Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 749
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru menn frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar að slá upp fyrir kantsteini til afmörkunar á svæðinu framan við skólann. Mennirnir eru frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Ómar Ingi Ómarsson og Einar Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 765
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Á þessari mynd er Árni Geir Ingvarsson að vinna við þökulagningu á lóðinni umhverfis Árnes fyrir opnunina.
Hallgrímur Kristmundsson safn024
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) á tröppunum við Kaupfélagshúsið. Þó ekki sé vitað nákvæmlega hvenær myndin var tekin var á þeim tíma verslun í húsinu á tveimur neðri hæðunum en skrifstofa og fleira á efstu hæðinni. Húsið var byggt 1929 -1930 fyrir Verslunarfélag Vindhælinga sem seinna breyttist í Kaupfélag Skagstrendinga eins og stendur á húsinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 70
Hafnir Skagahreppi nú Skagabyggð. Gamli bærinn er til hægri á myndinni. Hafnir eru hlunnindajörð með æðarvarpi, selveiðum og reka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 13
Þessi mynd sýnir gömlu verslunarhúsin á Hólanesinu en þau brunnu til ösku með öllu sem í þeim var á Þorláksmessu 1892. Myndina tók Evald Hemmert kaupmaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 745
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og greinilegt að börnin kunna vel að meta nýframkvæmdirnar. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 239
Kjalarland í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 136
Gömul mynd af Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 764
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Útveggir hússins voru illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson til vinstri og Einar Gunnarsson til hægri á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar við að bera á klæðninguna utanhúss fyrir opnunina.
Héraðsskjalasafn A-Hún 15
Bakki Skagahreppi, nú Skagabyggð. Myndin sýnir vesturhlið bæjarins, hliðina sem sneri að sjónum. Myndin var tekin sumarið 1958 en búið var í bænum til 1960. Síðustu ábúendur í gamla bænum á Bakka voru Páll Tómasson (d. 3.6.1963) og María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) en þau bjuggu þar árin 1923 - 1960.
Héraðsskjalasafn A-Hún 191
Gömul mynd af Skagaströnd líklega tekin kringum 1950.
Héraðsskjalasafn A-Hún 26
Myndin er af gömlu hlóðaeldhúsi að Höfnum á Skaga. Á þilið/þakið á húsinu hafa verið spítt selskinn til þurkunar en skinnin voru gjarnan seld þannig, þurr, skafin og útspítt. Góðar selveiðar voru ein af hlunnindunum sem fylgdu Hafnarjörðinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 759
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að vinna við upphleðslu á grunninum undir húsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 757
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru ungir menn á vegum áhaldahússins að leggja gúmmímottur undir eitt af leiktækjunum. Slíkar gúmmí-mottu-hellur eiga að koma í veg fyrir slys því þær eru tiltölulega mjúkar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Óskar Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Indriði Björnsson.
Ólafur Bernódusson579
Myndin var tekin á loftinu í Hólaneskirkju einhverntíma kringum 1997 af unglingastarfi sem þar fór fram. Fremst frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, óþekktur, Eyþór Ernstsson og Jón Oddur Hjálmtýsson. Miðröð frá vinstri: Gunnlaugur Briem?, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir), Birna Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 139
Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur í nýbyggt hús á Blönduósi. Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss.
Héraðsskjalasafn A-Hún 112
Mánaskál í Laxárdal. Mánaskál var komin í eyði en er nú aftur komin í ábúð.
Héraðsskjalasafn A-Hún 143
Ás í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd).
Héraðsskjalasafn A-Hún 137
Hnappsstaðir á Skagaströnd. Hnappsstaðir stóðu um það bil þar sem listaverkið Sólúr stendur í dag á milli Breiðabliks og verslunarhúss Samkaupa.
Héraðsskjalasafn A-Hún 116
Gömul skemma á Víkum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).<br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 240
Örlygsstaðir II í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 760
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að vinna við undirstöðurnar undir bíslagið.
Ólafur Bernódusson587
Þessi mynd sýnir glaðbeitt yngri börn úr Höfðaskóla þegar þau fóru í heimsókn að Skeggjastöðum ásamt kennurum sínum. Líklega var myndin tekin kringum 1988. Kennararnir aftan við hópinn eru Björk Axelsdóttir, Vilborg Magnúsdóttir og Jón Pálsson skólastjóri. Erfitt er að þekkja börnin á myndinni því þau eru svo grett upp í sólina þannig að það er látið hverjum og einum eftir að þekkja sjálfan sig eða sín börn. Þó má benda á Jónas Fanndal Þorvaldsson sem er fyrir miðri mynd í dökkri úlpu með húfuna sína í hendinni. Hægra megin við hann, dökkhærður með hendur í vösum og í hvítum buxum er Jón Ólafur Sigurjónsson, og við hlið hans eru bræðurnir Kristján Gunnar Guðmundsson og Hjörtur Guðmundsson báðir með lambhúshettur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 51
Vindhæli í Skagabyggð áður Vindhælishreppi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 71
Víkur í Skagahreppi nú Skagabyggð.
Páll J. Pálsson safn 5
Grunnmynd af gamla bænum á Bakka í Skaghreppi nú Skagabyggð. Bærinn var torfbær með timburstöfnum og sambyggðu fjósi, haughúsi og hlöðu. Önnur hæð var á hluta hússins, yfir stofunni, en þar var svefnherbergi.
Páll J. Pálsson safn 12
Hjónin María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) og Páll Tómasson (d. 3.6.1963) á hlaðinu á Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð þar sem þau bjuggu 1923 - 1960. Þessi mynd var tekin 1946.
Árni Geir Ingvarsson - safn 762
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Eins og sjá má á þessari mynd voru útveggir hússins illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá hvernig bíslagið var byggt við húsið og Sigurð Björnsson á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar að snúast við húsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 748
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir eru að prófa nýju kastalann, sérstaklega rennibrautina. Í henni er Sindri Björnsson en hin börnin eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 740
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er verið að vinna á lóðinni. Vilhjálmur Jónsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri leggja hellusteina á göngustíg og Gunnar Þór bílstjóri fylgist með.
Jón Jónsson 366
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Á miðri mynd er Gunnar Halldór Hallbjörnsson að lesa upp en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 752
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru þrír ungir menn að gera klárt undirlag fyrir steinalagningu. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Almar Freyr Fannarsson.
Ólafur Bernódusson604
Myndin var tekin í Hólaneskirkju á Gospelnámskeiði í júlí 2001 undir stjórn Óskars Einarssonar. Námskeiðinu lauk svo með messu þar sem tveir einsöngvarar sungu með kórnum. Á þessari mynd<br>eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir (nær), Elva Dröfn Árnadóttir (fjær), óþekkt, Þórey Jónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir (nær), Agnes Sævarsdóttir (fjær), Kristjana Jóhannsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir (nær), Björn Hannesson? (fjær), Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, óþekkt, Inga Rós Sævarsdóttir, Sigurður Bjarnason (fjær), Hjördís Sigurðardóttir (nær), Guðbjörg Viggósdóttir, Sólrún Ólína Sigurðardóttir (fjær), Aðalheiður Árnadóttir (nær), Sigurjón Guðbjartsson, Berglind Guðmundsdóttir, Fannar Viggósson (fjær), Guðrún Sigurðardóttir (nær), Óskar Einarsson stjórnandi, Þórarinn Grétarsson og einsöngvararnir Páll Rósinkrans og Mikael Jón Clark.
Héraðsskjalasafn A-Hún 1
Á myndinni eru skepnuhús sunnan við bæjarlækinn að Víkum á Skaga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 003
Myndin var tekin í saumaklúbbi á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi en ekki er vitað hvenær. Frá vinstri eru: Rósa Björg Högnadóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir? (d. 25.9.2006), Þórunn Óladóttir, Árnína Guðrún Fossdal og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012).
Óþekktur ljósmyndari 391
Elínóra Rafnsdóttir kennari á kennarastofunni í Höfðaskóla 1986.
Jón Jónsson 363
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir, Viktor Pétursson, Gígja Óskarsdóttir, óþekkt, Róbert Gunnarsson og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 359
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Krakkarnir, sem voru öll í sama bekk, eru, talið frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, standandi: Svanur Árnason, Jóhannes Ægir Óskarsson og Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), sitjandi: Guðmundur Henry Stefánsson, Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007), Börkur Árnason og lengst til hægri með rauðleita hárkollu er Þröstur Árnason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 713
Fyrir mistök voru tröppur sem voru vestan á Höfðaskóla, eldra húsinu, eyðilaggðar og brotnar niður. Brotthvarf trappanna hefur gjörbreytt ásýnd skólans sem ekki eru allir sáttir við.
Héraðsskjalasafn A-Hún 142
Sólvangur í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd).
Ólafur Bernódusson600
Í september 2001 kom Pétur Eggertsson, þáverandi formaður Rauðakrossdeildar Skagastrandar, færandi hendi í Höfðaskóla. Meðferðis hafði hann reiðhjólahjálma handa fyrstu bekkingum frá deildinni. Á þessari mynd er Pétur í hópi krakkanna sem eru með nýju hjálmana sína. Börnin eru frá vinstri fremst: Sæþór Bragi Ágústsson, Sigurjón Elí Eiríksson, Ernst Guðni Hólmgeirsson, óþekkt og Magnús Jens Magnússon. Miðröð frá vinstri: Saga Lind Víðisdóttir, tvær óþekktar stúlkur og Ingvar Hallgrímsson. Standandi frá vinstri: Ásdís Erla Steingrímsdóttir, óþekktur, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir og Pétur Eggertsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 89
Hafnir í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Þetta er mynd af gamla bænum á Höfnum sem nú er horfinn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 126
Neðstibær í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Neðstibær stendur í Norðurárdal og er löngu kominn í eyði.
Héraðsskjalasafn A-Hún 273
Páll Jónsson (d.19.7.1979) Skólastjóri á Skagaströnd. Páll varð fyrsti skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd þegar Höfðahreppur varð til 1939 eftir skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjá hreppa. Sinnti hann því starfi allt til ársins 1966 er sonur hans Jón Pálsson tók við.
Héraðsskjalasafn A-Hún 117
Hólaneshúsið á Skagaströnd. Til hægri sér í nokkur hús við Fellsbraut en til vinstri eru Þorfinnshús (Bogabraut 9) og Bláland.
Jón Jónsson 423
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Hökuldsstaðakirkju en líklega hefur það verið einhverntíma 1978-1980. Tilefnið gæti verið fjölskyldumessa eða sunnudagaskóli. Drengurinn í bláu úlpunni á öðrum bekk er Ólafur Kristjánsson frá Höskuldsstöðum og við hlið hans er Magnús Björnsson frá Syðra-Hóli. Konan í gráa jakkanum er Ingibjörg Jósefsdóttir frá Enni og maðurinn aftan við hana til vinstri er Einar Guðmundsson frá Neðri-Mýrum. Aðrir á myndinni eru óþekktir þannig að ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 236
Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson646
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd er Sonja Sif Ólafsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, að lesa upp fyrir fullan sal af gestum í félagsheimilinu Fellsborg.
Héraðsskjalasafn A-Hún 72
Ásbúðir í Skagahreppi nú Skagabyggð. Ásbúðir eru nyrsta jörðin í Húnavatnssýslu því milli hennar og Hrauns eru sýslumörk Húnavatns- og Skagafjarðarsýslna.
Héraðsskjalasafn A-Hún 129
Höskuldsstaðir í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Gamli bærinn, sem stendur fjær var rifinn fyrir allmörgum árum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 106
Þessi bær er óþekktur eins og maðurinn á myndinni. Líklega er Borgarvirki í baksýn til hægri sem segir nokkuð um staðsetningu bæjarins ef rétt er. Myndina tók Björn Bergmann (d. 30.5.1985). Ef þú þekkir bæinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 424
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Hökuldsstaðakirkju en líklega hefur það verið einhverntíma 1978-1980. Tilefnið gæti verið fjölskyldumessa eða sunnudagaskóli. Á öðrum bekk næst okkur er Ólafur Kristjánsson frá Höskuldsstöðum og við hlið hans er Magnús Björnsson frá Syðra-Hóli. Konan í gráa jakkanum með gleraugu er Ingibjörg Jósefsdóttir frá Enni en á næsta bekk þar fyrir aftan er Einar Guðmundsson frá Neðri-Mýrum í dökkum jakka með vasaklút í brjóstvasanum. Enn aftar situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) í pretsskrúða. Gráhærða konan út við vegg tveimur bekkjum aftar er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Skagaströnd en áður á Syðra-Hóli. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 138
Ytri Hóll í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) ? Fólkið á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson652
Bogabraut 19 jólaskreytt í kvöldhúminu 15.desember 2006.
Héraðsskjalasafn A-Hún 238
Hafursstaðir Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 248 - Copy
Laufás á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru einhverjar framkvæmdir í gangi því maður (Sigurður Guðmundsson?) er uppi á þakinu að smíða.
Ólafur Bernódusson656
Fasteignaeigendur í Smábæ buðu gestum og gangandi í heimsókn á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2010. Eins og sjá má hafði mikil vinna verið lögð í að gera Smábæ sem snyrtilegastan og boðið var upp á brúðuleikhús í tilefni dagsins. Fljótlega eftir að þessi mynd var tekin splundraðist hópurinn út um allt því yfir flaug flugvél og kastaði út karamellum sem þurfti að flýta sér að tína upp.
Héraðsskjalasafn A-Hún 66
Bakki í Skagahreppi nú Skagabyggð. Nýja íbúðarhúsið er til vinstri en gamli bærinn er til hægri. Hluti hans var byggður um 1900 en efri hæðinn þar var byggð 1943. Nýja húsið var byggt á áttunda áratugnum.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 095
Veturinn 1995 var mjög snjóþungur og illviðrasamur. Þessi mynd var tekin 24. febrúar 1995 og sýnir Kántrýbæ eldri á kafi í snjó. Inngangurinn var að sunnanverðu og því er búið að moka frá dyrunum þeim megin. Greinilega kunnu börnin vel að meta snjóinn því þau eru búin að búa sér til rennibraut frá mæni hússins og niður á götu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 92
Hvammkot, sem nú er horfið, stóð norð-austan við Hof í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Bærinn fór í eyði 1949.
1
…
44
45
46
…
65
Leita í myndasafninu
Leita