Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason805
Ferming í Hólaneskirkju 1962. Fermingarbörnin eru frá vinstri: aftasta röð: Sigurður Pálmason, Árni Björn Birgisson og Hrefna Þorbjörnsdóttir. Miðröð: Björn Hafsteinsson Fossdal (d.13.4.1983), Gissur Jóhannsson, Eðvarð Yngvason (d.29.5.2011), María Bjarnadóttir (d.1984), Ester Axelsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Fremsta röð: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, María Jóndóttir og Árni Björn Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason881
Fermingarbörn 1965 ganga til kirkju með prestinum, séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Stúlkurnar fremst á myndinni eru Ragnheiður Sigurjónsdóttir (til hægri) og Kristín Björnsdóttir. Næstir fyrir aftan þær koma Björn Bragi Sigmundson og Kristófer Einarsson. Aftast í hópnum eru, talið frá vinstri: Sigurður Kristinsson, Reynir Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi óhrjálegi braggi var byggður einhverntíma á árunum 1943 - 1946 í tengslum við byggingu síldaverksmiðjunnar á Skagaströnd. Í gegnum tíðina þjónaði Bragginn mörgum hlutverkum; var geymsla, slökkvistöð, vélaverkstæði og bátasmiðja. Að lokum var hann svo rifinn einhverntíma á árunum kringum aldamótin.
Ólafur Bernódusson 852
Steindór Haraldsson meðhjálpari flytur þakkarávarp í Hólaneskirkju 9. nóvember 2013 vegna gjafar Lárusar Ægis Guðmundssonar til kirkjunnar á flygli til minningar um móður sína Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010 )
Guðmundur Guðnason877
Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir) á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Þessi mynd af Skagaströnd var tekin einhverntíma á árunum 1992 - 1996. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Brautarholt stóð á milli Fellsbrautar 9 og 13.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Allmiklar breytingar hafa orðið á bæjarmynd Skagastrandar síðan þessi mynd var tekin. Næst okkur á myndinni eru t.d. þrjú hús sem eru horfin. lengst til vinstri sér ofan á þakið á Höfðakoti, þá kemur Dvergasteinn og síðan Draumaland. Öll þessi hús eru löngu horfin. Lengra frá má sjá Skálholt, Þórshamar og Þórsmörk en síðast talda húsið er líka horfið. Hinum megin við götuna er Bjarmaland.
Guðmundur126
<p>Þessi mynd var tekin fyrir utan gömlu kirkjuna á Skagaströnd. Konan í dökku kápunni er Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir úr Árnesi. Hér heilsar hún frú Magneu Þorkelsdóttur biskupsfrú með handabandi. Maðurinn á myndinni er séra Bernharður Guðmundsson tengdasonur Magneu, þá var hann æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. Aðrir eru óþekktir. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Brautarholt stóð á milli Fellsbrautar 9 og 13.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 764
Heiðrún Tryggvadóttir kennari með umsjónarbekkinn sinn í íþróttahúsinu 19. apríl 2007. Frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, óþekktur, Sara Rut Fannarsdóttir, Sonja Ólafsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, óþekkt, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir, Alex Már Gunnarsson og Heiðrún. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Vinaminni eða Hólabraut 16. Þessi mynd var sennilega tekin kringum 1970.</p>
Guðmundur Guðnason711
Höskuldsstaðakirkja
Ólafur Bernódusson 853
Lárus Ægir Guðmundsson færir Hólaneskirkju flygil að gjöf 9. nóvember 2013 til minningar um móður sína Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010).
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) fyrir altarinu í Hólaneskirkju eldri í einni af ótalmörgum athöfnum sínum á 41 árs ferli sínum sem sóknarprestur á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason813
Árni Björn Birgisson á fermingardaginn 1962.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Prestarnir tveir á myndinni eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir í Hólaneskirkju eldri þar sem þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 923
Magnús Jens Magnússon til vinstri og Birkir Freyr Gunnarsson til hægri í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Húsið til hægri er Drangey. Höfðaskóli, sem er verið að mála er til vinstri. Síðast bjó í Drangey Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 878
Myndin var tekin rétt fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla. Á henni aðstoðar Magnea Valdimarsdóttir nokkra nemendur við jólaföndrið. Nemendurnir eru, frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson og Arnar Páll Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 916
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsinu - 10. desember 2007. Á myndinni eru frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen og Egill Örn Ingibergsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 879
Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Saga Lind Víðisdóttir til hægri föndra fyrir jólin 2007 í Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 904
Benóný Bergmann Sæmundsen í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Baldursheimur, sem nú hefur verið fjarlægður, stóð á milli Fellsbrautar 9 og Hólabrautar 10.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 939
Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari til vinstri og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla til hægri skemmta sér vel í vinnunni í skólanum 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var sennilega tekin snemma á áttunda áratugnum. Á henni má sjá nokkur hús sem er horfin í dag, víkina, sem nú er búið að fylla upp í, neðan við sundlaugina og fleira frá gömlum tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd, sem var tekin í Bankastræti, leiðir Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) langömmubarnið sitt, Önnu Sjöfn Jónasdóttur. Anna er, eins og sjá má, með glæsilegt mjólkurskegg. Húsin í baksýn eru Kárastaðir nær og Flankastaðir fjær. Bæði húsin er nú horfin en nýtt var byggt að Flankastöðum. Myndin var tekin kringum 1965.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Séð heim að Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Fjós og hlaða í byggingu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 979
Séð heim að Brandaskarði 23. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin af garðinum á Bogabraut 16. Á myndinni sjást líka tvö hús sem hafa verið fjarlægð. Til hægri er Baldursheimur en reisulega húsið með rauða valmaþakinu var Goðhóll þar stendur nú Hólabraut 10.
Guðmundur Guðnason338
Fermingarbörn 1980 í Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri í fremstu röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd er tekin af Hólaberginu nálægt því sem var bæjarhlað Höfðahóla. Myndin var tekin einhverntíma á tíunda áratugnum niður Ránarbrautina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 422
Afgreiðslumenn í sjoppu skólafélagsins á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 13. febrúar 2013. Guðmann Einar Magnússon til vinstri og Páll Halldórsson til hægri. Segja má að á myndinni komi vel saman íslenskri sveitakonu og amerískri ofurhetju.
Guðmundur Guðnason275
Lengst til vinstri eru fjárhús og hlaða í eigu Ingvars Jónssonar (d.18.1.2003) frá Sólheimum. Húsin tvö næst hétu bæði Sólheimar. Sólheimar eldri er húsið með skúrþakinu en nýrri Sólheimar eru rauðmálaða húsið. Ingvar Jónsson bjó með konu sinni Elínborgu Árnadóttur (d. 7.4.1979) og börnum þeirra fyrst í eldri Sólheimum en byggði síðan nýrri Sólheima og flutti þangað. Þá fluttu í eldri Sólheima hjónin Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) og Ingibjörg Sigfúsdóttir (d. 27.8.1977). Gula húsið er Bjarmaland en þar bjuggu hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) með dóttur sinni Áslaugu Hrólfsdóttur. Til vinstri við vinkilbyggða húsið, sem hefur hýst ýmis konar starfsemi gegnum árin, sést í Jaðar (hvítt hús) og ef vel er gáð sést efri Jaðar hálfur í hvarfi við Jaðar. Húsin sem ber yfir vinkilinn á vinkilbyggða húsinu er Efri Lækur sem nú er löngu horfinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 940
Kristmar Ingi Ragnarsson til vinstri og Elvar Geir Ágústsson til hægri í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 921
Lilja Svandís Hallgrímsdóttir til vinstri og Guðrún Anna Halldórsdóttir til hægri niðsokknar við jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin ofan af Höfðanum yfir hluta af Útbænum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru allmörg hús sem nú eru horfin. Lengst til vinstri eru Valhöll í eigu Ingva Sveins Guðnasonar (d. 13.12.1991) og Soffíu Sigurðardóttur (d. 11.9.1968) og Sólheimar (eldri), hinum megin við götuna, í eigu Ingvars Jónssonar (d. 18.1.2003) og Elínborgar Árnadóttur (d. 7.4.1979). Höfðakot er næst okkur á myndinni en það áttu Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) og Halldóra Pétursdóttir (d. 23.12.1987). Yfir Höfðakot sér í Steinholt sem Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) átti með konu sinni Sigríði Frímannsdóttur (d. í júlí 1962). Lengst frá okkur er Gunnarshólmi sem oft var kallað Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir. Gunnarshólmi var í eigu Viggós Maríassonar (d.30.7.1973) og konu hans Ólafar Árnadóttur (d. 11.5.1973). Skálholt er stóra húsið fyrir miðri mynd en það áttu Engilbert Óskarsson (d. 13.9.1982) og Sigríður Helgadóttir (d.?). Nær okkur er Dvergasteinn í eigu Hafsteins Björnssonar Fossdal (d. 22.2.1962) og Svanbjargar M. Jósefsson (d. 31.3.2002) og Draumaland hægra megin við hann. Draumaland átti Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) með móður sinni Þórunni Samsonardóttur (d. 11.10.1986). Stóra húsið til hægri er Þórshamar. Efri hæðina áttu Kristján Sigurðsson (d. 3.11.1966) og Unnur Björnsdóttir (d. ?) en neðri hæðina áttu Baldur Árnason (d. 14.11.2009) og Esther Olsen (d. 17.4.2003).Til móts við Þórshamar er Bjarmaland í eigu Hrólfs Jónssonar (d. 1.8.1989) og Sigríðar Guðlaugsdóttur (d. 25.3.1996). Valhöll, Sólheimar, Gunnarshólmi, Höfðakot, Dvergasteinn og Draumaland eru öll löngu horfin.
Ólafur Bernódusson 807
Séra Fjölnir Ásbjörnsson flytur predikun í Hólaneskirkju 29. apríl 2007.
Guðmundur Guðnason241
Stóra Berg stóð sunnan við gömlu kirkjuna á Skagaströnd og austan við Iðavelli. Skúrbyggingin sem er sunnan á húsinu var kölluð Þinghúsið. Ef þú veist hvers vegna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason216
Þessi mynd er af síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd tekin haustið 1961. Skúrarnir hjá verksmiðjunni voru beitinga-, geymslu- og útgerðarskúrar í eigu ýmissa aðila.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri. Á myndinni er hópur fólks sem komið hefur í heimsókn til að skoða kirkjuna. Lengst til vinstri er Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) stendur aftan við hana. Í kirkjudyrum stendur séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og framan við hann er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 928
Guðmann Magnússon fær ráð hjá Önnu Margréti Sigurðardóttur kennara í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þetta hús er ekki til lengur. Húsið hét Rjúpnafell og stóð á sjávarbakkanum ca miðja vegu milli Hrafnár og Grundar. Guðberg Stefánsson frá Kambakoti byggði húsið upp úr 1950 og bjó þar til 1990 er hann fluttist í Sæborg. Guðberg var fæddur 27. júlí 1909 en dó 15. september 1991. Hann giftist aldrei og var barnlaus en lengi hafði hann hjá sér ráðskonu, Þóru Frímannsdóttur, sem var ekkja og hafði hún fósturson sinn, Eðvarð Ragnarsson, með sér í vistina. Sá Guðberg til þess að heimilið skorti aldrei það sem til þurfti og var þeim mæðginum afar góður. Manna á meðal gekk Guðberg undir nafninu Bergur sterki enda annálaður fyrir hreysti sína og þrek. Eru sagðar margar sögur af afrekum hans á þeim sviðum sem styrks og úthalds var krafist. Sjálfur hafi Bergur gaman af að segja sögur af styrk sínum og afrekum á sviði veiðiskapar en hann var veiðmaður af guð náð og vílaði ekki fyrir sér að ganga langar leiðir og í langan tíma til að komast að bráð sinni, sem oftast var rjúpa eða tófa. Bergur sterki var einfari að mörgu leyti og hnýtti ekki alltaf sína hnúta á sama hátt og samferðamennirnir en var tryggur vinur og trúr þeim verkum sem hann tók að sér.
Ólafur Bernódusson 804
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) (nær), Eygló Amelía Valdimarsdóttir (fjær), Cristina Silod Yecyec, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær) og Inga Rós Sævarsdóttir (fjær).
Guðmundur Guðnason827
María Bjarnadóttir (d.1984) á fermingardaginn sinn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 712
Aðfaranótt 17. febrúar 2015 kom upp eldur í plastbát sem stóð við suðurhlið hússins Grund. Báturinn brann nánast til ösku og eldurinn náði að fara í plastklæðningu hússins og brenna hana að hluta eins og sjá má á myndinni. Slökkvilið Skagastrandar náði að slökkva eldinn áður en verr fór. Grund var síðan lagfærð en hræinu af bátnum var hent.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 902
Tryggvi Fjölnisson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Ólafur Bernódusson 806
Hluti af kirkjukór Hólaneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Guðbjörg Guðbjörnsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Guðrún Sigurðardóttir (nær) óþekkt (fjær), óþekkt, Hjördís Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 986
Þessar ungu stúlkur eru að syngja í söngkeppninni "Gargið", á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 6. mars 2008. Stúlkurnar eru frá vinstri: Rakel Jensína Jónsdóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir og Halldóra Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 751
Brautarholt var byggt vestan í hólnum sem er á milli húsanna að Fellsbraut 9 og 13. Þarna bjó Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985) barnlaus með konu sinni Þuríði Jakobsdóttur (d.19.7.1965) og móður Elísabetu Ferdinantsdóttur (d.11.12.1958). Síðustu æviár sín var Ólafur al blindur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 908
Laufey Lind Ingibergsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 897
Ágúst Ingi Ágústsson kennari í Höfðaskóla við undirbúning kennslu 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Sunnan rok á Skagaströnd. Bak við fánastöngina sést húsið Ásbyrgi/Ásberg sem nú er löngu horfið.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hólabraut 7.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Fermingarmynd tekin í Hólaneskirkju (eldri) af fermingarárgangi 1969. Fremsta röð frá vinstri: Elsa Lára Sveinbjörnsdóttir Blöndal, Anna Guðmannsdóttir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Eygló Gunnarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir, Lára Guðmundsdóttir og Pálfríður Bjarnadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Grímkell Pálsson, Indriði Grímsson, Arelíus Viggósson, Jón Ingvar Valdimarsson og Stefán Kristinsson. </p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 907
Anton Þór Einarsson í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Guðmundur Guðnason815
Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Guðmundur Guðnason294
Bogabraut 21 byggðu hjónin Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Guðrún Hrólfsdóttir og bjuggu þar með börnum sínum þremur: Kristjáni Gunnari, Hirti Jónasi og Guðrúnu Ástu. Húsið var byggt á árunum 1976 - 1. júlí 1979 þegar fjölskyldan flutti inn.
Guðmundur Guðnason817
María Bjarnadóttir (d.1984) (til vinstri) og Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1168
Hluti kennara og starfsfólks Höfðaskóla slakar á eftir litlu jólin 19. desember 2003. Frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Dagbjört Bæringsdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
1
…
57
58
59
…
65
Leita í myndasafninu
Leita