Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 364
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Frá vinstri: Ástmar Sigurjónsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, tvö óþekkt, Jóhann Sigurjónsson en önnur börn eru óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 044
Myndin var tekin í sundi sem var á milli Skálholts og Þórshamars. Í þessu sundi lagði Gunnar Helgason (d.19.10.2007) gjarnan vörubíl sínum, sem sést í baksýn, enda bjó hann í Stórholti, sem er húsið með kvistinum aftan við mennina. Mennirnir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), óþekktur, Karl Guðmundsson ? (d.11.12.2011) og Gunnar Sveinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 923
Þetta par er óþekkt en myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) í Kúvíkum líklega kringum 1940. Herbert átti þá heima í Kúvíkum en stundaði vinnu í verksmiðjunni í Djúpavík. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson685
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni er Ágúst Ingi Ágústsson kennari við Höfðaskóla á þessum tíma.
Ólafur Bernódusson689
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Alma Vignisdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á dagskránni.
Ólafur Bernódusson684
Öskudags-grímuball var haldið á vegum Höfðaskóla 6.febrúar 2008 í Fellsborg. Kennarar og fleiri tóku fullan þátt í gamninu og á myndinni eru kennararnir Elva Þórisdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri í gervum sínum þetta kvöld.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn070 - Copy
Kynnar á árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Helga Dögg Jónsdóttir og Ívar Gylfason kynna næsta atriði á dagskránni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 975
Þetta er gömul mynd af Sólvangi. Sólvangur stendur, allmikið breytt, á sjávarbakkanum rétt norðan við Skagaströnd. Húsið er nú notað sem sumarbústaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Herbert Ólafsson (25.4.2007) tók hana.
Hjördís Sigurðardóttir - safn060
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) spilar fyrir dansi á jólaballi í skólanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson693
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta dagskrárlið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 766
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Endurbyggingin var í höndum Trésmiðju Helga Gunnarssonar á Skagaströnd. Á myndinni er verkið komið á lokametrana og vinna hafin við að þökuleggja lóðina kringum húsið.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 009
Myndin er af skólastúlkum í Höfðaskóla ásamt kennara sínum fyrir utan "Gamla skólann" eða Bjarmanes eins húsið heitir. Myndin var tekin einhverntíma á sjötta áratugnum - fyrir 1958 þegar Höfðaskóli fluttist í nýtt húsnæði. Í fremri röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi, Dagný Þórðardóttir og Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála. Aftari röð frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Guðrún Kristinsdóttir Kálfshamri, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti, Magdalena Axelsdóttir (d.?) frá Læk og Bylgja Angantýsdóttir. Strákarnir lengst til hægri eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson696
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni syngja saman þau Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Ívan Árni Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 974
Gömul mynd af Skagaströnd sem sýnir mörg þeirra húsa sem nú eru horfin og líka auð svæði sem nú eru þétt byggð. Áberandi til vinstri er húsið Gunnarshólmi eða Grafarbakki eins og það var oft kallað. Það nafn festist við húsið því það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Húsið endaði svo ævi sína sem æfingahús fyrir slökkviliðið á Skagaströnd eftir að hafa staðið autt í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina
Ólafur Bernódusson643
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd og var þessi mynd tekin þá af Stefáni Jónassyni tónlistarkennara að flytja söngatriði með nokkrum krökkum úr Höfðaskóla áður en keppnin hófst. Söngvararnir eru, frá vinstri: Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015), Róbert Björn Ingvarsson, Elvar Geir Ágústsson, Sigurbjörg Birta Árnadóttir, Aldís Björnsdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir og Breki Hjartarson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn134
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen og Fríða Hafsteinsdóttir.
Ólafur Bernódusson665
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu. Á myndinni eru þær stöllur að gera sig klárar fyrir atriði sitt. Krakkarnir og foreldara þeirra bíða spennt eftir að sýningin hefjist.
Skagaströnd - safn438
Brimnes við Hólanesveg.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 005
Þessi skólamynd var tekin af stúlkum úr Höfðaskóla á tröppum "Gamla skólans" eða Bjarmaness eins og húsið heitir. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá Háagerði, Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála, Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Sigríður ?, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti og Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti. Aftari röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Ástríður Bertelsdóttir í Drangey, Dagný Þórðardóttir, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi og Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi. Tröppurnar sem stúlkurnar sitja í voru austan á húsinu með forstofu sem sér í. Tröppurnar og forstofan hafa nú verið brotin niður og húsið sjálft verið sett í sitt upprunalega horf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma rétt fyrir 1958 þegar Höfðaskóli var færður í nýtt hús.
Jósef H Sigurðsson - safn 067
Kambakot í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) séð úr lofti.
Adolf H Berndsen - safn079
Þetta hús var reist fyrir verslunarstjóra Kaupfélags Vindhælinga - síðar Kaupfélag Skagstrendinga - einhverntíma kringum 1910. Húsið, sem stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið við Einbúastíg, var svo rifið kringum 1980.
Hjördís Sigurðardóttir - safn130
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Gísli Snorrason og Stefán Þór Árnason.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 037
Bræðurnir Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) til vinstri og Vilberg Jóhannesson (d. 15.11.2002) til hægri við bílskúrinn á Sunnuvegi 2 nýkomnir af hreindýraveiðum og með hausinn af bráðinni í poka.
Barnaból - safn356
Valdimar Viggó Baldursson til vinstri og Sóley Sif Jónsdóttir til hægri, bæði með tárin í augunum út af vonsku heimsins í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Ólafur Bernódusson 653
Guðrún Pálsdóttir mótar piparkökur með ömmustráknum sínum Ólafi Halldórssyni á piparkökudaginn í Barnabóli 21.desember 2006.
Skagaströnd - safn445
Verslunin Borg var í þessu húsi sem stóð við Strandgötu rétt norðan við stóru skemmuna. Seinna, eftir að verlun lagðist af í húsinu, var þar aðsetur rafmangsfyrirtækisins Neistinn. Húsið var rifið fyrir allnokkrum árum. <br>
Ólafur Bernódusson 585
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Heba Líf Jónsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir sem eru að leika einhverja úr starfsliði skólans.
Skagaströnd - safn437
Sólbakki stendur við Hólanesveg.
Ólafur Bernódusson695
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru krakkar úr mörgum bekkjum að syngja. Krakkarnir eru frá vinstri: Standandi: Elín Ósk Björnsdóttir, óþekkt, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sæunn Steingrímsdóttir, óþekkt, Rebekka Róbertsdóttir, Guðmann Magnússon, Sveinn Hallgrímsson, Ísak Tryggvason, Páll Halldórsson og óþekkt. Sitjandi frá vinstri: Arnrún Guðjónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir og Tryggvi Fjölnisson.
Adolf H Berndsen - safn057
Húsin tvö, það með græna þakinu og hitt með dökka þakinu, eru bæði horfin en ný hafa risið í þeirra stað á lóðunum. Húsið til vinstri hét Sóllundur (Hólabraut 8) en það til hægri hét Goðhóll (Hólabraut 10).
Barnaból - safn350
Óðinn Örn Gunnarsson í útivist í Barnabóli 2008 - 2009.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 012
Ekki er vitað hvar myndin var tekin en það hefur sennilega verið við gamla bæinn í Höfðahólum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri og svo kemur Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001)með börnin sín og Axels Ásgeirssonar (d.21.9.1965). Guðríður Gígja Axelsdóttir er í fangi móður sinnar, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) er í röndóttri peysu og Óskar Axelsson er lengst til hægri. Myndin var líklega tekin 1953 eða 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 747
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og krakkarnir eru að prófa nýju hringekjuna. Með þeim er Elva Þórisdóttir kennari sem virðist skemmta sér vel eins og krakkarnir. Elva er í grárri peysu, Viktor Örn Einarsson er að ýta hringekjunni og næst honum situr bróðir hans Anton Einarsson. Nær okkur með svart hárband er svo Elín Ósk Björnsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 457
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju. Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí í Sævarlandi) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997).
Ólafur Bernódusson645
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd er Sara Rut Fannarsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, að lesa upp fyrir fullan sal af gestum í félagsheimilinu Fellsborg.
Ólafur Bernódusson648
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd eru Grímur Gíslason og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) að spjalla saman. Bæði voru þau og eru þekkt fyrir áhuga sinn á íslensku máli, bókmenntum og sagnfræði og fyrir framlag sitt til þeirra fræða.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 020
Reynir Sigurðsson í Þórsmörk. Myndin var tekin kringum 1957. Húsið aftan við Reyni er Stórholt en til hægri við það glittir í lítið hús, Draumaland, sem horfið er fyrir áratugum síðan.
Ólafur Bernódusson683
Fjórar vinkonur á Öskudags-grímuballi Höfðaskóla 6. febrúar 2008. Stelpurnar eru frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Heba Líf Jónsdóttir. Ekki verður reynt að giska á í hvaða gervum þær eru.
Ólafur Bernódusson658
Hefð er fyrir að skreyta hjá sér á Kántrýdögum. Þessi mynd var tekin af Grund 13. ágúst 2010 fagurlega skreyttu í anda Kántrýdaga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 977
Þessi kona og drengurinn með henni eru óþekkt. Bak við þau er síldarverksmiðjan á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir konuna eða drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 648
Ólafur Bernódusson og Guðlaug Grétarsson í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 903
Síldarsöltun á plani og síldarbræðsla í verksmiðjunni í fullum gangi á Djúpuvík. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 911
Séð heim að byggðinni í Djúpavík í Reykjarfirði syðri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) sem ólst upp í Kúvíkum og á Gjögri. Kúvíkur var lengi eini verslunarstaðurinn í Strandasýslu eða allt til ársins 1846 þegar Borðeyri fékk löggildingu sem verslunarstaður. Í dönskum skjölum voru Kúvíkur kallaðar lýsishöfn, sú eina á landinu sem þannig var flokkuð. Kemur þetta til vegna þess að mikilvægasta verslunarvara Árneshreppsbúa var hákarlalýsi. Eftir að einokunarverslun var lögð af höfðu kaupmenn fasta búsetu á staðnum. Verslunarstaðurinn var þá oftast nefndur eftir firðinum og kallaður Reykjarfjörður. Í dag er byggðin löngu horfin en reist hefur verið sumarhús á svæðinu og vegslóði lagður að því. <br>(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=8&id_art=653)
Skagaströnd - safn430
Ásholt stendur utan í Ásholtshólnum norðan við aðal byggðina á Skagaströnd. Íbúðarhúsið er til hægri á myndinni og síðan koma sambyggð skepnuhús og hlaða eins og oft var gert á þeim tíma er Ásholt var byggt, enda töluverður búskapur stundaður af ábúendum í Ásholti.
Adolf H Berndsen - safn088
Myndin var tekin yfir höfnina á Skagaströnd einhverntíma á árunum rétt fyrir 1940. Stóra húsið á myndinni er kaupfélagið og verslunarstjórahúsið hægra megin við það. Á höfninni stendur Hafnarhúsið sem byggt var 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ljósa húsið til vinstri var gamla búðin og ef grannt er skoðað má sjá að verið er að smíða ker í kerjaslippnum við Bjarmanes á Hólanesinu. Fyrsta kerið sem þar var smíðað var sjósett 1938 en ekki er vitað hvort þetta er það ker eða einhvert þeirra sem á eftir komu.
Ólafur Bernódusson 639
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti kennaranna, frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Erna Hreinsdóttir og Agnes Sævarsdóttir. Elva og Agnes eru með "indíánafléttur" í tilefni dagsins.
Barnaból - safn352
Ásgeir Sigmar Björnsson í leikskólanum Barnaból 2008 - 2009.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 013
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) í Þórsmörk á sjómannadegi 1965. Húsið sem sér í vinstra megin við höfuð Sigurðar er Efri-Lækur, sem nú er löngu horfinn.
Ólafur Bernódusson 580
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 8. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekktur, Ernst Guðni Hólmgeirsson, óþekkt, Alma Dröfn Vignisdóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Linda Rós Ómarsdóttir og Saga Lind Víðisdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 968
Hús Karls F. Jensen (f. 1873 - d.1948) kaupmanns á Kúvíkum 1906 - 1946. Húsið var byggt 1904-1905. Það stendur nú uppgert í Kalbaksvík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Hjördís Sigurðardóttir - safn131
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Sigurbjörn Björgvinsson og Þór Gunnlaugsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn132
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Árni Guðbjartsson, Jóhann Björn Þórarinsson, Guðmundur J. Björnsson, Stefán Þór Árnason, Haraldur Max Árnason og Bergþór Gunnarsson.
Jón Jónsson 477
Þessi mynd sýnir þorpið Drangsnes í Strandasýslu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 642
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Einn hópurinn fjallaði um þekkta vestur-Íslendinga. Einn þeirra var Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður og á myndinni er hluti af kynningu hópsins á honum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn052
Stórt iðnaðarhús á Blönduósi, sem gekk undir nafninu Votmúli, stórskemmdist í eldi í september 2004. Þessi mynd sýnir útlit hússins eftir að slökkviliðið hafði lokið störfum sínum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn135
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Linda Kristjánsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn075
Myndin var tekin af útbænum á Skagaströnd. í forgrunninum eru hús frystihúss kaupfélagsins. Til vinstri er verslunarstjórahúsið, þá Kaupfélagið og ljósa húsið hægra megin er Gamla búðin. Hægra megin við Einbúann eru, frá vinstri: skúr, Karlsskáli, Lækur og Lækjarbakki. Norðan við (vinstra megin við) Karlsskála er Efri Lækur og fjær, Jaðar. Á myndinni sést vel hvernig Einbúinn skagaði fram í fjöruna, sem annars var óslitin frá Höfðanum inn að Bjargi. Kanturinn sem liggur til hægri var byggður á uppfyllingu úr grjóti úr Höfðanum út í Spákonufellsey þar sem höfnin var byggð. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Ólafur Bernódusson 579
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 3. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Viktor Már Einarsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Jóhannes Sigurpálsson, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Valgerður Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Auður Eva Guðbjargardóttir, Tryggvi Fjölnisson Arnrún Ösp Guðjónsdóttir og Sigurður Aron Björnsson.
Ólafur Bernódusson 651
Árið 2006 var piparkökudagurinn var haldinn í Barnabóli 21.desember. Á þessari mynd eru hjónin Þórunn Ævarsdóttir og Björn Sigurðsson með syni sína þá Sindra til vinstri og Sigurð Aron til hægri á milli sín. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Adolf H Berndsen - safn044
Þetta hús hét Brautarholt. Brautarholt stóð vestan í hólnum sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Maðurinn framan við húsið er Ólafur Guðmundsson (d.16.10.1985) en hann bjó þar blindur síðustu æviár sín.
1
…
46
47
48
…
65
Leita í myndasafninu
Leita