Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 240
Börnin í Barnabóli sest í "hólfin" sín og bíða spennt eftir hvað gerist næst. Á myndinni eru, frá hægri:<br>Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Júlía Guðmundsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Rúna Lilja Nótt Sævarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Friðvin Ingi Ernstson, Elínborg Ásdís Árnadóttir, Eyþór Kári Egilsson og Kristinn Daníel Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1990.
Ingibergur Guðmundsson 292
Í apríl 1989 varð stórbruni hjá bátasmiðjunni Mark hf á Vallarbraut. Húsið brann til grunna og bátar sem voru í smíðum brunnu líka eins og sést á myndinni. Húsið var stálgrindahús en stálbitarnir undust upp eins og pípuhreinsarar í hitanum frá eldinum.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 018
Atli Þór Þórsson lítur í bók í sólinni utan við Leikskólann Barnaból sumarið 1977.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 009
Á Barnabóli sumarið 1977. Frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir fjögurra ára, Bryndís Ingimarsdóttir þriggja ára, Jósef Ægir Stefánsson á fyrsta ári, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir fjögurra ára, Viggó Magnússon sex ára og Baldur Magnússon þriggja ára.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 034
Viggó Magnússon í bílaleik í leikskólanum Barnaból vorið 1978.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 082
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Nemendurnir á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Atli Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, óþekktur, Svava Magnúsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 366
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af þeim Auðunni Árna Þrastarsyni og Hallbjörgu Jónsdóttur í þrautabrautinni.
Ólafur Bernódusson736
Elías Gunnar Hafþórsson á litlu jólum í Höfðaskóla 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 295
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból í gönguferð með starfsstúlkunum þar í apríl 2011. Starfsstúlkurnar eru frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 002
Inga Rós Sævarsdóttir á leikskólanum Barnaból í júní 1977.
Barnaból - safn342
Í Barnabóli 2008 - 2009. Drengurinn til vinstri er Mikael Örn Benjamínsson en stúlka hægra megin er Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 083
Myndin var tekin 24. mars 1988 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni er einhver leikþáttur í gangi. Þar eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, óþekkt stúlka, Jósef Stefánsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn189
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrir utan kirkjuna sína, Hólaneskirkju á Skagaströnd. Pétur þjónaði í kirkjunni í af mikilli manngæsku í 40 ár sem prestur og prófastur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 320
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni eru nemendur í 1. og 2. bekk búin að stilla sér upp til myndatöku. Frá vinstri: Birgitta Rún Finnbogadóttir, Sigríður Kristín Guðmundsdóttir, Aþena Guðbjörg Baldursdóttir, Mathis Grüenberger, Snæbjörn Elfar Arnarson, Elsa Fanney Gunnarsdóttir, Valdimar Viggó Baldursson, Katrín Ragna Gunnarsdóttir, Ásgeir Sigmar Björnsson, Logi Hrannar Jóhannsson og Vésteinn Sigurðarson.
Ólafur Bernódusson856
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan á leið niður Fellsbrautina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 363
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Viktori Erni Einarssyni til vinstri og Elínu Ósk Björnsdóttur til hægri.
Ólafur Bernódusson732
þessar fjórar stúlkur voru forsöngvarar á jólaballinu á litlu jólum Höfðaskóla í íþróttahúsinu 19. desember 2011. Stúlkurnar, sem voru bekkjarsystur, eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir og Lilja Svandís Hallgrímsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 117
Aðalsteinn Jörgensen í bílaleik utan við Reykholt. Síðan myndin var tekin kringum 1965 hefur götumyndin í baksýn gjörbreyst. Húsin sem sjást eru frá vinstri: Baldursheimur, Akur og Asparlundur, Hólabraut 14, Vinaminni og Brautarholt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 319
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni eru Jóhanna Karlsdóttir stuðningsfulltrúi og Ásgeir Sigmar Björnsson að hlusta á Magnús lesa upp úr bók sinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 322
Bára Þorvaldsdóttir stuðningsfulltrúi og bókavörður til vinstri og Jóhanna Karlsdóttir stuðningsfulltrúi til hægri í Höfðaskóla síðasta dag fyrir jólafrí 2014.
Ólafur Bernódusson806
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 032
Matartími á leikskólanum Barnaból vorið 1978. Við borðið sitja frá vinstri: Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir, Baldur Magnússon, Atli Þór Þórsson og Viggó Magnússson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 318
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni er Sonja Dröfn Helgadóttir kennari krakkanna að þakka gjöfina. Hjá henni stendur Logi Hrannar Jóhannsson en Bára Þorvaldsdóttir situr og fylgist með.
Ólafur Bernódusson 725
Þessi fallega kirkja á Höskuldsstöðum var vígð 31 mars 1963. Þá var aflögð gömul timburkirkja sem stóð á svipuðum stað og hún rifin nokkru síðar. Þessi mynd var tekin á fallegum vetrardegi 8. apríl 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 194
Hólaneskirkja á aðventu 2017.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 086
Þessi mynd var tekin af hlaðinu hjá Lundi 16. júlí 1981. Húsið sem blasir við er Efri-Lækur sem stóð norðan við húsið Læk, sem enn stendur 2018. Efri-Lækur er nú horfinn en á myndinni er íbúðarhúsið lengst til vinstri en hinar byggingarnar voru skepnuhús og hlaða. Allt var þetta sambyggt og innangengt milli húsanna eins og tíðkaðist á sínum tíma. Til hægri sést götumynd Skagavegar eins og hún var. Héðinshöfði lengst til vinstri þá Þórsmörk og síðan Þórshamar. Tvö þau fyrrnefndu eru nú horfin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 364
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Guðný Evu Björnsdóttur til vinstri og Uloma Lísbet Rós Osuala til hægri.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 011
Guðmundur Henry Stefánsson tveggja og hálfs árs við bakstur á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 013
Bryndís Ingimarsdóttir þriggja ára gömul í ágúst 1977 á leikskólanum Barnaból.
Ólafur Bernódusson792
Veturinn 2006 hélt Farskóli Norðurlands vestra nokkurra vikna námskeið í skrifstofutækni á Skagaströnd. Námskeiðið var fjölsótt, gagnlegt og skemmtilegt. Á þessari mynd sem tekin var 21. febrúar var kennsla í fullum gangi. Á myndinni eru: við borðið til vinstri: Jóhannes Indriðason, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Birna Sveinsdóttir, Kristín Leifsdóttir og óþekkt. Konurnar tvær við bakvegginn eru: Vigdís Ómarsdóttir til vinstri og Guðrún Guðbjörnsdóttir til hægri. Vinstra megin við miðborðið eru: Gígja Óskarsdóttir, Svenny Hallbjörnsdóttir, Erla Hauksdóttir og Stefán Þór Árnason. Hægra megin við borðið eru svo, talið frá vinstri: Dagbjört Bæringsdóttir, Ragnheiður Magnúsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir, tvær óþekktar og Sigríður Ásgeirsdóttir. Konurnar þrjár lengst til hægri eru , talið frá vinstri: Elín Ósk Ómarsdóttir, óþekkt og Sandra Ómarsdóttir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 48
Myndin var tekin 1968 úr Reykholti yfir Mýrina. Húsin á myndinni eru Túnbraut 7 og til vinstri er Suðurvegur 1. Fleiri hús voru ekki komin við þessar götur þegar myndin var tekin en báðar göturnar eru nú að mestu fullbyggðar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 317
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri heimsótti yngstu bekki Höfðaskóla rétt fyrir jólafrí 2014. Við það tækifæri gaf hann skólanum nokkur eintök af bókinni "Litla jólatréð" sem hann hafði skrifað. Á myndinni er Magnús að spjalla við krakkana og segja frá tilurð bókarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 183
Á aðventukvöldi í desember 2012 sýndu nokkrir krakkar helgileik í Hólaneskirkju undir stjórn séra Ursúlu Árnadóttur sóknarprests. Á myndinni eru frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Jóhann Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Snæfríður Guðmundsdóttir, Aníta Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og séra Ursúla.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 031
Púslað úti í góða veðrinu á leikskólanum Barnaból vorið 1978. Sigurbjörg Guðmundsdóttir með húfu í miðið er Hafrún ?, og lengst til hægri er Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson 692
Hólaneskirkja á jólaföstu lýst upp með lit sem tilheyrir föstunni.
Séra Pétur og Dómhildur - safn190
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) á kunnuglegum stað í predikunarstólnum í Hólaneskirkju eldri að tala við söfnuð sinn.
Ólafur Bernódusson719
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Egill Örn Ingibergsson, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir, Páll Halldórsson og Friðmar Kári Eiríksson.
Ólafur Bernódusson715
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Hallbjörg Jónsdóttir að leika í einu atriðanna sem voru á dagskránni.
Helga Berndsen 065
Samkvæmt því sem skrifað er á þessa mynd bjuggu hjónin frá Karlsskála, þau Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) og Guðrún Helgadóttir (d.15.4.1987), í þessu húsi á Akureyri 1930 - 1931. Á myndinni sitja fyrir utan húsið, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Guðrún Einarsdóttir og sonur hennar Einar Þór Ívarsson.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 72
Þessi mynd var tekin utan við Háagerði. Maðurinn á myndinni er Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) bóndi þar en seinna kaupmaður og rithöfundur í Reykholti.
Ólafur Bernódusson752
Þessi mynd var tekin þegar starfsmannafélag Arnars og Skagstrendingur hf færðu Höfðaskóla peningaupphæð til tækjakaupa veturinn 2002 -2003. Á myndinni eru frá vinstri: Finnur Kristinsson frá starfsmannafélaginu, Stella Kristjánsdóttir skólastjóri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
Ólafur Bernódusson862
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er Harpa Hlín Ólafsdóttir að keppa í Húla-húla.
Ingibergur Guðmundsson 291
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 af Ægisgrund 5 á kafi í snjó. Barnið á myndinni er Rebekka Laufey Ólafsdóttir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 073
Bogabraut 22 á kafi í snjó 27. mars 1989. Greinilega sést ekki mikið út um stofugluggana þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 370
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005. Á henni eru krakkarnir í einhvers konar reiptogi "einbjörn í tvíbjörn...". Fremstur er Auðunn Árni Þrastarson, þá Sigurður Aron Björnsson, Daði Snær Stefánsson, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Benóný Bergmann Sæmundsen.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 019
Berglind ? til vinstri og Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir til hægri njóta sólarinnar á leikskólanum Barnaból sumarið 1977.
Ólafur Bernódusson803
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Pétur Atli Árnason, Ingólfur Eðvald Björnsson, Arna Rún Arnarsdóttir, Helgi Hreiðarr Sigurðarson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Magnús Sólberg Baldusrsson, Ástríður Helga Magnúsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Ólafur Halldórsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 035
Húsið á myndinni hét Gunnarshólmi en var oft kallað Grafarbakki í daglegu tali. Það kom til vegna þess að húsið stóð nálægt gömlum mógröfum sem þarna voru. Eftir að hafa staðið autt um fjölda ára og verið í niðurníðslu fékk Slökkvilið Skagastrandar húsið til að æfa sig að slökkva í því. Á myndinni er nýbúið að kveikja í og slökkviliðskarlarnir bíða átekta.
Ólafur Bernódusson711
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er hluti af yngst nemendunum að flytja atriði úr leikritinu Ávaxtakarfan. Frá vinstri: óþekktur, Hugrún Antonía Sigurðardóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Snæbjörn Elfar Arnarsson, Katrín Gunnarsdóttir og Mathis Grüenberger.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 085
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 24. mars 1988. Á henni eru skólastjórnendurnir Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til vinstri og Páll Leó Jónsson skólastjóri til hægri. Milli þeirra er William Sillar kennari.
Ólafur Bernódusson 710
8. nóvember ár hvert er helgaður baráttunni gegn einelti. Árið 2012 fóru krakkar úr Barnabóli, Höfðaskóla, foreldrar og starfsfólk saman í kröfugöngu um bæinn. Með göngunni vöktu þau athygli á, og mótmæltu, þeim hryllingi sem einelti er. Krakkarnir voru búin að búa sér til dósahristur í skólanum og voru þær óspart notaðar til að vekja athygli á málstaðnum. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Björgvinsdóttir, Brynjar Finnbogason, Ólafur Halldórsson, Magnús Sólberg Baldursson, Almar Atli Ólafsson, óþekktur með kröfuspjald, Andri Már Gunnarsson, Ingólfur Eðvald Björnsson og Sindri Freyr Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 368
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Daða Snæ Stefánssyni.
Lára Bylgja Guðmundsdóttir 006
Atli Þór Þórsson á leikskólanum Barnaból sumarið 1977 í skrýtnum búningi.
Ólafur Bernódusson709
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni eru þáverandi 5. og 6. bekkur að sýna atriði sitt. Sitjandi frá vinstri: Ástríður Helga Magnúsdóttir, Magnús Sólberg Baldursson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Arna Rún Arnardóttir, Daði Snær Stefánsson, Ólafur Halldórsson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Freydís Ósk Kristjánsdóttir, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Dagný Dís Bessadóttir og óþekkt. Standandi frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Guðrúna Helga Björgvinsdóttir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 065
Þessi mynd er líklega frá um 1980, tekin norður eftir Bankastrætinu. Húsin tvö lengst frá okkur á myndinni, vinstra megin við götuna, eru horfin. Hvíta húsið með áfastri hlöðu var Höfðakot en húsið lengst frá var Höfðaberg. Tvö af húsunum hægra megin við götuna eru líka horfin. Græna, tvílyfta húsið með rauða þakinu var Kárastaðir. Nær okkur, appelsínugult var Flankastaðir. Þar hefur verið byggt nýtt hús á sama stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1229
Freyja Dís Jóhannsdóttir vinstra megin og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Ólafur Bernódusson766
Krakkarnir í Barnabóli skoða stóran krabba sem einhver kom með á leikskólann til þeirra um miðjan október 2004. Páll Halldórsson er til vinstri og horfir í myndavélina en til hægri er Laufey Lind Ingibergsdóttir einnig að horfa í myndavélina. Önnur börn á myndinni eru óþekkt. Ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1246
Á myndinni, sem tekin var 4. desember 2012 á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, eru starfsmenn keppninnar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson kynnir, Skarphéðinn Einarsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir sem skipuðu dómnefnd kvöldsins og lengst til hægri er Trostan Agnarsson kennari sem var framkvæmdastjóri keppninnar.
Ólafur Bernódusson848
Þessi mynd var tekin 16. mars 2007 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á myndinni eru kynnarnir Helena Velemir og Patrik Bjarnason að draga í aðgöngumiðahappadrættinu. Helena heldur á tertu sem var í vinning í þetta sinn.
Ólafur Bernódusson857
Nemendur og starfsfólk Höfðakóla fóru í mótmælagöngu gegn reykingum og tóbaksnotkun 19. mars 2007. Áður höfðu þau unnið í málinu og enduðu gönguna með íþróttahátíð í íþróttahúsinu þar sem foreldara og aðrir voru velkomnir. Á myndinni er gangan á leið niður Fellsbraut undir forystu lögreglunnar.
1
…
51
52
53
…
65
Leita í myndasafninu
Leita