Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 342
Nemendur úr 10. bekk Höfðaskóla í heimsókn á skólakynningu. Myndin var tekin annað hvort í FNV á Sauðárkróki eða VMA á Akureyri. Í sömu ferð komu krakkarnir við í MA. Krakkarnir fá kynningu á skólunum í slíkum heimsóknum og eru leidd gegnum allar deildir þeirra. Stundum voru slíkar heimsóknarferðir farnar með Blönduskóla og Húnavallaskóla. Þessi mynd var tekin 1993 eða 1994. Frá vinstri: Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, óþekktur kennari, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Sigurður Berndsen, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, óþekkt, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, óþekkt, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir og óþekkt.
Höfðaskóli - safn 195
Í svokallaðri Vinnuviku, sem haldin var í Höfðaskóla annað hvert ár, var hefðbundið skólastarf lagt til hliðar og nemendurnir fengu önnur verkefni til að fást við. Á þessari mynd, sem tekin var í einni slíkri viku, þar sem áherslan var á heilsu og heilbrigði, er nemendahópur ásamt kennurum, sem buðu upp á heilsusamlegan morgunverð fyrir nemendur skólans. Frá vinstri: Guðrún Björk Elísdóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Líney Jósefsdóttir heimilisfræðikennari, Jóhannes William Grétarsson, Gunnþór Óskar Sæþórsson, Gunnar Dór Karlsson, Ólína Laufey Sveinsdóttir?, Carl Erik Lehman Jakobsen íþróttakennari, óþekktur, Skúli Már Matthíasson og Eyþór Ernstsson.
María Magnúsdóttir - safn 045
Vörubíllinn D - 104 var úr Dalasýslu samkvæmt númeraplötunni. Hér er bíllinn, sem er með stýrið hægra megin upp breskan máta, á hlaðinu á Syðra Hóli. Gamli bærinn þar sést í baksýn uppi á bæjarhólnum. Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli átti bílinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 277
Jóhann Örn Stefánsson í þungum þönkum í Höfðaskóla kringum árið 2000.
Höfðaskóli - safn 394
Þessi mynd var tekin í vorferð starfsfólks Höfðaskóla. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær en það mun hafa verið kringum 2000. Á myndinni eru Kristín Kristmundsdóttir stuðningsfulltrúi til vinstri og Dagbjört Bæringsdóttir skólaliði til hægri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 145
Réttarholt í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd).
María Magnúsdóttir - safn 065
Óþekktur maður á hestbaki í túninu við Syðri Hól, sem er í baksýn. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 206
Örlygsstaðir II í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 118
Brautarholt á Skagaströnd. Húsið stóð nokkurn vegin þar sem Fellsbraut 9 er í dag eða við hól sem þar er og kallast Kíkishóll vegna útýnis af honum út á sjó áður en byggðin fór að skyggja á. Fólkið á myndinni er líklega Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985 ) og kona hans Þuríður Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) en þau bjuggu í Brautarholti.
Höfðaskóli - safn 381
Nemendur Höfðaskóla syngja saman lagið: "Ó, Borgin mín", eftir Hallbjörn Hjartarson við texta Kristjáns Hjartarsonar(d. 2.8.2003) Myndin var tekin einhverntíma kringum 1989 líklega í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Aftarlega í miðjum hópnum er Páll Leó Jónsson skólastjóri en hann var skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991. Síðan verður hver og einn að þekkja andlitin á myndinni.
Höfðaskóli - safn 310
Bakstur í heimilisfræðitíma í Höfðaskóla 1987 eða 1988. Kristinn Björgvinsson og Fjóla S. Ómarsdóttir eru næst okkur að hnoða deig. Stúlkan í bleika bolnum til hægri er Kolbrún Jenný Ragnarsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 336
Þessir nemendur Höfðaskóla unnu í samkeppni um áróðursefni fyrir reykleysi á vegum Tóbaksvarnarnefndar. Verðlaunin voru ferðalag til Danmerkur, sem þessir krakkar fóru í um vorið. Myndin var tekin árið 2000 eða 2001. Aftari röð frá vinstri: Kristinn Andri Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Hanna Rúna Gestsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Björn Viðar Jóhannsson, Rósa Björg Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Höfðaskóli - safn 332
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er tískusýning í gangi en hún var eitt af atriðunum sem sýnd voru þennan dag. Frá vinstri: Sóley Elsa Blöndal, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Silfá Árnadóttir, Amy Ósk Ómarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson og Elva Ösp Gunnarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 210
Krókssel í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 309
Leikskólabörn á öskudegi með kennurum sínum. Konan með pokann er óþekkt en Þórunn Bernódusdóttir er í drapplitri úlpu í miðið og Bára Þorvaldsdóttir er lengst til hægri. Grímubúin börnin eru óþekkt.
Páll J. Pálsson safn 7
Myndin var tekin 1946 á hlaðinu á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bóndi á Bakka að járna hest með aðstoð Þorgríms (d. 7.9.2013) sonar síns. Önnur börn Páls fylgjast með en þau eru frá vinstri: Páll Jónatan, María og Björg.
Héraðsskjalasafn A-Hún 35
Karlsminni sem stóð á túninu upp af víkinni milli Lækjarbakka og Strandgötu 10. Á þessum stað hóf F.H. Berndsen (d. ?) beykir verslunarrekstur 1875 mitt á milli verslanna á Hólanesi og á Skagaströnd (við Einbúann). Var hún rekin þarna fram að 1887 en þá brunnu þáverandi hús til grunna í miklu mannskaðaveðri. Eftir það var verslunin færð inn á Hólanes og starfrækt þar af Carli Berndsen (d. 1939), syni F.H. Berndsen, fram að fyrra stríði. Karlsminni var þá orðin þurrabúð eða venjulegt heimili þar sem ekki var skepnuhald. (heimild: Byggðin undir Borginni).
Héraðsskjalasafn A-Hún 207
Örlygsstaðir í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Höfðaskóli - safn 327
Gunnþór Óskar Sæþórsson í eldhúsinu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1993.
Fisk Seafood - safn 017
Aðfaranótt 22. október 1997 kom upp eldur í veitingahúsinu Kátrýbæ. Helmingur hússins brann það illa að ekki var um annað að ræða en að rífa brunarústirnar. Á þessum myndum er verið að rífa þann hluta hússins sem brann. Þess má geta að Kántrýbær var strax endurbyggður á sama stað en með nýju sniði. Veitingastaðurinn var síðan opnaður aftur í því húsi þann 27. júní 1998.
Ólafur Bernódusson592
Á myndinni er séra Guðmundur Karl Brynjarsson í hópi unglinga fæddra 1983 - 1985 í æskulýðsstarfi í Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir (framar) og Birna Sæmundsdóttir (aftar). Næsta röð: séra Guðmundur Karl, tvær óþekktar og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir). Strákarnir eru frá vinstri: Jón Oddur Hjálmtýsson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Gunnlaugur Briem, Vignir Örn Hafþórsson, Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Ernstsson og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 37
Bærinn að Spákonufelli og Spákonufellskirkja lengst til hægri. Þessar byggingar stóðu þar sem hluti kirkjugarðsins er í dag. Samkvæmt bókinni: "Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 -2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson er víst að kirkja var reist að Spákonufelli kringum aldamótin 1300. Kirkja safnaðarins var svo færð í nýja kirkju á Hólanesi 1928 en fram að því var kirkja að Spákonufelli en í afar misjöfnu ásigkomulagi gegnum árin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 195
Eyjakot í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 5
Séra Björn Lárusson Blöndal (1870 - 1906) prestur á Hofi á Skagaströnd og á Hvammi í Laxárdal.
Héraðsskjalasafn A-Hún 141
Eldri mynd af Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 75
Þessi mynd af Skagaströnd hefur verið tekin af Höfðanum sennilega 1948. Skúffugarðurinn er í smíðum og "Dokkin", sem var leiksvæði krakka í útbænum, er vestan við Hafnarhúsið. Hún var seinn fyllt upp með sanddælingu úr höfninni. Á myndinni má sjá mörg hús sem nú eru horfin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 74
Háagerði í Höfðahreppi nú Sveitarfélaginu Skagaströnd. Bærinn á myndinni er horfinn og nú er 9 holu golfvöllur - Háagerðisvöllur - í eigu Golfklúbbs Skagastrandar á jörðinni. þar sem bærinn stóð stendur nú golfskáli klúbbsins.
Ólafur Bernódusson585
Nokkrum sinnum hefur vetrarstarfið í Höfðaskóla verið brotið upp með vinnuviku eða starfsviku þar sem allir nemendur og kennarar skólans vinna að sameiginlegu verkefni með mismunandi nálgun allt eftir aldri og getu nemendanna. Hér gefur að líta nokkra nemendur í vinnu í einni slíkri viku líklega einhverntíma kringum 1990. Drengurinn með spray-brúsann er Kristinn Björgvinsson og til hægri við hann er Auður Eva Guðmundsdóttir. Næst okkur á myndinni til hægri er Guðjón Hall Sigurbjörnsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 002
Messu í gömlu Hólaneskirkju lokið. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til hægri og óþekktur prestur til vinstri þakka fólki fyrir komuna. Maðurinn lengst til vinstri er Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum. Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) er að fara að stíga niður tröppurnar en fyrir aftan hana, í ljósri kápu, er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir er að koma út um kirkjudyrnar ásamt óþekktir gamalli konu. Hjá barnavagninum standa hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 373
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á þessari mynd eru fimm galvaskir drengir úr Höfðaskóla á ókunnu torgi einhversstaðar í Danmörku. Frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Gunnlaugur Briem, Gunnar Helgason, Jón Gunnar Einarsson og Jón Ingi Ragnarsson.
Höfðaskóli - safn 313
Vignir Örn Hafþórsson í góðum gír í Höfðaskóla í nóvember 1998.
Höfðaskóli - safn 375
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt af atriðunum sem sýnd voru var samsöngur þessarra krakka. Frá vinstri: Rósa Björg Einarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir (nær), og Sunna Gylfadóttir. Fremst krýpur Ólína Selma Þórarinsdóttir í einhverju krumma-hlutverki.
Héraðsskjalasafn A-Hún 50
Vindhæli í Skagabyggð áður Vindhælishreppi
María Magnúsdóttir - safn 146
Þessi mynd er merkt með stimpli: GOODALL PHOTO CO WINNIPEG. Handskrifað aftan á myndina er líka: "Heimilið okkar. Hús og fjós tekið yfir ána í flóði. 1943. Home of Jón Hermannsson Hillmann. Medicine River - Meðala áin".
María Magnúsdóttir - safn 310
Ólafur Bernódusson kennari stjórnar fjöldasöng nemenda úr unglingadeild Höfðaskóla líklega á Úlfljótsvatni sem var gististaður á skólaferðalagi um suðurland. Þekkja má meðal nemendanna Dagný Sigmarsdóttur í rauðri peysu á miðri mynd og Rannveig Jónsdóttir er við hlið hennar með töluna 8 á peysunni sinni. Yfir olnbogann á Ólafi má sjá hálft andlit Magnúsar B. Jónssonar kennara en aðrir á myndinni eru óþekktir. Lengst til hægri á myndinni má sjá spilað undir á gítar. Líklega er það Guðmundur Jónsson sem spilar.
Óþekktur ljósmyndari 395
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar komið á staðinn og verið að leggja út slöngur í bílinn sem glittir í niður í fjörunni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 272
Góður dagur í Höfðaskóla hjá þessum þremur ungu stúlkum í nóvember 1999. Fyrir framan er Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir til vinstri og Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn 333
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd sýna nemendur dans en það var eitt af atriðunum sem voru í boði þennan dag. Frá vinstri: óþekkt, Andrea Kristjánsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir (fjær), óþekktur Reynisson, óþekktur Reynisson, Hanna Rúna Gestsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari 397
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að ná tökum á eldinum, sem var gríðarlegur. Ekki þótti óhætt að fara inn í húsið af því að þar voru gaskútar að springa og svo var húsið stálgrindahús og vegna hitans hefði það getað lagst saman hvenær sem var. Lengst til hægri er Sigurjón Ingólfsson, Gísli Snorrason er að ganga að húsinu en Vilhelm Jónsson er að ganga frá því. Aðrir eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 18
Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri) í sunnudagaskóla eða æskulýðsmessu einhverntíma kringum 1968. Á fremsta bekk sitja frá vinstri: Sigríður Birna Björnsdóttir, Aðalheiður Másdóttir frá Réttarholti, Elsa Lára Blöndal með bróður sinn Kristján Blöndal í fanginu og Hrönn Árnadóttir. Lengst til vinstri á öðrum bekk er Jón Hallur Pétursson síðan koma systkinin Ragnar Högnason og Rósa Björg Högnadóttir. Upp við vegginn, með úlpuhettuna á höfðinu er Sólveig Gunnarsdóttir. Konan með hattinn er Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) kaupkona í versluninni Borg og aftan við hana eru Ástmar Kári Ástmarsson og Gísli Snorrason. Aftast til hægri sér í Guðmund Lárusson (d.15.10.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 113
Njálsstaðir í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Höfðaskóli - safn 335
Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) á sameiginlegri vorsýningu nemenda Höfðaskóla og eldri borgara á Skagatrönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið í kringum 1990.
Héraðsskjalasafn A-Hún 67
Skeggjastaðir Skagahreppi nú Skagabyggð. Húsið var byggt á fimmta áratugnum.
Jón Jónsson 367
Jón Jónsson, sem tók þessa mynd, átti nokkrar kindur í fjárhúsi við heimili sitt. Eins og aðrir sauðfjáreigendur var hann stoltur af kindunum sínum og þótti vænt um þær. Myndin sýnir nokkrar þeirra á lóð sem nú er löngu byggð. Ef grannt er skoðað sést að ekki er búið að byggja neitt sunnan við Hólabrautina sem er til hægri á myndinni. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1950.
Höfðaskóli - safn 391
Hans Holger Jörgensen íþróttakennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Myndin var tekin 8. desember 2000.
Óþekktur ljósmyndari 382
Þessi mynd var líklega tekin 1945 eða 1946 á sjómannadegi. Þá fóru hátíðahöldin fram á blettinum framan við Hólaneshúsið þar sem ræðumaður dagsins stendur á svölunum og heldur ræðu. Til hægri má sjá uppslátt að byggingu hússins Hjallholts en húsið með kvistinum er Grund. Ef rýnt er í myndina af Hólaneshúsinu má sjá dauft á norðurhliðinni; VERZLUN C....
Héraðsskjalasafn A-Hún 100
Kú á beit í Kálfshamarsvík. Fjær sjást bæirnir Saurar og Ós.
Jón Jónsson 361
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru kennarar skólans að flytja eitthvert atriði. Frá vinstri: Páll Leó Jónsson skólastjóri, Jóhanna Jónsdóttir, Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri, Guðrún Kristjánsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, William Sillar, Inga Matthíasdóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 33
Myndin var líklega tekin af Hólsnefinu sem er syðsti oddi Höfðans. Húsin næst okkur á myndinni eru fiskvinnsluhús en bryggjan, sem byggð var rétt austan við Hólsnefið, var fram af ljósa húsinu. Annars var lending í víkinn sem sést á myndinni og hefur nú verið fyllt upp. Ljósa tvílyfta húsið var verslunarstjórahús en gömlu húsin til hægri á myndinni voru verslunarhús. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1910.
Óþekktur ljósmyndari 393
Inga Matthíasdóttir og Björk Axelsdóttir kennarar vinna að einkunnagjöf á kennarastofunni í Höfðaskóla líklega 1986.
Héraðsskjalasafn A-Hún 69
Steinnýjarstaðir Skagahreppi nú Skagabyggð. Myndin sýnir gamla bæinn á Steinnýjarstöðum. Miklil uppbygging hefur átt sér stað á Steinnýjarstöðum síðan hún var tekin. Byggt hefur verið nýtt íbúðarhús með tveimur íbúðum, nýtt fjós og fleira.
Héraðsskjalasafn A-Hún 111
Núpur í Laxárdal. Núpur hefur verið í eyði lengi og flest öll húsin á myndinni eru horfin.
Páll J. Pálsson safn 8
Bærinn Bakki í Skagahreppi nú Skagabyggð. Myndin er af gamla bænum á Bakka. Hana tók Gunnar Guðmundsson sumarið 1950 en hann er maður Lilju Pálsdóttur sem er fædd þar og upp alin. Lengst til vinstri er gamla baðstofan sem var byggð kringum 1900. Svo kemur hærri bygging sem er svefnherbergi á efri hæð með tveimur tveggja manna rúmum. Stofa á neðri hæðinni en hún var oft notuð sem svefnherbergi. þessi bygging var reist kringum 1943. Herbergin voru hituð með móofnum. Lengst til hægri er heyhlaða. Á bak við gömlu baðstofuna var eldhús með móeldavél. Bak við stofuna var fjós sem tók fjóra gripi og súrheysgrifja við enda hlöðunnar. Haughús var á bak við eldhúsið, mógeymsla á milli fjóss og eldhúss. Innangengt var milli allra rýma hússins. Páll Tómasson (d. 3.6.1963) og María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) bjuggu á Bakka 1923 -1960 og eignuðust níu börn. Eitt barnanna dó í æsku en hin komust öll til fullorðinsára. <br>Mynd númer 9580 í Ljósmyndasafninu er grunnmynd af Bakka þ.e.a.s. af neðri hæðinni.
Höfðaskóli - safn 366
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. M.a. gisti hópurinn á tjaldsvæði í nokkrum húsum eins og sjást á myndinni. Á myndinni sést hluti hópsins að bíða eftir rútu, sem flutti þau til Árósa. Frá vinstri: Adolf Þór Lúðvíksson, Marta Kristín Jónsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir?, Ásdís Lýðsdóttir, óþekkt, Karen Peta Karlsdóttir (snýr baki í myndavélina) , Geirþrúður Guðmundsdóttir, óþekktur, Jón Ingi Ragnarsson, Magnús Líndal Þrastarson og Gunnlaugur Briem.
Héraðsskjalasafn A-Hún 114
Skrapatunga í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 231
Aftan á myndinni stendur: "Harry + Pete Hillman´s barn. 1940". Myndin var tekin í Vestuheimi sennilega einhversstaðar nálægt Winnipeg. Greinilegt er að eigandinn er stoltur af þessari eign sinni fyrst hann/hún er að senda myndir af hlöðunni heim til gamla landsins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 16
Gamla prestsetrið á Höskuldsstöðum og Höskuldsstaðakirkja sem vígð var 31. mars 1963. lengst til hægri á myndinni má sjá í örlítið horn af gömlu kirkjunni. Prestsetrið hefur nú verið rifið.
Héraðsskjalasafn A-Hún 14
Bakki í Skagahreppi, nú Skagabyggð. Myndin er af suðurhlið bæjarins en hún var tekin sumarið 1960. Það sama haust fluttu síðustu ábúendur þessa gamla bæjar út en þau voru Páll Tómasson (d.3.6.1963) og kona hans María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975). Þau bjuggu á Bakka 1923 - 1960.
Héraðsskjalasafn A-Hún 101
Saurar í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Saurar eru löngu komnir í eyði og bærinn hruninn að mestu.
Höfðaskóli - safn 371
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Á þessari mynd er hópurinn í skoðunarferð á óþkktum stað. Frá vinstri: Elva Mjöll Þórsdóttir, óþekktur, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, óþekktur, Ásdís Lýðsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, María Markovic, Guðni Lýðsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Vignir Örn Hafþórsson, Elín Anna Konráðsdóttir og Guðjón Ebbi Guðjónsson.
1
…
42
43
44
…
65
Leita í myndasafninu
Leita