Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn439
Í þessu húsi við enda Fellsbrautar er rafstöð þ.e.a.s. í húsinu eru diselvélar sem keyrðar eru til að framleiða rafmagn ef þess þarf eru sem sagt varaafl fyrir Skagaströnd.
Skagaströnd - safn442
Fjallsminni eða Hólabraut 1 á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 706
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er.
Skagaströnd - safn444
Þetta hús stendur við Strandgötu norðan við stóru skemmuna. Það var geymsla fyrir verslunina Borg, sem stóð hinum megin götunnar í eigu Sigurðar Sölvasonar (d. 24.9.1968). Seinna eignaðist Bjarni Helgason (d.30.12.1983) útgerðarmaður húsið og notaði það sem verbúð. Þaðan er nafnið, Bjarnaborg, komið. Enn síðar komst húsið í eigu Slysavarnafélagsins á Skagaströnd en núverandi eigandi (2017) er Árni Guðbjartsson útgerðamaður.
Barnaból - safn380
Arnrún Hildur Hrólfsdóttir tveggja ára í leikskólanum Barnabóli 12. septembar 2008.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn053 - Copy
Stórt iðnaðarhús á Blönduósi, sem gekk undir nafninu Votmúli, stórskemmdist í eldi í september 2004. Þessi mynd sýnir útlit hússins eftir að slökkviliðið hafði lokið störfum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 51
Þetta minnismerki um drukknaða sjómenn frá Skagaströnd stendur við austurgafl Hólaneskirkju. Á hverjum sjómannadegi leggur einhvert ungmenni blómakrans að merkinu að lokinni messu.
Adolf H Berndsen - safn070
Karlsskáli á Skagaströnd. Til hægri sér í Efri-Læk (Gamla Læk). Myndin var tekin 1945.
Barnaból - safn418
Mikael Garðar Hólmgeirsson í sápukúluleik í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 -2010.
Skagaströnd - safn436
Breiðablik við Hólanesveg.
Skagaströnd - safn427
Bragginn stóð við hlið Lækjarbakka við Strandgötu. Bragginn var byggður á stríðsárunum og gegndi ýmsum hlutverkum þar til hann var rifinn. Í honum var rekið vélaverkstæði Karls og Þórarins um árabil og seinna var hann notaður sem slökkvistöð. Enn (2017) má sjá steypta gólfplötu braggans.
Barnaból - safn402
Málningavinna í gangi í Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Börnin eru, frá vinstri:Gunnar Andri Elvarsson, ?Stefanía Stefánsdóttir?, Mikael Örn Benjamínsson og ?Hugrún Antonía Sigurðardóttir?. Vinsamlega sendu okkur athugasemd ef þú þekkir stúlkurnar sem eru með spurningamerki.
Barnaból - safn349
Valdimar Viggó Baldursson í útivist í Barnabóli 2008 - 2009.
Barnaból - safn400
Þrjár stúlkur að leik í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010. Vinstra megin er María Gret Gunnarsdóttir en stúlkurnar til hægri eru óþekktar.
Barnaból - safn362
Hugrún Antonía Sigurðardóttir að leira í leikskólanum Barnaból 2008 - 2009.
Jón Jónsson 484
Þessi mynd var tekin frá kirkjutröppunum á Hólaneskirkjuu eldri. Húsið lengst til vinstri var Garðhús eða Konnabær en það er löngu horfið. Næst kemur Grund og þá Hjallholt og síðan beitningaskúr/ frystihús/salthús. Húsið næst okkur, sem Willysjeppinn stendur við, er Sólvellir sem er löngu horfið.
Skagaströnd - safn434
Andrésarhús hýsti upphaflega verslun og íbúð eigandanna hjónanna Andrésar Guðjónssonar (d.5.10.1968) og Sigurborgar Hallbjarnardóttur (d.3.12.1983). Seinna var rekin verslunin Fellskjör rekin í húsinu og enn síðar verslun Hallbjarnar Hjartarsonar sem svo breytti húsinu í veitingastaðinn Kántrýbæ. Jafnframt því rak Hallbjörn Útvarp Kántrýbæjar á efri hæðinni. Húsið brann 1997 þ.e. syðri hluti hússins. Nýtt hús var strax byggt á staðnum 1998 og tengt við lægri bygginguna sem ekki brann. Hallbjörn hélt svo áfram sínum rekstri í nýju byggingunni. Í dag (2017) er þar rekinn veitingastaðurinn Borgin.
Barnaból - safn353
Ásgeir Sigmar Björnsson til vinstri og Valdimar Viggó Baldursson leika sér í dótakassa í Barnabóli 2008 - 2009.
Barnaból - safn399
Mikael Örn Benjamínsson í Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Barnaból - safn383
Mikael Örn Benjamínsson á tveggja ára afmælinu sínu í leikskólanum Barnabóli 19. desember 2008.
Ólafur Bernódusson 646
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd eru krakkar að æfa kynningar sínar áður en húsið opnaði fyrir gesti. Frá vinstri: Kristján Róbertsson, Sigurjón Elí Eiríksson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eymundur Lórens Grétarsson, Victoría Hólmgeirsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Ívan Árni Róbertsson, María Gret Gunnarsdóttir, óþekkt, Jóna Marrét Sigurðardóttir, Rakel Elvarsdóttir, óþekktur (fjær), Gunnþór Kristjánsson og Daði Snær Stefánsson.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 024
Gunnar Halldór Hallbjörnsson tekur bunu á snjóþotu á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Barnaból - safn340
Vinkonurnar Stefanía Hrund Stefánsdóttir til vinstri og Erla Mjöll Daðadóttir til hægri í leikskólanum 2008 -2009.
Jón Jónsson 470
Hólaneskirkja eldir var byggð á árunum 1926 - 1928 og vígð 17. júní 1928. Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins teiknaði hana eins og fjölmargar aðrar kirkjur og byggingar um allt land. Kirkjan var svo rifin sumarið 1992 eftir að ný kirkja hafði verið reist nánast á sama stað og vígð haustið 1991. (heimild: "Ágrip af sögu Spákonufells - og Hólaneskirkna 1300 - 2012", eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Barnaból - safn415
Brynjar Daði Finnbogason blæs sápukúlur í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Barnaból - safn395
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni eru leikskólakrakkarnir að syngja fyrir starfsfólk og nemendur Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 129
Akur (Hólabraut 13). Myndin var tekin 1957.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 025
Friðrik Gunnlaugsson að leika sér í bílaleik á leikskólanum Barnaból í mars/apríl 1978.
Barnaból - safn427
Leikskólabörn úr Barnabóli í útivist. Frá vinstri: Karen Líf Sigurbjargardóttir, Gabríel Goði Tryggvason, Guðjón Dunbar Þorsteinsson, Klara Ósk Hjartardóttir og Hlynur Hafliðason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 122
Falleg mynd af Spákonufellinu. Lengst til vinstri er Sunnuhlíð (Bogabraut 19). Húsið hefur verið rifið og annað byggt á sama stað.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 3
Fermingarbörn ganga úr Hólaneskirkju eldri eftir ferminguna vorið 1976. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson býr sig undir að taka í hönd Vilhelms Harðarsonar sem fermdist þennan dag. Konan til hægri er Jóhanna Jónasdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn384
Halla Björg Bernódusdóttir í heimsókn í leikskólanum Barnabóli 12.ágúst 2008. Meðferðis hefur hún kanínu sem vakti mikinn áhuga barnanna. María Gret Gunnarsdóttir og Ingólfur Edvald Björnsson halda sig í öruggri fjarlægð en hin börnin eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 638
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er Hallbjörg Jónsdóttir við hluta af verki hennar hóps sem fjallaði um ferðamáta fólks frá Íslandi til Kanada og síðan áfram þangað sem fólkið valdi sér búsetu.
Barnaból - safn381
Óðinn Örn Gunnarsson til vinstri og Valdimar Viggó Baldursson til hægri að vega salt í leiksskólanum Barnabóli 4. febrúar 2009.
Skagaströnd - safn446
Beitingaskúr sem stóð rétt vestan við sundlaugina. Lengst til hægri sést í timurþilið sem var kringum sundlaugina. Í skúrnum, sem var líka verbúð, var beitt fyrir a.m.k. tvo báta í gamla daga. Skúrinn var rifinn fyrir mörgum árum. Framan við hann stendur Hólnesrútan en á henni var starfsfólk Hólaness hf flutt til og frá vinnu í frystihúsinu - var sem sagt fyrirtækis-strætó. Tankarnir í baksýn eru líka horfnir.
Barnaból - safn413
Einar Hjálmtýr Gunnarsson í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 53
Mynd af Skeifunni þ.e. efsta hluta Hólabrautar eins og hún var kringum 1970.
Barnaból - safn347
Kubbaleikur í Barnabóli 2008 - 2009. Frá vinstri: Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Valdimar Viggó Baldursson og Óðinn Örn Gunnarsson.
Barnaból - safn375
Valdimar Viggó Baldursson í leikskólanum Barnabóli 28. nóvember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 49
Þessi mynd sýnir Skagaströnd 1981 eða 1982. Byggingaframkvæmdir standa yfir við Mánabraut þar sem byggðar voru sjö íbúðir í félagslega kerfinu. Ýmsar byggingar, sem nú eru horfnar, sjást á myndinni t.d. Héðinshöfði í hægra horninu, Efri-Lækur, Efri-Jaðar, Ásbyrgi, Drangey og fleiri.
Ólafur Bernódusson 626
Stóra upplestrarkeppnin er keppni 7. bekkinga í upplestri. Keppnin fer fram á landsvísu en er þó skipt í skólasvæði. Hér á svæðinu keppa nemendur úr grunnskólunum á Hvammstanga, Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd. Keppnin hér er kennd við Grím Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ sem lét sig keppnina mikið varða meðan hann var á lífi. Skólarnir skiptast á um að halda hana en vorið 2010 var keppnin haldin í Fellsborg á Skagaströnd. Á myndinni er Ásdís Birta Árnadóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, í ræðustólnum.
Barnaból - safn359
Afmælisveisla í Barnabóli 2008 - 2009 vegna þriggja ára afmælis Stefaníu Hrundar Stefánsdóttur sem situr á stól lengst til vinstri. Allir fá íspinna í tilefni dagsins. Sóley Sif Jónsdóttir er í ljós bleikri peysu með slétt, ljóst hár. Aftan við hana, með tíkarspena í bláum gallabuxum, er Hugrún Antornía Sigurðardóttir. Strákurinn í bláu fötunum er Ásgeir Sigmar Björnsson og lengst til hægri er Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir. Strákurinn lengst til vinstri í rauðri peysu er Gunnar Snorri Guðjónsson.
Barnaból - safn419
Andri Már Gunnarsson kátur við sápukúlugerð í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 016
Margrét Anna Jóhannsdóttir í ágúst 1977 þá þriggja ára á leikskólanum Barnaból. Margrét hafði tekið miklu ástfóstri við veskið sem hún er með og druslaðist með það með sér langtímum saman á leikskólanum.
Barnaból - safn408
Klara Ósk Hjartardóttir í leikskólanum Barnaból veturinn 2009 - 2010.
Ólafur Bernódusson 711
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Þeir vor stoltir af spjöldunum sínum Dagur Freyr Róbertsson til vinstri og Auðunn Árni Þrastarson til hægri enda skilaboðin skýr.
Ingibergur Guðmundsson 230
Myndin sýnir þegar Höfðakot var rifið. Höfðakot stóð við Bankastræti beint upp af brekkunni að norðanverðu, eða fyrir norðan núverandi Bankastræti 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1990. Vörubíllinn var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar.
Barnaból - safn406
María Gret Gunnarsdóttir til vinstri með Einari Hjálmtý Gunnarssyni til hægri að leik í leikskólanum Barnabóli veturinn 2009 - 2010.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn073 - Copy
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla í janúar 2003. Það er venja á árshátíðum að kennararnir séu með eitt atriði á dagskránni þar sem þeir sleppa gjarnan fram af sér beislinu í léttu gríni. Þessi mynd er af þeirra atriði þetta árið. Af augljósum ástæðum eru kennararnir óþekktir á myndinni.
Barnaból - safn424
Hluti barna á leikskólanum Barnaból veturinn 2009 - 2010. Fremst frá vinstri: Guðjón Dunbar Þorsteinsson og Mikael Garðar Hólmgeirsson. Röð tvö frá vinstri: Almar Atli Ólafsson og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Klara Ósk Hjartardóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Fjórða röð frá vinstri: óþekkt og María Gret Gunnarsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Einar Hjálmtýr Gunnarsson og Sindri Freyr Björnsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 37
Bílaleikur á götunni framan við Reykholt (Fellsbraut 6). Strákurinn lengt til hægri er líklega Aðalsteinn Jörgensen en hinir tveir eru Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001)með skófluna en bak við hann er Valdimar Lárus Guðmundsson (d.4.4.2015). Húsin lengst til hægri eru nú horfin en þau voru, frá hægri: Baldursheimur, Goðhóll og Akurgerði. Húsið hinum megin við götuna er svo Skjaldbreið eða Fellsbraut 7.
Ólafur Bernódusson722
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni má sjá að áhorfendur í sal skemmtu sér vel yfir uppátækjum krakkanna á sviðinu.
Ólafur Bernódusson 707
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Á þessari mynd er hluti hópsins með kröfuspjöld sín og dósir með smásteinum til að hrista og gera hávaða.
Árni Geir Ingvarsson 2 37
Héðinshöfði var tveggja íbúða hús við Skagaveg. Húsið var frekar óvandað og það var rifið í nóvember 2002 en þá var þessi mynd tekin.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 036
Húsið á myndinni hét Gunnarshólmi en var oft kallað Grafarbakki í daglegu tali. Það kom til vegna þess að húsið stóð nálægt gömlum mógröfum sem þarna voru. Eftir að hafa staðið autt um fjölda ára og verið í niðurníðslu fékk Slökkvilið Skagastrandar húsið til að æfa sig að slökkva í því. Á myndinni er mikill eldur kominn í húsið. Hann var síðan slökktur og svo aftur kveikt í og húsið látið brenna til grunna undir eftirliti slökkviliðsins.
Barnaból - safn393
Höfðaskóli varð 70 ára haustið 2009. Af því tilefni kom starfsfólk og nemendur leikskólans Barnabóls í heimsókn með gjafir í farteskinu. Á myndinni les Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri á afmæliskortið. Til vinstri í lopapeysu er Helena Mara Velemir og svo glittir í Sigríði Ásgeirsdóttur og Lilju Ingólfsdóttur. Guðbjörg Viggósdóttir situr aftast í grænni peysu en Guðlaug Grétarsdóttir er til hægri hjá Hildi Ingólfsdóttur skólastjóra Höfðaskóla.
Séra Pétur og Dómhildur - safn193
Fermingarbörn í Hólaneskirkju eldri vorið 1976. Í fremri röð frá vinstri eru: Erla Björg Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Gestur Arnarson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Magnús Sigurðsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Vilhelm Björn Harðarson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Ottó Georgsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 36
Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985) utan við heimili sitt að Brautarholti. Vilhelm B. Harðarson skoðar hverfisteininn upp við vegg hússins. Myndin var líklega tekin tekin kringum 1965. Ólafur var yfirleitt alltaf kenndur við heimili sitt og kallaður Óli í Brautarholti eða Óli í Braut. Brautarholt er nú horfið en það stóð utan í hólnum sem er á milli Fellsbrautar 9 og 13.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 021
Brynjar Pétursson í útivist á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 079
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Eiður Þórsson, Hilmar Árdal Eðvarðsson, Gunnar Guðmundsson, Jón Haukdal Þorgeirsson og Jóhannes William Grétarsson.
1
…
49
50
51
…
65
Leita í myndasafninu
Leita