Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 552
Unnið við gerð nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn í apríl 2014. Lengst til hægri sér í hús hafnarvigtarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 441
Barnakór að syngja á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 1. desember 2013. Aftari röð frá vinstri: Ellert Atli Þrastarson, Sigurjón Ýmir Alexson, óþekktur, Aþena Guðbjörg Baldursdóttir, óþekkt og Sigríður Kristín Guðmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Aníta Ýr Gunnarsdóttir, óþekkt, Jón Benedikt Tischleder Jensson og Patrik Máni Róbertsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Guðmundur Guðnason099
Fjárhúsin við Ægissíðu. Þarna hafði Guðmundur Guðnason (d.21.11.198) póstur og ljósmyndari kindur sínar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 680
Myndin var tekin þegar göngubrú var opnuð yfir Hrafnána 23. júní 2014. Á myndinni lýsir Adolf H. Berndsen oddviti á Skagaströnd smíði brúarinnar. Eftir tölu Adolfs opnaði Jakob Guðmundsson, til hægri, brúna formlega með því að klippa á bandið sem lokar henni. Jakob er eigandi landsins sunnan við brúna sem bóndi á Árbakka. Brúin tengir saman sveitarfélögin Skagaströnd og Skagabyggð og er vinsæl meðal göngufólks.
Guðmundur Guðnason279
<p>Myndin er tekin í Hólaneskirkju-eldri. Prestarnir eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, séra Robert Jack og séra Oddur Einarsson.</p>
Guðmundur Guðnason885
Bæirnir sem sjást á myndinni eru Melstaður, Laufás, Ægissíða og Réttarholt ásamt fjárhúsum og hlöðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Næst okkur á þessari mynd eru fjárhús/hesthús og hlaða sem tilheyra Réttarholti. Fjær til vinstri er Sólvangur og til hægri sér í Ásholt. Víkin á myndinni er kölluð Bótin.
Guðmundur Guðnason819
Sigurður Pálmason (til vinstri) og Gissur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 426
Kristján Örn Róbertsson á sviðinu í Fellsborg 9. apríl 2013.
Guðmundur Guðnason277
Prestafundur í Hólaneskirkju - eldri. Frá vinstri: óþekktur, séra Árni Sigurðsson (d.26.10.2020), séra Ólafur Hallgrímsson og séra Pálmi Matthíasson. Fyrir framan situr prófasturinn, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Guðmundur128
Frá vinstri: Réttarholt, Sólvangur, Ægissíða og Ásholt að vetri
Ólafur Bernódusson 734
Myndin var tekin 3. júní 2013 af vestur stafninum á Salthúsinu. Myndin á stafninum er eftir listamanninn Guido Van Helten sem dvaldi um tíma í Nes listamiðstöðinni. Síðan þessi mynd var tekin hefur Salthúsið verið tekið í gegn og breytt í gistihús. Við þær breytingar var húsið klætt að utan og þar með hvarf þessi mynd undir klæðninguna.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Myndin var tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Húsið lengst til hægri, Héðinshöfði, er nú horfið.
Guðmundur Guðnason097
Réttarholt, byggt af Má Hall Sveinssyni (d.1.3.2008) og Elísabetu (Bebbý) Árnadóttur (d.16.3.2017) konu hans.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamla Hólaneskirkja máluð. Málararnir eru óþekktir en sennilega er um fólkið í sóknarnefndinni að ræða.
Guðmundur Guðnason807
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum á fermingardaginn 1962
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 742
Þó ótrúlegt megi virðast er ekki alltaf gott veður á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af kirkjunni í svarta byl 29. desember 2012. Væntanlega hafa þeir sem gátu kúrt heima hjá sér við lestur eða að spila meðan bylurinn gekk yfir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd er frá Kúvíkum í Reykjarfirði á Ströndum. Þarna var athafnasvæði Carls Jensen kaupmanns. Í Kúvíkum bjó líka Thorarensenfólk m.a. Jakob Thorarensen skáld. Kúvíkur eru nú löngu komnar í eyði og allar byggingar horfnar. Í Kúvíkum var lítið kot sem hét Kúvíkur. Þar fæddust og ólust upp að hluta systkinin: Bernódus, Herbert, Björg og Karitas Laufey Ólafsbörn sem öll bjuggu síðar á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 761
Myndin var tekin 30. mars 2007 á skóla-íþróttamóti í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Maðurinn til vinstri er óþekktur en skeggjaði maðurinn er íþróttakennarinn á Húnavöllum Milan Durica. Áður en hann gerðist kennari á Húnavöllum kenndi hann við Höfðaskóla í nokkur ár.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Gamla kirkjan á Höskuldsstöðum, sem er löngu horfin.
Guðmundur Guðnason889
Fermingarbörn ganga til kirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Maðurinn á myndinni sem er að stilla myndavélina sína er Þórður Jónsson (d.25.12.2009). Fermingarbörnin eru óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin meðan Gamla Tunnan, sem er bragginn með græna þakinu, var notuð sem áhaldahús fyrir Höfðahrepp. Nú er Spákonuhof til húsa í byggingunni. Á myndinni sést hluti starfsmanna Vinnuskólans á sumardegi.
Ólafur Bernódusson 764
Þessi mynd var tekin í æðarvarpi á Höfnum á Skaga 31. maí 2005. Bændur þar gera vel við kollurnar sínar og hafa smíðað fjölmörg svona "einbýlishús" fyrir þær til að verpa í. Leigan fyrir svona hús er handfylli af dún.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 894
Myndin var tekin 11. desember 2007 í Höfðaskóla þar sem jólaundirbúningur stóð sem hæst. Frá vinstri: Sæþór Bragi Ágústsson, Sara Rut Fannarsdóttir og Herdís Baldvinsdóttir kennari.
Guðmundur Guðnason811
Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason873
Steinunn Margrét Ellertsdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Árni Geir Ingvarsson - safn
Akur eða Hólabraut 13.
Guðmundur Guðnason875
Hrefna Júlía Viggósdóttir á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason338
Fermingarbörn 1980 í Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri í fremstu röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Guðmundur Guðnason825
Árni Björn Ingvarsson á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason809
Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn 1962.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þesi mynd sýnir Hólaneskirkju í byggingu. Unnið er að því að koma sperrunum fyrir um leið og turninn er í byggingu. Rauði turninn er kirkjuturninn á gömlu kirkjunni sem var rifin eftir að sú nýja var tekin í notkun. Litla húsið með rauða þakið, fremst á myndinni, er Rjúpnafell en það er nú horfið.
Guðmundur Guðnason821
<P>Frænkurnar Anna Bára Sigurjónsdóttir (til vinstri) og Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.</P>
Guðmundur Guðnason717
Kristján Hjartarson organisti og kórstjóri gengur til Hólaneskirkju. Bak við hann sést húsið Sólvellir sem nú er horfið.
Guðmundur Guðnason674
Á myndinni er frystihús Kaupfélagsins sem seinna varð Hólanes hf. Myndin er tekin áður en miklar breytingar voru gerðar á húsinu og ekki var búið að fylla upp í víkina fyrir neðan sundlaugina, sem er lengst til hægri á myndinni. Í mörg ár rak Kaupfélagið sláturhús á neðri hæð hússins á hverju hausti. Þá voru líka frystigeymslur fyrir almenning uppi í millibyggingunni milli aðal frystihússins til vinstri og vélahússins til hægri. Stigin sem sést liggja upp á þak skúrsins fyrir miðri mynd var notaður til að komast í frystihólfin sem voru innan við dyrnar á risinu á millibyggingunni. Ekki er vitað hvenær Guðmundur Guðnason tók þessa mynd en ef grannt er skoðað má sá hafíshrafl á sjónum.
larus044
Mynd frá altarisgöngu í vígslumessu Hólaneskirkju 20. október 1991. Biskupinn Herra Ólafur Skúlason og séra Egill Hallgrímsson sóknarprestur útdeila brauði og víni með aðstoð meðhjálparans Steindórs Haraldssonar lengst til hægri.
Guðmundur Guðnason011
<P>Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) leiðir fermingarbörn til Hólaneskirkju 1968. Fremst fer Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) en Guðrún Lárusdóttir er á bak við hana. Síðan koma Guðbjörg Vera Kristinsdóttir (Bugga), Sigríður Gestsdóttir, og Linda Kristjánsdóttir. Strákarnir eru frá vinstri: Heiðar Elvan Friðriksson, Hallbjörn Ágústsson, Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018), Hilmar Gunnarsson, Magnús Guðlaugsson og bak við grindverkið eru þeir Kjartan Bjarnason og Ragnar Ingvarsson.</P>
guðmundur214
Þessi mynd er sennilega tekin á sjómannadegi. Óþekktur ræðumaður flytur tölu af svölum Hólaneshússins en þannig var staðið að málum á fyrstu hátíðahöldum sjómannadagsins á Skagaströnd um 1940.
Ólafur Bernódusson 744
Þessi mynd var tekin 26. febrúar 2011 af skreiðarhjalli sem var í Árbakkalandi á nesinu sunnan við Hrafnána. Upphaflega, þegar hann var byggður þarna á bakkanum, var hann tvö bil en þegar myndin var tekin hafði sjórinn brotið svo úr bakkanum að annað bilið er að mestu hrunið í sjóinn. Nokkru eftir að myndin var tekin var hjallurinn svo rifinn enda hafði ekki verið hengdur upp fiskur í honum í mörg ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Akurgerði - Hólabraut 9. Húsið var rifið 2002 og nýtt hús byggt á lóðinni.
Guðmundur Guðnason887
Árgerð 1949 gengur til fermingar í Hólaneskirkju 1963 með séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í fararbroddi.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ránarbraut 18 - 22. Myndin tekin úr suðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd er frá Kúvíkum í Reykjarfirði á Ströndum. Þarna var athafnasvæði Carls Fr. Jensen (d.25.6.1948) kaupmanns. Í Kúvíkum bjó líka Thorarensenfólk m.a. Jakob Thorarensen (d.29.1.1911) kaupmaður. Kúvíkur eru nú löngu kominar í eyði og allar byggingar horfnar. Á tímum einokunarverslunar 1602 - 1787 voru tvær verslunarhafnir við Húnaflóa; Skagaströnd og Kúvíkur. Kúvíkur var svokölluð lýsishöfn því aðal útflutningur þaðan var hákarlalýsi, sem var verðmætt eldsneyti í borgum Evrópu. Á myndinni er verið að skipa út eða í land varningi fyrir verslunina í Kúvíkum sem sést í baksýn. Myndin er nokkuð dæmigerð fyrir vinnubrögðin við upp- og útskipun áður en alvöru hafnir komu til sögunnar. Myndin var líklega tekin einhverntíma á bilinu 1910 - 1930.
Guðmundur Guðnason871
Steinunn Margrét Ellertsdóttir ( til vinstri) og Hrefna Júlía Viggósdóttir á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason285
Áning.
Ólafur Bernódusson1016
Vinnuflokkur tyllir sér niður í tilefni af reisugilli þjónustuhússins sem þeir byggðu á tjaldstæðinu. Myndin var tekin í júlí árið 2000. Karlarnir eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson verktaki, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), Gunnar Helgason, Sigurður Björnsson, Baldvin Hjaltason, Árni Halldór Eðvarðsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Hrólfur Pétursson.
Guðmundur Guðnason823
Sigurður Pálmason á fermingardaginn sinn 1962.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Myndin er tekin niður Fellsbrautina, líklega á sjómannadegi eða eftir húskveðju fyrir jarðaför. húsin til hægri eru Ásgarður, Drangey og Holt. Yfir þakið á Drangey sér í Útibúið sem var verslun á vegum kaupfélagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gæti hafa verið í kringum 1960.
Guðmundur Guðnason336
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson með fermingardrengnum Kristjáni Karlssyni í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Höfði á Skagaströnd. Á miðhæð og í risi var lengi heimili prestshjónanna séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) og Dómhildar Jónsdóttur (d. 18.10.2012). Þá var trésmíðaverkstæði á jarðhæðinni. Bíllinn fyrir framan húsið var Austin Gipsy jeppi séra Péturs. Myndin var tekin vorið 1971.
guðmundur216
Hólaneskirkja eldri var notuð frá 1928 - 1991 sem sóknarkirkja á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 896
Ásdís Erla Steingrímsdóttir í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Guðmundur Guðnason725
<P>Fermingarbörn ganga frá kirkju eftir fermingu 1968. Frá vinstri: Óþekktur, Ingvar Ástmarsson, Magnús Guðlaugsson, Kjartan Bjarnason, Ragnar Ingvarsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðbjörg Kristinsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Linda Kristjánsdóttir.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 574
Skeggjastaðir 2 í Skagabyggð . Myndin var tekin 5. maí 2014.
Guðmundur Guðnason306
Baldursheimur er nú löngu horfinn. Hann stóð á lóð milli Fellsbrautar 9 og Hólabrautar 10. Í Baldursheimi bjó lengi Sigurjón Jóhannsson (d. 20.11.1967) kennari með konu sinni Jóhönnu Jóhannsdóttur (d. 23.9.1966) og börnum þeirra tveimur Katrínu Bryndísi (d. 8.12.2003) og Haraldi (d. 13.5.1986). Seinna fluttu í Baldursheim Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) frá Háagerði og kona hans Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) með þau af börnum sínum sem ekki voru farin að heiman.
Ólafur Bernódusson998
Limbókeppni á sameiginlegu diskóteki skólanna í Austur-Húnavatnssýslu í Fellsborg á íþróttadegi á Skagaströnd í apríl 2001.
Guðmundur Guðnason298
Hólabraut 16 - Vinaminni. Þar bjuggu lengi hjónin Pétur Eggertsson og Sylvía Hrólfsdóttir með sonum sínum þremur: Hrólfi, Brynjari og Viktori.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin af garðinum á Bogabraut 16. Á myndinni sjást líka tvö hús sem hafa verið fjarlægð. Til hægri er Baldursheimur en reisulega húsið með rauða valmaþakinu var Goðhóll þar stendur nú Hólabraut 10.
Guðmundur Guðnason881
Fermingarbörn 1965 ganga til kirkju með prestinum, séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Stúlkurnar fremst á myndinni eru Ragnheiður Sigurjónsdóttir (til hægri) og Kristín Björnsdóttir. Næstir fyrir aftan þær koma Björn Bragi Sigmundson og Kristófer Einarsson. Aftast í hópnum eru, talið frá vinstri: Sigurður Kristinsson, Reynir Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
56
57
58
…
65
Leita í myndasafninu
Leita