Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Mannvirki
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Barnaból
Gamla Kirkjan á Skagaströnd
Höfðaskóli
Kirkjan á Skagaströnd
Minjasafn
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar
Slippurinn
Verksmiðja
3.849 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1245
Sigurður Aron Björnsson í kvenhlutverki á sviðinu í Fellsborg 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Sólvangur stendur út með sjónum rétt norðan við Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 941
Myndin af þessum bekk í Höfðaskóla var tekin 11. desember 2007. Nemendurnir á myndinni eru 1997 árgerð. Fremri röð frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015). Aftari röð frá vinstri: Aron Breki Hjartarson, Elvar Geir Ágústsson, Róbert Björn Ingvarsson, Gunnþór Ingi Kristjánsson og Kristján Örn Róbertsson.
larus039
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju til hægri þakkar Leifi Breiðfjörð glerlistamanni fyrir vel unnið verk en Leifur gerði listaverkið í baksýn sem prýðir austurglugga kirkjunnar sem altaristafla. Myndin var tekin 1. ágúst 1991.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 924
Sigurjón Elí Eiríksson í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 762
Bjarmanes í ljósaskiptunum 19. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 932
Alma Dröfn Vignisdóttir og Elvar Geir Ágústsson dunda sér við jólaföndur í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Höfðaskóli málaður. Bíllinn tilheyrði Þresti Líndal, sem var húsvörður í skólanum um árabil.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 918
Skemmtilegt í jólaföndri í Höfðaskóla - íþróttahúsinu - 10. desember 2007. Á myndinni eru, frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari (fjær), Sigurjón Elí Eiríksson (nær), Magnús Jens Magnússon, Sæþór Bragi Ágústsson, Elva Dröfn Árnadóttir kennari og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
IMG_3911
Myndin var tekin í Spákonufellskirkjugarði 19. desember 2008 af ljósaskreytingum í hluta garðsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 922
Heba Líf Jónsdóttir í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 739
Myndin var tekin við vígslu Bjarmness í júní 2004 eftir gagngera endurbyggingu. Maðurinn með stafinn er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) en hjá honum er bróðursonur hans Ólafur Bernódusson. Ingibergur Guðmundsson er fjórði frá vinstri og bróðir hans Lárus Ægir Guðmundsson er annar frá hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 994
Myndin var tekin 3. mars 2008. Þá fór fram Gargið í Fellsborg en það var söngvakeppni Höfðaskóla. Krakkarnir á myndinni eru í eldhúsinu þar að bíða eftir að röðin komi að þeim á sviðinu. Krakkarnir eru frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnson og Óskar Björnsson.
larus034
Helgi Gunnarsson smiður og verktaki ávarpar fólk í hófi sem haldið var í Fellsborg í október 1991 í tilefni af víglu Hólneskirkju sem hann byggði með sínum mönnum. Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar kirkjunnar er til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 919
Ásdís Adda Ólafsdóttir við vinnu sína sem kennari í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 749
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) stendur á pallinum við heimili sitt í Stórholti eða Bankastræti 3. Í húsinu voru og eru þrjár íbúðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 893
Ingimar Gísli Guðjónsson vinnur að viðgerðum á jóla-gluggaskrauti í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1240
Ívan Árni Róbertsson á síðustu æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla 23. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 843
Kvistur smíðaður á húsið á Fellsbraut 4 6. maí 2008. Á myndinni eru eigendurnir og hjónin, Einar Haukur Arason og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir með son sinn Einar Ara Einarsson á milli sín.
Ólafur Bernódusson 878
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá var sett upp sýning á ljósmyndum úr skólastarfi undangenginna ára og á gömlum aflögðum munum úr starfinu. Á myndinni eru tvær reynslumiklar skólakonur að skoða fyrsta fjölritann sem notaður var í skólanum. Konurnar eru Elínborg Jónsdóttir kennari til vinstri og Bergþóra Gísladóttir skólamálastjóri A-Hún til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1047
Frímann Lúðvíksson að mála gamla Hólanesfrystihúsið H-59 við Höfðann sem nú hýsir m.a. rannskóknastofur BioPol. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það sumarið 2016.
larus090
Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt til vinstri og Örnólfur Hall arkitekt til hægri framan við gömlu Hólaneskirkju. Þeir félagar hönnuðu nýja Hólaneskirkju sem reist var 3-4 metra vestan við þá gömlu. Myndin var tekin 10. október 1989 en nýja kirkjan var vígð 20. október 1991.
larus086
Örnólfur Hall arkitekt skoðar sköpunarverk sitt, Hólaneskirkju, í byggingu 10. október 1989.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1243
Myndin var tekin 23. mars 2012 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á henni er einn bekkur að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Birta Dögg Bessadóttir, Haraldur Guðjónsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Freydís Kristjánsdóttir og Kristmundur Baldvinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 927
Þau skemmtu sér vel í jólaföndrinu í Höfðaskóla 10. desember 2007. Frá vinstri: Róbert Björn Ingvarsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir systir hans og Sigurbjörg Birta Berndsen.
Ólafur Bernódusson 871
Myndin var tekin í desember 1999 á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnabóli. Á henni er Sesselja Guðmundsdóttir að aðstoða ?Aldísi Emblu Björnsdóttur? við baksturinn. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Akur - Hólabraut 13.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1194
Ingibjörg María Reynisdóttir spilar á blokkflautu á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
Guðmundur Guðnason296
Hólabraut 18 var byggð af Kára Sigurbirni Lárussyni. Hann bjó þar ásamt sambýliskonu sinni Kristínu Sigurðardóttur og syni hennar Sigurbirni Kristjánssyni. Eftir að þau fluttu úr húsinu bjuggu þar hjónin Rúnar Jóhannsson og Sesselja Guðmundsdóttir með dætrum sínum Hildi Ingu og Sigurrós Ósk. Húsið var byggt kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 987
Elva Dröfn Árnadóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla fylgjast með söngkeppni skólans, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1164
Nýjum vigtarskúr komið fyrir á sínum stað við hafnarvogina með aðstoð fjögurra lyftara 22. október 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1200
Herdís Jakobsdóttir til vinstri og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir til hægri á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 900
Svandís Lilja Hallgrímsdóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
larus095
Lóðin framan við Hólaneskirkju lagfærð 12. október 1991 fyrir vígslu kirkjunnar sem var 20. október 1991.
Guðmundur Guðnason847
Félagsheimilið Fellsborg í smíðum - orðið fokhelt. Til vinstri glittir í þakið á Sænska húsinu (Hólabraut 23).
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd sjást tvö elstu húsin á Skagaströnd. Þau hafa bæði verið gerð upp og færð í sitt upprunalega horf eftir að þessi mynd var tekin. Til vinstri er Bjarmanes en á miðri mynd er Árnes með viðbyggingum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 917
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari, Sigurður Aron Björnsson, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), Jóhannes Sigurpálsson (nær), Rebekka Laufey Sigurpálsdóttir, Aron Breki Hjartarson (nær), Sara Rut Fannarsdóttir (fjær), Ívan Árni Róbertsson (fjær) og Laufey Lind Ingibergsdóttir (nær).
larus031
Myndin var tekin í október 1991 í hófi í Fellsborg í tilefni af vígslu Hólaneskirkju. Til vinstri tekur Helgi Gunnarsson smiður og verktaki við blómum og þökkum frá Lárusi Ægi Guðmundssyni, formanni byggingrnefndar kirkjunnar, fyrir vel unnið verk.
larus041
Myndin var tekin 20. október 1991 við vígslu Hólaneskirkju. Biskupinn yfir Íslandi Herra Ólafur Skúlason stendur fyrir miðju altari en beggja vegna við hann eru byggingarnefndar - og sóknarnefnadarfólk kirkjunnar. Frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Fjóla Jónsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Sigurjón Guðbjartsson, biskupinn, Steindór Haraldsson meðhjálpari, Gylfi Sigurðsson, Gunnlaugur Sigmarsson, Guðbjörg Ólafsdóttir og Stefán Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 817
Skólabörn úr Höfðaskóla bíða þolinmóð í anddyri Fellsborgar á æfingu fyrir Elinborgardag 16. nóvember 2007. Standandi er Róbert Ingvarsson en sitjandi eru frá vinstri: tvö óþekkt, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Auðunn Árni Þrastarson, Tryggvi Fjölnisson ?, óþekktur, Eymundur Lórens Grétarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fjárhús og hlaða við Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin þegar byrjað var á að rífa húsin. Vörubíllinn er KT 677 í eigu Gunnars Helgasonar sem stendur við bílinn og stjórnar krananum á honum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 980
Ólafur Bernódusson kennari og göngustjóri afhendir Ágústi Inga Ágústssyni kennara viðurkenningarskjal fyrir að hafa gengið á topp Spákonufells 23. .maí 2008. Óskar Björnsson og Torfi Friðrik Magnason bíða eftir sínum skjölum. Fjallgangan var hluti af valkvæðum atriðum á útivistardögum í Höfðaskóla
larus093
Kór Hólaneskirkju flísalagður 12. október 1991 áður en altarinu er komið þar fyrir. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalögnina en hann er til vinstri á myndinni. Til hægri er óþekktur aðstoðarmaður hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 920
Elva Þórisdóttir kennari og Heba Líf Jónsdóttir nemandi í Höfðaskóla í jólaundirbúningi 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 991
Aldís Embla Björnsdóttir til vinstri og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d. 13.7.2015) til hægri syngja í söngkeppninni "Gargið" hjá Höfðaskóla 6. mars 2008. Andlitsmálningin var greinilega gerð með söngkonuna Heru Hjartardóttur í huga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 926
Páll Halldórsson sýnir stoltur jólaskrautið sitt, sem hann bjó til í Höfðaskóla á jólaföndurdegi 10. desember 2007. Stúlkan í baksýn er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 850
Félagar í Lionsklúbbi Skagastrandar máluðu Hólaneskirkju í september 2007. Málararnir eru frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson, Halldór Gunnar Ólafsson, Magnús B. Jónsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Adolf H. Berndsen, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Guðjón Guðjónsson og séra Fjölnir Ásbjörnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1162
Gamli vigtarskúrinn fjarlægður til að rýma fyrir nýjum, stærri og betri. Sigurbjörn Björgvinsson hífir, Rúnar Kristjánsson og Hallbjörn Björnsson passa upp á rafmagnskaplana en maðurinn við hornið á skúrnum er óþekktur. Myndin var tekin 24. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 936
Birgitta Rut Bjarnadóttir í Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 933
Jólakortagerð í Höfðskóla - íþróttahúsi - 11. desember 2007. Nemendurnir á myndinni eru, frá vinstri: Anton Þór Einarsson, Hallbjörg Jónsdóttir (nær), óþekkt (fær) og Sonja Sif Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 947
Dansað kringum jólatréð á litlu jólum Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum. Allir taka þátt í söng og hreyfileikjum, sem tilheyra jólaböllum, og skemmta sér vel í sparifötunum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1193
Ásdís Birta Árnadóttir syngur einsöng með kirkjukór Hólaneskirkju á aðventukvöldi 5. desember 2010. Fyrir aftan hana má sjá, talið frá okkur: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Sigurjón Guðbjartsson og til hægri, Halldór Gunnar Ólafsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Sigríður Gestsdóttir samferða Dómhildi Jónsdóttur (d. 18.10.2012) (til hægri) að ganga upp kirkjutröppurnar heim að gömlu Hólaneskirkju. Milli þeirra sér í Sólvelli.
Ólafur Bernódusson 870
Myndin var tekin á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból í desember 1999. Á myndinni eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Helga Ólína Aradóttir (fjær) á milli þeirra má greina Höllu Björk Víðisdóttur, Ólöf Hafþórsdóttir, Hafþór Freyr Sigmundsson, Saga Lind Víðisdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Barnið næst okkur á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 951
Á myndinni , sem tekin var á litlu jólum í Höfðakóla 19. desember 2007, er Heiðrún Tryggvadóttir kennari lengst til vinstri með umsjónarbekknum sínum. Frá vinstri: Heiðrún, Tryggvi Fjölnisson sonur hennar, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir (fjær), Freyja Einarsdóttir (nær), Andrea Kristjánsdóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin yfir útbæinn. Lengst til vinstri sér ofan á þakið á Höfðabergi og í örlítið horn af Steinholti. Höfðakot er á miðri mynd með viðbyggðum fjárhúsum og hlöðu. Yfir Höfðakot má sjá Stórholt og til hægri við það eru Kárastaðir og hornið á Flankastöðum. Yfir þakið á Höfðabergi má aftur á móti sjá, frá vinstri: Skálholt, Þórshamar, Þórsmörk, Héðinshöfða, Garð, Norður Skála, Skátaskálann og til vinstri við hann eru Braggarnir tveir og hús sem nú er kallað Bjarnaborg. Lengra frá er gamli beitningaskúrinn - Aðalbjargarskúrinn. Gamla Kaupfélagið ber í verksmiðjuna en til hægri við Kaupfélagið eru Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið), sundlaugin og frystihúsið. Mörg þessara húsa eru nú horfin en ný hafa risið á sömu stöðum í sumum tilvikum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið gert upp úr 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1163
22. október 2010 var nýi vigtarskúrinn fluttur frá verkstæði Helga Gunnarssonar, þar sem hann var smíðaður, niður að hafnarvigtinni þar sem honum var svo komið fyrir. Helgi Gunnarsson gengur á undan bílnum til að vara vegfarendur við plássfrekum flutningi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1264
Myndin var tekin 29. mars 2012 í Hólaneskirkju. Á henni eru leikskólabörn úr Barnabóli að syngja fyrir kirkjugesti. Lengst til vinstri er Guðlaug Grétarsdóttir leikskólakennari en börnin eru, í fremstu röð frá vinstri: Logi Hrannar Jóhannsson, Sóley Sif Jónsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir og Zelia Kasper. Næst fremsta röð frá vinstri: ?? Guðjónsson, Ásgeir Sigmar Björnsson, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Sigríður Kristín Guðmundsdóttir, Valdimar Viggó Baldursson og Snæbjörn Elfar Arnarsson. Þriðja röð frá vinstri: Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir, óþekktur, Gunnar Andri Elvarsson og tvær óþekktar stúlkur. Aftasta röð frá vinstri: Óðinn Örn Gunnarsson, óþekkt, Stefanía Hrund Stefánsdóttir, Ísabella Líf Tryggvadóttir, Erla Mjöll Daðadóttir og Hugrún Antonía Sigurðardóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsasmlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 929
Guðmann Einar Magnússon til vinstri og Ísak Karl Tryggvason til hægri á heimleið úr Höfðaskóla með jólaföndrið sitt 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 937
Myndin var tekin 11. desember 2007 Höfðaskóla - íþróttahúsi - á jólaföndurdegi. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir kennari að hjálpa nokkrum nemendum að leggja síðustu hönd á gripi sína. Stúlkan með gleraugun er Birta Dögg Bessadóttir og strákurinn með gleraugun er Unnar Leví Sigurbjörnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
58
59
60
…
65
Leita í myndasafninu
Leita