Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1238
Á söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012 var fullt hús og fátt um sæti. Þess vegna settust þessir þrír ungu herramenn á gólfið og fylgdust með þaðan. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Leifur Örn Ragnarsson og Sigurður Aron Björnsson.
Guðmundur Guðnason025
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri í efri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Ómar Þorbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020). Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d.3.7.2015), Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Ólafur Bernódusson713
28. febrúar 2014 var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg. Á myndinni er Georg Þór Kristjánsson að kynna næsta atriði á dagskránni.
Ólafur Bernódusson1006
Séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Guðni Þór Ólafsson til hægri í Hólaneskirkju. Myndin var tekin þegar Magnús var settur inn í embætti sem prestur á Skagaströnd í desember 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1249
Séra Magnús Magnússon flytur tölu í Hólaneskirkju. Séra Mgnús þjónaði í Skagastrandarprestakalli frá 29. nóvember 2000 til 10. desember 2005. Myndin var tekin 6. desember 2012 þegar Magnús kom í heimsókn í gömlu kirkjunar sína á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1038
Signý Richter til vinstri og Sigrún Guðmundsdóttir til hægri á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
Guðmundur Guðnason797
Hofskirkja er nær á myndinni en gamli bærinn á Hofi er til vinstri og einhver útihús.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1035
Egill Örn Ingibergsson í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 22. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 362
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af þeim Benóný Bergmann Sæmundsen til vinstri og Victoríu Sif Hólmgeirsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Húsið sem ber yfir bílinn er Gunnarshólmi oft kallað Grafarbakki vegna þess að það stóð nálægt mógröfum sem þarna voru. Sólheimar yngri er húsið til hægri við bílinn og Sólheimar eldri er húsið sem stendur nær okkur með flötu þaki. Við sjáum ofan á þakið á Valhöll og hægra megin við það er Steinholt. Bjarmaland er svo hægra megin með hlöðu og fjárhús á bak við.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 572
Nemendur 9. bekkjar Höfðaskóla gera útitilraun í sambandi við viðnám og mótstöðu framan við íþróttahúsið með kennara sínum Ólafi Bernódussyni í október 2014. Frá vinstri: Jóna Margrét Sigurðardóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson kennari (fjær), óþekktur (nær), Jóhannes Sigurpálsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sonja Albertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Elín Ósk Björnsdóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Arnrún Guðjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1225
Sóley Sif Jónsdóttir vinstra megin og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1233
Guðný Eva Björnsdóttir vinstra megin og Laufey Lind Ingibergsdóttir til hægri taka þátt í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Guðmundur Guðnason861
Fermingarbörn 1961 í Hólaneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Jóhann Ingibjörnsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) organisti, Búi Birgisson (d.18.9.2009), Sigurður Bjarnason og Ísleifur Haraldsson. Miðröð frá vinstri: Hrefna Júlía Viggósdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Fremsta röð frá vinstri: Steinunn Margrét Ellertsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1421
Minningarstund við minnismerki um drukknaða sjómenn hjá Hólaneskirkju. Á sjómannadegi er ávalt lagður blómakrans við minnismerkið að lokinni messu í kirkjunni. Þessi mynd var tekin eftir messu 2. júní 2012 en á henni eru frá vinstri: séra Úrsula Árnadóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Friðvin Ingi Ernstson og Birta Dögg Bessadóttir en þau tvö lögðu kransinn að minnismekinu með hjálp Sigurjóns.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1152
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af kvennaskólanum á Blönduósi og nágrenni hans. Skólahald hófst á þessum stað 1901 í húsi sem brann 1911 en húsið á myndinni var byggt á sama stað 1912. Skólinn starfaði til 1978.
Guðmundur Guðnason707
Myndin er tekin af Höfðanum yfir útbæinn og höfnina. Mörg af húsunum á myndinni eru horfin eins og Efri Sólheimar sem sést ofan á fremst til vinstri og Valhöll sem stendur hinum megin við götuna. Höfðaberg hét húsið næst okkur til hægri á myndinni og Höfðakot hægra megin við það. Niður með Skagaveginum eru síðan horfin útihúsin og viðbyggingar við Bjarmaland vinstra megin og Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður hægra megin við götuna. Kaupfélagshúsið, braggarnir og löndunarútbúnaður vegna síldarverksmiðjunnar á höfninni eru einnig horfin í dag.Ef grannt er skoðað sést hafís á sjónum þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1965 eða 1968.
Ingibergur Guðmundsson 317
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Halldór Gunnar Ólafsson í handlöngun með pabba sínum Ólafi Bernódussyni er þeir voru að smíða grindina í skálanum.
Guðmundur Guðnason300
Frystiklefinn var byggður á uppfyllingu við Skúffugarðinn. Skúrinn - "Svarti skúrinn" eins og hann var kallaður eftir upprunalegum lit sínum - er nær á myndinni var tengdur höfninni lengi og stóð fyrst á hafnarsvæðinu verksmiðjumegin. Hann var notaður sem vinnu og geymsluskúr hafnarinnar m.a. var eldsmiðja í skúrnum.
Guðmundur135
Séra Oddur Einarsson í predikunarstólnum í gömlu Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Á myndinni sjást tvær Hólaneskirkjur. Sú nýrri var byggð nánast á tröppunum á gömlu kirkjunni. Sú gamla var afhelguð og rifin. </p>
Guðmundur136
<P>Sólvangur til vinstri, Ásholt til hægri.</P>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1387
Þessi skólabörn voru á heimleið að loknum skóladegi í Höfðaskóla 5. nóvember 2012 þegar þessi mynd var tekin. Þeim þótti sjálfsagt að koma við í snjóhrúgu á leiðinni en börnin eru frá vinstri: Andri Már Gunnarsson, Erla Mjöll Daðadóttir, Brynjar Daði Finnbogason og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1219
Bylgja Hrund Ágústsdóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1398
Áhorfendur á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Jón Jónsson118
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason250
Hjallholt fyrir gagngerar breytingar. Í baksýn sér í Sólvelli sem stóðu sunnan og ofan við gömlu Tunnuna (nú Spákonuhof). Hjallholt byggði Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) í Reykholti fyrir Ingunni Júlíusdóttur (d. 22.4.1998).
Guðmundur Guðnason079
Lækjarhvammur (Suðurvegur 1) í forgrunni. Lengst til hægri eru Iðavellir en önur hús voru skepnuhús og skúrar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 441
Barnakór að syngja á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 1. desember 2013. Aftari röð frá vinstri: Ellert Atli Þrastarson, Sigurjón Ýmir Alexson, óþekktur, Aþena Guðbjörg Baldursdóttir, óþekkt og Sigríður Kristín Guðmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Aníta Ýr Gunnarsdóttir, óþekkt, Jón Benedikt Tischleder Jensson og Patrik Máni Róbertsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1303
Gamla salthúsið eða gamla verbúðin stendur syðst á höfðanum og hefur þjónað fjölmörgum hlutverkum gegnum tíðina. Salthús, verbúð, beitingaaðstaða, járnsmíðaverkstæði og geymsla til að eitthvað sé nefnt. Nú (2018) hefur húsið fengið uppreist æru því búið er að taka það allt í gegn og breyta í glæsilegt gistiheimili með fölmörgum herbergjum undir nafninu Salthúsið. Glæsilegra útsýni en frá því er vandfundið.
Guðmundur Guðnason701
<P>Kirkjukór Hólaneskirkju. Í öftustu röð eru, frá vinstri: Georg Hjartarson (d.13.9.2001), Sævar Bjarnason, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989). Í miðröðinni eru, frá vinstri: Edda Pálsdóttir (d. 8.4.2016), Elísabet Árnadóttir, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Hjördís Bára Þorvaldsdóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti og stjórnandi, Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996), Áslaug Hafsteinsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 348
Börnin úr Barnabóli hafa um árabil komið í íþróttahúsið einu sinni í viku í leikfimitíma. Þessi mynd var tekin í einum slíkum tíma 6. desember 2005 af Guðný Evu Björnsdóttur.
Ólafur Bernódusson920
Tanja Rán Einarsdóttir til vinstri og Eva Dís Gunnarsdóttir til hægri kátar við vinnu sína í Höfðaskóla í mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1401
Myndin var tekin á fimleikasýningu sem nemendur Höfðaskóla stóðu fyrir 18. desember 2012 undir leiðsögn kennara síns Höllu Karenar Gísladóttur.
Guðmundur Guðnason190
Útför frá Hólaneskirkju í september 1962. Kista Írisar Jónsdóttur, sem drukknaði í Skagastrandarhöfn 8. september 1962, í Hólaneskirkju (eldri).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1318
Hólaneskirkja er stílhrein, falleg og smekklega upplýst í tunglsljósinu 29. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1341
Á útivistardögum í lok maí 2012 kom lögreglan í heimsókn og yfirfór reiðhjól nemenda fyrir sumarið. Á þessari mynd skoðar Höskuldur Birkir Erlingsson lögreglumaður hjólið hjá Daða Snæ Stefánssyni. Agnes Sævarsdóttir kennari fylgist með ásamt óþekktum nemanda.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 423
Mæðgurnar María Ösp Ómarsdóttir og Erla Mjöll Daðadóttir fylgjast með æfingu í Fellsborg á leikriti á vegum Höfðaskóla 9. apríl 2013. María Ösp var leikstjóri verksins.
Ólafur Bernódusson999
Skólarnir í Austur-Húnavatnssýslum héldu sameiginlegan íþróttadag á Skagaströnd í apríl 2001. Þar var keppt í ýmsum hefðbundnum greinum íþrótta en einnig óhefðbundnum og síðan endað með diskóteki í Fellsborg um kvöldið. Þessi mynd var tekin af nemendum að fylgjast með keppni í íþróttahúsinu. Frá vinstri: óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Hanna Gestsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Eyþór Kári Egilsson, Stefán Agnar Gunnarsson, óþekktur, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, tveir óþekktir og Jón Atli Magnússon.
Guðmundur Guðnason273
Túnbraut 7, Skagaströnd. Húsið byggðu feðgarnir Páll Jónsson (d.19.7.1979) skólastjóri og Jón Pálsson skólastjóri ásamt fjölskyldum sínum. Páll bjó á neðri hæðinni ásamt dóttur sinni Eddu Pálsdóttur (d.8.4.2016) en Jón bjó á efri hæðinni með konu sinni Björk Axelsdóttur og þeirra börnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1221
Klara Ósk Hjartardóttir syngur í söngvakeppni Höfðaskóla, Garg.is, 4. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamla Hólaneskirkja áður en framkvæmdir hófust við nýju kirkjuna. Þessi kirkja var hönnuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins og var vígð 1928. Húsið hægra megin við kirkjuna er Stóra Berg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 424
Andrea Casper talar við börnin sín Zeliu Casper og Lazer Casper á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1428
Vinir, bekkjarfélagar úr Höfðaskóla og meðlimir í hljómsveitinni Dornik. Frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbörg Katla Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Myndin var tekin 19. janúar 2012.
Guðmundur Guðnason073
Sveinn Hall Másson frá Réttarholti á fermingardaginn sinn 1967
Guðmundur Guðnason244
Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju (eldri).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1456
Matartími í leikskólanum Barnabóli 1. febrúar 2012. Sesselja Guðmundsdóttir gefur börnum að borða. Börnin eru frá hægri: Ísak Andri Jónsson, Ellert Atli Þrastarson, Alexander Áki Hall Sigurðsson, Lazer Casper en hinir tveir drengirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason220
Dómkirkjan að Hólum í Hjaltadal 25. ágúst 1963.
Guðmundur Guðnason773
Nýja kirkjan á Höskuldsstöðum á vígsludeginum 1963.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1338
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd fylgjast nokkrir nemendur með öðrum dansa og bíða eftir að röðin komi að þeim sjálfum. Í fremri röð frá vinstri: Ingólfur Eðvald Björnsson, Ívan Orri Eiríksson, Jóhann Almar Reynisson og Arna Rún Arnarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Kristmundur Baldvinsson, Daði Snær Stefánsson, Dagur Freyr Róbertsson, Ólafur Halldórsson og Pétur Atli Árnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 576
Mynd frá árshátíð Höfðaskóla 9. maí 2014. Þá sýndu nemendur leikritið Kardimommubær. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Anton Einarsson, Jóna Margrét Sigurðardótir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Elmar Jóhann Grétarsson.
Guðmundur Guðnason071
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu). Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Inga Stefánsdóttir, Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson, Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson, og Ingibergur Guðmundsson.
Kvennaskolinn_oldhouse[1]
Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) var rekinn í þessu húsi.Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur í nýbyggt hús á Blönduósi. Á myndinni eru skólastúlkur ásamt kennurum og gestum einhverntíma á þessu tímabili.Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss. Við þjóðveginn sunnan við Ytri-Ey er minnismerki um þennan merka skóla. Fyrsta skólastýra skólans var sú merka kona Elín Briem sem var þá nýútskrifuð úr húsmæðrakennaraskóla í Kaupmannahöfn. Hún kenndi og stýrði skólanum frá stofnun til 1895 er hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún stofnaði hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Elín kom svo aftur norður og tók við stjórn kvennaskólans er hann flutti 1901 til Blönduóss í tvö ár og svo enn á ný 1910 til 1915. Elín fékk riddarakross Hinnar íslensku fálkaorði árið 1921 og var þá önnur af tveim fyrstu konunum sem þann heiður hafa hlotið. <br>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 575
Skeggjastaðir í Skagabyggð. Myndin var tekin í maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Árnes ásamt seinni tíma viðbyggingum. Árnes hefur tekið algjörum stakkaskiptum frá því að þessi mynd var tekin því það var sett í sitt upprunalega horf og er sem slíkt elsta íbúðarhús Skagastrandar. </p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 689
Helgi Gunnarsson smiður og verktaki vinnur að viðgerðum á meiðunum í dráttarbrautinni 24. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Á þessari mynd, líklega frá árinu 1960 eða svo, af Bankastræti sjást, vinstra megin við götuna, talið frá vinstri: fjárhús/fjós og hlaða sem var í eigu Þórbjörns Jónssonar (d. 22.1.1996) á Flankastöðum, Höfðabrekka í eigu hjónanna Björgvins Jónssonar (d. 4.5.1992)) og Þorgerðar Guðmundsdóttur (d. 24.4.2008), Bjarnarhöfn í eigu Bjarna Loftssonar (d.?) og Fanneyjar Jónsdóttur. Lengra frá er Höfðakot með tilheyrandi útihúsum í eigu hjónnana Steingríms Jónssonar (d. 5.1.1992) og Halldóru Pétursdóttur (d. 23.12.1987) en hjá þeim bjó bróðir Halldóru, Guðmundur Pétursson (d. 30.6.1987). Uppi í brekkunni stendur Höfðaberg í eigu Júlíusar Árnasonar og Steinunnar Guðmundsdóttur sem fluttu burtu og eru nú látin. Hægra megin við götuna eru, næst okkur: Höfðaborg en í því eru tvær íbúðir. Íbúðina nær okkur áttu og eiga enn hjónin Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir en þau keyptu hana af Þórólfi Sveinssyni sem lauk við byggingu þess 1950. Hina íbúðina áttu hjónin Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) og Gunda Cecelía Jóhannsdóttir (d.?). Þá koma Flankastaðir en þeir voru í eigu þeirra hjóna Þórbjörns Jónssonar (d. 22.1.1996) og Guðmundu Árnadóttur. Kárastaðir eru næstir. Þar bjuggu bræðurnir Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) og Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) ásamt ráðskonu sinni Jónínu Valdimarsdóttur. Í Stórholti sem er næst í röðinni (með kvist á þakinu) eru þrjár íbúðir. Í norðurendanum bjó Gunnar Albertsson með konu sinni Hrefnu Björnsdóttur ásamt móður hennar Steinunni Jónsdóttur(d.6.4.1982). Á neðri hæðinni í suðurendanum bjuggu þegar myndin var tekin, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) og konan hans Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991). Uppi í suðurendanum voru hjónin Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Skálholt er síðan örlítið til hægri við Stórholt. Skálholt tilheyrir ekki Bankastræti heldur Skagavegi. Allmargir hafa búið þar en þegar myndin var tekin bjuggu þar Benjamín Sigurðsson og Lára Loftsdóttir með dætrum sínum.
Óþekktur ljósmyndari410
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á þessari mynd er verið að byggja Ketilhúsið. Það er austasti hluti húsanna sem standa norðan við núverandi hafnarvigt og tilheyrðu síldarverksmiðjunni. Á myndinni er steypuvinna í gangi en stillansinn (turninn) vinstra megin er notaður til að hægt sé að hífa steypuna upp á efri plötu hússins sem er steypt. Líklega var spil á hrærivélinni til að hífa steypumálið upp. Myndin var tekin kringum 1945.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 440
Krakkar bíða á kirkjuloftinu eftir að röðin komi að þeim að flytja helgileik í kirkjunni 1. desember 2013. Næst okkur sitja Benóný Bergmann Hafliðason og Ingólfur Eðvald Björnsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 552
Unnið við gerð nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn í apríl 2014. Lengst til hægri sér í hús hafnarvigtarinnar.
1
…
55
56
57
…
65
Leita í myndasafninu
Leita