Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Adolf H Berndsen - safn055
Hólaneskirkja í byggingu. Myndin var tekin kringum 1990.
Skagaströnd - safn431
Straumnes á Hólanesi.
Ólafur Bernódusson 652
Guðlaug Grétarsdóttir skreytir piparkökur með dætrum sínum þeim Guðrúnu Rós Hjaltadóttur til vinstri og Lilju Dögg Hjaltadóttur til hægri í Barnabóli á piparkökudaginn 21. desember 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 954
Djúpavík á velmektardögum sínum 1940. Prúðbúið fólk á ferð á hátíðardegi. Húsið hægra megin á myndinni var "Kvennabragginn" sem hýsti stúlkurnar sem unnu við síldarsöltun á Djúpavík. Í húsinu er nú rekið Hótel Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Barnaból - safn386
Ísabella Líf Tryggvadóttir einbeitt í leikskólanum Barnabóli 23. febrúar 2009.
Barnaból - safn344
Sóley Sif Jónsdóttir einbeitt við að byggja í Barnabóli 2008 - 2009.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 027
Heyskapur á Brúarlandstúninu. Hjónin Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987) frá Þórmörk fá hjálp frá Ólöfu J. Árnadóttur (d.11.5.1973)(Lóu á Bakkanum) í Gunnarshólma sem er á milli þeirra hjóna. Barnið í flekknum er Marías Bjarni Viggósson sonur Lóu. Húsið, sem sést á milli Sigurðar og Lóu, er Efri-Lækur sem nú er löngu horfinn. Myndin var tekin 1960.
Barnaból - safn348
Leikur í Barnabóli 2008 - 2009. Frá vinstri: Sóley Sif Jónsdóttir, Óðinn Örn Gunnarsson, Mikael Örn Benjamínsson, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir og tvö óþekkt börn.
Skagaströnd - safn425
Sólvangur stendur á sjávarbakkanum norðan við Höfðann. Vegna ágangs sjávar hefur verið komið fyrir sjóvörn úr grjóti til að vernda húsið.
Skagaströnd - safn428
Gamla salthúsið eða gamla verbúðin stendur syðst á höfðanum og hefur þjónað fjölmörgum hlutverkum gegnum tíðina. Salthús, verbúð, beitingaaðstaða, járnsmíðaverkstæði og geymsla til að eitthvað sé nefnt. Nú (2018) hefur húsið fengið uppreist æru því búið er að taka það allt í gegn og breyta í glæsilegt gistiheimili með fölmörgum herbergjum undir nafninu Salthúsið. Glæsilegra útsýni en frá því er vandfundið.
Barnaból - safn425
Leikskólabörn úr Barnabóli í gönguferð niður á höfn veturinn 2009 - 2010. Frá vinstri: Guðjón Dunbar Þorsteinsson, Karen Líf Sigurbjargardóttir, Gabríel Goði Tryggvason og Klara Ósk Hjartardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 184
Ljósmyndasafn Skagastrandar sendir öllum kveðju og ósk um gleðileg jól 2017 með þessari mynd. Hún er af krökkum að flytja helgileik í kirkjunni okkar á aðventukvöldi í desember 2012 og henni fylgir ósk um að allir finni barnið í sjálfum sér um jólin og njóti þeirra með þeirri gleði sem einkennir börn á jólunum. Á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Hekla Guðrún Þrastardóttir?, Dagný Dís Bessadóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, séra Ursúla Árnadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Aníta Ósk Ragnarsdóttir og Guðný Eva Björnsdóttir.<br>Gleðileg jól.
Ólafur Bernódusson 634
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd eru frá vinstri: Alma Vignisdóttir, Saga Lind Víðisdóttir og Erna Björgvinsdóttir að kynna verk síns hóps.
Ólafur Bernódusson 628
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Áður en keppnin hófst, og í hléi meðan dómarar réðu ráðum sínum, léku þær Sigurbjörg Birta Berndsen til vinstri og Guðrún Anna Halldórsdóttir til hægri, fjórhent á píanó fyrir gesti.
Ólafur Bernódusson 655
Baldur Magnússon aðstoðar son sinn Magnús Sólberg við að skreyta piprkökur á piparkökudaginn í Barnabóli 21. desember 2006. Við borðið hjá þeim situr Ólafur Halldórsson með jólasveinahúfu.
Ólafur Bernódusson 586
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 10. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Andrea Kristjánsdóttir og Sara Rut Fannarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 650
Þessi mynd var tekin í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar. Á myndinni bíða bræðurnir Sigurður Aron Björnsson til vinstri og Sindri Björnsson til hægri spenntir eftir ofninum með kökunum sínum í ásamt móður sinni Þórunni Ævarsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 71
Egill Bjarki Gunnarsson.
Barnaból - safn363
Óðinn Örn Gunnarsson að leira í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Adolf H Berndsen - safn063
Þessi mynd af Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1930 - 1934. Eins og sjá má er ekki byrjað að keyra út uppfyllingu fram í Spákonufellsey en það var gert 1934 þegar framkvæmdir hófust við hafnargerðina. Kaupfélagið var byggt 1929-1930 en verslunarstjórahúsið, sem er vinstra megin við kaupfélagið, var byggt kringum 1910. Næst okkur á myndinni er frystihúsið eins og það var á þessum tíma.
Ólafur Bernódusson 582
Árshátíð Höfðaskóla var haldin í Fellsborg vorið 2009. Þar voru flutt skemmtiatriði frá öllum bekkjum skólans, flest öll frumsamin. Á þessari mynd eru krakkar úr þáverandi 9. bekk að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Tanja Rán Einarsdóttir og Stefán Velemir.
Jón Jónsson 458
Hólaneskirkja eldir var byggð á árunum 1926 - 1928 og vígð 17. júní 1928. Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins teiknaði hana eins og fjölmargar aðrar kirkjur og byggingar um allt land. Kirkjan var svo rifin sumarið 1992 eftir að ný kirkja hafði verið reist nánast á sama stað og vígð haustið 1991. (heimild: "Ágrip af sögu Spákonufells - og Hólaneskirkna 1300 - 2012", eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Húsið hægra megin við kirkjuna er Stóra - Berg sem nú er löngu horfið.
Barnaból - safn423
Strákar í útivist í leikaskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Frá vinstri á myndinni: Brynjar Daði Finnbogason, Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Almar Atli Ólafsson og Mikael Garðar Hólmgeirsson.
Barnaból - safn391
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 625
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda keppnina en vorið 2010 var hún haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á þessari mynd sitja næst okkur dómarar keppninnar þetta sinn og eru að merkja inn á einkunnablöðin sín. Næst okkur er Magnús B. Jónsson þá Sigrún Grímsdóttir og síðan Gísli Grímsson en þau tvö eru börn Gríms heitins. Auk þeirra er svo dómari sem kemur að sunnan á vegum keppninnar. Aftan við Gísla sitja hjónin Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir. Í öftustu röðinni eru frá vinstri: Ágúst Þór Bragason, Guðrún Benediktsdóttir, Jón Guðmundsson Fagranesi, Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri Blönduskóla, Jón Ægir Jónsson Fagranesi og Jakobína Halldórsdóttir Fagranesi. Aðrir áheyrendur á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 460
Miðgil í Langadal. Miðgil er löngu komið í eyði.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn071 - Copy
Frá árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Unglingar flytja sitt atriði. Frá vinstri: óþekkt, Katrín Guðmundsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Arnrún Finnsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekktur, Rebekka Þórarinsdóttir, tvær óþekktar stúlkur, Eydís Ósk Einarsdóttir og Lena Rut Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 77
Gunnar Gunnarsson til vinstri og Kristján Ólafsson til hægri líklega í skólaferðalagi rétt fyrir 1980.
Adolf H Berndsen - safn058
Efri Lækur (Gamli Lækur) á Skagaströnd. Efri Lækur stóð á túninu ca 50 - 100 metra norður af Læk (Neðri Læk) við Strandgötu.
Barnaból - safn404
Gunnar Andri Elvarsson í Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Ingibergur Guðmundsson 143
Magnús B. Jónsson kennari við Höfðaskóla kringum 1975 fer yfir nemendaverkefni á kennarastofunni. Magnús er líklega betur þekktur í dag sem sveitarstjóri á Skagaströnd en sem kennari.
Jósef H Sigurðsson - safn 046
Hugrún Sigurðardóttir með Bjarmanes í baksýn. Bjarmanes hefur tekið miklum stakkaskiptum eftir að myndin var tekin því það var fært í sína upprunalegu mynd árið 2004.
Skagaströnd - safn440
Iðavellir var byggt í Kálfshamarsvík en tekið niður þar einhverntíma á fjórða áratugnum. Það var svo endurbyggt á Skagaströnd þar sem það stendur enn sunnan við kirkjuna. Fleiri hús voru færð þannig frá Kálfshamarsvík til Skagastrandar en Iðavellir er líklega það eina af þeim sem enn stendur.
Ólafur Bernódusson 644
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slaka nokkrir strákar á eftir að kynningum var lokið og gestum farið að fækka. Frá vinstri: Kristmar Ragnarsson, Arnar Páll Guðjónsson og Ingvar Hallgrímsson.
Barnaból - safn364
Ísabella Líf Tryggvadóttir að leira í leikskólanum Barnabóli 2008 - 2009.
Skagaströnd - safn429
Í tengslum við byggingu síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd 1943-46 voru byggðir tveir risastórir tankar undir lýsi og svartolíu upp undir Höfðanum sunnanverðum. Á þessari mynd er búið að taka ofan af öðrum tankinum og breyta honum í hráolíugeymi fyrir Olís. Hinn tankurinn stendur ónotaður. Báðir þessir tankar hafa verið rifnir enda uppfylltu þeir engan vegin kröfur nútímans um mengunarvarnir.
Barnaból - safn394
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni fylgjast krakkarnir með leikskólakrökkum syngja. Frá vinstri á myndinni: Sæþór Ágústsson, Guðmundur Árnason, Kristmar Ingi Ragnarsson, Aron Fannarsson, Róbert Ingvarsson og Elvar Geir Ágústsson
Jón Jónsson 469
Fossar í Svartárdal á réttardegi. Fjársafnið er að koma af heiðinni til réttar í Stafnsrétt. Fossar eru nú í eyði.
Jón Jónsson 457
Núpur í Láxárdal, nú í eyði.
Ólafur Bernódusson 660
Kennarar og starfsfólk Höfðaskóla hittast gjarnan kvöldstund til að halda upp á lok skólaársins einhverntíma í lok maí. Þá leika þessir aðila sér og grínast á margvíslegan hátt m.a. stundum með því að klæðast einhverjum búningum og fara í ýmsa partýleiki. Þessi mynd var tekin vorið 2007 af borðhaldinu í Bjarmnesi. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir, Herdís Baldvinsdóttir, Ágúst Ingi Ágústsson, Hildur Ingólfsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Heiðrún Tryggvadóttir.
Barnaból - safn339
Hér fær Ásgeir Sigmar Björnsson hjálp frá vini við að borða makkarónugrautinn sinn í Barnabóli 2008 - 2009. Vinurinn er óþekktur.
Hjördís Sigurðardóttir - safn136
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Á myndinni er Ernst Berndsen sem var einn helsti talsmaður þess að koma stöðinni á fót.
Barnaból - safn403
Andri Már Gunnarsson til vinstri og Mikael Örn Benjamínsson til hægri að byggja í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Barnaból - safn390
Myndin var tekin 28. nóvember 2008 á lóð leikskólans Barnabóls. Óðinn Örn Gunnarsson er strákurinn í bláa snjógallanum en aftan við hann er Freyja Dís Jóhannsdóttir aðrir eru óþekktir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 061
Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppstjóri frá Brúarlandi heldur á frænda sínum Ingvari Þór Jónssyni á lóðinni við Þórsmörk. Húsin í baksýn eru frá vinstri: Höfðakot, Höfðaberg og Þórshamar. Einungis Þórshamar stendur enn.
Ólafur Bernódusson 654
Herdís Baldvinsdóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla með dóttur sína Emblu Ágústsdóttur að skreyta piparkökur á piparkökudaginn í Barnabóli 21. desember 2006.
Barnaból - safn357
Stefanía Hrund Stefánsdóttir á þriggja ára afmæli sínu í Barnabóli 2008 - 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 68
Þorlákur Jónsson til vinstri og Gestur Arnarson til hægri í skólaferðalagi. Líklega var myndin tekin vorið 1978 eða 1979.
Barnaból - safn372
Ásgeir Sigmar Björnsson tilbúin í slaginn í leikskólanum Barnabóli á öskudaginn í febrúar 2009.
Ólafur Bernódusson 643
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slaka nokkrir nemendur á eftir að kynningum var lokið og gestum farið að fækka. Frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir.
Barnaból - safn426
Málningavinna í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Málararnir eru frá vinstri: Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Andri Már Gunnarsson og Sindri Freyr Björnsson.
Barnaból - safn411
Krakkarnir á leikskólanum Barnaból að leika sér á rampinum utan við skólann með starfskonunni Helenu Möru Velemir veturinn 2009 - 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Thelma Sif Jónasdóttir, María Gret Gunnarsdóttir, Einar Hjálmtýr Gunnarsson, Helena Mara og óþekkt stúlka.
Ólafur Bernódusson 640
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd hvíla þær sig Saga Lind Víðisdóttir til vinstri og Amla Vignisdóttir til hægri. Framan við þær situr Sandra Ómarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 645
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd slakar Vikor Einarsson á og kíkir í Andrésblað milli kynninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 48
Húsin að Jaðri. Efri -Jaðar er nær okkur með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu til hægri. Hvíta húsið fjær, með flata þakinu, er Neðri - Jaðar. Það hús stendur enn (2017) en allangt er síðan Efri-Jaðar var rifinn.
Skagaströnd - safn435
Bláland á Hólanesi á Skagaströnd.
Barnaból - safn374
Ásgeir Sigmar Björnsson í leikskólnum Barnabóli 28. nóvember 2008.
Skagaströnd - safn426
Höfðaberg er nú horfið. Húsið stóð uppi í Höfðanum norðan við brekkuna upp í Bankastræti. Í baksýn sér í hlöðu sem var sambyggð við Höfðakot sem var beint upp af brekkunni.
Barnaból - safn378
Stefanía Hrund Stefánsdóttir með bangsann sinn í leikskólanum Barnabóli 24. mars 2009.
Ólafur Bernódusson 635
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er líkan af eyjunni Heclu þar sem þar sem allmargir Íslendingar settust að á sínum tíma eins og nafn eyjunnar ber með sér. Á spjaldinu við hliðina voru ýmsar nánari upplýsingar um eyjuna og Íslendingana þar.
1
…
47
48
49
…
65
Leita í myndasafninu
Leita