Danmerkur. Þessir nemendur sigruðu árið 2001 með áróðursspjöldum og bæklingi sem borinn var í hús á Skagaströnd. Krakkarnir fóru síðan í skemmtilega ferð til Danmerkur í framhaldinu. Á þessari mynd eru krakkarnir að kynna framlag sitt til keppninnar í Samkaupum og reka áróður gegn reykingum í leiðinni. Frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir (situr), Björn Viðar Jóhannsson (með rauða húfu), Eyþór Kári Egilsson (með bláa húfu), Friðvin Ingi Ernstsson, Kristinn Andri Hjálmtýsson, Hanna Rúna Gestsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir (með gula húfu), Katrín Inga Hólmsteinsdóttir og Rósa Björg Einarsdóttir (í hvítri úlpu).
Höfðaskóli - safn 376
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt af atriðunum sem sýnd voru var dans nokkurra stúlkna. Á myndinni er hluti þeirra. Frá vinstri: óþekkt, María Guðrún Guðmundsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 320
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er Sara Rut Fannarsdóttir, þá sex ára gömul, að leika kennslukonu í leikþætti sem sýndur var þennan dag í skólanum.
Höfðaskóli - safn 125
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Fjær eru frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Björk Guðmundsdóttir. Nær okkur frá vinstri: Brynja Ágústsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir.
Höfðaskóli - safn 184
Ingibergur Guðmundsson skólastjóri Höfðaskóla 1991 - 2005. Myndin var tekin í íþróttahúsinu sem var vígt 1998.
Höfðaskóli - safn 200
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari aðstoðar, frá vinstri: Björn Sigurðsson, Árný Elfu Helgadóttur og Svövu Magnúsdóttur við einhverja skólavinnu í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 297
Þessir nemendur Höfðaskóla tóku sig til og söfnuðu peningum fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Peningana afhentu þau síðan sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) sem þjónaði á Skagaströnd 1991 - 1997. Á myndinni er frá vinstri: Davíð Björgvinsson, Ásdís Lýðsdóttir (nær), Ragna Magnúsdóttir (fjær), Sveinþór Ari Arason (fjær), Þóra Lísebet Gestsdóttir (nær), Karen Peta Karlsdóttir (nær), Andri Ómarsson (fjær), Bæring Skarphéðinsson, Elva Dröfn Árnadóttir (nær), séra Egill (fjær), Ólafur Guðmundsson (fjær), Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir (nær), Hafsteinn Auðunn Björnsson (fremst), Sigrún Líndal Þrastardóttir (næst fremst), Birna Ágústsdóttir (næst aftast), Unnur Kristjánsdóttir kennari (aftast), Elvar Arinbjörn Grétarsson, Magnús Hallgrímsson (fjær) og Heiðrún Ósk Níelsdóttir (nær). Myndina tók Ólafur Bernódusson einhverntíma á árunum 1991 - 1993.
Höfðaskóli - safn 243
Þessar þrjár vinkonur úr Höfðaskóla hvílast og fá sér nammi í skólaferðalagi í Danmörku 2001. Fremst er Tinna Björk Gunnarsdóttir en aftan við hana er Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Anna Dúna Rúnarsdóttir til hægri
1
…
39
40
41
…
65
Leita í myndasafninu
Leita